Morgunblaðið - 06.09.1988, Side 2
2 B
MOftGUNBLAÐIÐ IÞROTT1R ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI
„Valur
hættulegur
andstaeð-
ingur"
- segirWenger,
þjálfari Mónakó
ARSENE Wenger, þjálfari Món-
akó, var meðal áhorfenda að
leik Vals og Vfkings á laugar-
dag og fylgdist grannt með
Valsliðinu.
Valsmenn leika vel en mótstaðan
er lítil. Þeir verða örugglega
mun beittari gegn okkur. Valur
verður hættulegur andstæðingur.
Við gerum okkur grein fyrir styrk-
leika íslenskra liða og munum vel
eftir því þegar Valur sigraði franska
meistaraliðið Nantes 2:1 í
Reykjavík fyrir nokkrum árurn",
sagði Arsene Wenger í samtali við
Morgvnblaðið.
„Leikmenn nr. 10 (Ingvar Guð-
mundsson ), nr. 5 (Atli Eðvalds-
son), nr. 7 (Guðni Bergsson), nr. 6
(Sævar Jónsson) og nr. 3 (Sigutjón
Kristjánsson) eru allir mjög góðir
leikmenn. “
Wenger sagðist ekki vera ánægð-
ur með Iið Mónakó í vetur. „Við
höfum átt í erfiðleikum og ég er
ekki sáttur við stöðu liðsins," sagði
Wenger. Mónakó mætir með sitt
sterkasta lið, en Mark Hately leikur
þó ekki með vegna meiðsla og verð-
ur reyndar heldur ekki með í síðari
leik liðanna í Mónakó.
„íslensk knattspyma hefur verið
á uppleið og það sést best á sfðustu
leikjum landsliðsins og á leikmönn-
um á borð við [Ásgeir] Sigurvinsson
og [Amór] Guðjohnsen. Ég á þvf
von á að leikurinn verði erííður, “
sagði Wenger, þjálfari Mónakó.
Morgunblaöið/RAX
Lelkmenn Mónakó æfðu á Laugardalsvelli í gær. Þeim þótti völlurinn lítill og veðrið ekki ekki eins og þeir eiga
að venjast.
„Þaðerþógras
á vellinum núna!“
- segir Glenn Hoddle sem leikur í annað sinn á Laugardalsvellinum
GLENN Hoddle ereinn af fáum
leikmönnum Mónakó sem leik-
ið hefur á Laugardalsvelli. Það
gerði hann 1982 með enska
landsliðinu og gerði þá jafn-
tefli, 1:1.
Þetta verður mjög erfíður leik-
ur. Við höfum skoðað Valsliðið
á myndbandi og það virðist vera
sterkt lið. Auk þess segir jafntefli
gegn Sovétmönnum mikið um getu
íslenska landsliðsins," sagði Glenn
Hoddle. „Okkur hefur ekki gengið
vel f deildinni en vonumst til að
góður árangur í Evrópukeppninni
geti bætt ástandið hjá okkur.
Völlurinn er lftill en þó skárri
heldur en síðast. Það er þó gras á
vellinum núna. Svo verður líklega
ekki auðvelt að leika í þessum
kulda, en við verðum að sætta okk-
ur við það.
Við munum reyna að leika létta
og skemmtilega knattspymu eins
og alltaf, en ég held að leikur verði
erfiður," sagði Hoddle.
Aðspurður um síðari leik liðanna,
sagðist Hoddle ekki vilja spá: „Það
er fyrst að klára þennan og sjá
hvemig fer.“
„Góö knattspyma á ísiandl"
Patrick Battiston hefur, eins og
Glenn Hoddle, leikið á Laugardals-
vellinum. Það var í landsleik með
Frökkum 1986. Leiknum lauk með
jafntefli 0:0 og Battiston segir að
eftir þann leik hafí hann hætt að
vanmeta íslendinga. „íslendingar
era mjög erfíðir viðureignar á
heimavelli og ég held að það sama
eigi við um landslið og félagslið,"
sagði Battiston.
Islendingar leika góða knatt-
spymu og eiga sterka leikmenn
erlendis, til dæmis [Amórj Guð-
johnsen. Það er því vart hægt að
tala um að ísland sé lítið á knatt-
spymusviðinu.
Veðrið og völlurinn verða ekki
til vandræða. Við verðum að aðlag-
ast því eins og öðra og reyna að
ná góðum leik,“ sagði Battiston.
