Morgunblaðið - 17.09.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988
C 7
Sexljóð-
skáldog
tveir
smásagna-
höfundar
Besti vinur
ljóðsins
með ljóðakvöld
í Norræna
húsinu
Helga Arnalds við sviðsmyndina
nema sem sýnir bestan árangur.
Það getur verið danssýning, og fá
þau síðan að sýna_ áfram í salnum
fram á haustið. f ár var sýning
hópsins sem var að útskrifast úr
brúðuleikhússdeildinni valin og
verður hún því sýnd áfram. Þetta
er mikil iyftistöng fyrir nemendur
skólans, því það er mjög erfítt að
fá aðstöðu fyrir sýningar eða kom-
ast að hjá leikhúsunum".
Er brúðuleikhúshefð rík á Spáni?
„Já, hún er mjög sterk. Þar
þekkja allir brúðuleikhús og fínnst
það sjálfsagður hluti af menningu
þjóðarinnar. Brúðuleikhús á Spáni
er fastmótað og sjálfsagt er erfítt
að koma með nýjungar þar. Hér
heima erum við ekki að byggja á
aldagamalli hefð. heima að hér er
engin hefð. Það er hægt að gera
nánast hvað sem er án þess að rek-
úr Sögunni af músinni rúsinu
ast á fordóma um hvað megi og
hvað ekki“.
Það virðist vera ríkjandi skoðun
hér að brúðuleikhús sé eingöngu
fyrir böm, heldurðu að það sé eitt-
hvað að breytast?
„Já, það er mjög mikið að breyt-
ast. Sjónvarpsþættimir sem sýndir
voru fyrir stuttu opnuðu augu
margra fyrir því að brúðuleikhús
er sérstök listgrein^ og höfðar til
ailra aldurshópa. Áhuginn hefur
aukist mjög mikið. Hér heima hefur
þróast gott brúðuleikhús, sem er
þekkt víða um lönd og erlendir
brúðuleikarar sem hingað hafa
komið hafa vakið athygli og hrifn-
ingu. Ég held að það fari að verða
tímabært að reka hér brúðuleikhús
fyrir fullorðna ekki síður en böm".
Þú kvíðir sem sagt ekki atvinnu-
leysi þegar heim kemur?
„Nei, alls ekki. Hér er nóg af
verkefnum. Það var haft samband
við mig áður en ég kom heim í vor
og ég beðin að halda námskeið fyr-
ir Námsgagnastofnun sem ég og
gerði. Þar var ég að vinna með
kennurum, fóstmm og þroskaþjálf-
um og fann greinilega að áhuginn
á að nýta brúðuleikhús í skólakerf-
inu er mikill. Síðan fluttum við
Hallveig fræðslusýningu á norrænu
þingi um bamaofbeldi sem haldið
var í Noregi. Það er einmitt mjög
sniðugt að nýta brúður í svona
fræðsluleikrit. Krakkamir em opn-
ari og ófeimnari að tala við brúður
en fullorðið fólk. Á ári fatlaðra var
farið með svipaðan brúðuþátt um
fötluð böm í flesta skóla landsins
og það gafst mjög vel. Síðan em
auðvitað nánast ótæmandi mögu-
leikar á vinnu við brúðuleikhús hér.
Það þarf að nýta sér þennan aukna
áhuga og skapa hér brúðuleikhús-
hefð, gera brúðuleikhús að jafn
sjálfsögðum hlut í hugum fólks og
leikhúsin".
Er ekki munurinn á leikhúsi og
brúðuleikhúsi að minnka, leikarinn
farinn að skipa jafn stóran sess á
sviðinu og brúðan?
„Nei, brúðuleikhús er alltaf
brúðuleikhús, með sín sérkenni, en
hins vegar er orðið algengara að
blanda saman brúðum og lifandi
leikumm. En brúðumar geta auð-
vitað ýmsa hluti sem leikarinn get-
ur ekki. Það þarf að nýta möguleika
brúðuleikhússins, sérstöðu þess. Ef
sýning gæti alveg eins verið með
lifandi leikuram á ekki að setja
hana upp með brúðum heldur á leik-
sviði".
FB
Það verða sex ljóðskáld og tveir
smásagnahöf undar sem lesa úr
verkum sínum í Norræna húsinu
á miðvikudagskvöldið kl. 9.00 á
ljóðakvöldi sem Besti vinur ljóðs-
ins gengst fyrir. Meðal lesara eru
þeir Hannes Sigfússon og Hannes
Pétursson, en auk upplestursins
mun Örn Magnússon, píanóleikari
koma gestum í rétta stemmingu
með leik ljúfrar tónlistar. Einn
forsvarsmanna Besta vinar ljóðs-
ins, Hrafn Jökulsson var inntur
eftir dagskrá Ijóðakvöldsins.
