Morgunblaðið - 06.09.1988, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
B 3
HANDKNATTLEIKUR / HM 1993
„Island ekki lakari
kostur en Svíþjód“
- segir Curt Wadmark eftir að hafa kynnt sér aðstæður hér á landi
Morgunblaöið/RAX
Curt Wadmark, formaður tækninefndar IHF, ræðir hér við Jón Hjaltaín
Magnússon, formann HSÍ í Höfða.
CURT Wadmark, formaður
tækninefndar alþjóðahand-
knattleikssambandsins (IHF)
og Bernhard Thiele forseti
þýzka handknattleikssam-
bandsandsins og nefndar-
maður í tækninefndlnni, eru
nú staddir hér á landi i þeim
tilgangi að kynna sér aðstæð-
ur vegna umsóknar íslend-
inga um heimsmeistara-
keppnina íhandknattleik
1993. Curt Wadmark, sem
kom hingað síðast fyrir tfu
árum segir að aðstæður til
að halda slíka keppni hafi
stórbatnað á þeim tima.
Við komuna hingað hef ég
sannfærst um að vandamál
varðandi fjarskipti, síma og sjón-
varp eru mun minni en ég hafði
búizt við“, sagði Curt Wadmark
í samtali við Morgunblaðið í hinu
fræga húsi Höfða, í móttöku sem
sem haldin var honum og Thiele.
„Það er rétt að ég hef verið
mjög efíns um að tæknilega væri
hægt hafa keppnina á íslandi og
ég hef einnig haft efasemdir um
að dæmið gengi upp fjarhagslega.
Við í tækninefndinni verðum
nefnilega alltaf að hafa fjármál
og fjarskipti í huga. Við þurfum
meðal annars að sjá um að hand-
boltaunnendur i Evrópu getið no-
tið keppninnar gegnum sjónvarp
og um leið fengið tekjur af slíkum
sjónvarpssendingum. Mikil breyt-
ing hefur orðið til batnaðar í þess-
um efnum á íslandi og er ég því
mun opnari fyrir umsókn íslend-
inga en áður“, sagði Wadmark.
„Álíka góðlr kostir“
Aðspurður um hvort landið
hann teldi betri kost fyrir HM
1993, sagði Wadmark að hann
teldi ísland ekki síðri kost. „Starf
mitt er að vinna að fyrir hand-
boltann sem íþrótt en ekki ein-
stakt land. Þannig mun ég taka
á þessu máli, þótt ég sé frá
Svíþjóð, sem keppir við íslendinga
um keppnina 1993. Ég tel ísland
og Svíþjóð nú álíka góðan kost
og ísland ekki lakari“, sagði Wad-
mark.
Wadmark sagði jafnframt, að
heimsmeistarakeppni í skíðaí-
þróttum í Svíþjóð 1993, á sama
tíma og HM í handknattleik, yrði
mjög erfitt dæmi fyrir Svía og
yki líkur á að ísland yrði fyrir
valinu.
HANDBOLTI
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Stórsigur
Júgóslava
Júgóslavar undirbúa sig nú
fyrir handknattleikskeppni
Ólympíuleikanna í Seoul. Liðið
hætti við þátttöku á mótum þar
sem aðrar ÓL-þjóðir voru meðal
þátttakenda, en hefur þó leikið
fyölda landsleikja í sumar.
Nýlega lék liðið gegn Frökk-
um. Fyrsta leiknum lauk með
jafntefli, 19:19. Júgóslavar
unnu svo annan leikinn, 27:21.
í þriðja leiknum small svo allt
saman hjá ólympíumeisturunum
og þeir sigruðu með yfirburðum
30:16.
Duranetc þjálfar KA
Einn frægasti landsliðsmaður Júgóslava í stað „svikarans"
Á FIMMTUDAGINN kemurtil
landsins nýr þjálfari KA, Ivan
Duranetc. Gengið hefur verið
frá ráðningu hans í gegnum
júgóslavneska handknattleiks-
sambandið og hann mun hefja
störf um helgina. Duranetc
kemur í stað þjálfarans sem
réði sig til KA á fölskum for-
sendum, eins og flestum er
kunnugt.
Ivan Duranetc er einn frægasti
handknattleiksmaður Júgóslava.
Hann lék 80 landsleiki og skoraði
í þeim um 200 mörk. Hann lék lengi
með Partizan Belovar og varð m.a.
Evrópuipeistari með liðinu 1972.
Liðið var stórveldi á þeim tíma með
marga júgóslavneska landsliðs-
menn innanborðs, varð sjö sinnum
júgóslavneskur meistari og fjórum
sinnum bikarmeistari.
Duranetc hefur þjálfað lið Partiz-
an Belovar og einnig unglingalið
félagsins.
Flestir telja Duranetc einn besta
leikmann sem leikið hefur með
landsliði Júgóslavíu og hann var
lykilmaður í ólympíuliði Júgóslava
1972. „Hann var frábær leikmaður;
einn sá besti," sagði Ivan Snoj,
formaður júgóslavneska handknatt-
leikssambandsins í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Hann hefur
staðið sig vel sem þjálfari og ég
vona að hann geti bætt fyrir mistök-
in sem áttu sér stað þegar svikarinn
var ráðinn,“ sagði Snoj.
