Morgunblaðið - 23.04.1988, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.04.1988, Qupperneq 2
2 B i MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 ALBERTO GIACOMETTI Mynda- styttur lír lykognnm Myndlist Bragi Asgeirsson 0 Kona með brotna öxl. Bronz (1958-59). Safn Dr. og Mrs. Leo Chal- fen. A Móðir listamannsins (1950), olía. MoMA New York. Alberto Giacometti tók upp þráð inn, þar sem frá var horfið, en lífsskilyrðin voru erfið- ari að nýafstaðinni heimsstyrjöldinni og skorturinn á peningum meiri en nokkru sinni. Á árunum í Sviss hafði upplifímin á Boulevard Saint Michel stöðugt leitað á hann, og þeir voru ófáir gipspokamir, sem hann rogaðist með á hótelherbergið í mótunartil- raunir sínar. Þennan vetur sökkvir Giacometti sér ekki einungis niður í vinnu sína, heldur stundar einnig næturlífíð á Montpamasse og St. Germain des Prés. Hann á langar samræður við Simone de Beauvoir og Sartre um gmndvallarreglur höggmyndalistar- innar svo og afstöðu mannslíkamans í rýmistóminu. í hópnum eru og rit- höfundar, svo sem Louis Aragon og Geoiges Bataille svo og sálfræðing- urinn Jaques Lacan og við bætast fyrri félagar í listinni eins og Pic- asso, Balthus, Gmber og Tailleux. Stuttu eftir heimkomuna hittir hann Isabel Nicolas, sem hafði snúið aftur frá London, og hvetur hana til að taka upp sambúð með sér. Hún gerir það, en sambúðin varir ekki nema þijá mánuði og þá yfír- gaf hún hann, en þó hittust þau af og til eftir það. Sennilega var þetta tilraun Giacomettis til að fjarlægjast Annette, en þó dæmd til að mistak- ast. Það var loks árið 1946 sem Giaco- metti gat kvatt stafinn fyrir fullt og allt og á sama tima verða ýmsar merkjanlegar breytingar á teiknistfl hans. Hann fer að gera hröð riss f þá vem, að hann krassar út allt blað- ið og staðsetur svo fígúmr götunnar í yfirstærð í miðjuna og án ná- kvæmra útlína, andlitin gjaman svört og afmáð. Á þessum tíma rekst hann eitt sinn sem oftar inn í kvik- myndahús þar sem verið er að sýna fréttamyndir og uppgötvar þá skyndilega, hve fólkið í kringum hann er frábrugðið: óþekkt, eins og heiliað, fjarlægt í ótakmörkuðu lými. Þessi mikilvæga lifun ásamt teikningunum breyttu stfl hans í mótunarlistinni. Tilgangur hinna mótuðu höfuða og fígúra var ekki lengur að bregða upp endurminn- ingu í íjarvídd, heldur furðulegt end- urvarp hins séða og áþreifanlega raunvemleika: lítill í sjónvídd, án fyrirferðar, þyngdarlaus. Nokkrar þessara mynda vom sýndar í Galleríi Pierre Loeb ásamt saumnálaskúlptúmum svonefnda, sem enginn hafði þá áhuga á, og þar næst fylgir þátttaka á sýningu á nýlist í fagurlistasafninu í Tours, en aðeins ein teikning af Louis Arag- on fann kaupanda. Um páskana dvelur Giacometti í Genf og notar þá Annette í fyrsta skipti sem fyrir- sætu. Sjötta júlí kemur svo Annette til Parísar til að setjast þar að. Kynn- ist Picasso og Balthus samdægurs á Deux-Magots og fljótlega öllum öðr- um listamönnum og skáldum í kring- um Giacometti. Hin fátæklegu híbýli og einstrengingslegu lifnaðarhættir Giacomettis verða hlutskipti hennar næstu árin og í stað þess t.d. að festa séi innanstokksmuni málar Giacometti kyrralífsmynd á einn vegginn! í meira en heilt ár drógu þau fram lífið á peningum, sem þau slógu vini sína um. Þrátt fyrir að Giacometti væri nú endanlega á föstu, breytti hann lítið um lifnaðarhætti varðandi konur og ástalíf. Fyrsta líkamlega ástin, sem hann naut til fullnustu, var í örmum vændiskonu, og hann