Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 5

Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 5
4 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 B 5 Kór - leikarar - dansarar. Morgunblaðið/Rúnar Þór Morgunblaðið/Rúnar Þór Eitthvað á seyði í svefnherbergi Tevje og Goldu - Anna Einarsdóttir, Theodór Júíusson og fleiri. Sviðið er eitt risastórt málverk. Grófgert og stórkarlalegt. Blár litur áberandi en ýmsir aðrir sterkir litir saman við. Fjöll, hús, dýr og hlutir. Gluggar, dyr og alls kyns op á líklegum og ólíklegum stöðum. Og á sviðinu sjálfu stendur kerra. Þetta er kerra mjólkurpóstsins Teyje og þetta er í fljótu bragði umgerðin um einn af vinsælustu söngleikjum allra tíma, Fiðlarann á þakinu. Staðurinn er Samkomuhúsið á Akureyri og þar er orðin hefð að ljúka leikárinu með miklum söngleik. Og stundin er að renna upp, aðeins tæp vika til frumsýningar. Fiðlarinn á þakinu er verk þriggja manna. Joseph Stein samdi leiktextann, Jerry Bock tónlistina og Sheldon Hamick söngtextana. Hér er verkið sýnt í þýðingu Egils Bjamasonar, sem gerð var fyrir Þjóðleikhúsið fyrir margt löngu, en söngtextana hefiir Þórarinn Hjartarson endurþýtt að hluta. Leiksijóri Fiðlarans er Stefán Baldursson. Hann hefur áður unnið hjá Leikfélagi AkurejTar, setti þar upp eina fyrstu sýningu sína eftir að hann kom heim frá námi, Músagildruna eftir Agöthu Christie. Það var árið 1972. Síðan hefur hann starfað syðra, fyrst leikstjóri við Þjóðleikhúsið og síðan Ieik- og leikhússtjóri í Iðnó. Siguijón Jóhannsson gerir leikmynd og hefiir yfimmsjón með búningum, sem að miklu Ieyti eru leigðir frá útlöndum. Hann er jafnan við leiksviðsgerð í Þjóðleikhúsinu, en hefur einnig gert svið fyrir L.A. Ingvar Bjömsson, ljósameistari L.A., hefiir það hlutverk að búa út lýsinguna, og það mun vera ærið starf og meira um Ijósadýrð nú en áður á Akureyrarsviðinu. Tónlistin er öll í höndum Magnúsar Blöndal Jóhannssonar, en hann stjómaði henni einnig í sýningu Þjóðleikhússins forðum. Dönsum stjómar breskur dansmeistari, Juliet Naylor, en hún er búsett í París og starfar að dansagerð og stjóm jafnt í Englandi og á meginlandinu. Æfingar hafa staðið í nokkrar vikur og verið unnið flesta daga fram á nætur, enda tekur þátt í sýningunni, auk leikaranna, fjöldi söngvara, dansara og tónlistarmanna sem koma áæfingar að loknum vinnudegi. A sólríkum sunnudegi er allur þessi flöldi í langþráðu leyfi en í leikhúsinu eru leikstjóri, höfundur leikmyndar, ljósameistari og sýningarstjórinn, Ingibjörg Bjamadóttir, því nú er verið að skipuleggja lýsinguna. Og svo er svolítið kaffihlé með blaðamanni. Tevje tyllir sér eitt andartak - Theodór Júlínsson. Anatevka Morgunblaðid/Rúnar Þór a Akureyri Fiðlarinn á þakinu í Akureyrarleikhúsinu frá og með næstu helgi Stór veröld í litlu húsi Þetta er dálítið flókið dæmi, en það gengur upp, segir Stefán Baldursson. Fiðlarinn er vissulega stór sýning og sviðið er lítið og fólkið margt. Húsið er í sjálfu sér ekki mjög ólíkt Iðnó hvað stærðina snertir, en það er samt dálítið annað að setja leikrit á svið hér. Syðra er jafnan úr fleiri Ieikurum að moða en héma. Og við emm með í þessari sýningu allmargt af óvönu fólki. Kórinn, til dæmis, sem var formlega stofnaður vegna sýningar- innar á Piltd og stúlku, þetta er hópur af hörkugóðu söngfólki, en