Morgunblaðið - 18.02.1988, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.02.1988, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, VDDSHPn/JaVINNULÍr FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988 Hótelrekstur Kaldur veruleikinn tekur viðafbjörtum draumsýnum GÍFURLEGIK fjárhagserfiðleikar eru nú sagðir steðja að tveimur nýjustu hótelunum, það er Hótel Örk og Holiday Inn. Skuldir Helga Þórs Jónssonar, aðaleiganda Hótel Arkar, eru sagðar nærri 400 miiy. kr., enda þótt það sé ekki staðfest. Það er því ekki að ófyrir- synju, að fram hafa komið miklar efasemdir af hálfu Byggðastofnun- ar um endurgreiðslugetu á nýju láni tíl hans. Skuldirnar eru jafn- vel taldar það miklar, að 100% nýting á gistingu í Hótel Örk allt árið myndi ekki duga til að standa undir því sem þarf, það er rekstr- arkostnaði auk afborgana lána og vaxtagreiðslna. Guðbjörn Guðjónsson, aðal hluthafinn i samnefndu fyrirtæki, sem er eigandi Holiday Inn, hefur griþið til þess ráðs að selja hlutabréf fyrir allt að 150 millj. kr. ÖUu þessu fé á að verja til greiðslu skulda og til greiðslu á framkvæmdum við þann hluta hótelbyggingarinn- ar, sem enn er ólokið. Óvíst er hvort þetta verði Guðbirni til bjarg- ar. Heyrzt hefur, þótt ekki hafi það fengizt staðfest, að skuldir hótels hans séu ekki undir 400 millj. kr. eða svipaðar og hjá Helga Þór Jónssyni. Víst er, að skuldimar em miklar, enda þótt vel geti verið, að enn meiri eignir komi á móti. Hvemig stendur þá á því, að svona er komið fyrir rekstri þessara hótela, sem vissulega eru bæði mjög glæsileg og virðast geta uppfyllt ítrustu kröfur um alla þjónustu á ofanverðri 20. öld? Skýringa er þörf, því að fyrir aðeins tveimur árum var það áberandi í opinberri umræðu, hve mikil framtíð væri í ferðaþjónustu hér á landi og að þörf væri á fleiri hótelum til að efla hana. Það er eins og þessi umræða hafí orðið til að kynda undir bjart- sýni og ýta undir stórauknar hótel- framkvæmdir. Nýbyggingunni að Hótel Sögu var þá reyndar rétt að ljúka, en hún fól í sér stækkun hótelrýmis þar um rúm 100% eða úr 106 herbergjum í 219. Þá voru einnig uppi áform um að stækka Hótel Esju um meira en helming eða úr rúml. 130 herbergjum í nær 300 herbergja hótel. Á vegum Eim- skipafélagsins komu hingað til lands sérfræðingar frá erlendu ráð- gjafafyrirtæki, sem sérhæfir sig í arðsemisútreikningum á hótelum og öðrum ferðamannastöðum. Markmiðið hjá þeim var að kanna, hvort Eimskip gæti komið hér upp hóteli m. a. handa kaupsýslumönn- um, en það hafði í og með einnig verið tilgangurinn með stækkun Hótel Sögu að koma til móts við kröfur þessara manna. Þeir ferðast mikið, þurfa að hafa góða vinnuað- stöðu og líta á það sem sjálfsögð starfsréttindi að búa vel á meðan. Um svipað leyti var Helgi Þór Jónsson að hefla starfsemi Hótel Arkar, sem raunar mun hafa verið hugsað sem heilsuhótel frá upp- hafí. Þá var Guðbjöm Guðjónsson byijaður á samningum við erlenda aðila, sem lauk með því að hann keypti leyfí frá hótelhringnum Holiday Inn í Bandaríkjunum til þess að byggja hótel í samræmi við þeirra fyrirmyndir og kröfur og keypti sig þá um leið inn á þeirra bókunarkerfi. Ýmsir fleiri voru þá líka með áætlanir á pijónunum um ný hótel. Jón Ragnarsson, sem rekur Þórscafe, var þá búinn að fá lóð í nýja miðbænum undir hótel, sem átti að heita Hótel Reykjavík og loks kom Ólafur Laufdal til með Hótel ísland. Eftir að ákveðið var að stækka Hótel Sögu, voru það þannig þrír aðilar, sem létu til skarar skríða og reistu nýjar stórar hótelbygging- ar á Reykjavíkursvæðinu, ef Hótel Örk er þar með talin. Framboðið á hótelrými á Reykjavíkursvæðinu