Morgunblaðið - 27.09.1988, Page 8

Morgunblaðið - 27.09.1988, Page 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPÍULEIKARNIR Ó$§b í SEOUL ’8S ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988 HASTOKK KARLA 400 M GRINDAHLAUP Sovétmaðurinn Avdeenko hreppti gullverðlaunin Fagnaði sigri er keppinautum hans mistókst að kom- ast yfir 2,36 metra — Avdeenko fóryfir 2,38 Reuter Guennadi Avdeenko fagnar ógurlega eftir að í ljós kom að keppinautum hans tókst ekki að stökkva hyfir 2,36 m og sigurinn var því hans. SOVÉTMAÐURINN Guennadi Avdeenko fagnaði sigri í há- stökkinu, sem fram fór aðfarar- nótt sunnudagsins, með því að stökkva 2,38 metra. Avdeenko fékk gullpeninginn afhentan á silfurfati er helstu keppinautum hans mistókst að stökkva yfir 2,36 metra. Þeirra á meðal var Patrik Sjöberg, heims- meistarinn sænski — sem átti heimsmet [2,42 m] þar til nýlega. Eftir að hafa stokkið yfír 2,38 m lét Sovétmaðurinn hækka rána í 2,40 metra en felldi þá hæð. Sovétmaðurinn gerði ekki fleiri tilraunir við 2,40 heldur lét hækka rána enn — reyndi að bæta heims- met það sem sem Kúbumaðurinn Javier Sotomayor setti á Spáni á dögunum — 2,43 metrar. Lét hækka rána í 2,44 m en mistókst tvfvegis að stökkva yfír þá hæð. Það skipti þó ekki meginmáli — gullverðlaunin voru hans, og fagn- aði sá sovéski gífurlega. Enda hafði hann komið á óvart. Bandaríkjamaðurinn Hollis Con- way varð í öðru sæti í hástökk- skeppninni, stökk 2,36 m og brons- verðlaununum deildu Patrik Sjö- berg og annar Sovétmaður, Rudolf Povamitsin. Þeir stukku einnig 2,36 metra en notuðu þurftu fleiri til- raunir til þess en Conway. Bandaríkjamaðurinn Andre Philllps sigrar í 400 m grindahlaupi. Hann bar si tanaði bama í briðia sinn á ellefu árum! SPJOTKAST KARLA Reuter Finninn Tapio Korjus kastar spjótinu í úrslitakeppninni aðfaramótt sunnu- dagsins. Hann sigraði með sínu síðasta kasti. Spennandi keppni - þar sem úrslitin réðust í síðustu umferð Finninn Tapio Korjus sigraði í spjótkasti karla í Seoul, og við- hélt þannig orðstír Finna, en þeir hafa löngum verið þekktir fyrir góða frammistöðu í þess- ari grein. Keppnin í spjótkastinu var gífur- lega spennandi. Kotjus náði lengsta kasti í fyrstu umferð, en missti síðan að næstu tveimur, vegna þess að hann fékk krampa í vinstri fótiegg. Tékkneski heims- methafínn, Jan Zelezny, var því í efsta sæti framan af, en í fjórðu umferð náði Kotjus aftur naumri forystu. Spennan var í hámarki og í sjöttu og síðustu umferð tryggði Finninn sér sigur. Sigurkastið mæltist 84.28 metrar, en Zelezny varð að láta sér lynda annað sætið með lengsta kast 84,12 metra. Finninn Seppo Raty náði bronsverð- laununum með því að kasta spjótinu 83,26 metra. Kotjus fagnaði mjög eftir að sig- urinn var í höfn — dansaði af gleði um leikvanginn. „Ég þurfti meðferð hjá lækni vegna krampans. Það var furðulegt hvað ég náði mér vel eft- ir tuttugu mínútna hvíld og teygj- ur,“ sagði Kotjus. „Fyrir síðasta kastið gerði ég mér grein fyrir því að núna var að duga eða drepast. Um leið og spjótið fór í Ioftið fann ég að kastið var gott.“ 100 M HLAUP KVENNA „Hugsaði bara um að vinna“ - sagði Florence Griffith Joyner eftir sigurinn í 100 m hlaupi kvenna FLORENCE Griffith Joyner fylgdi í fótspor Ben Johnson með öruggum og glæsilegum sigri í 100 metra hlaupi kvenna. Hún hafði mikla yfirburði og náði strax forystunni og kom í mark rúmum tveimur metrum á undan Evelyn Ashford. Joyner hljóp 100 metrana á 10,54 sekúndum eða 0,05 sek frá heimsmeti sínu. „Ég náði góðri bytjun og hugsaði bara um að 1 Reuter Al Joyner fagnar konu sinni eftir að hún kom í mark. vinna," sagði Joyner. Tími Joyner sá næst besti sem náðst hefur en gildir ekki vegna þess að meðvindur var of mikill eða um 3 metrar á sekúndu. Joyner kom brosandi í mark og var bytjuð að fagna þegar hún átti enn fímm metra eftir í mark. Sigur hennar var öruggur og sannaði að hún er óumdeilanlega fljótasta kona heims. Þegar hún kom í mark hljóp hún beint í fangið á eiginmanni sínu og þjálfara, A1 Joyner, gullverð- launahafa í þrístökki í Los Angeles. Lært af Ben Johnson Florence Griffíth Joyner hreyfst mjög af hlaupastíl Ben Johnson er hann sigraði í 100 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu í Róm í fyrra. Hún varð sér úti um myndband með hlaupinu og hefur síðan horft á það á hvetjum degi og reynt að líkja eftir stíl hans. „Ég fann að ég náði góðri byrjun og horfði beint niður. Ég vissi að ég var að vinna og ætlaði ekki að láta neinn ná mér,“ sagði Joyner. „Ég hlakkaði til að sigra í 100 metra hlaupinu. Því er lokið núna og nú hlakka ég til að verða fyrst í 200 metra hlaupinu," sagði Flor- ence Griffíth Joyner. Reuter Florence Griffith Joyner kemur f mark se sigurvegari í 100 m hlaupinu um helgina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.