það hefur fengið til- tölulega litla þjálfun í að leika — hvað þá að dansa — fyrr en núna. Fiðlarinn á okkar tíma En verkið sjálft. Má kalla það tímaskekkju að setja upp á norðanverðu íslandi amerískan söngleik um rússneskt fólk með framandi trú í framandi samfélagi? Nei, sjáðu til að þó að verkið sé sett inn í þessar sögulegu kringumstæður þá em þetta allt svo sammannleg atriði, tilfinningar og mannleg samskipti sem allir þekkja. Verkið er um hina heilögu hefð og stríð Tevje við dætur sínar. Þegar þær vilja fara að heiman og bijóta gegn hefðinni skapast vandi. Þetta er mál sem allir foreldrar kynnast þegar böm- in taka að fljúga úr hreiðrinu. Og þjóðfélags- aðstæðumar sem sýndar em í verkinu em líka dæmi um algild vandamál sem fólk þekk- ir um allar trissur. Maðurinn gegn hefðum þjóðfélagsins. Og allt sem kann að virðast framandi í venjum gyðinga er skýrt fyrir áhorfendum í upphafi svo ekkert valdi nú neinum misskilningi. En nú hefur veríð sagt að Fiðlarínn sé óttalega innihaldslítill amerískur söngva- leikur, umgjörð um nokkur skemmtileg lög. Það er alls ekki rétt. Þetta er mjög vel samið verk, bæði leikritið og tónlistin. Það er alveg ótrúlega mikil dramatfk í Fiðlaranum og það kom mér á óvart þegar ég fór að skoða verkið hvað það er í rauninni gott. Ég sá það hér fyrir mörgum árum og það var ánægjulegt að uppgötva þetta á ný. Mér finnst tónlistin og hinn talaði texti haldast vel f hendur og hvort tveggja er eftirminnilegt. Hins vegar geymast söngvamir á annan hátt en textinn. Þeir eru á plötum sem hægt er að spila hvenær sem er. En það er ekki sfður vegna leiktextans sem verkið lifir og er enda- laust sýnt um allan heim. Verkið er samið upp úr sögum rússnesks rithöfundar, byggt á minningum hans og reynslu, en öriög hans voru eins og í Fiðlaranum, hann varð að flýja land og fara til Ameríku. En allt er þetta af hjartans einlægni sagt og skrifað, beint frá hjarta höfundarins, góðlátleg gamansemi og myndir úr fallegu lífi. En víkjum að þessari sýningu. Hvemig á að koma allt að fimmtíu manns fyrír á ekki stærra sviði? Sem betur fer eru ekki allir á sviðinu. Það eru fimmtán manns í hljómsveitinni og hún er í giyfjunni, sem er að vísu svo lítil að þar verða allir að sitja á öllum. En til þess að gera þetta þarf að hafa sem allramest gólf- pláss og mér finnst leikmynd Siguijóns spenn- andi lausn. Af málverkinu mikla Við leysum þetta með því einfaldlega að hafa sem allraminnst af hlutum á sviðinu, segir Siguijón Jóhannsson. Það þarf f raun og veru ekki mikið og við byggum til dæmis ekki heil hús. Leiktjöldin sjá um það og ann- að leysum við með einföldum ráðum — og Ijósum. Segðu svolítið frá þessu rísastóra mál- verki sem þekur stóran hluta leikhússins. Þetta er eiginlega heimur Chagals saman settur fyrir þetta verk. Þetta eru myndefni frá rússnesku gyðingaþorpi þar sem hann ólst upp. Og þó að ekki séu því allir sam- mála er talið að nafnið Fiðlarinn á þakinu sé fengið úr mynd eftir hann. Þegar verkið var fyrst sýnt í Ameríku var að einhveiju leyti stuðst við Chagal þegar sviðið var gert, og það er iðulega farið í smiðju hans til að fá fyrirmyndir að sviði og búningum þegar Fiðl- arinn er sýndur. En nú eru allir veggir eitt samhangandi málverk og sumt er þar jafnvel á hvolfi. Hvað er um að vera? Siguijón: Baksvið