jókst að sjálfsögðu mjög með þessu. Árið 1986 voru gistiherbergi á þessu svæði 819 á árshótelum, það er hótelum, sem starfa allt árið. Á síðasta ári bættust við 113 herbergi á Hótel Sögu og 100 herbergi á Holyday Inn. Þetta er um 25% aukning á einu ári. Þessi aukning verður enn meiri, er Hótel ísland verður tekið í notkun á næsta ári. Ekki er vitað til þess, að neinar teljandi markaðsathuganir hafí átt sér stað fyrirfram fyrir Hótel Örk, þannig að þar var rennt býsna blint í sjóinn varðandi rekstrarforsendur. Guðbjöm Gujónsson í Holiday Inn mun hafa vonazt eftir talsverðri aðsókn frá Holiday Inn hringnum í Bandaríkjunum, en það _ hefur brugðizt að langmestu leyti. Ástæð- an er sú, að í Bandaríkjunum bygg- ist þetta kerfí á því að þar er þetta þétt hótelnet fyrir fólk, sem ferðast milli hótela, sem ekki er of langt í milli. í Vestur- Evrópu aftur á móti hafa það einkum verið ný ráð- stefnu- og fundahótel, sem tengzt hafa Holiday Inn hringnum í Bandaríkjunum í von um aðsókn þaðan, enda eftir nokkru að slægj- ast, þar sem þetta er stærsta hót- elkeðja í heimi. Hótelbyggingu Flugleiða frestað Það hefur ekki verið kunngert, hver niðurstaðan var hjá ráðgjafa- fyrirtæki því, sem Eimskip leitaði til. Vitað er þó, að þar er hótel- hugmyndin til alvarlegrar athugun- ar enn, enda þótt ákvörðun hafí ekki verið tekin. í desember sl. var það hins vegar ákveðið á stjómar- fundi í Flugleiðum að fresta stækk- uninni á Hótel Esju, en við stjómar- borðið þar sitja einmitt sumir þeirra sömu manna og eiga sæti í stjóm Eimskips. Álitið var, að brýnni verkefni lægju fyrir hjá Flugleiðum en að fara út í frekari hótelbygging- ar. Þá var það komið í ljós, hvar Hótel Örk og Holiday Inn stóðu. Ekki er hins vegar unnt að segja, að Hótel Saga eigi í erfíðleikum. Þar hefur orðið veruleg aukning, en samt ekki enn tekizt að ná þeirri hlutfallsnýtingu, sem Hótel Saga hafði áður. Skýringin kann þó vel að vera sú, að þegar herbergjafram- boð eykzt skyndilega mjög mikið hjá einu hóteli, þá taki það nokkum tíma að ná sömu nýtingu aftur, hafí hún verið góð fyrir breyting- una. Nú er ákaft unnið að því hjá Hótel Sögu að komast inn í sölunet erlendis, sem selja hingað fyrir- tækjafundi, verðlaunaferðir o. fl. Enda þótt talsverð aukning hafí orðið á ferðamönnum á síðustu árum, þá er þessi aukning vel að merkja fyrst og fremst á þeim árstíma, sem mest er ásetinn fyrir, það er á sumrin þannig að það hafa ef til vill verið hótelin utan Reykjavíkur, sem einkum hafa no- tið góðs af þessarí aukningu. Ferðamönnum hefur líka fjölgað að vetri til, en sú aukning hefur m. a. byggzt á ódýrum sértilboðum Flugleiða, sem reynt hafa að fá farþega í tómu sætin t. d. í janúar og gefa þá nánast gistinguna. Þess- ar ferðir hafa stundum verið kallað- ar - „lopaferðir", þar sem þær eru miðaðar við fólk, sem hingað vill koma til að kaupa íslenzkar ullar- vörur. Þessar ferðir fengust fyrir 299 dollara í fyrra með gistingu og mat (Innan við 12.000 ísl. kr.). Aukning ferðamannastraumsins er ennfremur hæpinn mælikvarði fyrir hótelreksturinn í landinu. Þessi aukning - að meðaltali um 14% á ári undanfarin þijú ár - er mæld I fjölda ferðamanna. Hún er ekki mæld í því, hvað ferðamennim- ir skilja eftir sig í tekjur fyrir ferða- þjónustuna t. d. með fjölda gistin- átta. Það er þó þessi aukning ferða- manna, sem nýju hótelin eru að gera út á og það af gífurlegri bjart- sýni. Svo kemur það í ljós, þegar á að fara að selja svokallaðar blokkir til stórra erlendra ferðaskrifstofa með reglulegar ferðir til íslands, að aukningin hjá þeim er ekki nema í meðallagi, en framboð á hótelrými hér hefur