Morgunblaðið - 18.02.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKlPll AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988
B 11
■ —
beita gildandi lögum til að koma í
veg fyrir slíkt en ekki setja um það
sérstök lög. Vandamálið á íslenskum
íjármagnsmarkaði nú er ekki skort-
ur á lögum heldur skortur á fram-
kvæmd gildandi laga. Vissulega geta
bættar hagtölur leitt til betri hag-
stjómar en að bindiskylda á verð-
bréfasjóði í því sambandi skipti ein-
hveiju máli er aðeins fyrirsláttur og
kemur best fram í því að hvergi
erlendis er slíkt fyrir hendi hvað
þessa sjóði varðar."
Lögskylduð nafnskráning
vafasöm
Gunnar Helgi Hálfdánarson beinir
næst spjótum sínum að því ákvæði
væntanlegrar löggjöfar um verð-
bréfasjóðina að öll bréf skuli eftir-
leiðis skráð á nafn. „Rökin fyrir lög-
skyldaðri nafnskráningu verðbréfa
eru aðallega tvenns konar, þ.e. ann-
ars vegar bætt skattaeftirlit til að
draga úr möguleikum á undandrætti
frá- skatti og hins vegar neytenda-
vemd. í fyrra tilfellinu er ljóst að
þetta eftirlit er ekki mögulegt nema
með stórkostlegri tæknivæðingu,
sem varla er í sjónmáli bæði af
tæknilegum og kostnaðarlegum
ástæðum. Hin rökin um aukna neyt-
endavemd em einnig haldlítil þegar
• nánar er að gætt, vegna þess að
breyta má handhafabréfum í nafn-
bréf að ósk eigenda án afskipta lög-
gjafans og næst þá umrædd vemd
án þess að til þurfí að koma sérstök
lagaákvæði um þetta efni. Rökrétt-
ast er að auka neytendavernd með
þvi að gera strangar hæfniskröfur
til verðbréfamiðlara.
En það em ýmiss rök á móti nafn-
skráningu og það er vafalaust skýr-
ingin á því að nafnskráning er al-
mennt ekki lögskylduð erlendis.
Frændur okkar Danir og Evrópu-
bandalagið hefur tam. ekki séð
ástæðu til að amast við handahafa-
bréfunum. Helstu rökin gegn lög-
skyldaðri nafnskráningu em til
dæmis aukin réttaróvissa vegna þess
að með vaxandi verðbréfamarkaði
er ljóst að bréfín skipta sífellt örar
um hendur og því mun afdráttarlaus
skylda til naftiskráningar leiða til
lengri ffamsalsraðar. Það gétur haft
í för með sér aukna óvissu eða
áhættu fyrir eigendur slíkra bréfa,
svo og óvissu um ábyrgð verðbréfa-
miðlara.
í öðm lagi er líklegt að nafnskrán-
ing leiði til þess eins að viðskiptavin-
um á skúmaskotamarkaðinum fjölgi,
þar sem víxlar og tékkar verða ekki
háðir sömu kröfum um nafnskrán-
ingu. Jafnframt yrðu vafalaust
áfram á ferðinni á sama vettvangi
skuldabréf með ólokuðum framsöl-
um, sem haldið yrði opnum frá upp-
hafí til enda. Þannig kæmu senni-
lega þrengri starfsskilyrði á hinum
almenna verðbréfamarkaði þeim
helst til góða sem síst skyldi. Nafn-
skráningin myndi einnig auk réttaró-
vissunnar hafa í för með sér aukna
vinnu og kostnað vegna sífelldra
framsala og þar með aukin rekstrar-
kostnað er bitna myndi á hinum al-
menna viðskiptavini. Loks er ljóst
að í litlu þjóðfélagi og á smáum fjár-
magnsmarkaði getur það verið mjög
óheppilegt fyrir stóra seljendur
bréfa, fyrirtæki, stofnanir eða sjóði,
að almennt sé vitað hver sé að selja
og hversu mikið, sérstaklega ef selja
þarf á stuttum tíma. Að sama skapi
getur nafnskráningin verið heppileg
fyrir fáa stóra kaupendur.
Að öllu athuguðu sýnist mér því
að rökin fyrir lögskyldaðri nafn-
skráningu séu heldur rýr og hún
gæti á sumum sviðum jafnvel valdið
meira tjóni en hún gerir gagn.“
Lausafjárkvöð
verðbréfasjóða
Hugmyndir Jón Sigurðssonar, við-
skiptaráðherra, um að verðbréfa-
sjóðimir skuli geta sýnt fram á
ákveðið lausaíjárhlutfall er Gunnari
Helga einnig þymir f augum.