sýningarinnar er sýn Chagals á þessum hlutum. Þetta eru mjög margar mjmdir frá löngum tíma á ferli hans sem eru klipptar saman og unnar í eina mynd sem er svo stækkuð upp í þetta form. Stefán: Öll atriðin sem koma fyrir á mynd- unum eru í rauninni hlutir sem væri hægt að smíða og sefja inn á sviðið ... Siguijón: ... og þeir eru meira að segja á hvolfí. En Tevje þarf nú líka iðulega að snúast býsna marga hringi frammi fyrir lög- málinu. Þarf allt f einu að skoða málið frá algerlega nýrri hlið. En svo er þetta kannski líka rússneskt að því leyti að skreytilistin f rússneskum synagogum er hreint ótrúlega viðamikil. Tónlistin og dansinn Nú er Fiðlarinn meira en leikrit og svið. Stefán: Já, sannarlega. Við erum svo hepp- in að hafa hér mjög góðan tónlistarstjóra, Magnús Blöndal Jóhannsson, sem auk þess að hafa stjómað þessu verki áður er persónu- legur vinur tónskáldsins Jerry Bock. Við not- um í aðalatriðum útsetningu sem til er handa lítilli hljómsveit því hljómsveitin okkar er lítil þó að trúlega hafi ekki fleiri verið í gryfjunni hér. Og dansahöfundur og dansstjóri er Juliet Naylor, sem vinnur hér fyrsta verk sitt á ís- landi. Hún hefur samið dansana með hliðsjón af rússneskum þjóðdönsum. Raunar eru gyð- ingahefðir í öllu hér. Þær koma fyrir í dönsun- um, sviðinu og tónlistinni, til dæmis þessi sérkennilegu hljóð sem koma í texta stað, meðal annars í Ef ég væri ríkur... Svo em það ljósin hjá honum Ingvari og auk þess notum við hljóðkerfi hússins til að blanda sem best öllu hljóði f tali, söng og tónum. í helstu hlutverkum______ Við megum ekki gleyma leikurunum. Það er náttúrulega ekki hægt að telja upp allan þennan fjölda, en Theodór Júlfusson leikur Tevje og Anna Einarsdóttir leikur Goldu konu hans. Þijár elstu dætumar leika þær Am- heiður Ingimundardóttir, Margrét Kr. Péturs- dóttir og Erla Ruth Harðardóttir og ungu mennina þeir Skúli Gautason, Gunnar Rafn Guðmundsson og Friðþjófur Sigurðsson. Með- al annarra leikara em Þráinn Karlsson, Sunna Borg, Kristjana Jónsdóttir og Pétur Eggerz og þeir em flölmargir fleiri. Allir leikarar og kórfélagar dansa lfka, og Ingólfur Bjami Sig- urðsson kemur í hópinn sem dansari. Og sfðast en ekki síst Fiðlarinn sjálfur. Það hafa svo margir spurt mig hver leiki hann. Það er Jóhann Gunnar Amarsson. Þá mega ljós- in ekki bíða lengur. Þau þurfa að vera rétt stillt þegar frumsýning hefst, föstu- dagskvöldið 29. apríl. Þá getum við farið að velta þvi fyrir okkur með íbúum An- atevka hvemig sól rís og sest og hvemig það værí nú að vera rfkúr ... Sverrir Páll em sem spyijandi opinbemn. Hvað er annars þetta innrammaða og af fólki byggða rými annað en mynd. Þegar Giacometti er ljóðrænn í skúlptúrlistinni, þá er hann hlut- rænn í málverkinu — hann reynir að fanga andlitsdrætti fyrirsæta sinna, eins og þeir birtast í tómu herbergi, hinni auðnarlegu vinnu- stofu. Ég hef hins vegar reynt að bregða ljósi á, hvemig hann sem málari meðhöndlaði gipsfígúm eins og hún væri formsköpun úr mál- verki: hann framkallar hjá styttum sínum fmyndaða, fastmótaða fjar- lægð. Öfugt getur maður og einnig sagt, að hann máli eins og mynd- höggvari, vegna þess að hann vill, að við hin upplifiim hið fmyndaða rými, sem umiykur rammana, sem raunverulegt tóm. Hann vill sýna okkur sitjandi konu, sem hann ein- mitt rétt í þessu hefur málað í gegn- um mörg lög af tómi; hann vill um leið gera málverkið að standandi vatni; gagnsætt, svipað því er Rim- baud sá fyrirburð í sjónum." Hér hefur á ágripskenndan hátt verið brugðið upp mynd af þróunar- ferii eins sérstæðasta listamanns aldarinnar, sem jafiivel við hér á hjara veraldar eigum nokkra skuld að gjalda. Megininntak listar hans var svo sem hann orðaði það sjálf- ur, en í öðru samhengi: „Hver hlutur býr sér til óendanlegt rými.