Morgunblaðið - 06.09.1988, Side 4

Morgunblaðið - 06.09.1988, Side 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTT1R ÞKŒXJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988 SKÓR Á ALLA íSPÖRTU HANDBALL SPECIAL Handboltaskór nr. 1. Nr. 36-48 Verð 3.980,- HANDBALL SPECIAL Uppháir. Nr. 39-45. Verð 4.795,- sptk ',m* \ - - | INDOOR SUPER Alhliða innanhússskór. Nr. 34-46. Verð 1.880,- SOUASH SKÓR - NÝTT í veggtennis. Nr. 37-46. Verö 3.940,- VOLLEY BLAKSKÓR - NÝTT Nr. 37-46'A. Verð 3.940,- ELDORADO KÖRFUBOLTA- SKÓR Nr. 39-47'A Verð 4.950,- UNIVERSAL Sigildir, sterkir. Nr. 36-49. Verð 2.990,- CONTINENTAL - NÝTT Mjúkirog mjög þægilegir. Svartir. Nr. 39-47. Verð 3.950,- PROCON— NYTT m/riflás. Mjög sterkir leðurskór. Nr.31-38. Verð 2.450,- PROCON- NÝTT reimaðir. Hvitir m/bláum röndum. Nr. 31 -38. Verð 2.450,- MATCH Gervigrasskór. Nr. 36-46. Verð 3.850,- MARATHON TRAININQ Með albestu hlaupaskónum frá Adidas. Nr. 39-47. Verð 5.890,- JOSS- NÝTT FLIP Góðir hlaupaskór eða á götuna. mea riflás. Ljósgráir. Nr. 36-47. Verð 3.786,- Nr. 30-36. Verð 1.440,- * 1 PICCOLO smábarnaskór m/riflás. Nr. 19-26. Verð 2.664,- DIDI smábarnaskór. Hvitir m/rauðum röndum. Nr. 19-26. Verð 2.657,- POSTSENDUM UM LAND ALLT Styrktaraðlli Ólympíu- landsliðs íslands. KNATTSPYRNA / 1.DEILD Morgunblaðið/RAX Ingvar Guðmundsson hefur skorað fyrsta mark Vals í leiknum eftir að hafa einleikið frá miðju og hleypur fagnandi í burtu (fjær, númer 10). Siguijón Kristjánsson, sem gerði tvö mörk, fylgir á eftir og spymur knettinum aftur í markið. Uti í teig ræðast þeir við Guðmundur markvörður Hreiðarsson og Hallsteinn Amarson. Létt æfing fyrir Mónakóleikinn Valsmenn hefðu hæglega getað skorað tíu mörk VALSMENN hefðu hæglega getað skorað tíu mörk gegn Víkingum, siíkir voru yfirburðir þeirra í leik liðanna um helg- ina. Valsarar létu sér þó nægja fjögur mörk og léku ekki af fullri einbeitingu allan tímann. Víkingar komust aldrei inn í leik- inn. Þeir fengu aðeins eitt færi og það kom í lok leiksins þeg- ar úrslitin voru ráðin. Strax í upp- hafi var eins og Víkingar hefðu ekki trú á sjálfum sér og fór leikurinn nær alveg fram á vallar- helmingi þeirra. Fyrsta markið skoraði Ingvar Guðmundsson eftir einleik frá miðju. Annað markið skoraði Atli Eðvaldsson af stuttu færi'eftir að Guðmundur Hreiðarsson hafði varið skot frá Ingvari. Ekki urðu mörkin fleiri í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik var Guðmundur Jóhannsson skrifar Valur-Víkingur 4 : 0 Valsvöllur, íslandsmótið 1. deild, laug- ardaginn 3. september 1988. Mörk Vals: Ingvar Guðmundsson (17.), Atli Eðvaldsson (45.), Sigurjón Kristjánsson (52., 73.). Gult spjald: Sævar Jónsson (50.). Dómari: Ólafur Lárusson, 8. Línuverðir: Ámi Arason og Sveinn Siguijónsson. Áhorfendur: Um 300. Lið Vals: Guðmundur Baldursson, Þorgrímur Þráinsson, Siguijón Kristj- ánsson, Magni Blöndal Pétursson, Atli Eðvaldsson, Sævar Jónsson (Einar Páll Tómasson vm. á 67. mín.), Guðni Bergsson, Hilmar Sighvatsson, Valur Valsson, Ingvar Guðmundsson, Guð- mundur Baldursson (Steinar Ádolfs- son, vm. á 76. mín.). Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson, Þórður Marelsson, Sveinbjöm Jóhann- esson, Hallsteinn Amarson, Stefán Hálldórsson, Atli Helgason, Bjöm Bjartmarz, Hlynur Stefánsson, Trausti Ómarsson, Atli Einarsson, Lárus Guð- mundsson. Víkingsvömin svo opin, að Vals- menn óðu í dauðafærum. Sigurjón Kristjánsson hefði hæglega getað skorað fimm mörk í hálfleiknum en lét sér tvö nægja. í fyrra skiptið ýtti hann boltanum inn fyrir marklínuna eftir þunga sókn en síðara markið skoraði hann með skalla og innsiglaði þar með 4:0 sigur Valsmanna. Valsliðið lék yfirvegað og var jafnt. Svo virtist sem leikurinn væri létt æfíng þess fyrir leikinn gegn Mónakó. Víkingar verða hins vegar að leika betur vilji þeir sýna fram á að þeir eigi heima í 1. deild. Siguijón Kristjánsson, Atli Eðvaldsson og Ingvar Guð- mundsson, Val. „Ánægður með stigin en lítið annað“ - sagði HalldórÁskelsson eftir sigurinn á Völsungum ÞÓRSARAR báru sigurorð af Völsungi á Akureyri um helg- ina, 2:1. Leikurinn fór fram við erfiðar aðstæður; rok, rikningu og kulda og bar hann þess glögg merki. Fátt var um fína drætti. Eg er ánægður með stigin, en lítið annað get ég verið ánægð- ur með í þessum leik. Það er rosa- lega erfítt fyrir lið eins og Völsung að vera yfír 1:0 og Reynir fímm mínútur til Einksson hálfleiks en labba skrifarfrá síðan inn í búnings- ureyri klefann 2:1 undir í leikhléinu. Þeir hreinlágu gáfu okk- ur sigurmarkið,“ sagði Halldór Áskelsson, Þórsari, í samtali við Morgunblaðið. Þórsarar byrjuðu leikinn af mikl- um krafti og á 5. mín. átti Kristján Kristjánsson gott skot af vítateig sem small í þverslánni. Níu mín. síðar var Kristján aftur á ferðinni; hann fékk sendingu utan af kanti frá Hlyn og nikkaði knettinum lag- lega framhjá Haraldi í markinu og að þessu sinni fór hann í stöngina! Á 29. mín. var komið að Völsung- um. Jónas Hallgrímsson fékk knött- inn einn og óvaldaður á markteig eftir mikinn darraðardans í teig Þórs en honum brást bogalistin óg skotið fór hátt yfír. Þremur mín. síðar náðu Völsungar forystu með marki Helga Helgasonar. Knöttur- inn barst til Helga eftir aukaspyrnu og skoraði hann örugglega af stuttu færi. Fimm mín. fyrir lok hálfleiksins komst Guðmundur Valur inn fyrir vöm Völsunga og skaut fallegu skoti framhjá markverðinum og sá vamarmaður Völsungs ekki aðra leið að veijast en að verja með hönd- um og dæmdi Guðmundur dómari víti. Júlíus Tryggvason skoraði ör- ugglega úr vítinu. Völsungar höfðu vart byijað á miðjunni er Þórsarar náðu knettin- um að nýju og var send stungusend- ing inn fyrir vöm Völsunga, ætluð Kristjáni Kristjánssyni. Haraldur markvörður hafði öll tök á að ná knettinum, en missti hann hins veg- ar klaufalega frá sér — það nýtti Kristján sér og skoraði laglega. Síðari hálfleikur var slakur og fátt sem gladdi augað. Þórsarar fengu nokkur þokkaleg en þeim voru mjög mislagðar hendur þegar upp að marki Völsunga kom. Þór-Völsungur 2 : 1 íslandsmótið 1. deild - Akureyrarvöll- ur, laugardaginn 3. september 1988. Mörk Þórs: Júlíus Tryggvason (víti á 40.) og Kristján Kristjánsson (41.) Mark Völsungs: Helgi Helgason (32.) Gult spjald: Ekkert. Áhorfendur: 474. Dómari: Guðmundur Haraldsson, 5. Línuverðir: Haukur Torfason og Ólaf- ur Sveinsson. Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Birg- ir Skúlason, Siguróli Kristjánsson, Noi Bjömsson, Kristján Kristjánsson, Valdimar Pálsson, Halldór Áskelsson, Júlíus Tryggvason, Guðmundur Valur Sigurðsson (Einar Arason vm. á 55.), Jónas Róbertsson, Hlynur Birgisson (Bjami Sveinbjömsson vm. á 63.) Lið Völsungs: Haraldur Haraldsson (Þorfmnur Hjaltason vm. á 46.), Theód- ór Jóhannsson, Eiríkur Björgvinsson, Sveinn Freysson, Helgi Helgason, Skarphéðinn ívarsson, Sigurður Illuga- son (Skúli Hallgrímsson vm. á 68.), Unnar Jónsson, Guðmundur Þ. Guð- mundsson, Ásmundur Amarson, Jónas Hallgrímsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.