Morgunblaðið - 23.04.1988, Side 6

Morgunblaðið - 23.04.1988, Side 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 Alan Paton Harmsaga Suður-Afríku var honum stöðugt yrkisefni Suður-afríski rithöfundurinn Alan Paton lést þriðjudaginn 12. apríl síðastliðinn. Paton var 85 ára að aldri, löngu heimsþekktur fyrir afskipti sín af stjómmálum Suður-Afríku, andstöðu sína við kynþáttastefnu minnihlutastj ómar hvítra og stofnun Frjálslynda flokksins árið 1958. Paton var formaður þess stjómmálaflokks þar til hann var bannaður af stjómvöldum árið 1968. Alans Patons verðurþó fyrst og fremst minnst fyrir ritstörf sín og skáldsaga hans, Grát ástkæra fósturmold, sem út kom 1948, vakti heimsathygli á óréttlæti aðskilnaðarstefnu stjómvalda í Suður-Afríku. Alan Paton Alan Paton fæddist þann 11. janúar árið 1903 í Piet- ermaritzburg í Natal í Suð- ur-Afríku. Hann lagði stund á stærðfræði við Natal-háskóla og lauk þaðan kennaraprófi 1923. Pa- ton stundaði kennslu og ritstörf, en árið 1935 var hann skipaður jrfirmaður Diepklopf-betrunarhæl- isins (drengjafangelsis) fyrir blökkudrengi nærri Jóhannesar- borg. Sem yfírmaður þessa stærsta drengjafangelsis á meginlandi Áfríku, 700 fangar, breytti Paton ímynd þess úr sóðalegri og grimmi- legri refsivistarstoftiun í stofnun þar sem „frelsið varð tæki til betr- unar". Paton var alla tíð innblásinn af krafti kristinnar trúar og sér þess glöggt merki í flestum skrifum hans. Aian Paton hóf ungur ritstörf og að sögn ritaði hann nokkrar skáld- sögur og fjölda smásagna á öðrum og þriðja áratug aldarinnar. Ekkert af þessum ritverkum hlaut þó náð fyrir augum höfundarins sjálfs og því eyðilagði hann öll þessi skrif svo þau kæmu ekki fyrir almennings- sjónir. Fyrsta útgefna skáldsaga Alans Patons var Meditation for a Young Boy Confírmed, sem út kom í London árið 1944. Alan Paton var alla tíð mjög gagnrýninn á eigin verk og er það meðal annars talin ástæða þess að hann gerðist frá- hverfur skáldsagnaritun; engin af útgefnum skáldsögum hans stóðst hans eigin listrænu kröfur fyllilega. Eftir lok seinni heimsstyijaldar- innar ferðaðist Paton til Evrópu í þeim tilgangi að kynna sér ástand og nýjungar í fangelsismálum fyrir unga afbrotamenn. Paton hóf að skrifa bók sína Grát ástkæra fóstur- mold í Þrándheimi í Noregi og lauk við hana í San Franciseó þremur mánuðum síðar. Bókin var gefín út samtímis í Bandaríkjunum og Bretlandi og gerði höfundinn þegar heimsfrægan. Kurt Weill og Max- well Anderson gerðu eftir henni söngleik og sagan var fljótlega kvikmynduð. Paton sagði upp stöðu sinni við Diepklopf árið 1948 og settist að á suðurströnd Natal. Hann gerðist ötull rithöfundur og var óþreytandi að gagnrýna stefnu stjómvalda. Árið 1953 kom önnur skáldsaga hans hans út, Too late the Phala- rope (Of seint óðinshani). í þessari skáldsögu gerir Paton siðfræði hvíta mannsins í Suður-Afríku að umijöllunarefni sínu og flettir ofan af tvöfeldni siðgæðisins á snilldar- legan hátt. Þessi saga hefur af mörgum verið talin fremri Grát ástkæra fósturmold, en þungur biblíuskotinn stfllinn er talinn hafa hindrað almennar vinsældir. Eftir því sem stjómmálaástandið í Suð- ur-Afríku versnaði mun Paton hafa fundist að sér kreppa á tveimur vigstöðvum. Annars vegar bauð samviskan honum að láta til sín taka á stjómmálasviðinu, hins veg- ar stóð hugur hans til áframhald- andi skáldsagnagerðar. Hann gaf út smásagnasafn árið 1961 Debbie Go Home, og var meðhöfundur að leikgerð nokkurra þessara smá- sagna, Sponono, sem fiumflutt var í New York 1964. Skáldsagnagerð lagði Paton þó á hilluna eftir 1953 og snéri sér að líknarstörfum og stjómmálum. Árið 1953 settist hann að, ásamt konu sinni Doris, í Toc H-berklanýlendunni í Natal þar sem þau önnuðust um berklasjúkl- inga á batavegi. Árið 1958 stofnaði Paton Fijálslynda fíokkinn (The Liberal Party) og var kjörinn for- maður hans. Fijálsljmdi