Morgunblaðið - 27.09.1988, Side 1
<m>
1988 ■ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER BLAD
HANDKNATTLEIKUR
Kristján erfjórði
markahæsti leikmaðurinn
Kristján Arason er fjórði markahæsti leikmað-
urinn i handknattleikskeppninni hér á
Ólympíuleikunum - hann hefur skorað 22 mörk,
en S-Kóreumaðurinn Jae-Won Kang er marka-
hæstur með 34 mörk.
Þeir leikmenn sem hafa skorað flest mörk, eru:
Jae-Won Kang,S-Kórea................................34/5
Ruediger Borchardt, A-Þýskal...................,...31/17
Laszlo Marosi, Ungveijalandi........................23/3
Kristján Arason, ísland............................22/11
Juan F. Munoz, Spánn.............................. 21/7
Zlatko Portner, Jógóslavíu..........................20/7
Veselin Vujovic, Júgóslaviu.........................20/3
Jae-Hwan Kim, S-Kóreu..............................19/12
Sang-Hyo Lee, S-Kóreu...............................19/4
Kenji Tamamura, Japan...............................19/3
Libor Sovadina, Tékkósl...............................18
Steven Gross, Bandaríkin............................17/1
Erik Hajas, Sviþjóð...................................16
Alexandre Karchakevish, Sovét.........................14
Frank Wahl, A-Þýskalandi..............................17
PeterKovacs, Ungvetjalandi..........................17/6
Mihaly Ivancsik, Ungveijalandi...................... 17
Matthias Hahn, A-Þýskalandi...........................16
LYFJANOTKUN
Ben Johnson sviptur
gullverðlaununum
vegna lyfianotkunar
Reuter
Ben Johnson hnykklar vöðvana. Nú hefur komið í ljós að hann hefur
neytt ólöglegra lyfja sem auka og hraða vöðbauppbyggingu.
STAÐFEST var laust oftlr
miðnætti í nótt að kanadíski
spretthlauparinn Ben John-
son hefði verið sviptur gull-
verðlaununum sem hann
hlaut fyrir sigur í 100 m hlaupi
um helgina, vegna lyfjanotk-
unar. Johnson hefur verið
gerður brottrækur frá leikun-
um og verða gullverðlaunin
afhent Bandaríkjamanninum
Carl Lewis, sem varð í öðru
sæti í hlaupinu. Um miðnætt-
ið barst sú frétt f rá Seoul að
Johnson væri á leið úr landi.
Ljóst er að alþjóða frjáls-
íþróttasambandið dæmir
hann í lífstíðarbann vegna
þessa.
iðbrögð íþróttamanna í Seo-
ul, við fréttinni voru á einn
veg: menn voru vantrúaðir á að
þetta væri satt, en jafnframt sorg-
mæddir og höfðu greinilega orðið
fyrir miklu áfalli. Við lyfjapróf
kom í ljós að Johnson, sem setti
heimsmet í greininni er hann hljóp
á 9,79 sekúndum, hafði neytt
anabólfsks stera — lyfsins stanoz-
olol. Þess má geta að allir verð-
launahafar á Oiympíuleikum eru
teknir í lyfjapróf.
Johnson er sjöundi íþróttamað-
urinn á Ólympíuleikur sem fellur
á lyfjaprófí, og án alls vafa sá
þekktasti. Sigur hans á Banda-
rílq'amanninum Carl Lewis — sem
keppir að því að vinna fem gull-
verðlaun í ftjálsum íþróttum aðra
leikana í röð — var hápunktur
leikanna.
Johnson hefur löngum þótt
undramaður meðal spretthlaupara
vegna þess hve ótrúlega snöggur
hann er af stað þegar skot ræsis
ríður af. Eftir sigur Johnsons í
100 m hlaupi á heimsmeistara-
mótinu í Rómaborg í fyrra, var
haft eftir Carl Lewis að margir
ftjáisíþróttamenn neyttu ólög-
legra lyfja, en hann nefndi engin
nöfti.
Lífstíðarbann
Þeir ftjálsíþróttamenn sem
uppvísir verða að notkun ólög-
legra lyfja eru sjálfkrafa dæmdir
í ævilangt keppnisbann af aiþjóða
fijálsíþróttasambandinu. Heims-
metið sem hann setti aðfaranótt
sunnudags verður heldur ekki
staðfest.
Gamla metið stendur
Fyrra heimsmet hans, 9,83
mín., sett á heimsmeistaramótinu
í Róm í fyrra, stendur hins vegar
þvi þar varð niðurstæða neikvæð
á lyQaprófi.
I síðustu viku missti búlgarski
iyftingamaðurinn Angel Guench-
ev gullverðlaun, eftir að hafa sett
ijögur heimsmet, er hann féll á
lyfjaprófi. Annar lyftingamaður
frá Búlgaríu féll síðan á lyfjaprófi
og í framhaldi af því var keppnis-
lið landsins í lyftingum dregið úr
keppninni og hélt heim á leið.
