Morgunblaðið - 27.09.1988, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 27.09.1988, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, OLYMPIULEIKARNIR í SEOUL ’88 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988 B 3 HANDKNATTLEIKUR Island-Júgóslavía 19 : 19(8:10) Ólympluleikamir i Suwon ( Kóreu, mánudaginn 26. september 1988. Leikurinn i tölum: 1:0, 1:1, 2:2, 3:3, 4:4, 5:5, 6:6, 7:7, 7:9, 8:9, 8:10, 9:10, 9:11, 10:11, 10:12, 12:12, 12:13, 13:13, 14:14, 17:14, 17:15, 18:15, 18:17, 19:17, 19:19. Hörk Júgóslavíu: Portner 6/2, Vujovic 4/1, Saracevic 3, Holpert 3, Rnic 2, Kuzmanovski 1. Varin skot: Basic 9, Velic 3/1. I'tan vallar: samtals f 22 minútur. Hörk íslands: Karl Þráinsson 5, Al- freð Gíslason 5/2, Kristján Arason 3, Atli Hilmarsson 2, Þorgils Óttar Mathi- esen 2, Guðmundur Guðmundsson 1, Jakob Sigurðsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 14/1. Utan vallar: 16 mínútur samtals. Dómarar: Peter Haak og Henry Koppe frá Hollandi voru slakir og höfðu eng- in tök á leiknum. SigmundurÓ. Steinarsson skrifar frá Seoul Sigurganga Suður-Kóreu- manna heldur áfram JAE-WON Kang og félagar hans í landsliði S-Kóreu halda áfram sigurgöngu sinni. Japan- ar urðu fórnarlömb þeirra á mánudaginn og stórsigur varð staðreynd, 33:24, eftir að stað- an hafði verið, 18:11, íleikhléi. Kang skoraði tíu mörk í leikn- um, en Toshiyuki Yamamura skoraði mest fyrir Japani, eða sjö mörk SigmundurÓ. Steinarsson skrifar frá Seoul ítiém FÓLK ■ ÞORGILS Óttar Mathiesen lék sinn 200 landsleik fyrir íslands gegn Júgóslövum. Einar Þor- varðarson lék sinn 200 landsleik Sgn Svíum. ÞORGILS Óttar varð fyrir óskemmtilegri reynslu í leiknum gegn Júglóslövum. Annar hol- lensku dómaranna, sem dæmdu leikinn, rak hann af leikvelli þegar íslenska landsliðið var í sókn og Þotg- ils Óttar stöðvaði á miðjum vellinum til að reima skó- fang sitt. „Þessi brottrekstur var í samræmi við öll þau mistök sem dómaramir gerðu í leiknum," sagði Þorgils Óttar. ■ PÉTUR Guðmundsson, kúlu- varpari, hefur ákveðið að keppa af fullum krafti fram til áramóta. Ástæðan fyrir því að hann tekur sér ekki frí frá æfingum eftir ÓL, er að hann hefur fundið að hann væri á mikilli uppleið og hefur því ákveðið að nýja sér það og reyna að bæta árangur sinn á næstu mánuðum. I EINAR Þorvarðarson, mark- vörður íslenska landsliðsins, var kallaður í lyfjapróf eftir leikinn gegn Júgóslövum. Hann þurfti að drekka fjóra bjóra áður en hann Sat skilað vatni í glas. I ALFREÐ Gíslason sagði að lífið í Ólympíuþorpinu væri orðið frekar leiðinlegt. „Við gerum ekk- ert annað en bíða þar eftir næsta leik. Það er ekki endalaust hægt að stytta sér stundir með því að spila á spil,“ sagði Alfreð. Þess má geta að landsliðsmenn íslands fengu sitt fyrsta frí frá lífinu í Ólympíuþorpinu daginn fyrir leikinn gegn Júgóslövum. Þeir fengu þriggja klukkustunda frí til að skreppa niður í miðbæinn í Seoul. ■ HÁKON ÖRN Halldórsson, formaður Júdósambands íslands, heldur hér upp á afmælisdaginn sinn - föstudaginn 30. september, eða sama dag og Bjarni Ásgeir Friðriksson keppir í sínum flokki. Spumingin er hvað gefur Bjarni Hákoni í afmælisgjöf? ■ GUNNALUGUR J. Briem, Ólympíunefndarmaður, heldur einnig upp á afmæli sitt hér í Seo- ul. Hann á afmæli 27. september. Arslanagic kvart- aði við Elias Arslanagic, þjálfari Júgóslava, kvartaði við Svíann Erik Elias, formann dómaranefndar IHF, vegna hollensku dómaranna á leikn- um, en fékk þau svör að þetta væru mjög góðir dómarar. Arsla- nagic sagði þá að þeir þættu kannski góðir í kvennabolta, 3. deild eða í körfubolta en ættu ekki heima í keppni sem þessari - væru héma aðeins vegna þess að einn nefndar- mannanna í dómaranefndinni væri hollenskur. Rudiger Borchard skoraði níu mörk þegar A-Þjóðverjar lögðu Tékka að velli, 24:21, eftir að stað- an var, 11:9, í leikhléi. Holger Schneider skoraði sex