flokkurinn boðaði jafnrétti hvítra og svartra og hafnaði öllum hugmyndum stjómvalda um jrfirráð hvítra og aðskiinað eftir hörundslit. Flokkur- inn hætti starfsemi tíu ámm síðar er ný lög Suður-Afríkustjómar um ólöglega stjómmálastarfsemi tóku gildi, en með þeim urðu allir flokk- ar ólöglegir sem höfðu bæði hvíta og svarta innan sinna vébanda. Stjómvöld Suður-Afríku sviptu Pat- on vegabréfi sínu frá 1960-1971 en vegna alþjóðlegrar frægðar hans og stuðnings almennings heima fyr- ir, áræddu stjómvöld aldrei að of- sækja hann eða fjölskyldu hans í lflct því sama mæli og marga aðra samlanda hans. Við lát Patons vom stjómvöld Suður-Afríku skjót til að votta hin- um látna virðingu sína og er það til marks um um brejdta stöðu Patons heima fyrir á síðustu ámm. P.W. Botha forsætisráðherra sagði t.d. að þrátt fyrir gagnrýni á stefnu stjómvalda hefði Paton ætíð dregið úr broddi gagnrýninnar með því að minnast þess sem vel væri gert og horfði til framfara. Á sama hátt vom stjómarandstæðingar varkárir í yfírlýsingum við lát Patons, sem lýsir best þeirri brejrtingu sem varð á persónufylgi Patons á síðustu ámm. Andstaða Patons við stefnu Desmonds Tutus erkibiskups mun hafa ráðið þar mestu. Paton and- mælti stuðningi Tutus við efna- hagsþvinganir gegn Suður-Afríku árið 1984 og skapaði sér þar með óvild allra helstu leiðtoga blökku- manna Suður-Afríku. Stuttu eftir árekstur þeirra Tutus og Patons vom Tutu veitt friðarverðlaun Nób- els. Varð það enn frekar til þess að veikja málstað Patons sem hélt þó fast við sannfæringu sína að stuðningur við efnahagsþvinganir jafngilti svikum við boðskap kristn- innar. Eftir 1960 hætti Paton að líta á sig sem skáldsagnahöfund og snéri sér að ævisagnaritun: The life and times of Jan Hofmeyr (1963) og ævisaga Geoffreys Clajrtons erki- biskups af Höfðaborg, The Apart- heid and the Arehbishop (1973). Paton ritaði einnig sjálfsævisögu sína, Towards the Mountain, sem út kom 1980. Rétt fyrir dauða sinn hafði Paton lokið við seinni hluta sjálfsævisögu sinnar sem gefín verður út nú í vor undir heitinu Joumey’s End. Alan Paton giftist fyrri konu sinni, Doris, árið 1928. Þau eignuðust tvo sjmi sem báðir em á lífi. Doris lést árið 1967 og í minningu hennar ritaði Paton bók- ina Kontakion for you departed, sem er hrífandi minnisvarði um merkiskonu. Seinni kona Alans Patons er Anne og lifir hún mann sinn. H. Sig. tók saman. Heimildir: The Times og The Observer. ANDRÉS BJÖRNSSON SKRIFAR Með Alan Paton hverfur úr sögunni einhver kunn- asti rithöfundur Suður-Afrfku á þessari öld. Rithöf- undarferill hans hófst raunar seint á ævi, þegar hann var á fimmtugsaldri. Undirtónninn i ritverkum Alans Patons skýrist fyrst og fremst af 13 ára starfi hans að fangelsismálum og stjómun 700 blakkra afbrotaunglinga. En kannski er hann ekki síður að finna í bernsku og uppvexti Patons, — til- finningalegum átökum við föður sem beitti böm sin hörku og líkamlegum refsingum. Faðirinn vakti nánast hatur í hugadrengsins, en siðar eftir dular- fullan dauðdaga, meðaumkun þessa unga sonar sins. — Þessi lifsreynsla var jafnan ríkur þáttur i hispurs- lausum og gagnrýnum skoðunum Alans Patons um frelsi og frið fyrir alla Iandsmenn hans, hvers litar sem þeir kunnu að vera. Hann trúði á sigur hins góða án byltingar. Árið 1946 tókst Alan Paton ferð á hendur að eig- in frumkvæði og á eigin kostnað til að kynna sér fangelsismál i Bandarfikjunum, Bretlandi, Noregi og Svíþjóð. Á þriggja mánaða ferðalagi ritaði hann sína fyrstu og frægustu bók i einni striklotu, skáld- söguna Grát ástkæra fósturmold (Cry The Beloved Country). Handritið varð til á hótelherbergjum þar sem hann dvaldist á ferðalagi sinu. Sagan kom út 1948 í B andaríkjunum og Bretlandi og vakti þegar geysilega athygli á höfundinum, landi hans og þjóð og vandamálum þeim sem þar var við að etja. Skáld- sagan var þýdd á hér um bil 20 tungumál, þar