“ Og fleiri listamenn hugleiddu rýmið, sem kemur faguriega fram í því sem samtíðarmaður hans, skáldið Paul Eluard, skrifaði: „Það fallegasta við skóginn fínnst mér lýmið milli tveggja trjáa." Giacometti gekkst svo mikið upp í rannsóknum sínum á rýminu, að hann var farinn að fínna fyrir af- stæði þess í nánasta umhverfi, því að honum fannst vinnustofan, sem áður hafði þrengt svo mjög að hon- stækka og stækka með árunum! árunum 1947—49 fer hróður Giacomettis sívaxandi og ekki síst fyrir þá sök, að Pierre Matisse setur upp sýningu á verkum hans í hinu fiæga galleríi sínu í New York, sem mikla athygli vakti, einkum meðal listfróðra manna og listamanna, en blöðin og almenningur voru ekki að sama skapi með á nótunum. En það var einkum á árinu 1949, að list hans festi sig endanlega í sessi í París, og þar var þá umræðu- efni manna „hinn nýi Giacometti". Árið eftir var haldin sýning á verkum hans f listahöllinni f Basel í Sviss og þar selur hann sín fyrstu verk á opinbert safn. Tvö málverk og eitt skúlptúrverk, annað málverkið var af Maire-Laure de Noailles, en hitt af borði — skúlptúrinn nefndist „Svæðið" (der Platz). Verðið, sem var samtals 5.900 frankar, var pressað niður í 5.500 franka. Á síðasta ári taldist markaðsverð skúlptúrsins eins vera þijár milljónir þýskra marka! Síðla sama ár sýnir hann aftur hjá Pierre Matisse og nú slær hann endanlega f gegn, því að allir skúlpt- úrarair á sýningunni seldust. Þessi velgengni þýddi, að flárhagsáhyggj- um er endanlega af honum létt, og nú verða umboðsmenn hans bógar eins og nefndur Pierre Matisse vest- an hafs, en Aimé Maeght f París og Evrópu. Giacometti býr þó áfram í sömu fátæklegu vinnustofunni, en leigir viðbótarhúsnæði óinnréttað á staðnum og verður það fbúð þeirra Annette. Þegar árið 1954 var frægð hans orðin slfk, að amerískur stál- milljóneri og safnari, G. David Thompson frá Pittsburgh, heimsæk- ir hann á vinnustofuna með þann draum f farteskinu að eignast stærsta Giacometti-safn f heimi og gera listamanninum kleift að lifa áhyggjulausu lífi eftirleiðis — rífa sig lausan frá umboðsmönnum sínum og vinna eins og hann lysti eftirleiðis, engum háður. Ekki varð úr því, en Thompson fékk nokkur mikilvæg frumverk í safii sitt. Er peningamir fóru að streyma .C * ■' 0 Teikning af Jean Paul Sar- tre (1946). Einkaeign, New York. úr öllum áttum f hendur Giacomett- is, lét hann móður sína einnig njóta þeirra, sendi henni hvert seðlabúntið (1946). Safn Annick og Pi- erre Berés, París. á fætur öðru. Hann hafði stórt hjarta og hélt mikla tryggð við vini sína og starfsbræður þótt honum sinnað- ist við suma, Ld. Picasso og Sartre — hann var við dánarbeð Matisse árið 1954 og gerði af honum röð teikninga og sýndi einnig Henri Laurens mikla virðingu en hann lést sama ár — árið 1963 teiknaði hann og Braque á dánarbeði hans. Þá var hann, svo