Morgunblaðið - 06.04.1988, Blaðsíða 4
4 B
jWorgunÞfatitft /ÍÞRÓTTIR MÐVHCUDAGUR 6. APRÍL 1988
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Liverpool tapaði, 1:2, fyrir unglingaliði Forest
KENNY Dalglish, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, lét tvo
af bestu leikmönnum sínum,
Peter Beardsley og Ray Hough-
ton, verma varamannabekkinn
þar til eftir hlé á laugardaginn
fyrir páskadag - þegar Liver-
pool mætti Nottingham Forest
á City Ground. Hann vildi
greinilega ekki láta þá leika
gegn Forest, þar sem félögin
mætast aftur á laugardaginn, í
undanúrslitum ensku bikar-
keppninnar.
Beardsley og Houghton, sem
Liverpool keypti á 2.6 millj.
sterlingspunda, hafa skorað sam-
tals nítján mörk fyrir félagið í vet-
ur. Danski leikmað-
Frá Bob urinn Jan Mölby lék
Hennessyi á miðjunni - hans
Englandi fyrsti leikur í byij-
unarliði Liverpool í
vetur. Aðeins einn leikmaður var í
sóknarlínunni, John Aldridge.
Frá byrjun leiksins voru hinur ungu
leikmenn Forest ákveðnir og fljótir
og var Gary Grosby, sem lék með
utandeildarliði fyrir fjórum mánuð-
um, maður leiksins. Þessi ungi leik-
maður fór á kostum á miðjunni og
þá voru þeir Nigel Clough og Paul
Wilkinson mjög hættulegir í sókn.
Alan Hansen, fyrirliði Liverpool,
sem verður að öllum lfkindum kjör-
inn Knattspymumaður ársins í
Englandi, varð fyrir því óhappi að
skalla knöttinn í eigið mark á 24.
mín., eftir að hann og Gary
Gillespie, reyndu báðir að skalla
knöttinn. Bruce Grobbelaar, mark-
vörður Liverpool, sem átti stórleik,
átti ekki möguleika á að verja.
Hann varði aftur á móti glæsilega
vítaspymu frá Nigel Clough á 46.
mín. — kastaði sér niður í vinstra
homið. A 59. mín. bættu leikmenn
Forest við, eftir frábæran samleik
Clough, Crosby og Webb, sem rak
smiðshöggið á sóknarlotuna með
marki af 20 m færi. Liverpool náði
að minnka muninn í 2:1 á 78. mín.
Webb felldi þá John Bames og víta-
spyma var dæmd á Forest. John
Aldridge skoraði úr vítaspymunni.
McClair með þrennu
Manchester United vann sinn
fímmta heimaleik í röð. Brian
McClair skoraði þijívegis fyrir Un-
ited, sem lagði Derby, 4:1. Hann
hefur gert 26 mörk fyrir félagið í
vetur - þar af nítján í deildarkeppn-
inni. Það bendir því allt til að hann
verði fyrsti leikmaður United í 20
ár, síðan George Best skoraði 25
deildarmörk, sem skorar yfír 20
mörk á keppnistímabili. Colin Gib-
son gerði ijórða mark félagsins, en
Steve Cross sá um mark Derby.
Chelsea varð fyrir áfalli þegar fé-
lagið mætti Arsenal. Kerry Dixon,
sem skoraði, 1:0, fyrir Chelsea,
varð að yfírgefa völlinn rétt á eftir
- meiddur á ökkla. Þegar 25. mín.
voru til leiksloka fór Gordon Durie
af leikvelli, meiddur á hné. Hann
verður frá keppni í tvo mánuði.
Chelsea, sem hefur ekki unnið sigur
í tuttugu leikjum í röð, varð fyrir
því óhappi að Joe McLaughlin gerði
sjálfsmark og jafnaði fyrir Arsenal,
1:1.
Portsmouth tryggði sér þijú dýr-
mæt stig með því að leggja Totten-
ham að velli, 1:0. Barry Home,
besti leikmaður vallarins, skoraði
sigurmarkið. Hann komst einn inn
fyrir vöm Tottenham og skaut.