á meðal íslensku 1955, og hefur hún selst i meir en 17 miRjónum eintaka um viða veröld. Ennþá seljast um 100 þúsund eintök árlega, og hún er ennþá náms- efni í breskum skólum. f heimalandi höfundar var bóldnni tekið fálega af mörgum, fyrst og fremst þjóðernissinnum og aðskilnaðarmönnum, sem fannst hún gefa of dökka- og einhliða mynd af þjóðfélagi i upplausn. Siðar var hún fordæmd af blökkumönnum, þvi að þeir sáu i aðalpersónunni, Zuluprestinum, bandariska svert- ingjann, Tómas frænda i risastærð. Róttækir stúd- entar meðal blökkumanna brenndu þessa bók. — Þrátt fyrir þær óbliðu móttðkur sem sagan hlaut i heimalandi höfundar, vakti hún athygli og aðdáun um viða veröld, hefur verið kvikmynduð og sýnd á leiksviði og mótað skoðanir margra á skilnaðar- stefnu þjóðflokkanna sem svo stranglega hefur ver- ið framfylgt i Suður-Afríku siðustu áratugi. Alan Paton notaði sem undirtitil bókar sinnar: Sagan um huggun i hörmum. Aðrir hafa bent á að viðfangsefni höfundar i þessari skáldsögu sé i raun glæpur og refsing. Glæpurinn er morð með flóknu ívafi svarts og hvits samfélags i kvalahriðum, með slitróttum samskiptum feðra og sona. Alan Paton Iýsir æskuslóðum sjálfs sin og fegurð ættjarðar sinnar af djúpri innlifun og næmri skynjun. Rit- snilld hans er óumdeild. Yfirbragð skáldsögunnar ber víða sterkan svip af trúarlifi hans og boðskap Krists um skilyrðislausan kærleika og fyrirgefn- ingu. Grát ástkæra fósturmold Kafli úr skáldsögu Alans Paton Sannleikurinn er sá, að hin kristilega menning vor er barma- full af mótsetningum. Vér trúum á bræðralag, en vér kærum okkur ekki um það í Suður-Afríku. Vér trúum því, að Guð gæði menn ýmsum gáfum, og mannlegt líf velti á, að þær séu notaðar að fullu til gagns og gleði, en vér erum hræddir við að skoða þessa trú ofan í lqolinn. Vér trúum á hjálp við lítilmagnann, en vér vilj- um samt, að hann verði áfram lítils megandi. Og til þess að vemda þá trú vora, að vér séum kristnir menn, erum vér tilneyddir að tileinka almáttugum Guði, skapara himins og jarðar, vor eig- in mannlegu áform og segja, að hann gefí guðlegt samþykki sér- hverri athöfn manns, sem hnígur að því að hefta þroska blökku- manna, af því að hann skapaði hvíta menn og svarta. Vér göngum jafnvel svo langt að eigna almáttugum Guði það, að hann hafí skapað svarta menn til að höggva brenni og bera vatn fyrir hvíta menn. Vér göngum svo langt að gera ráð fyrir, að Guð blessi hvert það verk, sem miðar að því að hindra, að svartir menn fái notið til fulls þeirra gáfna, sem hann hefur gefið þeim. Jafnhliða þessum röksemdum notum vér aðra, sem stangast við þær, til þess að ásakanir um kúgun verði hraktar. Vér segjumst neita svört- um bömum um skólafræðslu, af því að þau hafi ekki gáfur til að hagnýta sér hana. Vér réttlætum þessar gerðir vorar með þvf að segja, að það hafi tekið oss þús- und ár að ná þeim þroska, sem vér höfum, og það væri heimsku- legt að gera ráð fyrir, að það tæki blökkumenn skemmri tíma, þess vegna sé engin ástæða til að keppast við uppfræðsluna. Vér tökum enn annað sjónarmið, þeg- ar svartur maður vinnur eitthvert áberandi afreksverk, og finnum þá til djúprar samúðar með manni, sem dæmdur er til einmana frægðar, og vér kveðum upp þann úrskurð, að það sé kristileg mis- kunnsemi að leyfa ekki svörtum mönnum frægð. Þannig verður jafnvel Guðshugmynd vor rugl- ingsleg og sjálfri sér ósamkvæm, þar sem Guð gefur gáfur, en bannar, að þær séu notaðar. Er þá undarlegt, þótt menning vor sé barmafull af mótsetningum? Sannleikurinn er sá, að menning vor er ekki kristin. Hún er ömur- legt sambland hárra hugsjóna og hræðilegra verka, sambland af mikilli dirfsku og vonlausum ótta, kærleiksverkum og óttalegri græðgi í veraldleg gæði. Gefið mér andartak... Birt meó leyfi útgefanda, Almenna bókafélags- ins, 1955, Andrés Bjömsson íslenskaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.