stóraukizt, þannig að nú standa menn frammi fyrir því vandamáli að þurfa að fylla hótelin. Ört harðnandi samkeppni Þá em eðlileg markaðsviðbrögð þau áð lækka verðið til þess að tryggja sér einhveija gistingu. Holiday Inn mun m. a. hafa gripið til þessa ráðs til þess að ná við- skiptavinum frá Hótel Sögu. Þetta þýðir að mikil og harðnandi sani- keppni er nú hafín innbyrðis milli hóteianna um gestina. Þessi barátta stafar að sjálfsögðu af því, að mark- aðurinn hér er of lítill og hann er of smár, þrátt fyrir það að sú stór- fellda hótelaukning, sem til stóð, hefur ekki komizt í framkvæmd. Þar er átt við Hótel ísland, stækkun Hótel Esju, hótel Eimskipafélagsins og svo önnur smærri hótel, sem áform vom uppi um. Þannig mun það hafa verið ætlun þeirra, sem keyptu gamla verzlunarskólahúsið, að breyta því í hótel, þar sem væm eingöngu litlar íbúðir. Gistiheimil- um á höfuðborgarsvæðinu hefur hins vegar fjölgað og gisting í heimahúsum hefur einnig aukizt. Fjárfestingin í hótelum er það mikil, að það þarf talsvert mikla nýtingu til þess að borga hana. Hótelbyggingar em af þessum sök- um langtíma fyrirtæki og óvíða á færi einstaklinga að ráðast í þau. Erlendis er þróunin sú, að hótelin spretta upp sem hluti af keðju með mjög öflugri sameiginlegri mark- aðssetningu í þeim tilgangi að ná til viðskjptavinanna. Einstaklings- hótelin em hins vegar gjaman lítil og miðast þá oft við það, að ein og sama fjölskyldan starfræki þau. Það fyrirkomulag þekkist t. d. enn víða í Evrópu, þar sem það á sér langa hefð. Eðlilegasta leiðin hér á landi hefði samkvæmt þessu átt að verða sú, að byggð væm stór hótel út frá þeim aðilum, sem fyrir vom, t. d. eins og þegar er orðið með stækkun Hótel Sögu eða að Flugleiðir stækk- uðu Hótel Esju eða að Eimskip, sem stór hluthafi í Flugleiðum, byggði stórt hótel. Einstaklingar, sem byggja stór hótel, hljóta að setja alla fjármuni sína í bygginguna sjálfa og búnað hennar, en standa síðan höllum fæti strax í byijun í markaðssetn- ingunni, sem verður æ dýrari. Slíkir aðilar ráða illa við það að leggja kannski mörg hundmð þúsund kr. á mánuði í það að auglýsa sig og afla sér markaða, en það er kostn- aður, sem oft byijar ekki að skila sér til baka fyrr en eftir 2-3 ár. Sá orðrómur hefur verið á kreiki, að tvísýnt sé um rekstur bæði Holiday Inn og Hótel Örk í núver- andi mynd. Ljóst er, að þessi hótel hverfa ekki, því að engin tekur þau með sér burt. Þau verða því rekin áfram sem hótel. Því hefur stundum verið haldið fram f hálfkæringi, að hótel þyrftu að byija á því að fara þrisvar sinnum á hausinn. Þá væri búið að afskrifa það mikið af fjár- magninu, sem í þau hefði farið, að kominn væri rekstrargmndvöllur fyrir þau. Þeir sem tæpt standa í þessum rekstri, horfa að sjálfsögðu von- björtum augum til sumarsins í þeirri trú, að áframhaldandi aukning er- lendra ferðamanna eigi eftir að bjarga öllu. Miðað við þá verð- breytingu, sem orðið hefur, er samt hæpið að búast við mikilli Ijölgun ferðamanna. íslandsferðir hafa hækkað mikið í verði frá í fyrra vegna verðbólgunnar hér innan- lands samtfmis því, sem gengi á erlendum myntum hefur breytzt aðeins óvemlega til hækkunar. Bandaríkjadollar, mikilvægasti er- lendi gjaldmiðillinn, hefur jafnvel lækkað gagnvart krónunni síðan í fyrra. Salan á Islandsferðum er nú í fullum gangi erlendis. Viðbrögð þar að svo komnu em ýmist á þá lund, að salan lofí góðu eða enn sé of snemmt að spá nokkm um þær. Miklar sumarpantanir hjá hótelun- um segja ekki heldur nema hálfa sögu. Nú gerist það á hveiju ári, að það koma nýir ferðaaðilar til

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.