Morgunblaðið - 27.09.1988, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.09.1988, Qupperneq 11
10 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTJR ÞRIBIUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988 KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD Lofaði foreldrum mínum þessum tftli fyrir þremur ámm - segir Sigurjón Kristjánsson, sem kjörinn var bezti leikmaður íslandsmótsins 1988 MIKIL spenna var í loftinu þeg- ar tilkynnt var um val á leik- manni ársins á sunnudags- kvöld. Á sviðinu á Hótel Islandi stóðu fulltrúar allra liða í bún- ingum liðanna og einn þeirra var Sigurjón Kristjánsson. Þeg- ar tilkynnt var að leikmenn 1. deildarliðanna í knattspyrnu hefðu valið Sigurjón leikmann ársins, var enginn tími fyrir hann að fara aftur í sparifötin og þess vegna tók Sigurjón á móti verðlaununum í búningi Vals. Sigurjón varð marka- hæsti leikmaður 1. deildar í sumar og blómstraði í framlínu Vals síðari hluta sumars. Þetta er í fimmta skipti sem kjör leik- manns ársins fer fram. Áður höfðu þeir Bjarni Sigurðsson, Guðmundur Þorbjörnsson, Guðmundur Torfason og Pétur Ormslev hlotið þessa nafnbót. Sigurjón er 26 ára gamall hús- asmíðanemi. Auðvitað er þetta alveg frá- bært,“ sagði Siguijón eftir verðalunaafhendinguna, brosandi út að eyrum. „Eg vissi að þetta yrði spennandi. Guömundur Ýmis nöfti höfðu Jóhannsson verið nefnd, meðal skrífar annars mitt, þannig að ég útilokaði ekki að ég yrði valinn. Reyndar átti ég mesta von á að Atli Eðvaldsson yrði fyrir valinu. Guðni Bergsson, Sævar Jónsson, Viðar Þorkelsson og Guðmundur Hreiðarsson voru líka nefndir. Pétur Ormslev hefur leikið mjög vel í sumar en hann var valinn bezti leikmaðurinn síðasta sumar og það minnkaði líkur hans." Hefur þig dreymt um þetta lengi? „Eg lofaði foreldrum mínum fyr- ir þremur árum að einhvem tíma skyldi ég vinna þennan titil og verða kosinn leikmaður ársins. Þau brostu bara þá en nú hefur þessi draumur orðið að veruleika." Hveiju þakkar þú þetta? „Fyrst og fremst Valsliðinu, þjálfara og stjómendum. Valur er bezta félagslið sem ég hef verið í. Þar ríkir gamla KFUM-hugsunin, einn fyrir alla og allir fyrir einn. Ég hef fengið frábæran stuðning eldri leikmanna, sérstaklega Atla Eðvaldssonar og Magna Blöndals Péturssonar. Atli sagði við mig þeg- ar mótið var hálfnað, að hann fyndi það á sér að ég gæti orðið marka- kóngur, þrátt fyrir að ég hefði ekki verið búinn að skora nema örfá mörk á þeim tíma. En hann gaf mér trú á það ög mataði mig oft með góðum sendingum. Einnig hef- ur konan mín verið mér ómetanleg- ur styrkur í knattspymunni." En þú ert gamall Breiðabliks- maður. „Já, ég er alinn upp í Breiðholti en lék með Breiðabliki í æsku og hef alltaf sérstakar taugar til liðs- ins. Síðan fór ég til Portúgals í eitt ár og þá til ÍBK en ioks til Vals. Það hefur gengið á ýmsu í lífí mínu, stundum gengið vel og stundum illa. Fótboltinn hefur veitt mér mikinn styrk í lífínu." Heidurðu að þetta kjör auki möguleika þína á landsliðssæti? „Það er ekki gott að segja. Ég hef aðeins leikið 3 landsleiki að mig minnir og ekki gegn sterkum mót- heijum. Eg verð að segja eins og er að ég hef aldrei orðið eins svekkt- ur og í fyrra þegar ég var ekki einu sinni valinn í 27 manna ólympíu- hóp, þrátt fyrir að ég hefði síðustu ár alltaf verið í hópi mestu marka- skorara. Að því leyti fínnst mér kjör mitt nú vera nokkurs konar uppreisn æm. Mig langar í landslið- ið og hef metnað í spila þar en ég ætla ekki að komast þangað með einhveiju smjaðri." En atvinnumennska - er hún á dagskránni hjá þér? Ég hef mikinn áhuga á atvinnu- mennsku - mjög mikinn- en ég tek ekki hveiju sem er,“ sagði Siguijón Kristjánsson. Sá bezti og sá efnilega Siguijón Kristjánsson, til vinstri og Amljótur Davíðsson, til hægri, fagna hér kjöri sír mann ársins en Amljót efnilegasta leikmanninn. Þeir fengu glæsileg verðlaun sem Flug þeim gripina. HSiBkS íslandsmeistarar Fram 1988 Knattspymufólagið Fram varð íslandsmelstarl (knattspymu 1988. Á myndinnl eru: Aftasta röð frá vinstri: Eyjólfur Bergþórsson, formaður melstaraflokksráðs, Ástþór Óskarsson, llðsstjóri, Martelnn Guðgeirsson, Stelnn Guðjónsson, Vlðar Þorkelsson, Kristjðn jónsson, Þorsteinn J. Vilhjálmsson, Ólafur Magnússon, aðstoðarþjálfari og Vllhjálmur Hjörlelfsson, liðsstjóri. Mið röð f.v.: Jóhann Krist- insson, framkvæmdastjórl, Albert Sævar Guðmundsson, gjaldkeri, Helgl Björgvinsson, Arnljótur Davfðsson, Helgl BJarnason, Jón Svelnsson, Sverrir Einarsson, ft B. Jónsson, formaður knattspyrnudeildar. Fremsta röð f.v.: Þo Jónsson, Guðmundur Stelnsson, Blrklr Kristinsson, Pátur Ormsl arr Örlygsson, Pátur Amþórsson og Ómar Torfason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.