Morgunblaðið - 27.09.1988, Side 10
BLAÐ ALLRA LAND-SMANNA
1988
KNATTSPYRNA
ÞRHUUDAGUR 27. SEPTEMBER
BLAD
-B
Broddi tapaði
ekkiieik
Broddi Kristjánsson stóð sig vel með liði sínu
TBR í Evrópukeppni félagsliða í badminton
sem lauk í Moskvu á sunnudaginn. Broddi tapaði
ekki leik í keppninni. Lið TBR var mjög nálægt
því að komast í undanúrslit, en tapaði naumlega
fyrir Englendingum í riðlakeppninni, 3:4.
TBR sigraði Austurríki 6:1 og lið frá íriandi
5:2. Englendingar komust í undanúrslit og léku
við lið Sovétmanna en töpuðu mjög naumlega.
Sovétmenn stóðu síðan uppi sem Evrópumeistarar
eftir að hafa sigrað Dani í úrslitaleik.
TBR-liðið skipuðu: Broddi Kristjánsson, Þor-
steinn Páll Hængsson, Guðmundur Adólfsson,
Snorri Ingvarsson, Huan Wei Cheng, Þórdís Ed-
wald, Eh'sabet Þórðardóttir, Kristín Magnúsdóttir
óg Guðrún Júlíusdóttir.
Gunnar Gíslason, landsliðsmaður f knattspymu sem leikur með Moss í Noregi, hefur í hyggju að leika með Heken
í sænsku 1. deildinni næsta keppnistímabil.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Asgeir með gegn
Dönum á morgun
En Arnórfékk ekki leyfi til að leika
ÁSGEIR Sigurvinsson verður
með landsliðinu í vináttuleikn-
um gegn Dönum en Arnór
Guðjohnson fékk hins vegar
ekki leyfi frá Anderlecht til að
mæta í leikinn.
Þjálfari Anderlecht hafði gefíð
vilyrði fyrir því að hann fengi
að fara til Kaupmannahafnar ef
sigur ynnist í Belgíu um helgina,
en þar sem Anderlecht gerði aðeins
jafntefli, 1:1, á útivelli gegn St.
Truiden, verður ekkert úr því að
Arnór mæti.
Ásgeir Sigurvinsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið á dögunum
að engar líkur væru á að hann
gæti leikið á Idrætsparken, en það
hefur breyst og hann verður með.
Guðmundur með
í gærkvöldi kom grænt ljós á að
Guðmundur Torfason mætir til
leiks, en lengi vel var tvísýnt hvort
hann fengi sig lausan. Af öðrum
atvinnumönnum er það að segja að
hvorki Sigurður Jónsson né Sigurð-
ur Grétarsson verða með. Bjami
Asgeir Sigurvinsson verður með
á Idrætsparken á morgun.
Sigurðsson, Gunnar Gfslason og
Friðrik Friðriksson mæta hins veg-
ar til leiks.
Hópurinn
Landsliðið fer utan árla morguns
í dag. Hópurinn fyrir leikinn annað
kvöld á Idrætsparken er þannig
skipaður, landsleikjafjöldi fylgir
með:
Markverðir:
Bjami Sigurðsson, Brann........24
Friðrik Friðriksson, B 1909....13
Aðrir leikmenn:
Atli Eðvaldsson, Val...........53
Ásgeir Sigurvinsson, Stuttgart....40
Guðmundur Torfason, Genk.......16
Guðni Bergsson, Val............21
Gunnar Gíslason, Moss..........36
Ólafur Þórðarson, ÍA...........25
Ómar Torfason, Fram............32
Pétur Amþórsson, Fram..........19
Ragnar Margeirsson, IBK........33
Sævar Jónsson, Val.............45
Viðar Þorkelsson, Fram.........20
Þorvaldur Örlygsson, KA...........7
Þess má geta að Pétur Ormslev,
Fram, gaf ekki kost á sér í landsliðs-
hópinn að þessu sinni.
Gunnará
leið til
Svíþjódar
„Ég er með mjög freistandi tilboð
sem erfitt er að hafna,11 segir Gunn-
arGíslason
GUNNAR Gíslason, sem leikur
með Moss í norsku 1. deildinni
í knattspyrnu, hefur í hyggju
að leika í Sviþjóð á næsta ári.
„Ég er með mjög freistandi til-
boð sem erfitt er að hafna,"
sagði Gunnar í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Gunnar hafði hugsað sér að
koma heim og leika með KA
á Akureyri næsta keppnistímabil.
Sænska liðið sem gert hefur Gunn-
ari tilboð heitir Heken og er frá
Gautaborg. Liðið leikur í sænsku
1. deildinni og er þar í þriðja sæti.
„Ég fór og skoðaði aðstæður hjá
félaginu og leist mjög vel á. Eins
og staðan er í dag bendir allt til
þess að ég fari til Gautaborgar eft-
ir áramótin," sagði Gunnar.
Hann sagðist ekki vita mikið um
styrkleika Heken-liðsins þar sem
hann hafi ekki séð það leika. „Ég
reikna með að koma heim í frí um
jólin og flytja sían til Svíþjóðar."
Um áframhaldandi veru hjá Moss
sagði Gunnar: „Það er mikil upp-
lausn í herbúðum Moss og margir
leikmenn sem ætla að yfírgefa liðið
eftir þetta keppnistímabil. Það er
þvi ekki spennandi að vera áfram
hér í Noregi."
Moss lék um helgina gegn
Sogndal á útivelli og vann, 4:0.
Þetta var fyrsta tap Sogdal á
heimavelli í tvö ár. Gunnar átti
mjög góðan leik i vöminni og er í
liði vikunnar hjá Dagbladet. Moss
er nú í öðru sæti með 34 stig ásamt
Lilleström, en Rosenborg hefur þeg-
ar tiyggt sér norska meistaratitilinn
með 44 stig.
HANDKNATTLEIKUR
Hafdis Guöjónsdóttlr.
FramogKR
meistarar
Framstúlkur urðu í gærkvöldi
Reykjavíkurmeistarar í hand-
bolta er þær sigruðu Val i úrslita-
leik 21:17. Valur var yfir i leik-
hléi 8:7.
Sigurinn var Framliðinu dýr-
keyptur, því Hafdís Guðjónsdóttir
meiddist illa í byijun leiksins og
leikur því ekki handknattleik á
næstunni. Hafdís lenti illa í hraða-
upphlaupi og hlaut slæmt beinbrot
rétt fyrir ofan olboga á hægri
handlegg.
KR-ingar meistarar í karta-
flokki
KR tryggði sér Reykjavíkur-
meistaratitilinn í karlafíokki með
29:16 sigri á Ármann á sunnu-
dag. Þeir unnu alla sina leiki (
mótinu og fengu því fullt hús
stiga. Fram varð í öðru sæti og
Valur háfnaði í því þriðja.