Morgunblaðið - 23.02.1988, Page 7

Morgunblaðið - 23.02.1988, Page 7
B 7 HUrflimbtafeib /IÞROTTIR ÞRHXIUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988 Vetraról'ympíuleikarnir í Calgary 1988 Reuter Franck Piccard frá Frakklandi varð Ólympfumeistari f risastórsvigi. Hann er fyrstur Frakka til að vinna gullverðlaun á Ólympfuleikum í alpagreinum karla síðan 1968. Loks franskur sigur í alpagreinum Piccard sigraði í risastórsvigi nokkuð óvænt FRANCK Piccard frá Frakklandi, sem er skírður í höfuðið á söngv- arnum frœga Frank Sinatra, varð Ólympíumeistari f risastórsvigi karla á sunnudaginn. Hann varð fyrsti Frakkinn til að vinna gull- verðlaun á Ólympíuleikum f alpagreinum síðan 1968. Þá vann hinn frœgi Jean Claude Killy þrefladan sigur í Grenoble. Helmut Mayer frá Austurrfki varð annar og Lars Börje Eriksson frá Svíþjóð f þriðja sœti. Daníel Hilmarsson var meðal keppenda en komst ekki f mark. Piccard sem er 24 ára er elstur sjö systkina er frá franska bænum Les Saisies. Hann var snemma mjög efnilegur skíðamaður og var meðal annars heimsmeistari unglinga í bruni 1982. Hann hefur þó ekki náð að komast á verðlauna- pall í heimsbikamum fyrr en á þessu keppnistímabili. Hann varð þriðji í bruni í Bad Kleinkirchheim og annar í risastórsvigi í Val d’Isere. „Gleðin kom yfir mig, hægt og sígandi," sagði Piccard sem beið í markinu eftir keppendunum sem á eftir honum komu niður brautina. Marc Girardelli, Markus Wasmeier og Alberto Tomba komust ekki mark, en þeir voru taldir sigur- stranglegir fyrir keppnina; Pirmin Zurbriggen, sem varð Ólympíu- meistari í bruni, átti í erfiðleikum og náði aðeins ö. sæti. Brautin, sem var 2.327 metrar og fallhæð 647 metrar, var mjög hörð og erfið yfirferðar enda féllu marg- ir úr keppni. Einnig var mikill vind- ur sem hafði misjöfn áhrif á kepp- endur. „Það var misvinda þegar ég fór niður og ég vissi að ég ætti ekki möguleika á verðlaunasæti. Ég varð fyrir vonbrigðum með ár- angurinn. Það er erfitt að ná upp einbeitinu eftir sigur í bruninu," sagði Zurbriggen. „Eg tók of mikla áhættu í efri hiuta brautarinnar. Hægra skíðið fór í stöng og ég fór útúr. Pirmin sagði mér að hann hafi fokið út úr braut- inni. Þessi keppni gefur ekki rétta mynd af getu keppenda þar sem vindurinn var ekki eins hjá öllum keppendunum," sagði Vestur-Þjóð- veijinn Markus Wasmeier. Piccard braut hjálm sinn er hann keyrði utan í stöng í efri hluta brautarinnar. Hann lét það ekki á sig fá og fór brautina á 1:39.66 mínútum og var meira en sekúndu á undan Helmut Mayer. „Sigurinn var ekki eins ánægjulegur vegna þess hve margir keppendur féllu úr keppni," sagði Piccard. Alls kom- ust 60 keppendur í mark af 94. Þar af féllu fimm af fimmtán fyrstu. ■ Úrsllt/B14 Tvöfaldur sigur Austurríkis í alpatvflceppni Anita Wachter skaut svissnesku stúlkunum ref fyrir rass AUSTURRÍSKA stúlkan Anita Wachter sigraði í alpatvfkeppni kvenna á sunnudaginn. Svssnesku stúlkumar, sem unnu öll fimm gullverðlaunin á heimsmeistaramótinu f Crans Montana