Morgunblaðið - 27.09.1988, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 27.09.1988, Qupperneq 9
L MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPÍULEIKARNIR (&§£) í SEOUL 88 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988 B 13 Reuter gurorð af þeim frábæra Edwin Moses sem 3000 M KVENNA Samolenko sigraði á þriðja besta tímafrá upphafi SOVÉSKA stúlkan Tatiana Sa- molenko sigraði í 3.000 m hlaupi kvenna á sunnudaginn á 8:26,53 mín. — sem er þriðji besti tími í þessari grein frá upphafi. Samolenko komst fram úr rúm- ensku stúlkunni Paula Ivan í síðustu beygjunni og gaf ekkert eftir á síðustu metrunum. Önnur varð Ivan á 8:27,15 ogþriðja breska stúlkan Yvonne Murray á 8:29,02 mín. Rúmenska stúlkan Paricica Pu- ica, sem sigraði í 3000 m hlaupinu í Los Angeles fyrir fjórum árum var á meðal keppenda en náði ekki að ógna þeim fremstu. Þá var bandaríska stúlkan Mary Decker Slaney einnig með í hlaupinu, en var óheppin. Eftirminnilegt er óhappið sem hún varð fyrir í Los Angeles er hún féll og hætti keppni eftir árekstur við Zolu Budd. Nú meiddist hún í upphafi, hélt þó áfram og lenti í 10. sæti. Hefelt Mosesí tólf ár - sagði Andre Phillips sem sigraði í400 m grindahlaupi. Þriðja tap Edwins Moses á 11 árum EFTIR margra ára nœr óslitna sigurgöngu varð Edwin Moses loks að láta í minni pokan í 400 metra grindarhlaupi. Það var landi hans Andre Phillips sem sigraði en Moses varð að láta sér lynda þriðja sætið. Úrslit sem komu mjög á óvart enda hefur Moses verið konungur í þessari grein árum saman. Phillips náði forystunni strax í byrjun en Moses dró á hann og var kominn nálægt honum við áttundu hindrun. En þá tók Phillips við sér að nýju, hélt forystunni og náði að standast góðan endasprett Dia Ba frá Senegal sem skaust fram úr Moses og hafnaði í 2. sæti. Phillips kom í mark á nýju ólympíu- meti, 47,19 sek. „Þegar ég fór yfir áttundu hindr- unina og sá engan við hlið mér vissi ég að ég myndi sigra. Ég heyrði í Dia Ba á tíundu braut en vissi að hann gæti ekki náð mér,“ sagði Phillips. Hann sagði að Moses hefði haft mikil áhrif á sig. „Ég sá hann [Moses] í Montreal 1976 og hef elt hann síðan. Hann var átrúnaðargoð mitt og hefur verið mér hvatning og innblástur í þessi tólf ár,“ sagði Phillips. Moses, sem er 33 ára, sigraði á Ólympíuleikunum í Montreal 1976 og í Los Angeles 1984. Þetta var stærsti ósigur hans en hann hefur reyndar aðeins tapað þrisvar á 11 árum. Hann sigraði í 122 hlaupum í röð, tapaði fyrir Harald Schmid 26. ágúst 1976 og næst fyrir Danny Harris 4. júní 1987. „Þetta var gott hlaup og ég er ánægður með að vera hér. Eg hefði getað hlaupið betur en ég gerði það ekki. Það er það sem Ólympíuleik- amir snúast um, hver stendur sig best á stóra deginum," sagði Mos- es. „Ég vil nota tækifærið og þakka þessum strákum og þeim sem hafa elt mig í þessi tíu ár og haldið press- unni,“ sagði Moses. Ekki hættur „Ég hef tapað áður og komið aftur. Þetta var stórt tap en ég er ekki hættur. Þetta var eitt besta hlaup sögunnar, ef ekki það besta og ég hefði viljað vinna. En ég mun halda áfram," sagði Moses. Edwin Moses faðmar Andre Phillips að sér við verðlaunaafhendinguna. Hann virðist ekki hafa tekið það nærri sér að lenda í þriðja sæti og missa þar með gullverðlaununum sem hann hafði möguleika á að vinna í þriðja sinn á Ólympíu- leikum. Brosir út að eyrum og er greinilega ánægður með sigur landa síns. Til hamingju! Reuter Talaðu við ohhur um uppþvottavélar Talaðu við okkur um ofna XI SUNDABORG 1 S. 6885 88 -68 85 89 SUNDABORG 1 S. 688588 -688589 FRANKFURT 2xíviku Nú bjóða Flugleiðir helgarpakkaferðir til Frankfurt á hagstæðu verði, frá kr. 19.019.* Frankfurt hefur ótal margt að bjóða og nú í haust er hún vett- vangur fjölda glæsiiegra vörusýninga: Automechanika (bílaiðnaður) Frankfurter Gartenbaumesse (garðyrkja) BÁKO (fagsýning bakara) Frankfurter Buchmesse (bækur) IKA/HOGA (matargerðarlist, hótelrekstur) Interstoff (fataiðnaður) 13.09. -18.09. 24.09.-25.09. 02.10.-04.10. 05.10. -10.10. 16.10.-20.10. 25.10.-27.10. Fáið allar nánari upplýsingar á söluskrifstofum Flugleiða, Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni, og hjá ferðaskrifstof- unum. Upplýsingasími 25100. * 3 nætur í 2ja manna herbergi á Hotel Europa, miðað við gengi 1.9.1988. FLUGLEIÐIR -fyrir þíg- m HAPPDRÆTTI 5 Ford Bronco - 40 Fiat Uno Dregið 7. október Fleildarverómœti vinninga 21,5 milljón. /j/ttfr/mark

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.