Bobby Mimms, markvörður, varði
skot hans, en Home fékk knöttinn
aftur og þá sendi hann knöttinn í
netið. Leikmenn Tottenham reyndu
að jafna, en þeim tókst ekki að
bijóta niður sterkan vamarmúr
Portsmouth.
ONeill skoraðl þrjú mörk
Brasilíumaðurinn Mirandinha gat
ekki leikið með Newcastle vegna
veikinda. Það kom ekki að sök, því
að Newcastle lagði Luton, 4:0. Tán-
ingurinn Michael ONeill frá Norð-
ur-írlandi gerði þijú mörk og gamla
kempan Paul Goddard, sem lék sinn
350 deildarleik, skoraði §órða
markið.
Ruel Fox og Kevin Drinkell skomðu
mörk Norwich, 2:0, gegn Charlton,
á aðeins átta mín. kafla í seinni
hálfleik. Fyrri hálfleikur leiksins
þótti afar lélegur og þegar seinni
hálfleikurinn hófst, var það hljóm-
sveitin sem lék í leikhléi, sem hafði
sýnt það besta sem boðið hafði ver-
ið upp á.
Cyrille Regis tryggði Coventry sig-
ur, 1:0, yfír Oxford - með skalla-
marki á síðustu mín. leiksins. Peter
Hucker, markvörður Oxford, varði
hvað eftir annað glæsilega í mark-
inu og kom hann í veg fyrir stórsig-
ur Coventry.
Sigurður góður
Sigurður Jónsson fékk góða dóms
eftir 2:1 sigur Sheffíeld Wednesday
gegn West Ham. Colin Hirst og
Mark Chamberlain gerðu mörk
heimamanna en Leroy Rosenior
minnkaði muninn.
Southampton hefur ekki sigrað
heima síðan 26. desember og gerði
2:2 jafntefli við Wimbledon. Cunn-
ingham skoraði fyrir gestina í lok
fyrri hálfleiks, en Steve Baker jafn-
aði á 70. mínútu. Glenn Cockerill
náði forystunni fyrir Southampton
á 82. mín., en Brian Gayle jafnaði
mínútu fyrir leikslok.
Millwall lagði Aston Villa, 2:1, í 2.
deild. David Salman skoraði fyrst
fyrir Millwall, á 33. mín. en Gary
Thompson jafnaði fyrir Villa. Teddy
Sheringham, sem hefur skorað
nítján deildarmörk, skoraði sigur-
mark Millwall, sem hefur aldrei
leikið í 1. deild. Millwall hefur lagðt
Aston Villa í báðum leikjum liðanna
í vetur.
Reuter
Noel Blake og Kenny Swain, vamarleiukmenn Portsmouth, reyna hér að stöðva
Tottenham-leikmanninn Steve Hodge.
Brian McClalr skoraði sína fyrstu
þrennu, í leik gegn Derby.
SKOTLAND
Rangers fékk skell
Glasgow Rangers mátti þola
tap, 1:2, fyrir Hearts á laugar-
daginn. Daninn Jan Bartram skor-
aði fyrst fyrir Rangers með þrumu-
skoti, en þeir John Colquhoun og
Dave MacPherson svöruðu fyrir
Hearts.
Peter Grant og Andy Walker
tryggðu Celtic sigur, 2:0, yfír Hibs.
Celtic, sem á 100 ára afmæli í ár,
þarf nú aðeins að fá þijú stig í fimm
leikjum til að tryggja sér Skotlands-
meistaratitilinn.
Urslit B/10
Staðan B/10
FRAKKLAND
Hoddle hetja
Monaco
GLENN Hoddle var hetja Monaco,
þegar félagið vann sinn fyrsta sigur á
útivelli síðan í október. Hoddle skoraði
sigurmarkið, 1:0, gegn Lille með skalla
á níundu mín. Eftir það sóttu leikmenn
Lille, en vörn Monaco náði að verjast
belgíska landsliðsmanninum Erwin van
der Berg og félögum hans hjá Lille.
eistarar Bordeaux máttu þola jafn-
tefli, 0:0, í Laval. Leikmenn Marta
Racing París, sem eru í þriðja sæti, áttu einn-
ig erfitt með að fínna leiðina að netamöskvum
Toulouse í París. Uruguay-leikmaðurinn Enzo
Francescoli, sem vill fara frá Parísarfélaginu,
var þó nær því búinn að skora.
