Morgunblaðið - 18.02.1988, Page 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, vmsnpn/AryiNNUiiF FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988
Fyrirtæki
Koniuin ínn a rettinn tima
- rætt við Pétur Reimarsson hjá Sæplasti h.f. á Dalvík
FYRIRTÆKIÐ Sæplast h.f. á
Dalvík hefur á undanfömum
árum náð góðum árangri í fram-
leiðslu og sölu á fiskkömm og
vörubrettum úr plasti. Upphaf-
lega var fyrirtækið starfrækt i
Reykjavík og síðar í Garðabæ en
árið 1984 var það selt til Dalvík-
ur. Þá var fjárhagsleg staða þess
orðin mjög slæm og reksturinn
við það að stöðvast. Velgengni
Sæplasts h.f. á Dalvík hefur hins
vegar verið mikil og fyrirtækið
náð sterkri stöðu á innanlands-
markaði auk þess sem útflutning-
ur er allnokkur. Nýlega keypti
Sæplast h.f. fyrirtækið Börk h.f.
I Hafnarfirði sem framleitt hefur
húseiningar og rör. Þessi auknu
umsvif hafa vakið nokkra at-
hygli og því leitaði Morgunblaðið
til Pétur Reimarssonar, fram-
kvæmdastjóra Sæplasts h.f., og
innti hann eftir þróun mála hjá
fyrirtækinu. Hann var fyrst
spurður um tildrög þess að Sæ-
plast h.f. var keypt til Dalvíkur.
„Það var upphaflega áhugi hjá
dðnþróunarfélagi Eyjaíjarðar fyrir
því að kaupa fyrirtækið en kaupin
voru gerð í marsbyrjun 1984. Vélar
og tæki voru keypt, skuldir sem
voru í vanskilum yfirteknar og sa-
mið um skuldbreytingar. Þá var
lagt verulegt hlutafé í fyrirtækið
eða 6 milljónir króna og tekin ný
lán. Iðnþróunarfélagið átti 10% í
upphafi en aðrir hluthafar voru um
30 einstaklingar og fyrirtæki á
Dalvík. Hlutur Iðnþróunarfélagsins
er nú 4% en stærsti hluthafínn,
.Bliki h.f., á 25% hlutafjár."
Hveraig gekk starfsemin í
byrjun?
„Við héldum áfram að framleiða
fiskkör eins og fyrirtækið hafði
áður gert. Reksturinn var endur-
skipulagður og náðum við veruleg-
um árangri í hagræðingu. Hins
vegar gekk illa að komast í banka-
viðskipti því fyrir kaupin hafði Bún-
aðarbankinn lokað á fyrirtækið. Við
höfum verið í viðskiptum við Spari-
sjóð Svarfdæla sem hefur reynst
okkur vel.
Vöruþróun hefur verið talsverð
og verð lækkað með auknu fram-
leiðslumagni. Við kaupin voru
fiskkörin á ákveðnu þróunarstigi
en með því að bregðast við óskum
kaupenda hafa ýmsar endurbætur
verið gerðar. Þannig hefur verið
hægt að auka söluna."
Þið framleiðið í samkeppni við
önnur fyrirtæki á þessum mark-
aði. Hveijar era helstu ástæður
fyrir velgengni fyrirtækisins?
„Áherslan á gæði í sjávarútvegi
hefur komið okkur til góða því nú
er t.d að mestu hætt að landa laus-
um fiski. Við komum inn á réttum
tíma þegar gámaútflutningur á
ferskum fiski var að hefjast auk
þess sem fískkörin eru mikið notuð
í vertíðarbátum. Eipnig hafa togar-
ar byijað að nota fiskkör í stað fisk-
kassa, t.d. á Vestfjörðum þar sem
túrar eru stuttir að jafnaði. Það
hefur sparað kostnað og tíma við
löndun.
Samhliða aukningunni innan-
lands hefur fyrirtækið aukið út-
flutning. Við náðum fótfestu í Fær-
eyjum í upphafi og flytjum þangað
talsvert magn. Árið 1985 vorum
við með í útflutningshóp 5 fyrir-
tækja og hófum þá að flytja fiskkör
og sérhæfð vörubretti fyrir sjávar-
útveg til Grænlands og Austur-
strandar Kanada. Við höfum reynst
vel samkeppnishæfír við fyrirtæki
í Kanada þrátt fyrir talsverðan
flutningskostnað. Hins vegar er
útflutningur til Kanada erfiðari nú
vegna gengislækkunar dollarans.
