Morgunblaðið - 28.05.1988, Qupperneq 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
Leiklistarskólinn verður
leiklistarháskóli
Rætt við Helgu Hjörvar skólastjóra Leiklistarskóla íslands um frumvarp til laga um Leiklistarháskóla
Drög að frumvarpi til
laga um
Leiklistarháskóla íslands
liggja nú fyrir og voru
kynntaf
undirbúningsnefnd og
fulltrúa
menntamálaráðuneytis á
dögunum. í
undirbúningsnefnd að
þessu frumvarpi áttu sæti
þau Helga Hjörvar
skólastjóri
Leiklistarskóla Islands,
Gísli Alfreðsson
Þjóðleikhússtjóri og
Sveinn Einarsson
leikstjóri og
leikhúsfræðingur. Helga
Hjörvar varð fúslega við
þeirri ósk að skýra
hugmyndir er liggja að
baki þessum
frumvarpsdrögum og
hveiju frumvarpið komi
til með að breyta fyrir
kennara og nemendur í
leiklist hérlendis.
Lög um leiklistarskóla íslands
eru frá árinu 1975. Með þeim
var verið að leysa ákveðinn
vanda sem skapast hafði í skip-
an leiklistarnáms á undan-
gengfnum misserum. Hvernig eru nýju
frumvarpsdrögin frábrugðin núgildandi
lögum?
„Lögin um Leiklistarskóla íslands voru sett
við sérstakar aðstæður. Fram til þess tíma
höfðu verið starfandi kvöldskólar reknir af
Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu en
forráðamenn þeirra skóla ákváðu að leggja
þá skóla niður, til að leggja áherslu á að
auknar kröfur til menntunar leikara yllu því
að nauðsynlegt væri að stofna ríkisleiklistar-
skóla. Það varð nú ekki fyrr en stofnaðir
höfðu verið tveir heilsdagsskólar kostaðir af
verulegu leyti _af opinberu fé að lögin um
Leiklistarskóla íslands voru samþykkt. A þeim
tíma var verið að breyta ríkisleiklistarskólum
Norðurlanda í leiklistarháskóla. í reynd hefur
sú kennsla sem fram hefur farið aldrei getað
flokkast undir framhaldsskólastigið enda
skólinn virkur aðili í samstarfi leiklistar-
háskóla Norðurlanda frá upphafí og verið
virtur sem slíkur. Leiklistarskólinn hefur ver-
ið flokkaður sem framhaldsskóli, þannig þurfa
kennarar nú próf í uppeldis- og kennslufræð-
um til að geta kennt hér, svo dæmi sé tekið.
Umfangsmesta kennslugreinin í skólanum er
leiktúlkun og allar aðrar námsgreinar mætast
í þeirri grein. Enginn þeirra leikhúslistamanna
sem skólinn hefur fengið til starfa hefur þessi
tilskildu réttindi. Vissulega hafa lögin um
lögvemdun á starfsheiti kennara haft geysi-
lega þýðingu fyrir grunnskóla og framhalds-
skóla. Ég er ekki að kasta rýrð á þau lög;
það að þau bitna á okkar skóla er einungis
vegna þess að staða hans í skólakerfínu er
ekki rétt. Enginn af ríkisleiklistarskólunum í
nágrannalöndunum er á framhaldsskólastigi
og því ekki krafíst kennsluréttinda við þá.
Aldurstakmark inn í Leiklistarskóla íslands
er 19 ár. Hin síðari ár hafa 80-90% nemenda
lokið stúdentsprófí. Þegar þessir nemendur,
sem staðist hafa strangt inntökupróf hafa
lokið 4ra ára námi með mikilli skólasókn og
mikilli heimavinnu, standa þeir aftur uppi
með ígildi stúdentsprófs."
Hvaða prófgráðu fengi þá nemandi sem
lyki námi við væntanlegan Leiklistar-
háskóla?
„Nemendur myndu útskrifast með BA-
gráðu í leiklist."
Er hér kannski fyrst og fremst um kerf-
isbreytingu að ræða, en ekki eðlisbreyt-
ingu á umfangi starfsemi Leiklistarskóla
íslands?
„Já, það má segja það. Að mestu leyti er
verið að búa svo um hnúta að skólinn geti
gegnt því hlutverki sem honum hefur verið
ætlað frá upphafí. Nýjungar í frumvarps-
drögunum eru komnar fram af brýnni þörf."
í frumvarpsdrögunum segir svo: í
skólanum skal hafa forystu um nýjungar
og rannsóknir þessu sviði., þ.e. leiklistar.
Hvað er átt við?
„Já, ísland hefur mikla sérstöðu vegna hins
mikla leiklistaráhuga sem hér hefur verið.
Erfitt hefur verið fram að þessu að fínna
fólk sem aldrei hefur farið í leikhús. Meira
að segja er fólk í flestum stéttum sem iðkað
hefur leiklist. Nú skella á okkur miklar þjóð-
félagsbreytingar, einkum hvað varðar fjöl-
miðlun og flutning reynslu á milli kynslóða.
Engar rannsóknir hafa þó verið gerðar á leik-
listarsviðinu hvorki hvað varðar fortíð eða
nútíð."
Hvers vegna er ekki
tiltekið í frumvarps-
drögunum hvaða
námsbrautir og jafn-
vel deildir væntanleg-
ur Leiklistarháskóli
ætti að innihalda. Til
dæmis í leikstjórn,
leikmyndahönnun,
leikhúsfræðum og
Ijósahönnun?