Marseille mátti þola tap, 0:2, gegn Auxerre.
Eric Canton og Pascal Vahirua frá Tahiti,
skoruðu mörkin gegn Marseille, sem lék án
fimm lykilmanna. Alain Giress og Klaus
Allofs, fyrirliði v-þýska landsliðsinsins, léku
ekki með. Greinilegt var að Marseille tók þá
ákvörðun að hvíla leikmenn fyrir Evrópuleik-
inn gegn Ajax í kvöld.
Skotinn Mo Johnston, sem hefur skorað ellefu
mörk fyrir Nantes, hefur verið veikur. Hann
lék þó með gegn. Montpellier, en náði ekki
að skora í jafnteflisleik, 0:0.
Ursllt B/IO
Staðan B/IO
Peter Beardsley og
Houghton á bekknum
KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
Svíar komu, sáu og
sigruðu í V-Beriín
- lögðu úrslitaliðin frá HM í Mexíkó að velli
SVÍAR komu skemmtilega á
óvart í fjögurra landa keppni í
knattspyrnu, sem haldin var í
V-Berlrn um páskana. Þeir léku
mjög góða knattspyrnu og
byrjuðu á því að leggja V-
Þjóðverja að velli í vítaspyrnu-
keppni og síðan lögðu þeir
Sovétmenn, 2:0, í úrslitaleik.
Fanz Beckenbauer, þjálfari v-
þýska landsliðsins, var ekki
ánægður með sína menn í mótinu.
Þegar hann var spurður hvort að
hann væri ánægður með leikmenn
sína, sagði hann að enginn leikmað-
ur hafí sýnt takta sem hann væri
ánægður með.
Það voru ekki margir áhorfendur
sem mættu á leikina í mótinu, sem
V-Þjóðveijar, Svíar, Sovétmenn og
Argentínumenn tóku þátt í. Aðeins
10 þús. áhorfendur sáu Sovétmenn
leggja Argentínumenn að velli, 4:2,
í fyrsta leiknum á Ólympíuleikvang-
inum í V-Berlín, sem tekur 70 þús.
áhorfendur. Alekander Zavarov,
Gennadi Litovchenko og Alekander
Zavarov 2, skoruðu mörk Sovét-
manna. Pedro Troglio og Diego
Maradona skoruðu mörk
Argentínu.
Svíar og V-Þjóðverjar gerðu jafn-
tefli, 1:1. Klaus Allofs skoraði fyrir
heimamenn, en Peter Truedsson,
sem kom inn á sem varamaður hjá
Svíum, náði að jafna. Svíar unnu
síðan í vítaspymukeppni, 3:1.
Lothard Mattháus tryggði V-Þjóð-
veijum sigur, 1:0, yfir Argentínu-
mönnum í leiknum um þriðja sætið
- skallaði knöttinn í netið eftir fyr-
irgjöf frá Rudi Völler.
25 þús. áhorfendur sáu Svía Ieggja
Sovétmenn að velli, 2:0, í úrslita-
leiknum. Hans Eskilsson og Hans
Holmquist skoruðu mörk Svía, sem
léku við hvem sinn fíngur gegn
heimsmeisturunum.
Flestir þjálfarar þeirra liða sem
leika í Evrópukeppni landsliðs í
sumar, voru mættir til V-Berlínar.
Bobby Robson, landsliðseinvaldur
Englands og Sepp Piontek, þjálfari
Danmerkur, vom þar.
Reuter
Ollo Nordln, þjálfari Svía, sést hér faðma Jan Möller, markvörð Svía, eftir víta-
spymukeppnina gegn V-Þjóðveijum.