furðulegt sem það er, eini nafiikenndi myndlistarmaðurinn við útför André Derains. Það urðu umskipti f lffi Giacomett- is í október árið 1959, er hann kynnt- ist hinni tvftugu Caroline á bar á Rue Vanvin. Hann varð hugfanginn af henni og málaði hana allt til árs- ins 1965. Hennar vegna lét hann eitt sinn Marlene Dietrich, sem á tfmabili heimsótti hann oft, bfða ár- angurslaust eftir sér. En hann átti eftir að lenda í miklum og dularfull- um fjárútlátum út af þessari lags- konu sinni, og er hann í lok næsta árs kaupir íbúð fyrir bróður sinn og aðra fyrir Annette, þá kaupir hann um leið miklu fburðarmeira húsnæði fyrir Caroline. Minning Caroline lifir f myndum hans, en með dauða hans hvsuí hún sjálf út f ómynni sögunnar. Giacometti sá í hórunni Caroline sfðustu æviár sfn lffsinnihald, sem stæði jafiit list hans og jafnvel alin meir. Á þessum árum hlaut hann flestar þær viðurkenningar, sem yfirhöfuð geta fallið f skaut myndlistarmanna, m.a. myndhöggvaraverðlaunin á Feneyjatvíæringnum, og söfnin sló- gust um myndir hans. Síðasta heila árið, sem hann lifði, naut hann þess heiðurs, að nútfma- listasafnið í New York setti upp yfir- gripsmikla sýningu á verkum hans, sem stóð frá 9. júní til 10. október (1965) og hélt sýningin áfram í Chicago, Los Angeles og San Fran- cisco fram til 24. apríl 1966. Hann fór tii New York vegna sýningarinn- ar en þá var svo komið fyrir honum, að öllum var Ijóst, að dagar hans væru senn taldir og nú var orðstír hans slíkur, að stórblöðin beggja vegna Atlantsála voru tilbúin með eftirmæli. Svo vildi til að greinarhöfundur var staddur í New York er sýningin var nýopnuð f MOMA, og fékk þvf tækifæri til að skoða hana vel og vandlega, en sýningin í Berifn var miklu umfangsmeiri og sýningar- skráin margfalt stærri og veglegri, þrátt fyrir að á sínum tíma væri fyrri skráin með því veglegasta, sem þá tfðkaðist. En þetta sýnir ljóslega þróunina og það er ævintýri líkast að hand- fjatla sýningarskrámar nú á tfmum og glugga í hlutlausar heimildir um lífsferil listamanna og lesa hvers konar ritgerðir um þá. Þær taka öllum listaverkabókum langt fram um heimildagildi og mannlega ásjónu. Myndimar, sem fylgja þess- ari grein og stórum hluta upplýsinga og heimilda, eru einmitt teknar upp úr þessum tveim sýningarskrám. Álberto Giacometti lést farinn að heilsu á kantónuspítalanum f Chur 11. janúar 1966, aðeins 65 ára að aldri — fátækt, óhamið og meinlæta- fullt Iíferai tóku hér sinn toll. Hann hafði þjáðst af magakrabba, sem þó tókst að lækna með því að nema brott 3A af magasekknum, en önnur líffæri, sem voru veik fyrir, þoldu ekki álagið, þannig að honum hrakaði jafnt og þétt. Banameinið var hjartasjúkdómur samfara bronkítis, sem hann hafði þjáðst af um árabil, lifrarstífla og vökvasam- söfnun. Líkið var flutt á vinnustofu hans í Stampa, og þaðan var honum fylgt til grafar hinn 15. janúar af miklum mannQölda. Auk ættingja, vina og þorpsbúa, fulltrúa kantónunnar og umdæmisins svo og franska ríkisins voru mættir vinir hans frá Sviss og París auk safnstjóra og listaverka- kaupmanna víða að úr heiminum. Hægt og rólega þokaðist lfkfylgd- in þennan gráa vetrardag frá Stampa til fæðingarstaðar Giaco- mettis, Borgonovo, þar sem hann hvflir í kirkjugarðinum S. Giorgio_

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.