Morgunblaðið - 18.02.1988, Side 5

Morgunblaðið - 18.02.1988, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, VDDSKIPn/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988 B 5 P&Ó — Pétur Halldórsson frá P&Ó sést hér með Gjallar- homið fyrir óvenjulegustu aug- lýsinguna sem Vilhjálmur Egils- son hjá Verslunarráði afhenti honum en P&Ó fékk einnig verð- laun fyrir athyglisverðasta dreifíritið. gátu séð um hvað valið stóð — nema auðvitað útvarpsauglýsingunum sem í þess stað dundu í kraftmiklu hátalarakerfí Broadway. Hið eina sem á vantaði var að verðlaunaha- famir táruðust í pontu um leið og þeir þökkuðu vinum og vandamönn- um, samstarfsmönnum og öðrum þvílíkum. Það kemur kannski næst — og óneitanlega var auglýsinga- hátíðin nú með ólíkt fagmannlegri blæ heldur en í fyrra - sem var reyndar hin fyrsta sinnar tegundar. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, var heiðurgestur hátíðarinn- ar og hann notaði tækifærið f ávarpi sínu til hátíðarinnar til að líkja aug- lýsingum við kynlífíð og vitnaði máli sínu tii stuðnings í Marx — reyndar Groucho Marx. Þessi Marx- bróðir var spurður að því af blaða- manni hvað honum þætti um kynlíf- ið og samkvæmt viðskiptaráðherra svaraði Marx: „I think it’s here to stay“. Undir þetta má taka. Miðað við stemminguna og spennuna sem ríki á Broadway sl. föstudagskvöld, þá er auglýsingahátíð ímarks áreiðan- lega komin til að vera. BVS Nýtt „Símaskrá “ YRKIR hefur nú sett á markað hér á landi litla vasatölvu á stærð við krítarkort sem ætla má að ýmsum þyki nýstárleg, þvi að hún er f senn lítil vasareiknivél og eins konar rafeindaminnisbók — fyrir mannanöfn, símanúmer og stutt minnisatriði fyrir eigandann. Framleiðandinn er Intemational Telesis. Tækið kallast á íslensku „Símaskrá- in“ og minnið er alls 2 k eða 2024 einingar. Það getur þvi geymt allt upp í 150 nöfn og númer. Fast innra minni þess tekur á móti upplýsingum í stafrófs- eða töluröð. Forrit tölv- unnar tekur á móti og geymir upplýs- ingar, raðar þeim upp í hvaða röð sem þær kunna að berast og kallar þær síðan fram eftir stafrænni að- ferð í hvert skipti. Lengd upplýsinga takmarkast aðeins af heildarminn- inu. Algengast er að „Símaskráin" sé_ notuð til að geyma nöfn og símanúm- er. Efri línan á skjá tölvunnar tekur bæði við bókstöfum og tölum en sú neðri einungis við tölum. í efri línuna má því rita inn nöfn, heimilisföng, minnisatriði og þess háttar en í þá neðri símanúmer, númer á banka- bókum og fleira í þeim dúr. Nákvæmur leiðarvísir á íslensku fylgir tölvunni en söluaðilar hér á landi eru Radíóbúðin, Tónborg í Kópavogi og Bókabúð Böðvars í Hafnarfirði. Hugbúnaður Rafreiknir setur PlanPerfectá markað RAFREIKNIR hf., umboðsaðili WordPerfect Corp. á íslandi, er þessa dagana að setja á markað nýtt reikniforrit á íslensku, Plan- Perfect töflureikninn. Nýja for- ritið er systurforrit WordPerfect ritvinnsluforritsins og á að henta til alhliða útreikninga og gagna- vinnslu. Forritinu fylgir 500 bls. handbók sem einnig er á íslensku. í hand- bókinni og á sérstökum dæmadiskl- ingi eru mörg dæmi sem unnt er að nota sem grunn að nýjum