H I)
imbíabi
Leikurinn
hefst
kl. 18:15
LEIKUR Vals og Mónakó
hefst kl. 18:15 á Laugardals-
velli í dag. Þetta er fyrri leik-
ur liðanna f Evrópukeppni
meistaraliða.
HANDBOLTI / KVENNALANDSLIÐ
KORFUBOLTI / URVALSDEILD
Landsleikur við
Frakka í kvöld
Islenska kvennalandsliðið leikur
þrjá landsleiki við Frakka í vik-
unni. Slavko Bambir hefur valið A
og B-lið íslands fyrir leikina. A-
liðið leikur við franska landsliðið f
dag og á fímmtudag, en B-liðið
spilar á miðvikudag. Leikir A-liðsins
fara báðir fram í íþróttahúsinu á
Varmá. Leikurinn í dag hefst kl.
20.30, en á fímmtudag byijar leik-
urinn kl. 18.00. Leikur B-liðsins á
miðvikudag hefst kl. 20.30 og verð-
ur íþróttahúsinu í Hafnarfirði.
A-liðið er skipað eftirtöldum leik-
mönnum:
Markverðir:
Halla Geirsdóttir, FH,
Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram.
Aðrir Ieikmenn:
Ama Steinsen, Fram,
Ema Lúðvíksdóttir, Val,
Guðný Guðjónsdóttir, Val,
Guðný Gunnsteinsdóttir, Stjömunni
Guðríður Guðjónsdóttir, Fram,
H. Katrín Friðriksen, Val,
Inga Lára Þórisdóttir.Víking,
Kristín Pétursdóttir, FH,
Margrét Theódórsdóttir, Haukum,
Ósk Víðisdóttir, Fram,
Rut Baldursdóttir, FH
Svava Baldvinsdóttir, Víking
Eftirtaldlr laikmenn
skipa B-iiðið:
Markverðir:
Fjóla Þórisdóttir, Stjömunni,
Sólveig Steindórsdóttir, Haukum,
Aðrir leikmenn:
Andrea Atladóttir, ÍBV,
Brynhildur Þorgeirsdóttir, Gróttu,
Erla Rafíisdóttir, Stjömunni,
EvaBaldursdóttir, FH,
Guðrún Kristjánsdóttir, Val,
Helga Sigurðardóttir, FH,
Hrund Grétarsdóttir, Stjömunni,
Ingibjörg Andrésdóttir, Sljömunni,
IngibjörgEinarsdóttir, FH,
Jóna Bjamadóttir, Víking,
Þórunn Sigurðardóttir, Haukum,
Þuríður Reynisdóttir, Gróttu.
Doug Harvey
þjálfar UMFG
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD
UMFG róði f gœrkvöldi
bandaríska þjálfarann Doug
Harvey til að sjá um þjálfun
meistaraflokks félagsins fyrir
nœsta keppnistfmabil. Harv-
ey er nýkominn til íslands frá
Afríkuríkinu Guam þar sem
hann hefur kennt og þjálfað
körfuknattleik ffjögur ár.
Astæðan fyrir því að Harvey
er kominn til íslands er að
eiginkona hans er fyrsti skipti-
kennarinn á vegum Fulbright-
stofnunarinnar og
kennir við Fjöl-
brautaskólann í
Breiðholti f vetur.
Harvey, sem er
39 ára, sagði í stuttu viðtali við
Morgunblaðið að hann hefði ekki
Knstinn
Benediktsson
skrifarfrá
Grindavik
haft neina hugmynd um á hvaða
stigi íslenskur körfuknattleikur
væri og hafði því hugsað sér að
sjá um heimilið í stað þess að
vinna úti í vetur. Það hefði því
verið hrein tilviljun að hann hefði
verið til staðar er Grindvíkingar
stóðu uppi þjálfaralausir. Hann
sagði að sér litist vel á aðstæður
f Grindavík og hefði þess vegna
gert eins árs samning við félagið.
Ástþór Ingason, fyraum KR-
ingur og Njarðvíkingur, hefur
ákveðið að leika með Grindvíking-
um í vetur. Honum líst mjög vel
á nýja þjálfarann eins og öðram
Grindvíkingum.
Nú era öll úrvalsdeildarliðin
búin að ráða sér þjálfara fyrir
næsta keppnistímabil.