fyrir tveimur árum, urðu fyrir enn einu áfallinu og hafa enn ekki hlotið gullverð- laun á leikunum. Austurríki hefur því unnið tvöfalt f tvfkeppninni þar sem Hubert Strolz sigraði í karlaflokki á föstudaginn. Wachter sem er 21 árs var aðeins 0,23 stigum á undan svissnesku stúlkunni Brigitte Oertli sem vann silfurverðlaunin í bruninu á föstudaginn. Oertli náði besta tímanum í báðum umferðum svigs- ins á sunnudaginn, en var aðeins í 12. sæti í tvíkeppnisbruninu. Maria Walliser frá Sviss varð í þriðja sæti og Karen Percy frá Kanada í fjóðra sæti. „Þetta var spennandi. Ég vissi að ég varð að taka á öllu mínu f seinni umferð svigsins til að eiga mögu- leika og það tókst," sagði Wachter. Oertli vann önnur silfurverðlaun sín á sunnudaginn. „Ég var mjög ná- lægt gullinu. Ég gerði mitt besta er. það nægði ekki. Mér tókst illa að einbeita mér á föstudaginn eftir að hafa nælt í silfurverðlaunin í bruninu og skipti það sköpum," sagði Oertli. ■ Úrsllt/B14 Reuter Anlta Wachtcr frá Austurríki sigraði f alpatvíkeppni eftir harða keppni við Brígitte Oertli frá Sviss. Miklir yfirburðir í boðgöngu kvenna Reuter Nlna Qavriluk yar f sigursveit Sovétríkjanna f 4 x 5 km boðgöngu. Sovéríkin bættu enn einum gullverðlaunum í safnið á sunnudaginn. Þá sigraði Sovéska kvennasveitin með yfirburðum í 4 x 5 km boðgöngu. Þær Svetlana Nagueikina, Nina Gavriliuk, Tam- ara Tikhonova og Anfissa Reztsova gengu á samanlögðum tíma 59:51.1 mínútu og voru rúm- lega tveimur mínútum á undan norsku sveitinni sem varð í öðru sæti. Reztsova, sem keppir í fyrsta sinn á ólympfuleikum, gekk siðasta sprettinn fyrir Sovétríkin. „Ég hugsaði um það eitt að gera mitt besta og reyna að vera ekki með lakari tíma en hinar þijár í sveit- inni,“ sagði Reztsova. Finnska sveitin varð f þriðja sæti og tapaði dýrmætum tíma er Pirkko Maatta, sem gekk fyrsta sprettinn, missti annan skíðastaf- inn. Svissneska stúlkan Christina Gilli Briigger náði besta brautart- fmanum, 14:27.6 mfnútum, en hún gekk sfðasta sprettinn fyrir Sviss. Rötschbestur í skíðaskotfimi AUSTUR-ÞJÓÐVERJINN Frank Peter Rötsch varð Ólympfu- meistari í 20 km skföaskotfimi. Hann gekk 20 km á 56:33.33 mfnútum og hítti f 17 skotum af 20 f marfc. ó svo að Rötsch hafi ekki hitt mark í þremur skotum náði hann langbesta tímanum og dugði það honum til sigurs. Valeri Medvedtsev frá Sovétríkjunum, sem sigraði í heimsbikarkeppninni á síðasta ári, varð annar. Hann mis- notaði aðeins tvö skot, en tími hans var mun lakari en Austur-Þjóðveij- ans, 56:54,62 mínútur. Johann Passler frá Ítalíu varð þriðji. Ólympíumeistarinn frá því í Sarajevo 1984, Peter Angerer frá Vestur-Þýskalandi, hafnaði aðeins í 10. sæti á 58:46.73 mínútum. Joseh Thompson, sem vann silfur- verðlaunin á síðasta heimseistara- móti og var talinn helsta von Bandaríkjamanna, náði sér ekki á strik og varð í 25. sæti. Þegar keppnin fór fram á laugar- daginn var lofthitinn 9 gráður. 10.000 áhorfendur fylgdust með keppninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.