„Lausafjárkvöð eins og hann nefnir
er heldur ekki almennt tíðkuð í lög-
um erlendis gagnvart verðbréfasjóð-
um heldur er þeim t.d. gert að upp-
lýsa um stefnumörkun og markmið,
um fjárfestingar og innlausn. Það
gefur hins vegar auga leið að af
samkeppnisástæðum einum saman
reyna þessir sjóðir að búa þannig
um hnútana að þeir séu aðlaðandi
fyrir fjárfesta en allt tal um hag-
stjóm og flæðiskyldu, þ.e. lausafjár-
og bindiskylda, er úr öllum takt við
nútímalega þróun á fármagnsmark-
aði. En sé slíkt talið nauðsynlegt út
frá neytendasjónarmiði, þá verður
að gera það með þeim hætti að verð-
bréfasjóðimir geti uppfyllt þessa
kvöð með því að kaupa verðbréf
skráð á Verðbréfaþingi íslands en
ekki á einhveijum heimatilbúnum
pappírum Seðlabanka eða ríkissjóðs,
sem hindruðu eðlilegt flæði og ykju
hólfun á markaðinum. En vegna inn-
lausnargjalds og annars eðlis verð-
bréfasjóðanna gæti þetta hlutfall þó
aldrei orðið nema brot af því sem
SEIKOSHA
TÖLVUPRENTARAR
HLJÓÐLÁTIR - HRAÐVIRKIR - GRAFÍSKT LETUR
verð 14.990.-
VANDAÐIR PRENTARAR Á EINSTÖKU VERÐI
hf
SKIPHOLTI I7, I05 REYKJAVIK, SIMI 27333.
innlánsstofnununum er gert að
sæta.“
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
sagði í viðtalinu við viðskiptablað
Morgunblaðsins þar sem hann
kynnti helstu efnisatriði nýju lög-
gjafarinnar, að hann myndi leita
umsagnar fyrirtækjanna á fjár-
magnsmarkaðinum, þegar frum-
varpsdrögin hefðu fengið á sig fulla
mynd. Gunnar Helgi var að því
spurður í ljósi ummæla hans hér á
undan hvort hann óttaðist að það
yrði erfiður róður fyrir þessa aðila
að fá fram einhveijar breytingar á
fmmvarpinu þegar þar að kæmi.
„Jú, við óttumst það og ekki að
ástæðulausu að ráðherrann muni
ekki koma með þetta frumvarp til
okkar fyrr en það er komið á það
stig að þar verður engu sem máli
skiptir við hróflað. Og það eru ýms-
ar fleiri athugasemdir sem við vild-
um gera við þessi frumvarpsdrög
heldur en ég hef nefnt hér, t.d. hvað
varðar fjármögnunarleiguna, en það
verður að bíða betri tíma.
En þessi atriði sem ég hef drepið
hér á, eru þau sem brýnast er að
fá úr bætt. Við vitum að þjóðinni
er nú nauðsyn að spara en það er
deginum ljósara að það sem ráð-
herra er nú að gera, nái það fram
að ganga, mun það verða til þess
að draga úr spamaði. Jafnframt mun
hefting á starfsemi verðbréfasjóð-
anna tefja fyrir að hér rísi virkur
hlutabréfamarkaður í bráð, þar eð
verðbréfasjóðimir hljóta að verða
hér líkt og þeir em erlendis, vinsæl-
asta leiðin fyrir hinn almenna spa-
rifjáreiganda til að fjárfesta í hluta-
bréfum. Að auki em hugmyndir við-
skiptaráðherra um skattlagningu á
sparnað að okkar mati ótímabærar
og einungis til þess fallnar að hafa
áhrif í sömu átt.
Besta hagstjómartækið við núver-
andi kringumstæður, þó að mörgum
stjómmálamanninum gangi erfíð-
lega að skilja það, er að virkja þann
kraft og hugmyndaauðgi sem er að
fínna hjá einstaklingum þessa lands
og fyrirtækjum, svo sem á fjár-
magnsmarkaði, og leyfa þeim að
njóta sín með víðsýnum reglum og
löggjöf. Þetta á ekki síst við um fjár-
magnsmarkaðinn því að á því sviði
á sér nú stað mikil nýsköpun og
mun ekki aðeins spara Islendingum
vexti á erlendum lánum og draga
úr kostnaði við miðlun fjármagns
heldur einnig skapa útflutningstekj-
ur á fjármálamarkaði og víðar.
Frelsi á fjármagnsmarkaði er nefni-
lega forsenda nýsköpunar í atvinnu-
lífí,“ segir Gunnar Helgi Hálfdánar-
son. '
SKRIFSTOFU-
STJÓRNUN
- Nýlt nómskeið
SKRIFSTOFAN ’88
Námskeiðið Skrifstofustjómun er sérstaklega fengið til landsins í tilefni
sýningarinnar Skrifstofan ’88, sem Kaupstefnan hf. stendurfyrir í Laug-
ardalshöll dagana 2.-6. mars n.k. Námskeiði er haldið samhliða sýning-
unni og stendur í tvo daga.
