Morgunblaðið - 03.06.1988, Side 13

Morgunblaðið - 03.06.1988, Side 13
8861 ÍVíOl JíUOAQUT8<X3 .(3KIAJ8VÍIIOflOM a si MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1988 B 13 MYIMDBÖIMD Sæbjörn Valdimarsson LÉTTFETAR OG LIÐHL AUPAR TENDERFOOTAV2 Leikstjóri Byron Paul. Handrit Maurice Tombragel, byggt á bókinni Arizona in the 50’s, eftir James H. Tevis. Aðalleik- endur Brian Keith, Brandon de Wilde, James Whitmore, Rich- ard Long. Bandarísk. Walt Disney 1964. Bergvík 1988. 81 min. Þrír saklausir Austurstrandar- menn koma til Arizona um miðpa öldina síðustu í leit að fé og frama, en hvorugt auðfundið. Sá yngsti, (de Wilde), gerist handgenginn ofursta í riddaraliðinu, (Whit- more), og fær fljótlega starf sem aðstoðarmaður indjánanjósnara, (Keith). Þeir lenda þó mestmegnis í útistöðum við liðhlaupa og hrossa- þjófa og berst leikurinn m.a. niður til Mexíkó. Heldur dáðlítil blanda af vestra og gamanmynd, sem sjálfsagt hefur þótt mun bitastæðari fyrir þeim aldarfjórðungi sem liðinn er frá útkomu hennar. Að auki upp- haflega gerð fyrir sjónvarp. Hér er Brian Keith ungur og hress og í góðu formi og þá mun Tender- foot vera með síðustu myndum Brandon de Wilde. Hann dó 1972, komungur, ekki þrítugur að aldri. Varð heimsfræg „barnastjarna" eftir hinn sígilda vestra, Shane, þar sem hann fór með hlutverk unglingsins. Stóð sig einnig eftir- minnilega í Hud, sem „litli bróðir“ Paul Newmans. f KVEIKJUR OG EFTIRLAUN ELDUR LAUS - ON FIREA ★ Leikstjóri Robert Greenwald. Handrit John Herzfield. Tónlist William Goldstein. Aðalleikend- ur John Forsyth, Carroll Bak- er, Woody Strode, Michael Bowen, Alan Feinstein, Gordon Jump, Brian McNamara. Randarísk sjónvarpsmynd. Arpa Video/Háskólabíó 1988 100 mín. Málefnið sem Eldur laus fjallar um er mikilvægt - að leggja menn til hliðar á eftirlaunaaldri líkt og aflóga maskínur, þó svo að þorri manna eigi mikið starfsþrek eftir sem kæft er með þessum aðförum. Hinsvegar er myndgerðin svo sem ekkert sérlega merkileg og líður fyrir full hægfara framvindu. En hún vekur umræðu á þessu þjóð- félagsböli og gæti opnað augu yngri aldurshópa. Joe Leary, (Forsythe), er skipað að láta af störfum sem yfirmaður rannsóknardeildar slökkviliðs í heimaborg sinni er hann verður sextugur - þó svo hann hafi kom- ist að samkomulagi við borgar- yfirvöld að halda atvinnu sinni í nokkur ár til viðbótar. Leary, sem er vel á sig kominn að öllu leyti, kann þessu illa og grípur neyðar- úrræða þegar öll sund virðast lok- uð. Sem fyrr segir nokkuð lang- dregin en athyglisverð mynd sem er vel þess virði að velta aðeins fyrir sér og þá í leiðinni þessum olnbogabörnum þjóðfélagsins, eldri borgurunum sem lagt hafa homsteininn að velferð komandi kynslóða. Forsythe, sem flestum er kunnugur úr Dynasty lang- hundinum, ljáir Eldi lausum nauð- synlega reisn þó svo um meðölin megi deila. GULLÆÐIÁ DISNEY-VÍSU FJÖLSKYLDU- -MYND THE ADVENTURES OF BULLWHIP GRIFFIN ★★Vz Leikstjóri James Neilson. Handrit Lowell S. Hawley, byggt á sögunni By The Great Horn Spoon, eftir Sid Fleisch- man. Tónlist George Bruns. Kvikmyndatökustjóri Edward Colman. Aðalleikendur Roddy McDowall, Suzanne Pleshette, Karl Malden, Harry Guardino, Bryan Russell, Richard Haydn, Mike Mazurki. Bandarísk. Walt Disney 1965. 106 mín. Þegar húsbóndinn fellur frá og í ljós kemur að hann dó jafn snauður og hann kom í heiminn, kemur babb í bátinn á auðsmanns- heimili hans í Boston. Haga að- stæður því svo til að yfirþjónninn Griffín (Roddy McDowall) heldur til San Francisco ásamt yngsta syninum að freista gæfunnar í gullnámunum, en þar stendur gullæðið mikla sem hæst. Heíja skal veg ijölskyldunnar á loft að nýju. Þessi er kjörin í bamaafmælin. Lauflétt skemmtun, einkum fyrir yngsta fólkið á bænum, sem kann örugglega vel að meta einfaldan en líflegan söguþráðinn, prýddan góðum og vondum köllum. Hrein- ar línur hér. Og ofbeldið er ósköp notaleg ijölskylduskemmtun sem eirikum byggist á hinum hrikaleg- ustu vindhöggum! Ágætlega skrifuð með þarfír fjölskyldunnar í huga og prýdd góðkunnum gam- anleikurum þar sem gömlu brýnin Karl Malden og Richard Haydn og Mike Mazurki gleðja augað. Græskulaust Disney-gaman. NÚERRÉTTI TÍMINN tilað kaupa húsgögní sumarbústaðinn eða garðhúsið. Landsins mesta úrval afmassívum furuhúsgögnum á einum stað. FURU hornsófinn er ódýr og góður sófi í sumarbústaði. Stærð: 220x275 cm. VERÐ: 52.860.- REYKJAVlK FYRBO borðstofuborð. Stærð: 82x140/200. VERÐ: 10.960.- LIV0 veggjasamstæðan er úr Ijósri furu og lökkuð með slitsterku lakki. VERÐ: 38.180.- KARLSTAD hornsófinn fæst bæði í Ijósri furu og lútaðri furu. 5 litir. Stærð: 220x285 cm. VERÐ: 61.670.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.