„Hannes Sigfússon mun lesa úr
nýrri bók sinni, sem kemur út hjá
Máli og menningu nú í haust og
nafni hans Hannes Pétursson hefur
væntanlega eitthvað af óbirtum ljóð-
um í farteskinu líka. Önnur ljóð-
skáld sem þama munu lesa em
Gyrðir Elíasson, Sjón, Elísabet Þor-
geirsdóttir og Valgerður Benedikts-
dóttir. Gyrðir mun lesa eitthvað af
áður óbirtum ljóðum og Sjón úr
heimilisiðnaðarhefti sem hann gaf
út nýlega og nefnist Nótt sítrónunn-
ar. Hvað þær Elísabet og Valgerður
ætla að lesa er mér ókunnugt um,
en það má koma fram að Elísabet
hefur aldrei komið fram á ljóða-
kvöldum Besta vinar ljóðsins fyrr
og V algerður hefur mér vitanlega
aldrei áður lesið upp opinberlega,
en birt ljóð í tímaritum, auk þess
sem hún á ljóð í Ljóðaárbók AB.
Tveir nýir smásagnahöfundar lesa
sögur; Ágúst Sverrisson, sem gaf
út ljóðabókina Eftirlýst augnablik á
sl. ári mun lesa úr smásagnasafni
sem hann er að gefa út og Einar
Heimisson les smásögu, en Einar
hefur birt bæði frumsamdar og
þýddar smásögur í tímaritum auk
þess að þýða bókina Hvíta rósin sem
kom út fyrir jólin síðustu".
Hvers vegna em smásögur á dag-
skrá ijóðakvölds?
„Besti vinurinn hefur tvö undan-
farin ár gengist fyrir skáildsagna-
kvöldum fyrir jólin og þar hefur vilj-
að brenna við að höfundar tækju sér
það bessaleyfi að lesa upp úr smá-
sögum sínum eða jafnvel greinasöfn-
um, þannig að það hafa aldrei verið
ákveðnar reglur um það hvað mætti
lesa. Smásagan virðist líka ætla að
verða áberandi í bókaflóðinu í ár og
því við hæfí að ætla henni sess á
þessum kvöldum".
Þið ætlið ekki að minnast neins
látins skálds að þessu sinni?
„Það em vissulega mörg skáld
sem vert væri að minnast og fjalla
um, en áþessum árstíma em lifend-
ur oftast fyrirferðarmeiri í bókmenn-
taumræðunni og hugum fólks":
Geturðu sagt okkur hvað er í
bfgerð hjá Besta vini ljóðsins?
„Það er ætlunin að standa fyrir
tveim upplestrakvöldum í viðbót á
þessu ári. í nóvember verður skáld-
sagnakvöld þar sem jólabækur verða
kynntar og í desember er fyrirhugað
ljóðakvöld þar sem eingöngu koma
fram skáld sem ekki hafa gefið neitt
út. Þeir sem áhuga hafa á að koma
fram á því kvöldi geta gefíð sig fram
við forsvarsmenn Besta vinarins í
Norræna húsinu á miðvikudags-
kvöldið".
Ljóðið á að veifa dulu réttlætis
Rætt við Jón
Stefánsson,
ljóðskáld
„Ég byijaði fyrir svona 3-4 ámm
að bögglast með smásögur og náði
á skömmum tíma ótrúlega lélegum
árangri og þegar ég var tuttugu og
eins áre uppgötvaði ég að ljóðformið
hentaði mun betur þvf sem ég vildi
segja. Auðvitað hefíir maður alltaf
verið að spinna upp sögur í hugan-
um, en ég var ekki einn af þeim sem
útbfa pappír með unglingabólunum.
Það var ekki vitræn ákvörðun að
byija að skrifa, ég bara vaknaði upp
einn morgun og fannst að héðan af
yrði mér ekki líft án skrifta".
En hvers vegna að gefa út bók?
„Ljóð er ekki fullskapað fyrr en
það er lesið. Sá maður sem sættir
sig við að gefa ekkert út er að mfnu
viti ekki skáld. Svo skal ég fúslega
játa að ég er ekki eingöngu að yrkja
fyrir okkar tfma, heldur framtíðina".
Það kemur fram nokkur óánægja
með ástandið í heiminum í dag f ljóð-
um þínum. Lfturðu á ljóðið sem vopn
í baráttunni fyrir betri heimi?
„Það væri fölsun að reyna að svara
þessu öðmvísi en svo að þetta sé
_ ákaflega ómeðvitað. Ég sest ekki
niður og segi: heimurinn er vondur
og ég ætla að bæta hann. Ég myndi
yrkja þótt heimurinn væri góður. En
ég álít samt að ljóðið hafi hlutverk,
að það eigi að veifa dulu réttlætis
og ég reyni að beina þvf í þann far-
Veg.“.
Ertu sem sagt reiður ungur mað-
Ur?
