Morgunblaðið - 03.06.1988, Síða 15

Morgunblaðið - 03.06.1988, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1988 B 15 SKEMIVrnSTAÐIR ABRACADABRA Laugavegi 116 Skemmtistaðurinn Abracadabra er op- inn daglega frá hádegi til kl. 01.00. Austurlenskur matur er framreiddur í veitingasal á jarðhæöinni til kl. 22.30. í kjallaranum er opið kl. 18.00-03.00 um helgar og er diskótek frá kl. 22.00. Enginn aögangseyrir er á fimmtudögum og sunnudögum. Síminn er 10312. ÁRTÚN Vagnhöfða 11 ( Ártúni leikur hljómsveitin Danssporið ásamt þeim Grétari og Örnu Þorsteins á föstudagskvöldum, þegar gömludans- arnir eru og á laugardagskvöldum, en þá eru bæði gömlu og nýju dansarnir. Siminn er 685090. BÍÓKJALLARINN Kvosinni Biókjallarinn er opinn öll kvöld frá kl. 21. Föstudaga og laugardaga til kl. 03. Engin aðgangseyrir nema á föstudög- um og laugardögum þegar Bíókjallarinn sameinast Lækjartungli. H0LLYW00D twyt. Ármúla 5 Hljómsveitir og söngvarar 7. áratugar- ins skemmta týndu kynslóðinni föstu- dags- og laugardagskvöld. Borðapant- anir i síma 621520 og 681585. SKÁLAFELL Suðurlandsbraut 2 Á skemmtistaönum Skálafelli á Hótel Esju er leikin lifandi tónlist frá fimmtu- degi til sunnudags. Hljómsveitin KASKÓ spilar. Á fimmtudögum eru tískusýningar, sýnd hár- og fatatíska ’88. Skálafell er opið alla daga vikunnar kl. 19.00-01,00. Síminn er 82200. GLÆSIBÆR Álfheimum 74 Hljómsveit André Bachmann leikur i Glæsibæ út júli-mánuð á föstudags- og laugardagskvöldum kl. 23.00-03.00. Síminn er 686220. Borgartúni 32 [ Evrópu eru tvö diskótek, oft hljóm- sveitir og erlendir skemmtikraftar. Siminn í Evrópu er 35355. CASABLANCA Skúlagötu 30 Diskótek er í Casablanca á föstudags- og laugardagskvöldum kl. 22.00-03.00. Alla aðra daga vikunnar kl. 22.00-01.00. Ármúla Hljómsveitin De Lónli Blú Bojs leikur fyrir dansi á Hótel Islandi. Hpómsveitin kemur tvisvar fram á kvöldi. I miðri viku sýnir Gríniðjan hf. N.Ö.R.D. Forsala aðgöngumiða er í síma 687111 alla daga. Miðasala og borðapantanir dag- lega kl. 9-19 í síma 687111. Alfabakka 8 Dansleikur föstudags- og laugardags- kvöld til kl. 03. Miðasala og borðapant- anir daglega kl. 9-19 í síma 77500. HÓTEL BORG Pósthússtræti 10 Diskótek er á Hótel Borg á föstudags- og laugardagskvöldum kl. 21.00-03.00 og á sunnudagskvöldum eru gömlu dansarnir kl. 21.00-01.00. Síminn er 11440. HÓTEL SAGA Hagatorgi [ Súlnasal Hótel Sögu leikur hljómsveit Magnúsar Kjartansson. Söngvari er Pálmi Gunnarsson. Súlnasalur er opin á laugardögum kl. 10-03. Mimisbar er opin föstudaga og laugardaga kl. 7-03. Þar leikur hljómsveitin Prógramm og Halli Gísla sér um diskótekið. Síminn er 20221. LEIKHUSKJALLARINN Hverfisgötu Leikhúskjallarinn er opinn á föstudög- um og laugardögum kl. 18.00-03.00 og er þá diskótek. Síminn er 19636. LENNON Austurvelli Diskótek er í skemmtistaðnum Lennon á föstudags- og laugardagskvöldum kl. 20.00-03.00 og er þá enginn aðgangs- eyrir til kl. 23.00. Aöra daga er diskótek kl. 20.00-01.00. Síminn er 11322. LÆKJARTUNGL Lækjargötu 2 Hlynur og Daddi sjá um tónlist Tungls- ins á föstudags- og laugardagskvöld- um. Opið frá kl. 22-03. 