Þá hafa öll liðin í 1. deildinni í
handknattleik ráðið þjálfara.
faémR
FOLK
■ FRAM hefur einu sinni áður
mætt spænsku liði í Evrópu-
keppni. Það var árið 1974 er liðið
lék gegn Real Madrid. Meðal leik-
manna liðsins voru þá margir nafn-
togaðir kappar, svo sem Paul
Breitner, sem skoraði jöfnunar-
mark Vestur Þjóðveija gegn Hol-
lendingum í úrslitaleik Heims-
meistarakeppninnar 1974 og
Giinter Netzser, sem einnig gerði
garðinn frægan með þýska
landsliðinu. Fram1 tapaði fyrri
leiknum 0:2 á Laugardalsvellin-
um, en þótti samt hafa staðið sig
mjög vel, og síðari leiknum tapaði
liðið 6:0.
■ BARCELONA mætir hinu fé-
laginu í Barcelona, Espanol, á
laugardaginn, en þá hefst spænska
deildarkeppnin. Gary Winston
Lineker, framheijinn snjalli, sem
áður lék með Everton mun ekki
geta tekið þátt í þeim leik, vegna
veikinda, og að líkindum, mun hann
ekki heldur geta leikið gegn Fram
á Laugardalsvellinum á miðviku-
daginn.
■ GUÐMUNDUR Steinsson, og
Viðar Þorkelsson hafa leikið flesta
Evrópuleiki fyrir Fram, eða 12
leiki. Á hæla þeim koma Pétur
Ormslev og Kristinn R. Jónsson,
sem leikið hafa 10 leiki, og Þor-
steinn Þorsteinsson, sem níu sinn-
um hefur tekið þátt í evrópuleikjum.
Ómar Torfason á einnig að baki
10 evrópuleiki, íjóra fyrir Fram og
sex fyrir Víking. Þjálfari liðsins,
Ásgeir Elíasson bér hins vegar
höfuð og herðar yfir hina, hvað
leikjafjölda á þessu sviði snertir,
því fjórtán sinnum var hann þátt-
takandi i evrópuleikjum fyrir Fram.
■ FRAMARAR hafa 24 sinnum
leikið evrópuleiki, og verður leikur
þeirra gegn Barcelona á Laugar-
dalsvellinum 25 leikur þeirra.
Flestir hafa leikimir verið í Evrópu-
keppni bikarhafa, eða 16 talsins,
flórum sinnum hafa þeir leikið í
Evrópukeppni meistaraliða' og
Íórum sinnum í UEFA keppninni.
I DÓMARI á leiknum hér heima
verður Pat Kelly frá írlandi og
línuverðir verða þeir C.G. McGrath
og Michael Caulfíeld. Dómari á
leiknum á Spáni verður einn þekkt-
asti dómari heims; Michel Voutrot
frá Frakklandi, en hann vann sér
meðal annars til frægðar að dæma
úrslitaleik Evrópukeppninnar,
þegar Hollendingar sigruðu Soy-
étmenn.
1 LEIKMAÐÚR HELGARINNAR ■ K KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI BIKARHAFA
OmarTorfason
m
Omar Torfason úr Fram er
maður helgarinnar að þessu
sinni. Ómar, sem er 29 ára, átti
mjög góðan leik og skoraði auk
þess tvö mörk gegn KA á laugar-
daginn þegar Fram tryggði sér
íslandsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu 1988.
Ómar þekkir lítið annað en að
hampa titlum. Hann varð tvívegis
íslandsmeistari með Víkingum
1981 og 1982 og síðan bikar-
meistari með Fram 1985. Hann
fór síðan í víking og gerðist at-
vinnumaður með svissneska 1.
deildarliðinu Luzern og lék með
því þar til í vor að hann ákvað
að koma heim til að aðstoða Fram
við að koma íslandsbikarnum í
Safamýrina.
Ómar hefur verið fastamaður í
íslenska landsliðinu undanfarin
ár og ávallt staðið sig vel. Hann
er geysilegur keppnismaður og
gefur aldrei þumlung eftir. Hann
er miðvallarleikmaður og hefur
mjög næmt auga fyrir marktæki-
færum og er skallamaður góður.
Ómar Torfason.
Ómar var markahæsti leikmaður
íslandsmótsins 1985.
„Það var mjög ánægjulegt að
skora sigurmakið á laugardaginn
sem færði okkur íslandsmeistara-
titilinn," sagði Ómar í samtali við
Morgunbiaðið.
Morgunblaðið/Sverrir
Leikmenn Barcelona, sem mæta Fram í Evrópukeppni bikarhafa á morgun, eru komnir til landsins. Á myndinni má sjá
tvo stjómarmenn Fram í góðum félagsskap. Frá vinstri: Eyjólfur Bergþórsson, varaformaður knattspymudeildar Fram,
José Bakero, spænskur landsliðsmaður, Johan Cruyff, þjálfari Barcelona, Gary Lineker, markakóngur heimsmeistara-
keppninnar 1986 og Halldór B. Jónsson formaður knattspymudeilar Fram. Barcelona mætir Fram á Laugardalsvellinum
á morgun, en í dag leika þar Valur og Mónakó.