laðaðist að slíkum allt sitt líf. Fýrir honum breyttust þær í gyðjur, er hann leit nekt þeirra, og hann talaði um þær af mikilli hlýju og virðingu. Hann átti sér uppáhaldsstað, sem var vændishús er bar nafnið Sphinx á Rue de l’Échaudé í Latínuhverfinu, og er hann frétti, að endanlega stæði til að Ioka slíkum húsum í París, hraðaði hann sér þangað, en ekki fór betur en svo, að hann smitaðist af graftarútferð. Seinna setti hann saman fræga ritsmíð um nokkrar örlagaríkar lif- anir sínar, er birtist fyrst í Völundar- húsinu árið 1946 og oft er vísað til, þegar list hans er krufin og nefnist „Draumurinn, Sfinxinn og dauði T.“ Giacometti heldur áfram að forma hinar löngu fígúrur sfnar, aðallega af konum, en hann gerir einnig merkilegar lófastórar bijóstmyndir eins og t.d. af Simone de Beauvoir og Maire-Laure de Noallies, sem hafa yfir sér eitthvert óútskýranlegt og lifandi seiðmagn. Trúlega í fyrsta skipti í sögu höggmyndalistarinnar er höggmynd ekki bein eftirmynd líkamsforma, heldur huglæg sköpun lfkt og hlutir í málverki höfðu alltaf verið, í rými, sem er í senn áþreifan- legt og óraunverulegt, ímyndað sem raunverulegt. Árið 1947 hafa hin nýju fígúru- form tekið á sig fasta mynd — orðið að Giacometti-stfl. Örmjóar fígúrur með ógreinilega líkamsbyggingu en nákvæm hlutföll svo og líkingu af andlitum. Hinar hreyfingarlausu löngu konufígúrur hafa yfir sér trú- arlegt, upphafið yfirbragð og hin knöppu form mannanna verða líkust myndletri göngunnar. Og hin agaða nákvæmni gerir allt þetta svo yfir- máta sláandi og sannferðugt. Það virðist vissulega vera eitthvað í öllum mjmdlistarmönnum, sem fylgir þeim alla tíð og er nátengt persónu þeirra og uppeldi. Þannig minna fígúrur Giacomettis óneitan- lega á hann sjálfan, skarpleitt, óbif- anlegt og rúnum rist andlit hans, kraftmikinn og beinaberan vöxt. Andlit Giacomettis, sem virðist bera í sér ekki svo lítið af lífsþjáning- unni, er sem persónugervingur margra höggmynda hans, er vísa á einmanaleikann, þjáninguna, firr- inguna og innilokunina. Og hið þétta rýmisnet láréttra og lóðréttra lína, skálína og krass af fingrum fram S teikningum hans og málverkum er einhvern veginn svo samofið persón- unni sjálfri. Sumar ljósmyndir af Giacometti við vinnu sína með hinn óstýriláta hárbrúsk standandi út í loftið geta einmitt leitt hugann að andlegri innilokun og persónu, sem stendur ein á sviði sem niðumjörfuð og óbifanleg í sjálfu lífsrýminu — afmörkuðu lífsiými, vitundarinnar um sjálfið og smæð þess — en sem er þó þungamiðja tilverunnar. Giacometti var og alltaf sam- kvæmur sinu nánasta umhverfí — hann teiknaði og málaði það sem hann hafði fyrir augunum allt sitt lff og sem hann gerþekkti — í and- litsmyndum hans jafnt og högg- myndum sem málverkum var mynd- eftiið aðallega hinir nánustu í kring- um hann, foreldrar, bræður, eigin- kona, vinir, ástkonur og atvinnufyr- irsætur. Og það var hinum einbeitta og kröfuharða myndlistarmanni, sem þekkti engar málamiðlanir, nóg til þess að umbylta lögmálum mynd- listarinnar — hér var hann brautiyðj- andi, nýskapari og sporgöngumenn- imir hafa orðið margir og áhrifa hans gætt víða — jafnvel í íslenzkri skúlptúrlist svo og myndlist al- mennt, beint og óbeint. Fígúran I ferhymdri lýmisgrind er dálítið sem margur hefur hagnýtt sér óspart svo og hinar ofurlöngu stærðir. Þetta var vissulega ekki með öllu nýtt, en endumýjaðist og fékk aðra merk-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.