20 ára aldurstak-- mark. UTOPIA Suðurlandsbraut 26 Skemmtistaðurinn Utopia ertil húsa við Suðurlandsbrautina. Þar er 20 ára ald- urstakmark. ÞÓRSCAFÉ Brautarholti 20 i Þórscafé eru almennir dansleikir föstu- daga og laugardaga kl. 10-03. Hljóm- sveitin Burgeisar leikur fyrir dansi á annarri hæð og á fyrstu hæðinni er diskótek. Síminn er 23333. MYNDBÖND ÍSLENSK NATTÚRA Sæbjöm Valdimarsson ÁFRAM ARIZONA! GAMANMYND RAISING ARIZONAÁ- ★ ★ Leikstjóri Joel Coen. Handrit Etban og Joel Coen. Tónlist Carter Burwell. Kvikmynda- tökustjóri Barry Sonnenfeld. Aðalleikendur Nicholas Cage, Holly Hunter, Trey WUson, M.Emmet Walsh, John Good- man, WUliam Forsyth, Sam McMurray, Frances McDor- mand, Randal „Tex“ Cobb. Tón- list Carter BurweU. Kvik- myndatökustjóri Barry Sonn- enfeld. Handrit Ethan og Joel Coen. Framleiðandi Ethan Co- en. Leikstjóri Joel Coen. Bandarísk. 20th Century Fox 1987. CBS-FOX / Steinar 1988. Hi-Fi stereo. 90 min. Því miður, þær berast ekki margar, svona bráðhnyttnar, frumlegar og ekki síst, innilega ruglaðar fyrir augu manns. Það er tæpast fullkomlega „normal“ manneskju að finna í myndinni. Aðalpersónumar, hjónin Hi (Nic- holas Cage) og Edwina (Holly Hunter) era ábyrgðarlaus síbrota- maður og lögreglukona sem misst hefur köllun sína og fallið fyrir ósýnilegum sjarma smákrimm- ans. Fljótlega kemur á daginn að Edwina er ófær um að eignast böm, svo þegar fjölmiðlarnir bás- úna fimmburafæðingu einna ríkustu hjóna fylkisins hugsa skötuhjúin sér gott til glóðarinnar og rapla einu bamanna. Allt gengur vel um sinn, en fortíð His er harla ógæfuleg og eftir að milljónamæringurinn hef- ur gert heyrinkunnugt að hann vilji fá — gegn vænni þóknun — hausatölu fjölskyldunnar uppí sjö að nýju, fara gamlir klefafélagar úr gijótinu að gera honum lífíð leitt. Aukinheldur tekur ófrýnileg- ur bamaveiðari að ásækja hann — fyrst í draumi... Það er engin spuming, Coen- bræður era meðal ferskustu kvik- myndargerðarmanna vestan hafs í dag. Blood Simple var engin til- viljun. Þeir skrifa meinfyndin, á köflum gráthlægileg handrit þar sem samtölin, efnisþráðurinn og uppákomumar skapa léttgeggjað, einkar fullnægjandi samhengi sem Joel stýrir af öryggi. Snilli- gáfa þeirra liggur í haftalausu skopskyni sem oftar en ekki jaðr- ar við fáránleikann og það er jafn- an grannt á þjóðfélagsádeilunni, ef grannt er skoðað: Líkt og í Blood Simple, glæða úrvalsleikarar aðal- og aukahlut- verk lífi og kátínu, hér er saman- komið hið herlegasta lið sem upp til hópa stendur eftirminnilega vel fyrir sínu. Og á ríkan þátt í að gera Raising Arizona að hressi- legustu gamanmynd um langt skeið og skapa eitt fjölskrúðug- asta samsafn undirmálsmanna fyrr og síðar í einni og sömu myndinni. Sýningar Náttúrufræðistofnun Sýningarsalurinn Reykjavik Náttúrugripasafnið er til húsa á Hverfis- götu 116,3. hæð (gegnt Lögreglustöö- inni). Þar má sjá sýnishorn af islenskum og erlendum steintegundum og íslensk- um bergtegundum. Ur lífríkinu eru krabbadýr, lindýr, skrápdýr, spendýrog fuglar, þ.á.m. geirfuglinn, og risaskjald- baka. Þá eru einnig þurrkuð sýni af fiest- um íslenskum blómplöntum s.s. mosum, fléttum og þörungum. Sýningarsalurinn eropinn þriðjudaga, fimmtudaga, laugar- daga og sunnudaga kl. 13.30-16.00. Nánari upplýsingar í síma 29822. Náttúrufræðistofa Kópavogs Náttúrufræðistofa Kópavogs er á Digra- nesvegi 12, jarðhæð. Þarstenduryfir sýning á lífríki Kársnesfjöru. Á sýningunni gefur að líta margar tegundir botnlægra þörunga sem finnast í fjörum og hrygg- leysingja. I Skeljasafni Náttúrufræðistof- unnar eru flestar tegundir lindýra með skel sem finnast við (sland. Stofan er opin laugardaga kl. 13.30-16.00. Nánari upplýsingar í símum 20630 og 40241. Hafrannsóknastofnun Reykjavíkur Hafrannsóknastofnun, Skúlagötu 4, jarð- hæð. (anddyrinu er sjóker með fjörulif- verum, bæði þörungum og fjörudýrum. Barnaheimili og aðrir hópar sem hafa áhuga á að skoða