„Við skulum segja að ég sé pirrað-
ur ungur maður. Pirraður á því
hvemig heimskunni er hossað sem
einhveijum stórasannleik og lffstil-
gangi. Þessi hræðilegi áróður fyrir
heimskunni á Bylgjunni og Stjöm-
unni t.d. það ætti að handtaka hvem
einasta mann sem vinnur við þessar
stöðvar".
í ljóðunum kemur margítrekað
fram hvatning til ofbeldis gegn órétt-
lætinu, heldurðu að hægt sé að koma
á réttlæti með ofbeldi?
„Þetta er feluleikur eða máttvana
bræði hjá mér, ég nota svona kald-
hæðni sem grímu. Ofbeldi dregur
fram allt það versta f manninum og
réttlæti sem komið er á með ofbeldi
snýst f andhverfu sína. Ofbeldi er
líka keðjuverkandi, þú getur ekki
geymt það í klæðaskápnum og klætt
þig úr því og í það eftir þörfum. Það
smitar útfrá sér eins og krabba-
mein".
Þessi óánægja með heiminn virðist
tengjast ótta um að guðdómurinn sé
horfinn. Ertu trúaður?
„Þetta er stærsta spuming allra
tíma, en ég er efasemdamaður og lít
á trú sem tilfinningasamband ein-
staklings við eitthvað sem hann kall-
ar guð og þar sem þessi guð hefur
ekki sett sig f persónulegt samband
við mig, trúi ég ekki. En ég álít engu
að síður að trúin sé nauðsyn, bæði
til að svæfa ótta einstaklingsins og
vegna þeirra siðferðisreglna sem
henni fylgja".
í ljóðinu Frásagnir úr lífi mfnu
raðarðu saman nöfnum á Ijóðabókum
ýmissa skálda til að lýsa upplifun
þinni af heimi ljóðsins. Em þessi
skáld helstu áhrifavaldamir f þinni
ljóðagerð?
„Það sem hrífur mann mest hefur
ekki endilega sterkust áhrif á það
sem maður gerir sjálfur. Það er enda-
laust hægt að velta því fyrir sér
hvað séu áhrifavaldar í ljóðum hvers
og eins. Tinni og Tarsan, kannski?
Raunar held ég að það sem hefur
sterkust áhrif sjáist ekki í ljóðunum.
Ég byijaði á að skrifa stælingar á
Sorg eftir Jóhann Siguijónsson, en
þau áhrif sjást ekki í dag“:
Hvemig verður ungu skáldi við
að fá í fyrsta skipti gagnrýni um
verk sín opinberlega?
“Eins og blaðagagniýni er háttað
í dag breytir það ekki miklu. Gagn-
rýni um íjóðabækur í dagblöðunum
virðist vera deyjandi fyrirbrigði.
Þjóðviljinn virðist hafa gleymt þvf
að enn er ort f landinu, Mogginn og
Tíminn birta póstkortakrítík, sem
segir ekki neitt og þótt gagmýnandi
DV hafí uppi ágætis tilburði, er hon-
um skammtað svo lítið pláss að það
kemur að engu haldi. Það er eins
og blöðin tími ekki að sjá af plássi
undir umfj'öllun um ljóðabækur, það
gæti orðið til þess að viðtölin við
fegurðardrottningamar kæmust ekki
fyrir“.
Það vekur athygli manns f bókinni
þinni hversu óhræddur þú ert við að
treysta orðunum til að standa fyrir
sínu og tjá tilfínningar, sem allir
kannast við. Óttastu ekki að ljóðin
þyki of opin?
„Sorg og gleði eins manns er sama
tilfínning og sorg og gleði annarra
og ef maður getur ekki miðlað þeim
tilfinningum er skáldskapurínn mis-
lukkaður. Lesandinn verður að geta
gengið inn í heim skáldsins og fund-
ist hann vera sinn, ekki að hann sé
að lesa skýrslu um tilfinningalíf ein-
hvers diykkjuræfils. Maðurinn er
félagsvera og þess vegna hlýtur
skáldskapur að miðla samkennd, ljóð
sem byggjast f kringum eitt stórt ég
em ómannúðleg. Sá sem yrkir verður
auðvitað að finna sfna aðferð til að
miðla öðmm en það er ekki vænlegt
til árangurs að stökkva inn í ein-
hveija tískusveiflu í skáldskap, án
þess að gera upp við sig hvað maður
sjálfur er. Ljóðin verða óekta; falsað-
ir demantar".
Að lokum birtist hér eitt ljóð úr
bókinni.
hringrás
örugg hringrás daganna
og þögn næturinnar
san ekkert rýfur
nema hugsanir vinda
örugg hringrás náttúrunnar
og kvöldin
með sín fáeinu Ijós
á stangli
og inni
beðið fregna af veðrum
meðan snörlar í pípu
og gamall hundur
sefur undir borði
hringrás minninga
sem flarlægist
á hvom veginn
sem er
FB