reikni- líkönum. Að sögn Lúðvíks Friðriks- sonar hjá Rafreikni er nýja forritið með fullkomnustu töflureiknum á markaðinum um þessar mundir og eitt viðamesta forrit sem þýtt hefur verið á íslensku til þessa. Hann segir PlanPerfect njóta miklilla vin- sælda í Bandaríkjunum, sérstaklega þeim er nota WordPerfect ritvinnsl- una enda fjöldi skipana hinn sami í báðum forritunum. Hann segir einnig PlanPerfect vinsælasta töflu- reikninn í Noregi og í mikilli út- breiðslu í öðrum Evrópulöndum. Meðal möguleika PlanPerfect nefnir Lúðvík allar algengár reikn- iaðgerðir, þám. yfír 80 reikniföll, öflugar gagnasafnsaðgerðir,, gröf, forritunarmöguleika og síðast en ekki síst hafí PlanPerfect sömu út- prentunarmöguleika og Word- Perfect. Hægt er að flytja gögn úr Námskeið ýmsum öðrum forritum, svo sem deBase, Lotus 1-2-3, Multiplani ofl. og þar sem PlanPerfect er algjör- lega samhæft WordPerfect er auð- ,velt að flytja gögn þar á milli. Lúðvík segir unnt að nota töflu- reika við útreikninga á einföldustu dæmum upp í hin flóknustu en auðveldast sé að byija á einföldu dæmi og bæta síðan smám saman við. Töflureiknir skapi umhverfí þar sem notandinn býr til sitt eigið for- rit. Vilji notandinn breyta einhveiju sé það auðvelt og einfalda samlagn- ingu sé unnt að þróa á stuttum tíma upp í fullkomið reiknilíkan með valmyndum og skýringum. Sem dæmi um notkun PlanPerfect nefíi- ir Lúðvík flárfestingafyrirtæki sem notar forritið við úrtreikninga á öll- um lánum sínum, smásöluverslanir noti það við ýmis konar gagna- vinnslu og útreikninga og verka- lýðsfélög reikni með því út launa- taxta og vísitölubreytingar. „Við hjá Rafreikni bindum miklar vonir við PlanPerfect en þetta er aðeins áfangi í áframhaldandi þró- un núverandi og nýrra forrita," seg- ir Lúðvík. Á næstunni er að vænta frá Rafreikni nýrrar útgáfu af WordPerfect ritvinnslunni (útgáfa 4.2) fyrir einmenningstölvur. Um leið verður WordPerfect einnig fá- anlegt á Digital VAX-tölvur og í þróun er PlanPerfect fyrir þær tölv- ur. 26 fyrírtæki afla þekking ará sviði vöruþróunar Vöniþróunarátak Iðntæknistofn- unar íslands stóð fyrir námskeiði í nýsköpun dagana 31. janúar til 2. febrúar á Hótel Borgamesi. Þátt- takendur voru forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem eru með í vöruþró- unarátakinu. 32 þátttakendur frá 26 fyrirtækjum sóttu námskeiðið. Markmið námskeiðsins var að kynna þátttakendum vöruþróunar- ferilinn, frá því að hugmynd fæðist þar til markaðssetningu er náð. Lögð var áhersla á greiningarað- ferðir við almenna stefnumótun, hugmyndaöflun og val hugmynda. Námskeiðið byggðist á fyrirlestrum og ýmsum verkefnum sem þátttak- endur leystu. Jafnframt var Davíð Sch. Thorsteinsson framkvæmda- stjóri Sn\jörlíkis og Sólar hf. feng- inn til að lýsa reynslu sinni við vöru- þróun og var gerður góður rómur að innleggi hans til námskeiðsins, að því er fram kemur í frétt frá Iðntæknistofnun. Fyrirtækin sem eru þátttakendur í átakinu eru nú öll komin af stað með sín vöruþróunarverkefni, sem flest munu standa yfir næstu tvö árin. Iðnlánasjóður hefur samþykkt allar umsóknir þátttakenda um áhættulán