mörk, en markahæstu leikmenn Tékka vom þeir Tomas Bartek, með fimm mörk og Libor Sovadina með fjögur. Ungverjar unnu stórsigur yfir Spánverjum, 26:16. Lasxlo Marosi skoraði átta mörk fyrir þá, en þeir Peter Kovacs og Mihaly Ivancsik sex mörk hvor. Juan F. Munoz skor- aði flest mörk Spánvetja, eða fimm. Stórsigur Svía Svíar áttu ekki í erfíðleikum með Bandaríkjamenn og unnu stórsigur, 26:12, eftir að staðan var 11:6 í leikhléi. Bjöm Jilsen skoraði sex mörk og Ola Lindgren fímm. Peter Lash og Michael Sullivan skorðu fjögur mörk hvor fyrir Bandaríkja- menn. Sovétmenn átti ekki í vandræð- um með Alsírsmenn og unnu stórt - 26:13, eftir að staðan var, 13:5, í leikhléi. Júrí Nesterov og Valeri Gopin skomðu flest mörk Sovétmanna, eða íjögur mörk hvor. Mahound Bouanik skoraði fimm mörk fyrir Alsírsmenn. u „Áttum að sigra - sagði Bogdan Kowalczyk Bogdan þjálfari var óánægður með að hafa ekki sigrað. „Þetta var besti leikur Júgóslava, en við áttum að sigra. Liðið var afslappað í bytjun, en taugastríðið skömmu eftir hlé kom í veg fyrir sigur og í raun var gott að jafna eftir það sem á undan hafði geng- ið,“ sagði þjálfarinn. „Bæði liðin ætluðu sér sigur, við höfðum undirtökin lengst af, en við fómm of oft illa með tækifærin og auk þess vom hinir slöku dómarar frekar á bandi Júgóslava. Við höfð- um sigurinn í hendi okkar, en eitt mark vantaði. Hins vegar er það tapið gegn Svíum sem ræður úrslitum og að- eins sigur gegn Sovétmönnum get- ur hresst upp á stöðuna. En því má ekki gleyma að við emm með fimm stig úr fjórum leikjum og það er ekki slæmt í svona keppni. Bar- Bogdan Kowalczyk. áttan snýst fyrst og fremst um sæti og því em streitan og tauga- veiklunin alls ráðandi hjá öllum lið- um. Við gefum ekkert eftir gegn Sov- étmönnum, enn getur allt gerst í riðlinum og við emm enn inni í myndinni." „Besti leikur- inn en gáfum sigurinn frá okkuri' - sagði Arslanagic, þjálfari Júgóslava Steinþór Guöbjartsson skrifarfrá Seoul Svitinn lak af Arslanagic, þjálf- ara Júgóslava eftir leikinn. Síðustu mínútumar átti hann greinilega erfitt með að halda sér á mottunni og hann var dapur í leikslok. „Þettahefurverið erfitt hjá okkur und- anfama mánuði. Alls konar vandamál hafa komið upp og það er vonlaust að ná ár- angri, þegar einbeitnin er ekki til staðar," sagði þjálfarinn við Morg- unblaðið. „Við höfum alls ekki náð okkur á strik í keppninni, en þetta var okkar besti leikur. Sigurinn var okkar er fímm mínútur vora eftir, en á óskiljanlegan hátt glopmðum við leiknum niður í jafntefli. Dómaramir vom hrikalega léleg- ir og hreint furðulegt að svona menn séu látnir dæma á Ólympíu- leikum. En hvað um það, ballið er ekki búið og úrslitin ráðast á mið- vikudag. Við leikum við Svía á eft- ir leik íslendinga og Sovétmanna, þannig að við vitum nákvæmlega að hveiju við göngum. Það er ekk- ert sjálfgefíð og í raun ómögulegt að segja til um hvað gerist, en við egum enn möguleika á verðlauna- sæti — eins og hin liðin," bætti Arslanagic við. Draumur um verðlaun úr sögunni? Áhugalaust handknattleikslandslið olli geysilegum vonbrigðum gegn Svíum í Suwon á laugardaginn ÞAÐ má með sannl segja laugardagurinn 24. septem- ber hafl verið svartur fyrir íslenska iþróttamenn hér í Seoul. Á sama tíma og heima- menn héldu Þakkargjörðar- dag hátíðlegan, læddist svart ský á himin ííslenskri íþrótta- sögu. Einar Vilhjálmsson náði ekki að komast í úrslit í spjót- kasti og (slenska landsliðið í handknattleik lék sinn léleg- asta leik í langan tfma og mátti þola stóran skell, 14:20, fyrir slökum Svíum. Já, og svo bárust þær fréttir frá Pusan, að heppnin hafi ekki einu sinni verið með „Leifi heppna" - báti íslensku sigl- ingamannanna. Báturinn fékk á sig brotsjó þannig að mast- ur brotnaði og segl rifnuðu. Vindar blésu á sjó og landi. Þrátt fyrir að við íslendingar séum aldir upp við að allra vinda sé von, þá vom