Morgunblaðið - 23.02.1988, Page 14
U B
|B«rannt»I«Í)i6 /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND || KNATTSPYRNA / SPÁNN
Forysta lUlónakó
Jókst um eitt stig
BOLTINN er byrjaður að rúlla
á ný f frönsku 1. deildinni eftir
62 daga vetrarfrí. Fyrir hlé
hafAi Mónakó, meö 35 stig,
þriggja stíga forskot á Borde-
aux og Racing París, en í þrem-
ur neöstu sætunum voru París
SG, Brest og Le Havre. Þessi
röö breyttíst að engu á laugar-
daginn en Mónakó jók þá for-
skot sitt um eitt stig, þar sem
bæöi Bordeaux og Racing töp-
uöu meöan Mónakó geröi jafn-
tefii, 0:0, viö Niort.
Tap Bordeaux gegn Toulouse
eru þau úrslit sem mest koma
á óvart í 25. umferð. Toulouse átti
við erfíðleika að stríða fyrir jól en
virðist hafa náð sér
Bemharð á strik í fríinu. End-
Valsson urkoma Gerard
skrifar Passi og Jean-
Philippe Durand á
líklega stóran þátt í því en þeir
gátu lítið leikið með vegna meiðsla
fyrir frí. Toulouse tók forystuna í
leiknum á 7. mín. er Durand skor-
aði með góðu skoti framhjá Dropsy,
markverði Bordeaux. Rétt eftir leik-
hlé jafnaði Fargeon eftir góðan
undirbúning Ferreri. Eftir jöfnunar-
markið færðist talsverð harka í leik-
inn en liðin hafa lengi eldað grátt
silfur saman. Á 62. mfn. kom svo
sigurmark Toulouse. Einn vamar-
manna Bordeuax, Roche, átti sinn
þátt í því. Hann varð fyrir skoti frá
Rochetau og af honum hrökk bolt-
inn f markið án þess að Dropsy
kæmi nokkrum vörnum við við.
Toulouse náði þvf f tvö dýrmæt stig
en jafnframt sýndi liðið feyki góðan
leik og virðist í mun betra formi
en fyrir frí.
í Marseille léku heimamenn gegn
Racing París. Racing hefur það sem
af er þessu keppnistfmabili komið
mikið á óvart. Liðið lék í 2. deild
fyrir tveimur árum en er nú í hópi
sterkustu félagsliða í Frakklandi.
En þessi framför reyndist liðinu þó
ekki nægjanleg í leiknum gegn
Marseille. Heimamenn léku við
hvem sinn fingur og sigruðu, 2:0.
Marseille notaði leikkerfið 3-5-3 og
kom það vamarieik Racing úr jafn-
vægi. Papin skoraði fyrra markið á
46. mfn. Einni mín. fyrir leikslok
tryggði svo hinn 19 ára gamli Cau-
et Marseille sigurinn. Cauet, lék
þama sinn fyrsta 1. deildarleik og
þakkaði hann Alain Giresse þetta
mark sitt, en Giresse sá um undir-
búninginn eins og honum einum er
lagið.
Niort náði jafntefli á heimavelli
gegn Mónakó. Liðið náði þama
þriðja stiginu af Mónakó á tímabil-
inu, því það var eina liðið sem sigr-
aði í furstadæminu í fyrri umferð-
inni. Þrátt fyrir að leika á útivelli
spilaði Mónakó sóknarknattspymu
og hafði sterkarí tök á leiknum, þó
ekki næði liðið að skora mark.
í þessari 25. umferð vom einungis
skomð 12 mörk, á móti 19 og 32
í síðustu tveimur umferðunum fyrir
jól. Þijú lið sigmðu á útivelli, St.
Etienne band endi á sigurgöngu
Auxerre á heimavelli, sigraði 1:0,
Laval sigraði í Nice, einnig 1:0 og
Toulon sigraði Montpellier 1:0.
Sá „stressaðasti" í umferðinni var
Benoit Thomas hjá Lens en hann
gat ekki beðið lengur en í 98 sek-
úndur með að skora gegn Brest.
En hann gerði betur — bætti við
öðm marki í seinni hálfleik og var
því eini leikmaðurinn sem skoraði
tvö mörk f þessari umferð.
■ Úrslltln/B18.
■ Staöan/B18.
PORTUGAL
Sá minnsti skoraði með skalla
Rui Barros, minnsti leikmaður-
inn á vellinum, þegar Porto og
Boavista mættust, tryggði Porto
sigur, 1:0, með skallamarki. Bar-
ros, sem átti mjög góðan leik, setti
markið á 24 mfn., eftir sendingu
frá Joao Pinto.
Benfica lagði Portimonense að velli,
3:1, eftir að staðan var, 1:1, í leik-
hléi. Brasilfumennimir Chiquinho
og Elzo skomðu mörk Benfica f
seinni hálfleik.
■ ÚrslK B/18
■ Staöan B/18
Reuter
Hugo Sanchaz, miðhetji Real Madrid, sést hér í leik gegn Las Palmas. Það er vamarieikmaðurinn Felix sem er fyrir
aftan Sanchez, sem hefur skorað 21 mark í vetur.