Tveir aðrir lyftingamenn voru
síðan dæmdir úr keppni eftir að
hafa fallið á lyijaprófi. Annar
þeirra, Kalman Csengeri frá Ung-
veijalandi, hafði neytt sama lyfs-
ins og fannst í þvagi Bens John-
son — stanozolol.
Johnson er fyrsti fijálsíþrótta-
maðurinn sem fellur á lyfjaprófí
á Óiympíuleikunum nú. Ellefu
íþróttamenn voru dæmdir úr
keppni vegna lyfjanotkunar á
Ólympíuleikunum í Los Angeles
fyrir fjórum árum — þar á meðal
silfurverðlaunahafinn í 10.000
metra hiaupi, Finninn Martti Va-
inio og Vésteinn Hafsteinsson,
kringlukastari.
Herör gegn lyfianotkun
Alþjóða Ólympíunefndin hefur
skorið upp herör gegn lyfjanotkun
íþróttamanna í ár. Formaður
neftidarinnar, Juan Antonio Sam-
aranch beitt sér mikið fyrir hert-
um aðgerðum gegn lyfjanotkun,
og hann sagði nýlega í ræðu þar
sem þetta var til umræðu: „Lyfja-
notkun jafngildir dauða.“
Anabólískir sterar stækka
vöðva og auka kraft íþrótta-
mannsins ef þeir eru teknir í miklu
magni. Þá gera þeir íþróttamönn-
um kleift að leggja mun harðar
að sér við æfíngar en ella. Taiið
er að þessi lyf hafí verið notuð
mikið meðal íþróttamanna undan-
farin 20 ár þrátt fyrir að mikið
magn þeirri skaði lifur og hjarta-
og æðastarfsemi.
Talið hefur verið að íþrótta-
menn neyti viðkomandi lyfja í
ákveðinn tíma en hætti notkun
þeirra nokkrum vikum fyrir
keppni, þannig að ekki fínnist
merki notkunar við próf. Aðrir
hafa neytt svokailaðra „maskara"
— annarra lyfja sem koma í veg
fyrir að sterarnir fínnist við próf.
Viðbrögð íþróttamanna í Seoul
voru sem fyrr segir á einn veg —
menn urðu nq'ög reiðir. Stepeh
Kerho, kanadiskur grindahlaup-
ari, sagðist hafa heyrt fréttimar
frá læknaliði kanadíska íþrótta-
hópsins; „það var eins og mæður
þeirra allra hefðu verið að gefa
upp öndina", sagði hann.
Skaöar ímynd íþróttanna
íþróttamenn almennt voru
hryggir vegna fréttanna og töldu
þetta skaða ímynd iþrótta um
heim allan. Franski tugþrautar-
maðurinn Christian Plaziat sagði:
„Þetta staðfestir það sem ég hef
hugsað. Það er ekki mögulegt að
hlaupa 100 metra á 9,79 sekúnd-
um án þess að neyta þess sem
hann neytti." Plaziat sagði þetta
sérstaklega slæmt fyrir öll þau
böm sem litið hefðu upp til John-
sons. í skólabekk gjalda allir þess
ef einn svindlar. Það er eins í
íþróttunum," sagði Plaziat.
Ricardo Blas, júdómaður frá
Guam, sagði: „Hann á að vera
fljótasti maður i heimi. Nú vitum
við hvers vegna.“
Svisslendingurinn Christian
Gugler, sem tekur þátt í tug-
þrautarkeppni leikanna, sagði:
„Þegar menn eins og Ben Johnson
og Carl Lewis eru famir að keppa
fyrir jafn mikla peninga og þeir
gerðu í Ziirich, er óhjákvæmilegt
að svona hlutir gerist. Ég myndi
hugsanlega beita þessu bragði
fyrir hálfa milljón dollara," sagði
Gugler. Hann vitnaði til keppni
þeirra Lewis og Johnson, sem fór
fram í Zurich í Sviss fyrr í sum-
ar, þar sem þeim vom greiddar
himinháar upphæðir fyrir að
mæta til keppni.
Johnson bar sigurorð af Lewis
á heimsmeistaramótinu í Róm í
fyrra sem fyrr segir. Eftir keppn-
ina þar sagði Lewis að margir
fijálsíþróttamenn neyttu ólög-
legra lyfja, en vildi ekki nafn-
greina neinn. Hann sagði þá að
íþróttamenn og íþróttaforystu-
menn gerðu ekkert til að leysa
þennan vanda. Er Lewis var
spurður hvort Johnson hefði sigr-
að hann með hjálp lyfja sagðist
hann ekki telja rétt að hann benti
á neinn sérstakann íþróttamann.
Það leysti engan vanda. „En við
vitum að vandamálið er fyrir
hendi. Mér fínnst andrúmsloftið i
keppni undarlegt. Margir kepp-
endur hafa orðið að stjömum upp
úr engu. Þetta er verra nú en
nokkm sinni fyrr, gullverðlauna-
hafar á þessu móti neyta lyfja,"
sagði Lewis í Róm í fyrra.