landsliðsmenn okkar í handknatt- leik og Einar Vil- hjálmsson ekki nægilega sterkir, til að berjast á móti þeim vindum. Einar gerði heið- arlega tilraun, en honum mistóskt. Landsliðsmenn okkar í handknatt- KÓREU BRÉF SigmundurÓ. Steinarsson skrifar leik gerðu aftur á móti enga til- raun - þeir gáfust upp við fyrsta mótlæti, þannig að Svíagrýlan er enn við lýði. Að þola ekki spennuna Bogdan Kowalczyk, landsliðs- þjálfari íslands, sagði eftir leikinn gegn Svíum, að leikmenn sínir hafi farið á taugum í byijun leiks- ins. Vægast sagt einkennileg skýring hjá þjálfaranum. Var hann ekki búinn að undirbúa sína leikmenn fyrir þýðingamesta leik liðs síns á ÓL, eða hafði hann ekki fengið tíma til þess? Undirbúningurinn og upphitun- in fyrir leikinn var greinilega i lágmarki, því að sömu mistökin komu fram og í leikjum íslenska liðsins gegn Bandaríkjunum og Alsír. Leikmenn landsliðsins vom seinir í gang og sátu eftir í öllum einvígum við Svía. Það er erfitt að kyngja því að Ieikmenn íslenska landsliðsins, sem er leik- reyndasta landsliðs heims, hafi farið á taugum þegar mest lá við. Það er einnig óþolandi að heyra landsliðsmenn íslands kvarta yfir sömu hlutunum eftir þijá fyrstu leikina: Að þeir hafí ekki hitað nægilega vel upp fyrir þessa leiki. Hvemig getur það gerst hjá lands- liði, sem hefur æft daglega síðas- liðna þijá mánuði og leikið §öl- marga landsleiki á þeim tíma? Ahugaleysl og aumingja- skapur Eftir að hafa séð lélega Svía leika sér að íslenska landsliðinu, vom aðeins til tvö orð yfir leik íslenska liðsins: Áhugaleysi og aumingjaskapur. íslenska liðið var sem höfuðlaus her og það vom engin skipulögð leikkerfi leikin gegn Svíum. Allir leikmenn liðsins hlupu með eða á eftir knett- inum, án þess að gera sér grein fyrir því að handknattleikur bygg- ist fyrst og fremst upp á sam- vinnu og á að láta knöttinn ganga hratt manna á milli, þannig að sundmng skapast í leik andstæð- inganna. Handknattleikur er leik- ur liðsheildarinnar, en ekki ein- staklinganna. Þetta átti að brýna fyrir leikmönnum íslands fyrir leikinn og ekki hefði það skemmt fyrir, að óska eftir því að leik- mennimir sýndu léttleika og hefðu gaman að því sem þeir vom að fást við. Það er hlutverk þjálfara að sameina þessa eiginleika í liðs- heildinni. Þjálfari á að vera leið- togi og hann verður að gæta þess að fara ekki fyrstur í fylu þegar illa gengur. Aö eiga föst sæti Sú þróun hefur orðið á landslið- inu undanfarin ár, að vissir leik- menn eiga þar föst sæti hvað sem á gengur og hvemig þeir standa sig. Þetta hefur orðið til þess að sumir leikmenn hafa aldrei fengið að spreyta sig að ráði. Gott dæmi um það er Sigurður Sveinsson. Það hefur vakið þó nokka at- hygli, að aðeins einn vinstri homa- maður hefur verið notaður í leikj- unum gegn Bandaríkjunum, Alsír og Svíþjóð. Það er hinn ungi og stórefnilegi Bjarki Sigurðsson. Bjami náði sér ekki á strik gegn Svíum - hvorki í sókn né vöm. Það var þó ekki hægt að hvfla hann, því að hinn homamaðurinn, Karl Þráinsson, hefur setið upp í áhorfendabekkjum. Til hvers var verið að fara með tvo leikmenn sem leika í vinstra hominu, ef átti aðeins að nota annan þeirra? Hefði ekki verið nær að gefa Jú- líusi Jónassyni tækifæri. Hann hefði hrist upp í sóknarleik liðsins í þremur fyrstu leikjunum, með hreyfanieika sínum og sprengi- krafti. Þegar þetta er skrifað hér í Seoul, em aðeins örfáir tímar þar til íslenska liðið leikur gegn Jú- góslövum. Vonandi hefur sá leikur unnist og síðan leikur gegn Sovét- mönnum, sem verður aðfaramótt miðvikudagsins. Ef þessir báðir leikir vinnast ekki, þá fer draum- urinn um að leika um verðlaun hér í Seoul út í veður og vind með tapinu gegn lélegu sænsku landsliði. Þv( lélegasta sem undir- ritaður hefur séð og man eftir að hafi leikið í hinum gul/bláa lands- liðsbúningi Svía.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.