Morgunblaðið - 06.09.1988, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 06.09.1988, Qupperneq 10
10 B MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR ÞRJÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988 Glæsivagnar tröllaskeiðsins í Detroit CADILLAC. Nafnið eitt hefur sjarma og yfir því er frægð- arljómi. Bílarnir hafa verið með áhugaverðustu bílum sögunnar, allt þartil»lok síðasta áratugar. Þá urðu þeir bara „venjulegir" og hafa verið fram á síðustu ár. En, nú státar Cadillac á ný af merkum bíl: Allanté. Ca- dillac er með elstu merkjum bíla frá Ameríku. Hinir fyrstu voru smíðaðir í byrjun aldarinnar. Cadillac er einn- ig eitt af fyrstu fyrirtækjunum sem mynduðu General Motors samsteypuna. Cadillac hefur alla tíð verið lúxus- vagn og löngum í broddi fylkingar með tækni og bún- að. Cadillac kom, ásamt Chevrolet, með fyrstu V8 topp- ventlavélina 1915. Cadillac varð fyrstur með rafknúnum startara, samhæfðan gírkassa, sjálfskiptingu, vakúmbr- emsur og svo mætti lengi telja. Cadillac hefur alltaf verið hlaðinn þægindum og fremur verið hugsað um að sinna þörf kaupandans fyrir fullkominn bíl heldur en að halda í við kostnaðinn. Morgunblaðið/Júlíus Dollaragrín, ekki jafn stórbrotið og það „dollar grin“ sem Detroit bauð á sjötta áratugnum, en óneitanlega glæsilegt. Þeir frægustu, Sixteen og Eldorado 1 930 til 1937 var framleiddur einn sá frægasti, Cadillac Sixteen með V16 vél. Hún var 165 hestöfl og togkrafturinn var ógur- legur, 320 pundfet, eyðslan var 30 á hundraði og hám- arkshraðinn 150 km á klst. Harla gott í þá tíð. Annar af frægustu Kádilják- unum er Eldorado. Hér skoðum við tvo þeirra sem eru frá þeim tíma er bílar urðu hvað stærstir í Ameríku, þó ekki eins stórir og rétt fyrir stríð, nógu stórir samt. Fyrsti Eldoradoinn kom fram 1953 og þykir enn vera glæsileg- asti Cadillac sem hefur verið smíðaður. Síðan fór lítið fyrir hon- um, allt til 1967, þegar hann kom með framdrifí! Þáði útlitið frá Olds Toronado og tæknihönnun að veru- legu leyti. Þótti afbragðs bfll. 1971 kom arftaki hans og var smíðaður nær óbreyttur til 1976, þegar „litli" Eldoinn kom. Þessir hér eru af ár- gerðunum 1974 og 1976. Báðir eru með tuskutoppi og með 500 kúbika vél upp á 400 hestöfl. Teppl Þessir vagnar og aðrir í sama anda fengu hér á árum áður viðum- efnið „teppi“. Ástæðan er ofur ein- föld: Þeir eru langir, breiðir, lágir, mjúkir og hljóðlátir. Þegar þeim er ekið, er engu líkara en teppi sé dregið eftir götunni! Ætla mætti að slíkir stórvagnar væru fremur svifaseinir, svo þungir sem þeir eru og miklir fyrir sér. Það er þó öðru nær. Þeir skjótast fram ef pinninn er kitlaður, hestöflin íjögur hundruð eru ekki bara upp á punt! En, þrátt fyrir allt aflið er Eldo einstaklega þýður og hljóður. Horfa þarf á mælaborðið til þess að vita að hann er í gangi, ef hann er í kyrrstöðu. Enginn titringur, ekkert hljóð. Galdrar ^ Þegar þessir héma tveir vom smíðaðir, hafði Eldo verið í grand- vallaratriðum með sama búnaði síðan 1967. Vélin hafði stækkað úr 429 kúbikum ’67 í 472 og loks í 500 árið 1970. 500 kúbik era 8,2 lítrar og er næst stærsta vél í fólksbíl eftir Síðari heimsstyijöld. Sú stærsta var 511 kúbik, í Ca- dillac sjöunda áratugarins. Búnaður að öðra leyti nálgast að vera hrein- ustu galdrar. Ef við geram langa sögu stutta og teljum upp það helsta er listinn einhvem veginn svona (sums staðar haldið því tungutaki sem tíðkaðist á þessum tíma): Leð- urklæðning, krúskontról (sjálfvirk hraðastýring), páverbremsur, pá- verstýri, rafmagnsrúður, rafmagn- stoppur, sjálfskipting. Auk þess sjálfvirkur ljósaskiptir, sjálfvirkur ljósarofí sem kveikir ökuljósin í myrkri, sjálfvirkar samhæfðar læs- ingar, sjálfvirkur hæðarstillir á aft- urfjöðram, sjálfvirkt rafdrifíð út- varpsloftnet, sjálfvirk miðstöð með hitastilli, læsivöm á bremsum, sjálf- virk slepping handbremsu (sem er að sjálfsögðu fótstigin), stýrisskipt- ing og fleira og fleira. Ævlntýri Það er engu nema ævintýri líkt að aka slíku teppi um götumar. Svo dúnmjúkt og fyrirhafnarlaust. Eng- inn bfll til æsingsaksturs miðað við 1 Morgunblaðið/Bjarni Þéttlr á valll, Cadillac Eldorado 1976 og 1974. BÍLAR Þórhallur Jósepsson skrifar Morgunblaðið/Júiius Öll innréttingin er með sama brag: Pottþétt, stílhrein og glæsileg. Og svo er hún þægileg líka og nóg er plássið. sportbfla, en getur tekið á sprett ef þarf. Vælir hátt ef pinninn er trampaður niður. Það getur þurft að læðast ofurvarlega fyrir hom. Þessi vagn er með lengsta húddi sem Detroit bíll hefur haft frá stríðslokum! Það tekur tímann sinn að komast nógu langt til að sjá fyrir hom! Maður svífur hljóðlaust í sjöunda himni, dásamlegur sól- skinsvagn fyrir sunnudagsbfltúrinn! Þesslrtveir Þessir tveir era áþekkir. Örlítill útlitsmunur, en breytir ekki heildar- myndinni. Glæsivagnar, fulltrúar tröllatímans í Detroit. Þeir vora keyptir hingað notaðir í vetur frá Ameríku, í prýðisgóðu standi og lítið eknir. Safnarabók bílasíðunnar segir að gangverð þeirra vestra sé á bilinu frá 3.000 til 13.000 dollar- ar, fer eftir ástandi. Það era á gengi dagsins um 140.000 til 700.000 krónur. Bókin spáir því að þeir muni hækka um 15% á næstu fímm áram, sem er all gott. Og víst munu þeir endast þessi fímm ár og önnur fímm og enn önnur. Þetta er ódrep- andi „gott, gamalt Detroit jám!“ eins og Kaninn segir, ekkert dósa- blikk eða plastrasl! Morgunblaðið/Bjarni Rafdrlfnar rúður, fjarstýrður speg- ill með innbyggðum hitamæli, hvítt eðalleður, sjálfsagður og venjulegur búnaður í Eldorado. Morgunblaöiö/Bjarni Eldorado 1974.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.