„Það er álit mitt að
lagasetning megi ekki
hefta. Lögin eru ákveð-
inn rammi en síðan er
eðlilegt að nákvæmari
tilhögun á námi og
námsbrautum sé tiltekin
í reglugerð um skólann.
Samkvæmt lögunum frá
1975 er skólanum ein-
göngu ætlað að mennta
leikara en heimild er í
reglugerð til að mennta
tæknimenn, leikstjóra
og leikmyndateiknara.
Hugmynd nefndarinnar
var að hafa sama hátt
á nú.“
Stúdentspróf er
ekki skilyrði fyrir inn-
göngu en skólinn setur
aldurstakmark. Hvers
vegna?
Helga Hjörvar skólastjóri Leiklistarskóla
íslands.
„Kennsla í leiklistarskóla er þjálfun líkama
og raddar og það að túlka ólíkt fólk frá mis-
munandi tímum krefst viss þroska. Þegar
lögin um Leiklistarskóla íslands voru sett
árið 1975 var aðeins örlítið brot umsækjenda
með stúdentspróf. Nú er stúdentspróf orðið
mjög almennt og ekki þörf að gera það að
sérstöku inntökuskilyrði. Stundum hefur kom-
ið fram sú ósk að nemendur væru teknir inn
yngri en 19 ára og hefur það þá venjulega
verið vegna þess að leikstjóri leikrits eða
kvikmyndar hefur verið að leita eftir ungling-
um í hlutverk. Það getur vissulega oft verið
vandasamt að skipa í þessi hlutverk einkum
ef leikstjórar hafa mjög hefðbundnar skoðan-
ir á þvf hvemig ungt fólk eigi að líta út. Þó
aldurstakmark yrði lækkað er það engin
trygging fyrir því að þessi vandi leikstjóranna
yrði leystur. Skólinn er einnig starfsmenntun-
arskóli og leitast við að veita nemendum
menntun, sem endist þeim allt lífíð."
Þú nefndir menntun leiklistarkennara.
Hvað áttirðu við?
„Þetta er mér mikið hjartans mál allt frá
því ég kenndi leiklist á sumamámskeiðum
Kennaraháskóla íslands uppúr 1970. Ég hafði
mikinn áhuga á því að þeir möguleikar sem
em í leikstarfí væm nýttir í skólakerfínu.
Nú er árið 1988 og enn hefur lítið þokast í
þessa átt. Kennsla í leikrænni tjáningu og/eða
framsögn er enn ékki fastur þáttur í námi
hins almenna kennara. Leiklist sem valgrein
hefur enn ekki komist á námsskrá fram-
haldsskólanna. Þar er einungis nefndur
áfanginn „tjáning," en tveir af kennumm
Leiklistarskólans munu í sumar kenna á nám-
skeiði ætluðu kennumm í þessum áfanga í
framhaldsskólunum."
Hvað með leiklist sem kennslutæki í
sjálfu sér við kennslu annarra greina?
„í gmnnskólunum væri æskilegt að leiklist
væri beitt á þann hátt en í framhaldsskólun-
um, sem byggjast að mestu leyti á aðskildum
greinum, mætti kenna leiklist sérstaklega.
Ég álít að allar greinar leiklistar séu þýðingar-
miklar. Það að nota hana sem aðferð til að
öðlast meiri persónulegan þroska, það að
ganga útúr hópnum og framfyrir hann og
flytja honum sín eigin eða annarra orð og
það að lesa leikhúsbókmenntir og fræðast um
stefnur og strauma svo maður geti enn frek-
ar notið þess að fara í leikhús; þetta er allt
jafn þýðingarmikið.“
Verða breytingar á þeim kröfum sem
gerðar hafa verið til kennara skólans við
þessa tilfærslu hans á milli skólastiga?
Munu leiklistarkennarar þurfa háskóla-
próf?
„Þær menntunarkröfur sem jgerðar verða
til kennara í Leiklistarháskóla Islands munu
væntanlega taka mið af reynslu nágranna-
þjóða okkar. Þar er yfirleitt krafíst prófs frá
leiklistarháskóla eða þeim leiklistarskólum
sem þeir leystu af hólmi. Til jafns við þetta
er lagður langur starfsferill á því sviði sem
kenna á. Skólamir hafa síðan mismunandi
aðferðir við að meta kennsluhæfni vðkom-
andi. Til þess að taka af allan vafa um þetta
atriði er rétt að segja að þeir sem hafa kennt
við skólann hingað til verða allir jafngjald-
gengir og áður þrátt fyrir þessa breytingu."
Kom aldrei til greina i þessari umræðu
að í stað Leiklistarháskóla íslands yrði
stofnuð leiklistardeild við Háskóla íslands?
„Nei og það hefur verið stefna menntamála-
ráðuneytisins að dreifa námi á háskólastigi
frekar en setja það allt undir sama hatt.
Nýjustu dæmin eru Háskóli á Akureyri. Auk
þess má nefna að í þeim löndum þar sem
leiklistamám hefur verið hluti af háskólanámi
kennslu og talverðan tækjabúnað. Þá vilja
einnig verða árekstrar þegar ákvörðuð em
hlutföll fræðilegrar og verklegrar kennsiu.
Leiklistarháskóli er betur settur sem sérstök
stofnun."
H. Sig.
hefur oft reynst erfítt að gera háskólayfírvöld-
um ljósar sérstakar þarfír leiklistardeildar/
Það barf mikið húsrvmi og mikla einstaklings-