Morgunblaðið - 17.09.1988, Page 2

Morgunblaðið - 17.09.1988, Page 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988 Astir og stjómmál menning og draugar Höfundurinn, Ragnar Arnalds. SEINASTA leikár Leikfélags Reykjavíkur í Iðnó verður opnað áhorfendum næstkomandi fimmtu- dagskvöld, 22. september. Fyrsta frumsýning leik- ársins er á nýju íslensku verki, Sveitasinfóníunni, eftir Ragnar Arnalds, en eins og leikhúsgestir muna örugglega var fyrsta verk Ragnars, Upp- reisn á ísafirði, sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir tveimur árum, við góðan orðstír. Uppreisn á ísafirði vann Ragnar upp úr atburðum sem áttu sér i raun og veru stað; setti atburðina inn í skáldskapinn — atburði sem byggðu á pólitísk- um væringum, sem urðu smám saman persónuleg- ar milli þeirra Skúla Thoroddsen og Lárusar Bjarnasonar. í Sveitasinfóníunni er Ragnar á allt öðrum slóðum, þó enn taki hann hlutina léttum tökum. Leikritið gerist í þröngum dal, Fossárdal, milli hárra fjalla, einhvers staðar fyrir vestan, norðan eða austan fyrir tveimur áratugum. í næsta nágrenni við þessa sveit er þorpið Tangi og þar hafa menn áhuga á að koma upp stóriðju og byggja virkjun í dalnum, en þar er líka mikill menningaráhugi og meiri drykkjuskapur en góðu hófu gegnir, að minnsta kosti að áliti margra í þessari sveit. Leikstjóri sýningarinnar er Þórhallur Sigurðsson, Atli Heimir Sveinsson hefur samið tónlistina, leik- mynd og búningar eru eftir Siguijón Jóhannsson, lýsingu annast Lárus Björnsson og leikendur eru Orn Arnason, Valgerður Dan, Sigríðiir Hagalín, Valdimar Öm Flygenring, Margrét Ákadóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Edda H. Backman, Sigurð- ur Karlsson, Jón Hjartarson, Gunnar Eyjólfsson, Steindór Hjörleifsson og Jakob Þór Einarsson. Auk þess koma nokkur böra fram í sýningunni; þau Guðjón Kjartansson, Flóki Guðmundsson og Helga Kjartansdóttir. Morgunblaðið/Einar Falur Ólafur, læknir, formaður virkjunarstjómar (Jakob Þór Einarsson) vitjar Báru gömlu í Tungu (Sigriður Hagalín). Dóttir hennar, Soffia (Valgerður Dan), fylgist með. Systkinin Soffía(Val- gerður Dan) og As- geir hreppstjóri og oddviti í Tungu (Om Árnason) era umboðs- menn Pósts og síma. Örlygur (V aldimar Öra Flygenring), bóndi á Illagili, stór- sjarmör, stórsöngvari og stórbruggari, y(jar sér í réttunum. Þórdis á Fossi (Edda Heiðrún Backman), vænlegur kvenkostur, dótt- ir séra Jósefs og Örlygur á Illagili fara með hlutverk elskendanna i sinfónísku verki Alexanders sýslumanns. En er þeim það Ijúft eða leitt? Emma (Margrét Ákadóttir), þýskættuð kona Örlygs, spjallar við karlana, þá Munda bónda (Jón Hjartar- son), Björa stórbónda á Grund (Sigurður Karlsson), séra Jósef (Þorsteinn Gunnarsson) og Friðrik lög- reglumann á Tanganum (Steindór Hjörleifsson). I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.