Þá höfum við selt okkar vöru til
Noregs en um þriðjungur fram-
leiðslunnar fer til útflutnings.
Canon
Ijósritunarvélar
Hentugarvélarfyrir minni fyrirtæki,
deildir stærri fyrirtækja o.fl.
Ljósritar ífjórum litum báðum megin
á allan pappírog glærur. Mjög skörp
og góð Ijósrit. Viðhaldsfríarvélar. ö>
Langódýrustu
vélarnar á markaðnum
Verð aðelns:
FC-3 36.900- stgr.
FC-5 39.990- stgr.
I<rifvélin hf
Suðurlandsbraut 12, s: 685277
Morgunblaðið/Trau8ti Þorsteinsson
VELGENGNI —Pétur Reimarsson framkvæmdastjóri Sæ-
plasts, fyrir framan húsnæðið á Dalvík, en nýlega juku þeir umsvif
sín og keyptu fyrirtækið Börk hf. i Hafnarfirði.
Samkeppni innanlands var upp-
haflega við innflutt ker frá Noregi
en eftir að verð tók að lækka hefur
sá innflutningur lagst af. Tvö önnur
fyrirtæki framleiða sambærilega
vöru en líklega erum við með um
2/3 af markaðnum."
Hvað hafa umsvifin aukist
mikið frá því þið hófuð rekstur-
inn?
„Eftir að ég kom til starfa í júlí
1984 voru 5 starfsmenn við fyrir-
tækið en þeir eru nú 23 talsins.
Veltan var 14 milljónir árið 1984
Ráðgjöf
„ímynd kvenstjóm-
andans erstöðnuð“
- rætt við Judith Mower rekstrarráðgjafa
„FARSÆLL stjóraandi er góður,
óháð því hvort hann er karl eða
kona, þar er enginn munur milli
kynja“, sagði Judith Mower
rekstrarráðgjafi, sem dvaldist
nýlega hér álandi í boði Stjóraun-
arfélags Islands og leiðbeindi
konum í stjórn unarstörfum.
„Þær hugmyndir sem við þekkj-
um um kvenstjórnanda og eru
áberandi í umræðunni - að hún
sé mannlegri, eigi auðveldar með
að ná sambandi við sína undir-
menn en erfiðar með að taka
ákvörðun - eru leifar af stað-
naðri ímynd sem á ekki lengur
við rök að styðjast. í raunveru-
leikanum geta finnast bæði kynin
jafnt meðal allra tegunda stjórn-
enda, hvort sem hann er óvæginn
eða mannlegur, óákveðinn eða
harður. Það hefur einnig komið
í Ijós í bandarískum könnunum
að konur og kar lar fara sömu
leiðir í stjómun og hvort þú nærð
árangri hefur ekkert að gera með
það hvors kyns þú ert.“
„Vissulega þarf að leggja áhersl-
ur á mismunandi atriði til að efla
stjórnanda eftir því hvort hann er
karl eða kvenkyns, þar sem uppeld-
ið og umhverfið hefur skapað kon-
um og körlum styrkleika á ólíkum
sviðum", sagði Mower enn fremur.
„Til dæ mis þarf að efla umhyggju
fyrir öðrum og tjáskipti hjá karl-
stjómendum en sjálföryggi meðal
kvenstjómenda. En skilgreining á
góðum stjórnanda er ólík eftir
starfsgreinum og fyrirtækjum þann-
ig að það er alls ekki hægt að halda
því fram að a nnað kynið sé hæfara
til að stjóma en hitt. “
Jafnframt því að stunda rekstrar-
ráðgjöf er Mower lektor í viðskipta-
fræði við háskólann í Syracuse og
hún telur m.a. af reynslu sinni í
kennslunni námskeið eingöngu fyrir
konur séu nauðsynlegt sé tilgangur-
inn sá, að gera þær virkari og árang
ursríkari stjómendur, óháð atvinnu-
grein. „Strax í bamaskóla eru
drengir virkari þátttakendur, bæði
í kennslu og í félagslífi og það kem-
ur af sjálfu sér að þessir eiginleikar
fylgja kynjunum út í atvinnulífið og
þar með í hvers kon ar félagsstörf
og námskeið sem fólk tekur sér fyr-
ir hendur. Þannig veldur uppeldið
því að konur draga sig frekar í hlé
og láta karlana um að taka þátt séu
þeir á annað borð 'með.“ Önnur
ástæða fyrir því að halda námskeið
einungis fyrir anna ð kynið, og ekki
síður mikilváeg að mati Mower, er
að á þeim reynist konum auðveldar
að reyfa vandamál sem tengjast
beint kynferði þeirra eða varða
umgengni við karla á vinnustað.