Fyrsti sigur Bilbao í
Barcelona í fimm ár
ATLETICO Bilbao, sem hefur
ekki náö aö vinna sigur á
heimavelli Barcelona f fjögur
ár, náði aö vinna þar sigur, 2:1,
á laugardaginn. Leikmenn
Bilbao yfirspiluöu leikmenn
Barcelona f fyrri hálfleik. Luis
Aragones, þjálfari Barcelona,
tók þá V-Þjóðverjann Bemd
Schuster af ieikvelli.
ilbao var fyrir áfalli í upphafi
leiksins. Þá meiddist Jose
Gallego á fæti. 19 ára nýliði,
Ricardo Mendiguren, skoraði fyrsta
mark sitt fyrir Bilbao og Pedro
Uralde bætti öðm við á 32. mín.,
með glæsilegum skalla. Leikmenn
Bilbao gátu bætt við mörkum.
Tvisvar skaut Uralde beint í fang
Andoni Zubizarreta, markverði
Barcelona. Roberto Femandez
skoraði mark Barcelona á 63.
mínútu.
Real Madrid skoraði fimm mörk,
5:0, gegn Las Palmas. Hugo
Sanchez skoraði tvö mörk og hefur
hann skorað 21 mark. Manuel
Sanchis, Michel Gonzalez og Miguel
Tendillo skomðu hin mörkin.
Atletico Madrid varð að sætta sig
við jafntefli, 1:1, gegn Real Betis.
Julio Salinas skoraði jöfnunarmark-
ið á 39 mín., eftir að Jose Melenas
hafði skorað fyrir Betis.
Jose Bakero tryggði Real Sosiedad
sigur, 1:0, yfir Espanol.
SKOTLAND / BIKARKEPPNIN
Rangers
fékkskell
SPÁNN
Bemd
Schuster
tilReal
Madrid
Blöð á Spám' sögðu frá því á
laugardaginn að v-þýski
landsliðsmaðurinn Bemd
Schuster, sem leikur með
Barcelona, sé á fömm til Real
Madrid.
Schuster var í Madrid fyrir helg-
ina. Hvomgt félagið vildi segja
neitt til um málið. Blöð á Spáni
sögðu að Schuster, sem er 28
ára, myndi skrifa undir þríggja
ára samning við Real Madrid,
sem væri að vermæti kr. 209
milljónir.
Bemd Schuster hefiir verið mjög
umdeildur hjá Barcelona síðustu
ár og lék hann Ld. ekkert með
félaginu si. keppðnistfmabil.
Gary Mackay skoraði fyrir Hearts.
Glasgow Rangers mátti þola
tap, 0:2, fyrir Dunfermline í
skosku bikarkeppninni. Mark Smith
skoraði fyrra markið snemma f
leiknum. Vandræði hófust hjá leik-
mönnum Rangers fyrir leikhlé og
var John Brown þá rekinn af
leikvelli eftir að hafa gefið Smith
olnbogaskot f andlitið. Tveir .aðrir
leikmenn Rangers, Chris Woods og
Graham Roberts, vom bókaðir.
Rangers náði sér ekki á strik eftir
að Brown var rekinn af velli og
bætti John Watson marki við á 49
mín. - skallaði inn sendingu frá
Stuart Beedies.
Gordon Scott hjá Hamilton var
einnig rekinn af leikvelli í leik gegn
Aberdeen. Hann lenti í átökum við
Willie Miller, fyrirliða Aberdeen, á
38 mín. Gary Hackett og David
Dodds tryggðu Aberdeen sigur, 2:0,
með mörkum á tveggja mín. kafla
í upphafi seinni hálfleiksins.
Sandy Clarke og Gary Mackay
skomðu mörk Hearts, 2:0, gegn
Morton. Bannon og Paul Hegarty
skomðu mörk Dundee Utd., 2:0,
gegn Airdrie og Stuart Rafferty og
Ian Angus tryggðu Dundee sigur,
2:0, yfir Motherwell.
Mágranaslagur
Á sunnudaginn var dregið f 8-liða
úrslit. Nágranaliðin Dundee og
Dundee United mætast 12. mars.
Aberdeen leikur gegn Clyde, Hearts
mætir Dunfermline og Clydebank
eða Partick mætir Celtic eða Hibs.
■ ÚrsiH B/18
■ Úrsltt B/18
■ Staöan B/18
HOLLAND
Eindhoven
gerði
jafntefli
Eindhoven varð að sætta sig
við jafntefli, 2:2, á heima-
velli gegn Fortuna Sittard á
sunnudaginn. Ronald Koeman
skoraði bæði mörk Eindhoven -
á 17. og 39. mínútu. Leikmenn
Sittard komu sterkir til leiks í
seinni hálfleik og skomðu tvö
mörk á fimm mín. kafla. Wim
Koevermans og Richard Kusters
skomðu.
Ajax gerði jafntefli, 1:1, við
Twente. Aaron Winter skoraði
fyrir Ajax, en Ron Willem jafn-
aði.
■ Úrsllt B/18
■ Staöan B/18