Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 B 11 Donald Judd. „ Untitled 1987“ — galvaniserad járn og plexiglas. RichardLong. „Black and fVhiteRiverAvon MudLineManchester 1987' Þama hefur Judd verið að kaupa land og húsasamstæður, til að koma fyrir viðamiklu safni myndlistar. Meðal myndlistarmanna sem þar eiga verk er Richard Long. Richard Long er einhver mesti göngugarpur á myndlistarsviðinu, fæddur í Bristol árið 1945. Þegar allt var á kafl í bítlum og rólling- stónum, lagði Long land undir fót í öfuga átt við sinn brezka tíðar- anda og hóf m.a. að velta um stein- um í ríki náttúrunnar víða um heim. Þau lönd sem hann hefur lagt und- ir fót leika á tölu sem greinarhöf. veit ekki hver er. Það eru verk í öllum heimsálfum. Það er lína í Himalaya. Það er hringur á ís- landi. Steinar í Marokkó. Steinar í Ástralíu. Rekaviður í Alaska... Grundvallarverkið á ferlinum var þegar hann gekk línu í landslag, árið 1967; fram og til baka gekk hann í kafgrasi svo klukkustundum skipti, unz kom fram greinileg lína. — Það að draga línu skiptir ekki svo litlu máli í myndlistinni; frum- drögin eru þó frá vetrinum 1964, farið eftir hnoðun snjóbolta, sem ljósmynd er til vitnis um, en sjálf línan er vitaskuld löngu bráðnuð. — Hefur listamaðurinn látið eftir sér hafa, að það sé honum ekki svo ýkja §arri skapi að mörg verka hans standist ekki tímans tönn. Verkin í náttúrunni, á hinum af- skekktustu stöðum, hefur hann ljós- myndað; ljósmyndaheimildin er miðill hugmjmdarinnar og reynsl- unnar úr ferðinni út í landslagið. Ferðalagið er vinna listamannsins. Og ekki hvað sízt er bókin, eða katalógurinn afgerandi hjálpartæki í þessarar tegundar tilfelli. — En annars er listamaðurinn fámáll um verk sín, hann ætlar þeim að tala sínu eigin máli. Hann er dulur — persónulegar upplýsingar eru alger- lega í lágmarki og til undantekn- inga heyrir að mynd birtist af hon- um. Richard Long er hálfgerður huldumaður í listaheiminum; hann gæti allt eins verið búsettur í kletta- borg. Land art heitir sú tegund mynd- listar, þar sem listamaðurinn notar sjálfa náttúruna sem efnivið og — starfar sjálfur úti í náttúrunni. Það gefur augaleið, að erfítt er að koma þessari tegund af list fyrir í söfnum án þess að hún tapi nafni. Kemur þó ekki í veg fyrir, að verk eftir Long er að fínna í velflestum nú- tímalistasöfnum Vestur-Evrópu. Þau eru þá ekki einungis Ijós- myndaheimildir, heldur og gólfverk, oftast grjót. Þessu gijóti (eða ef um rekavið er að ræða, eða furuná- lar...) er snyrtilega raðað saman þannig að mynduð er lína, hringur, sammiðja hringir eða kross. Þessum verkum fylgir lítill hávaði. Þótt eig- inlegt „handbragð" blasi ekki beint við, er samt ljóst að þama er kom- inn Richard Long — þetta er hans stíll, eða tungumál í listinni. FVrir 14 árum var Long staddur á íslandi og vann þá nokkur verk í landslaginu; eru til marks um það ljósmyndir, sem víða hafa verið sýndar og birzt hafa t katalógum, bókum og tímaritum. Hefur hann opnað augu frægra listfræðinga fyrir þeirri einföldu staðreynd, að ísland er hvorki Spánn né Astralía. — Að þessu sinni kemur Long til landsins í tilefni sýningarinnar í Nýlistasafninu. Jafnframt mun hann ætla að nota tækifærið til að vinna verk úti í hinni íslenzku nátt- úru. — í náttúrunni er uppspretta listaverka hans. — í fágætri yfírlýs- ingu endar listamaðurinn á þessum orðum, í lauslegri snörun: „Verk mitt er orðið að einfaldri myndgerv- ingu Kfsins. Mannvera gengur eftir vegi, í áttina að marki sínu. Það ræðst af minni mannlegu getu og skilningarvitum; hve langt ég geng, hvaða steina ég tek upp, hver mín tiltekna reynsla er. Náttúran hefur meiri áhrif á mig en ég á hana. Ég læt mér nægja almennan orða- forða og einfaldar aðferðir; göngu, staðsetningu, steina, sprek, vatn, hringi, llnur, daga, nætur, vegi.“ Þriðji maðurinn I Nýlistasafninu á komandi Listahátlð í Reykjavík 'er Kristján Guðmundsson, fæddur 1941 á Snæfellsnesi. Hann hefur vafalaust um margt að spjalla við >Judd og Long. Sú hugmynd að 'stilla upp íslenzkum listamanni á móti þeim erlendu er a.m.k. góð á teikniborðinu, og í þessu sérstaka tilfelli kemur K.G. helzt til greina af heimamönnum. Kristján kom við sögu í Gallerí Súm, sem var og hét á sínum tfma. Þar sýndi hann eitt sinn verk, sem undirrit. hefur í huga við ritun þess- ara lína: „Þríhymingur í femingi". Verk frá 1971—72, 4x4 metrar, moldarfemingur á gólfí — innan í femingnum var sagður vera þríhymingur samsettur úr vígðri mold — var þetta sýningin í salnum. Má kannski segja, að þama hafí K.G. slegið rásum saman við mínim- alisma og jarðefnanotkun Judds og Longs ... Kemur þama og margt 'fleira til greina, sem ætti að vera |landanum þörf hugvekja, svo sem Jeins og hver er staða íslenzkrar í !dag! I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.