íuém
FOLX
■ ÁRANGUR Fram og Vals í
evrópukeppni hefur ekki verið sér-
staklega glæsilegur, frekar en ann-
arra íslenskra félaga. Valsmenn
hafa leikið 28 evrópuleiki og er
markatalan heldur bágborin; 15:86
andstæðingunum í hag. Sömu sögu
er að segja um Framara; þeir
hafa leikið 24 evrópuleiki, skorað
11 mörk og fengið á sig 74 mörk.
I BESTI árangur Vals í evr-
ópukeppni er án vafa árið 1985,
þegar liðið gerði sér lítið fyrir og
lagði franska stórliðið Nantes að
velli; 2:1 á Laugardalsvelli. Guð-
mundur Þorbjörnsson skoraði þá
bæði mörk Vals. Nantes sigraði svo
f Frakklandi 3:0, en Valur fékk
mjög gott færi fljótlega í leiknum,
og hefði það nýst, er aldrei að vita
hvemig leikar hefðu farið...
■ MÓNAKÓ, liðið sem Valur
mætir í Evrópukeppni meistara-
liða var stofnað árið 1924 og hefur
sjö sinnum orðið franskur meist-
arí. Ellefu leikmenn liðsins hafa
leikið með franska landsliðinu og
tveir með því enska. Þekktastir
eru án efa þeir Glenn Hoddle og
Mark Hateley, frá Englandi, en
margir þekkja eflaust einnig þá
Amaros og Battiston, sem urðu
evrópumeistarar ásamt Platini
árið 1984.
■ FRANSKA liðið þykir gífur-
lega erfitt heim að sækja, en á
síðasta keppnistímabili, þegar liðið
varð franskur meistari, skoraði það
39 mörk, en fékk einungis á sig
12 mörk. Árangur liðsins á útivelli
var hins vegar öllu lakari; því liðið
skoraði einungis 14 mörk, en fékk
á sig 17. Vöm liðsins þykir vera
geysilega sterk, en hún fékk ein-
ungis á sig 28 mörk f 38 leikjum.
■ MARK Hateley var mark-
hæstur f liði Mónakó á sfðasta
keppnistímabili. Hann skoraði 14
mörk þrátt fyrir að hafa misst af
10 leikjum vegna meiðsla, og varð
þriðrji markhæsti maður deildarinn-
ar. Stjama keppnistímabilsins var
samt Glenn Hoddle; hann var kos-
inn besti maður keppnistímabilsins,
en hann þótti leika snilldarlega á
miðjunni, auk þess sem hann skor-
aði 8 mörk.
■ RAINER fursti er mikill áhug-
maður um knattspyrnu, og má oft
sjá hvar hann fylgist með liði sínu
spila á glæsilegum heimaleikvangi
liðsins. Heyrst hefur að hann muni
koma hingað til lands, og fylgjast
með viðureigninni við Valsmenn,
en hótelsvítur hafa verið pantaðar
og óskað hefur verið eftir öflugri
löggæslu í sambandi við leikinn.
■ AMOROS, vamarmaðurinn
sterki, þótti eiga eitt sitt besta
keppnistímabil í fyrra, og var sagð-
ur leika í heimsklassa. Hinir vamar-
mennimir era heldur engin lömb
að leika við, því þar er að fínna
nöfn eins og Battiston og Jose
Toure, sem lék gegn Val árið 1985,
en þá lék hann með Nantes.
■ EITT mesta efni, sem fram
hefur komið í franskri knattspymu
í langan tfma leikur með Mónakó.
Það er hinn 22 ára gamli Youssouf
Fofana. Aðrir ungir og efnilegir
leikmenn fyrirfínnast einnig í liðinu,
og má þá helst nefna þá Dom-
inique Bijotat, sem leikið hefur 8
landsleiki, og markvörðurinn Ang-
elo Hugue.
MBARCELONA verður að leika í
varabúningi sínum er þeir mæta
Fram í fyrri leiknum, og er ástæð-
an sú að of mikið blátt er í búnin-
ingi þeirra. Að sama skapi verða
Framarar í hvítum varabúningi
sínum, þegar leikið verður á Spáni.
Valsmenn þurfa einnig að leika
í varabúningi, er þeir mæta Món-
akó ytra, því búningur franska
liðsins er rauður og hvítur.