Námskeiðið:
Skrifstofustjórnun getur verið allt frá stjómun lítillar og fámennrar skrif-
stofu til stjórnunar stórrar og háþróaðrar skrifstofu, því sömu grundvallar-
atriði gilda í báðum tilfellum.
Námskeiðið Skrifstofustjórnun hjálpar þeim, sem vinna við skrif-
stofustjórnun til að gera starfið ánægjuríkara og árangursmeira og til aö
ná hámarksárangri með samhæft og jákvætt starfsfólk, einkum átímum
tæknibreytinga.
Fyrirhverja?
Námskeiðið Skrifstofustjórnun er sérstaklega sniðið fyrir fólk sem hef-
ur með mannaforráð að gera á skrifstofum, litlum sem stórum, jafnt þar
sem nýir og eldri starfsmenn eru.
Markmið:
Markmiðið er að þátttakendur öðlist mikilvæga þekkingu og efli hæfileika
sínatil að stjórna skrifstofufólki eins og best verður á kosið.
Efni:
Fyrri dagur: Hlutverk skrifstofunnar innan fyrirtækisins - Hlutverk yfir-
manns á skrifstofunni - Ráðning og val á starfsfólki - Aðferðir til að bæta
samskiptin - Hvemig fylgst er með í starfsgreininni -Tímastjómun.
Seinni dagur: Meðhöndlun algengra vandamála á skrifstofu - Hvemig
skrifstofufólk er hvatt og þróað í starfi - Heilbrigði og öryggi - Vinnulag -
Framkvæmdaáætlun fyrir betri framtíð.
Leiðbeinandi:
Námskeiðið er eitt af vinsælustu námskeiðum BIM - British Institute of
Management, en það er stærsta fyrirtæki á sínu sviði í Bretlandi. Leið-
beinandi er Shelagh Robinson, CIPM, FBIM, einn helsti og reyndasti
leíðbeinandi BIM. Allt árið um kring ferðast hún um Bretland og megin-
landið og heldur stjórnunarnámskeið á vegum BIM og hefur gert í 15 ár.
Þá er hún einnig þekktur rekstrarráðgjafi.
Hvernig?
Námskeiðið Skrifstofustjómun fer fram á ensku og notast leiðbeinend-
ur við myndvarpa og myndbandstæki sér til aðstoðar. s
Hvar/hvenær?
Námskeiðið verður haldið dagana 3. og 4. mars n.k. að Hótel Holiday Inn $
frá kl. 9:30-17:00 báða dagana.
Þátttaka tilkynninst til Kaupstefnunnar hf. ísíma 11517 fyrír 25. febrúar n.k. @
Takmörkuð þátttaka.
KAUPSTEFNAN
Reykjavík
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Helios 24. feb.
Baltic 11. mars
Helios 25. marz
NEW YORK
Helios 22. feb.
Baltic 9. mars
Helios 23. mars
HALIFAX
Helios 27. feb.
BRETLAND/
MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 21. feb.
Álafoss 28. feb.
Eyrarfoss 6. mars
Álafoss 13. mars
ANTWERPEN
Eyrarfoss 23. feb.
Álafoss 1. mars
Eyrarfoss 8. mars
Álafoss 15. mars
ROTTERDAM
Eyrarfoss 24. feb.
Álafoss 2. mars
Eyrarfoss 9. mars
Álafoss 16. mars
HAMBORG
Eyrarfoss 25. feb.
Álafoss 3. mars
Eyrarfoss 3. mars
Álafoss 17. mars
FEUXSTOWE
Tinto 24. feb.
Dorado 2. mars
IMMINGHAM
Dorado 21. feb.
Tioto 28. feb.
BREMERHAVEN
Tinto * 23. feb.
Dorado 1. mars
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
ÞÓRSHÖFN
Reykjafoss 27. feb.
Reykjafoss 10. mars
Reykjafoss 24. mars
ÁRHUS
Skógafoss 23. feb.
Reykjafoss 1. mars
Skógafoss 8. mars
Reykjafoss 16. mars
GAUTABORG
Skógafoss 24. feb.
Reykjafoss 2. mars
Skógafoss 9. mars
Reykjafoss 16. mars
HELSINGBORG
Skógafoss 25. feb.
Reykjafoss 3. mars
Skógafoss 10. mars
Reykjafoss 17. mars
KAUPMANNAHÖFN
Skógafoss 25. feb.
Reykjafoss 3. mars
Skógafoss 10. mars
Reykjafoss 18. mars
FREDRIKSTAD
Skógafoss 19. feb.
Reykjafoss 26. feb.
Skógafoss 4. mars
Reykjafoss 11. mars
HELSINKI
Dettifoss 22. feb.
)
Áætlun innanlands.
Vikulega: Reykjavík, Isa-
fjörður, Akureyri, Dalvík,
Húsavík. Hálfsmánaðar-
lega: Siglufjörður, Sauðár-
krókur og Reyðarfjörður.
Vikulega: Vestmannaeyjar.
EIMSKIP
Pósthússtrœti 2.
Sími: 27100