lífverurnar í kerinu geta haft samband í sima 20240 með dags fyrirvara. Anddyrið er opið virka daga kl. 9-16. Náttúrugripasafnið á Akureyri Sýningarsalurinn er i Hafnarstræti 81, jarðhæð. Þar eru uppsettir allir íslenskir varpfuglar ásamt eggjum, mikiö af skor- dýrum, krabbadýrum, skrápdýrum, skel- dýrum og kuðungum. Þar eru einnig til sýnis þurrkaðir sjóþörungar, fléttur, sveppir, mosar og nær allar villtar blóm- plönturog byrkningar á l’slandi. Einnig má sjá þar bergtegundir, kristalla og steingervinga. Sýningarsalurinn er opinn alla daga kl. 11 -14, lokaö á laugardög- um. Símar 22983 og 27395. Minja- og náttúrugrípasafnið Dalvík I Minja- og náttúrugripasafninu í Safna- húsinu eru til sýnis uppstoppuö dýr auk eggja-, plöntu-og steinasafna. Safnið eropiðá sunnudögum kl. 14-18. Upplýs- ingarísima 61353. Safnahúsið Húsavík Safnahúsið á Húsavík er við Stóra-Garð. (náttúrugripasafninu eru til sýnis á annað hundrað fuglategundir, Grímseyjarbjörn- inn, skeljasafn og ýmsjr aðrir náttúrugrip- ir. Einnig eru náttúrugripir í stofu Jóhanns Skaftasonar sýslumanns og Sigríðar Viðis, í stofu Lissýará Halldórsstöðum í Laxárdal og í Kapellunni. Safnahúsiö er opið kl. 10-12 og 14-17 alla daga. Nánari upplýsingar í sima 41860. Náttúrugripasafnið í Neskaupstað Náttúrugripasafnið er að Mýrargötu 37. Þar er að sjá gott safn steina, fugla og fiska, auk lindýra og skeldýra. Safnið er opiö yfir sumarmánuðina. Upplýsingar hjá forstööumanni í sima 71606. Fiska- og náttúrugrípasafn Vestmannaeyja Fiska- og náttúrugripasafn Vestmanna- eyja er til húsa að Heiöarvegi 12. Safniö er opið frá 1. mai til 1. september alla daga kl. 11-17. Aðra mánuði ársinser opið laugardaga og sunnudaga kl. 15-17, en hópar sem ekki geta notaö ofan- skráða tíma geta haft samband við safn- vörð, Kristján Egilsson, í sima 1997 eða 2426.1 safninu eru þrir sýningarsalir. Fuglasafn með uppstoppaðarallarteg- undir íslenskra varpfugla. Eins er mikill fjöldi uppsettra svokallaðra flækings- fugla. Eggjasafn, flóra Vestmannaeyja og skordýr. Fiskasafn. í 12 kerjum eru til sýnis lifandi flestallar tegundir nytja- fiska landsins, ásamt kröbbum, sæfíflum og fleiri sjávardýrum. Steinasafn. [ steina- safninu eru sýnishorn flestallra íslenskra steina, ásamt bergtegundum frá Vest- mannaeyjum. Dýrasafnið á Setfossi Dýrasafniö er við Tryggvagötu 23 á Sel- fossi og þar má sjá uppstoppuö mörg algeng íslensk dýr og auk þess hvíta- björn, mikiö af fuglum og gott eggjasafn. - , Safnið er opið daglega á sumrin. Sími safnsiris er 2703 og 2190 hjá safnverði og eru hóparvelkomnirað hafa samband við safnvörö um sérstakan opnunartima. Aðalfundur Vinnuveitendasambands íslands verður haldinn þriðjudaginn 7. júní í Súlnasal Hótels Sögu. D A G S K R Á: Kl. 11.30 Kjörfundur beinna meðlima. Kl. 12.00 Fundarsetning. RæðaformannsGunnarsJ. Friðrikssonar. Kl. 12.30 Fládegisverðuraðalfundarfulltrúa og gesta. Kl. 13.45 ATVINNULÍF OG EFNAHAGSHORFUR - Kristinn Björnsson, framkvæmdastjóri Nóa & Síríus - Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Hraðfrysti Rvk. - Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Flagkaups hf. - Jón Sigurðsson, forstjóri ísl. járnblendifélagsins Stjórnandi umræðu FlörðurSigurgestsson, forstjóri Eimskips hf. Kl. 15.00 Skýrsla framkvæmdastjóra fyrir liðið starfsárog önnur aðal- fundarstörf. Kl. 16.00 Fundarslit GUNNARJ. FRIÐRIKSSON KRISTINN BJÖRNSSON ÁGÚST EINARSSON JÓN ÁSBERGSSON JÓN SIGURÐSSON HÖRÐUR SIGURGESTSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.