Morgunblaðið - 27.09.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.09.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPÍULEIKARNIR W í SEOUL ’88 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988 B 7 10.000 METRA HLAUP KARLA Reuter Moulay Brahim Boutalb hreppti önnur verðlaunin í hlaupi fyrir Marokkó á sunnudag þegar hann hlaut gullið í 10.000 metra hlaupi karla. Marokkó- búikom áóvænt Náði fjórða besta tíma sem náðst hefur MOULAY Brahim Boutaib hreppti önnur verðlaunin í hlaupi fyrir Marokkó á sunnu- dag þegar hann hlaut gullið í 10.000 metra hlaupi karla. Hann hljóp á 27:21.46 mfnútum en það er fjórði besti tfminn nokkru sinni. Hinn 21 árs gamli bóndasonur hljóp vegalengdina á heims- metshraða mest allan tímann. Tími hans hefði jafnvel orðið betri ef hann hefði ekki farið síðustu 30 metrana löturhægt. Hann leit aftur fyrir sig hvað eftir annað til að koma auga á keppinauta sína, þá Salvatore Antibo frá ítaliu, sem hlaut silfurverðlaunin á 27:23.55 mínútum, og Kipkemboi Kimeli frá Kenýa, sem tók bronsið á 27:25.16. Býr í húsl Aoulta Boutaib býr í húsi Saids Aouita i Casablanca. Aouita fékk það að gjöf fyrir frammistöðu sína í 5.000 metra hlaupi karla á Ólympíuleik- unum í Los Angeles fyrir flórum árum. Aouita hlaut bronsið í 800 metra hlaupi á sunnudag. SPJÓTKAST KVENNA Petra Felke heimsmethafi í spjótkasti kvenna varð ólympíumeistari i Seoul. Felke sigraði í spjótkasti HEIMSMETSHAFINN Petra Felke frá Austur-Þýskalandi bar sigur af hólmi í spjótkasti kvenna á Ólympíuleikunum og kastaði 74,68 metra. Fatima Whitbread, heimsmeist- ari frá Bretlandi, varð önnur. Hún kastaði 70,32. Austur-þýska stúlkan Beate Koch varð þriðja með 67,30 metra. Pelke á heimsmetið í spjótkasti kvenna, 80,00 metrar, og setti hún það í síðasta mánuði á móti í hei- malandi sínu. 400 METRA HLAUP KVENNA Bryzgina setti ólympíumet Hljóp 400 metrana á 48,65 sekúndum SOVÉSKA stúlkan Olga Bryz- gina bœtti ólympíutitli við heimsmeistaratitilinn í 400 metra hlaupi kvenna þegar hún vann gullið auðveldlega á 48,65 sekúndum í Seoul og betrum- bætti ólympfumet Valerie Bris- co siðan i Los Angeles um 18 sekúndubrot. Petra Miiller frá Austur Þýska- landi tók góðan endasprett og varð önnur með tímann 49,45. Olga Nazarova varð þriðja á 49,90 sek- úndum og Brisco ijórða á 50,10. FRJALSAR IÞROTTIR Keppnisferli Mennea lokið? ÍTALSKI heimsmetshafinn í 200 metra hlaupi karla, Pietro Mennea, hætti þátttöku í Óiympíuieikunum á mánudag vegna meiðsla í nára. Þetta voru fimmtu Ólympíuleikar hans. ennea setti heimsmetið í 200 metra hlaupi, 19,72 sekúndur, i Mexíkóborg árið 1979. Hann vann gullverðlaunin á Olympíuleikunum í Moskvu 1980 og hefur tekið þátt í öllum Ólympíuleikum síðan í Miinchen 1972. EMH Hann hljóp 21,10 í undan- keppni á mánudagsmorgun og rétt komst áfram í keppninni. Hann sagði að það hefði verið til- finningaþrungin stund. „Ég er langtum eldri en þetta fólk, þetta var stór stund." Hann mætti ekki til leiks um eftirmiðdaginn. Sára- litlar líkur þóttu á að hann kæm- ist áfram í undanúrslit. Vonsvikinrt Sandro Giovanelli, þjálfari ítalska liðsins, sagði að Mennea hefði meitt sig fyrir nokkrum dög- um og læknar hefðu ráðlagt hon- um að hætta keppni. Hann sagði að Mennea hefði verið mjög von- svikinn að þurfa að draga sig í hlé en hrærður yfir að hafa feng- ið að vera með á leikunum. Þetta var væntanlega síðasta mótið sem hann tekur þátt í. Honum tókst ekki að komast á Heimsmeistarmótið í Róm í fyrra og náði ekki lágmarks tíma, 20,80 sekúndum, til að komast til Seo- ul. ítalskir íþróttajöfrar veittu honum heiðurssæti í italska liðinu og hann bar fána þjóðar sinnar við setningu leikanna. ítölsk dag- blöð gagnrýndu þátttöku hans þar sem hann hefur viðurkennt að hafa notað styrkaukandi lyf. TUGÞRAUT Siegfried Wentz, sem vann sil- frið í tugþraut karla á heimsmeist- aramótinu i Róm í fyrra, hélt heim til Þýskalands í gær. Wentz ekkimeð í tugþraut karia VESTUR Þjóðverjinn Siegfri- ed Wentz, sem vann silfrið í tugþraut karla á heims- meistaramótinu í Róm í fyrra og bronsverðlaunin á Olympíuleikunum í Los Angeles fyrir fjórum árum, hélt heim til Þýskalands frá Suður Kóreu í gær. Walter Hubmann, læknir vestur þýska landsliðsins, sagði að Wentz væri ekki orðinn góð- ur í öklanum en hann meiddi sig fyrir fimm vikum á æf- ingu í Austurríki. Wentz gat ekki stokkið nema 1,70 metra i há- stökki í hreystiprófi um helgina en besta stökk hans eru 2,12 metrar. Hubmann sagði að Wentz hyggðist taka sér árs frí frá tugþrautinni og hefja lækn- isstörf. Hann vonast þó til að geta keppt á Evrópumeistara- mótinu 1990. Tugþraut Ólympíuleikanna fer fram á miðviku- og fimmtu dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.