Hvort námskeið af þessu tagi
skili sér í fleiri konum sem árang-
ursríkum stjómendum hefur ekki
verið kannað sérstaklega hvorki er-
lendis né hér á landi. Mower telur
einnig að slíkt sé illmögulegt. „Góð-
ur stjómandi þarf að vera búinn
ákveðnum hæfileikum. Sumir eru
meðfæddir, aðra er hægt að tileinka
sér. Það krefst hagnýtrar þekkingar
og þjálfunar sem hægt er að koma
á framfæri til dæmis með námskeið-
um eins og því sem hér í gangi.
en var á síðasta ári um 145 milljón-
ir þannig að aukningin hefur verið
mjög mikil. Á þessu ári er áætlað
að veltan verði um 300 milljónir."
Nú keyptuð þið á sl. ári fyrir-
tækið Börk h.f. i Hafnarfirði.
Hveraig hyggist þið haga rekstr-
inum á næstunni?
„Við tókum við Berki nú um ára-
mótin. Fyrirtækið hefur verið rekið
með tapi í mörg ár þannig að við
stöndum frammi fyrir verulegum
vandræðum. Reksturinn á Berki
verður stokkaður upp og húseignir
fyrirtækisins seldar ásamt röradeild
fyrirtækisins. Hins vegar verður
húseininga-, kæliklefa- og frysti-
klefaframleiðslan flutt norður og
vegna þess bætt við 10 starfmönn-
um. Húseiningamar eru m.a. ætlað-
ar fyrir fiskvinnsluhús, iðnaðar- og
verslunarhúsnæði og svína- og
kjúklingabú. Við teljum okkur geta
aukið framleiðsluna töluvert því
markaðurinn er bæði traustur og
stöðugur þó einingamar henti ekki
allsstaðar. Þá getum við nýtt okkur
viðskiptasambönd í sjávarútvegi
sem við höfum fyrir. Hin nýja fram-
leiðsla veldur því að við emm ekki
eins háðir afkomusveiflum í sjávar-
útvegi og áður. Framleiðslan hentar
einnig vel fyrir okkur því aðalsöl-
utími húseininganna er á sumrin
og haustin þegar minna er um að
vera í annarri framleiðslu fyrirtæk-
isins. Einnig emm við að byggja
okkur upp til lengri tíma litið.
Börkur hefur orðið fyrir veruleg-
um áföllum á síðustu ámm m.a.
vegna samdráttar í hitaveitufram-
kvæmdum þannig að kaupin fara
að mestu fram með yfirtöku skulda.
Við höfum sagt upp flestum starfs-
mönnum en ekki er enn búið að
selja eignimar."
Hyggist þið auka enn við rekst-
urinn í framtíðinni?
„Það em uppi óljósar hugmyndir
um framtíðina en við ætlum að sjá
fyrir endann á þessu sem nú er á
döfinni áður en farið verður út í
frekari stækkun, “ sagði Pétur
Reimarsson að lokum.
Morgunblaðið/Þorkell
STIÓRNANDINN —
Fyrir skömmu hélt Judith Mow-
er rekstrarráðgjafi og lektor við
háskólann í Syracuse, námskeið
á vegum Stjómunarfélags ís-
lands, fyrir konur í stjómunar-
störfum.
Ef konan getur nýtt sér það sem
hún lærir hér þegar hún tekur aftur
til starfa og hún styrkir sína stöðu
þá tel ég að námskeiðið hafi skilað
árangri. Hvort konur séu frekar
teknar fram yfír karla í stöður
stjómanda í kjölfar svona nám-
skeiða er síðan háð flölmörgum öðr-
um þátt um sem hún ræður illa við
t.d. viðhorf hennar yfirboðara til
kvenstjómenda. Tilgangnum er náð
ef kona getur styrkt stöðu sína og
tekið vandamálum sem hún var
ekki fær um áður og verður þannig
fysilegri kostur sem góður stjóm-
andi en ella“, s agði Judith Mower
að lokum.