og þar með skapað grundvöll til þróttmikils starfs. En Iðnlánasjóðurinn stendur auk þess undir kostnaði við stjóm átaksins. rHIXMRÍT] Kaupum og seljum hlutabréf _________ staðgreiðslu Hlutafélag Kaupgcngi* Sölugengi* Jöfnun ’87 Aimennar tryggingar hf. 1,24 1,30 20,0% Eimskipafélag íslands hf. 3,81 4,00 50,0% Flugleiðir hf. 2,60 2,73 200,0% Hampiðjan hf. 1,32 1,38 50,0% Iðnaðarbankinn hf. 1,48 1,55 11,2% Verslunarbankinn hf. 1,31 1,36 15,2% Útgerðarfélag Akureyringa hf. 1,65 1,74 100,0% Skagstrendingur hf. 1,80 1,89 100,0% Tollvörugeymslan hf. i,ið 1,16 30% Ásldlinn er réttur til að talunarka þá fjárhæð sem keypt er fyrir. * Margfeldisstuðoll á nafnverði að lokinni ákvörðun um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Hlutabréfamarkaðurinn hf. Skólavördustíg 12, 3.h. Reykjavík. Sími 21677 Innheimta vanskilaskulda erlendis Bjóðum milligöngu við innheimtu vanskilaskulda erlendis. Útvegum credit upplýsingar frá flestum löndum. Frekari upplýsingar veitir Katrín Guðjónsdóttir. Lögmenn, Borgartúni 33, sími 91-29888. Telex 2369, lcelex. :shannon: :datastor: Allt á sínum staö Ef einhver sérstök vörziuvandamál þarf aö leysa biðjum viö víðkomandi góöfúslega aö hafa samband viö okkur sem aHra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig SHWHWOH skjalaskápur hefur ,,allt á sínum staö". Útsölustaðir: Reyk|*vík; Ólalur Glslason & Co. h/f. Mál og mennlng, Slðumúla 7-9. Kópavogun Glsli J. Johnsen. Keflevík; Bókabúð Keflavlkur. Akranes; Bókaverslun Andresar Nlelssonar h/f. Isafjörðun Bókaverslun Jónasar Tómassonar. Akureyrl; Bókval, bóka - og ritfangaverslun Húsavik; Bókaverslun Þórarlns Stetánssonar. Esklfjörðun Ellas Guónason. verslun. Egllsstaðir; Ðókabúðin Hlóóum. ÖIAFIIR ©ISIASOW & CO. Hí. SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800 VÖRUSÝNINGAR '88 1. ISPO - Munchen - 25.-28. febrúar. Alþjóðleg sýning á íþróttavörum og fatnaði. 2. STADINDEX - London - 5.-9. mars. Ritfangasýning. 3. AREA PELLE MODA - Mllano - 4.-8. mars. ítölsk sýning á leðurvörum og skófatnaði. 4. GLASSEX - Birmlngham - 6.-9. mars. Glertæknisýning. 5. EXPO SHOP - Blrmingham - 6.-9. mars. Innréttingar o.fl. fyrir verslanir. 6. INT. HARDVARE FAIR - Köln - 6.-9. mars. Alþjóðleg járnvörusýning, verkfœri o.fl. 7. SJÖEN FOR ALLE - Oslo - 11.-20. mars Alþjóðleg báta- og bátavélasýning. 8. CHILDREN AND YOUNG - Köln - 18.-20. mars. Alþjóðleg sýning á vörum og fatnaði fyrir böm og unglinga. Brottför 17. mars. 9. MODE-WOCHE - Munchen - 27.-30. mars. Alþjóðleg sýning á tískufatnaði. 10. NOR-PLAST - Oslo - 11.-14. apríl. Sýning á plastiðnaði. Við höfum skipulagt ferðir á sýningarfram eftiröllu ári. Framan- greindar sýningar eru aðeins sýnishorn. Hafið samband við okkur eins fljótt og auðið er, ef einhverjar sýningar freista ykkar. Við munum skipuleggja ferð fyrir ykkur á sýningar á Norðurlöndum, Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi, Italíu, Bandaríkjunum og Asíu. Hringdu til okkar og fáðu bæklinginn sendan í pósti. BFERÐA.. Ce+rtxcd MIÐSTOÐIIM Tcerne AOALSTRÆTI 9 - REYKJAVlK ■ S. 2 81 33

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.