Morgunblaðið - 27.09.1988, Qupperneq 13
IÞROmR
KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓTIÐ -1. DEILD
Framarar fengu 49 stig
sem er nýtt stigamet
ÍSLANDSMEISTARAR Fram
1988 kórónuðu frábœrt
keppnistímabil með sigri á ÍA,
3:2. Framararfengu samtals
49 stig. Þeirtöpuðu aðeins
einum leik og gerðu eitt jafn-
tefli. Áhorfendum að leik
Fram og ÍA var boðið upp á
mikla markasúpu, að hætti
liðanna, í fyrri hálfleik en þá
voru öll mörkin gerð.
Amljótur Davíðsson skoraði
fljótlega en Alexander
Högnason var ekki lengi að jafna.
Ómar Torfason skoraði síðan
HBB glæsilegt skalla-
Guðmundur mark og Pétur
Jóhannsson Amþórsson kom
skrifar Fram í 3:1 með
þrumuskoti.
Skömmu fyrir hálfleik minnkaði
Mark Duffield muninn í 3:2 með
góðum skalla.
Bæði lið áttu gullin tækifæri í
síðari hálfleik en inn vildi boltinn
ekki. Undir lok leiksins sóttu
Skagamenn stíft með norðan-
vindinn í bakið en nýttu ekki fær-
in og bjargaði Birkir Kristinsson
oft mjög, vel og tryggði Fram þar
með sigur.
Eftir leikinn afhenti Ellert B.
Schram, formaður KSÍ, Frömur-
um íslendsmeistarabikarinn, sem
þeir höfðu reyndar tryggt sér fyr-
ir löngu.
Eysteinn Guðmundsson dæmdi
leikinn vel en var þetta kveðjuleik-
ur hans. Hann hefur lengi verið
í fremstu röð íslenzkra dómara
og er sjónarsviptir að honum.
JW
Birkir Kristinsson, Amljótur Daví-
ðsson, Pétur Ormslev, Fram. Harald-
ur Ingólfsson, ÍA.
Sævar sá um KA
Leikur KA og Vals á Akur-
eyri á laugadaginn mótaðist
mjög af veðrinu sem var norðang-
arri og kuldi. Valsmenn unnu
sanngjamt, 1:0. í
Reynir fyrri hálfleik voru
Eiriksson Valsmenn nær
skrifar einráðir á vellinum
en þrátt fyrir
nokkur ágæt færi tókst þeim ekki
að skora. í síðari hálfleik jafnað-
ist leikurinn og áttu bæði liðin
ágætis færi, en tókst ekki að
koma knettinum í netið nema einu
sinni og það voru Valsmenn. Ifyr-
irgjöf kom fyrir KA-markið, Atli
átti góðan skalla í stöng og knött-
urinn barst út til Sævars Jonsson-
ar sem skoraði örugglega.
„Ég er mjög ánægður með
keppnistímabilið. Við stefndum
að því að vera um miðja deild en
gerðum gott betur og teljum við
það góðan bónus. Við erum með
sterkan kjama og svo fengum við
Fram-IA
3 : 2(3:2)
Laugardalsvöllur, íslandsmótið 1.
deild, laugardaginn 24. september
Mörk Fram: Amljótur Davíðsson (5.),
Ómar Torfason (16.), Pétur Amþórs-
son (33.).
Mörk ÍA: Alexander Högnason (7.),
Mark Duffield (44.).
Gult spjald: Ekkert.
Dómari: Eysteinn Guðmundsson, 7.
Línuverðir: Gunnar Jóhannsson og
Óli P. Olsen.
Áhorfendun 382.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þor-
steinn Þorsteinsson (Kristinn R. Jóns-
son vm. á 46. mín.), Jón Sveinsson,
Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson,
Ómar Torfason, Pétur Amþórsson
(Helgi Björgvinsson vm. á 61. mín.),
Guðmundur Steinsson, Am(jótur Dav-
íðsson, Ormarr Örlygsson, Kristján
Jónsson.
Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Mark
Duffíeld (Öm Gunnarsson vm. á 46.
mín.), Heimir Guðmundsson, Guð-
bjöm Tryggvason, Sigurður B. Jóns-
son, Alexander Högnason, Karl Þórð-
arson (Elís Víglundsson vm. á 68.
mín.), Sigursteinn Gíslason, Ólafur
Þórðarson, Aðalsteinn Víglundsson,
Haraldur Ingólfsson.
góða leikmenn í vor,“ sagði Erl-
ingur Kristjánsson, fyrirliði KA
eftir leikinn.
Þór hafði betur í rokinu
Veðrið hafði mikil áhrif á leik
KR og Þórs sem fram fór á
KR-velli á laugardag. Það var
kalt, og mikið rok sem oft á tíðum
hafði meira að
segja um ferðir
knattarins heldur
en spyrnur leik-
manna.
Leikurinn var daufur framan
af og Iítið um hættuleg marktæki-
færi, enda áttu leikmenn fullt í
fangi með að hemja knöttinn og
halda honum inni á vellinum.
Öllu meiri barátta var þó í gest-
unum og þegar flautað var til
leikshlés, höfðu þeir sent boltann
Katrin
Friðriksen
skrifar
Morgunblaöiö/Einar Faiur
Framarar tóku á móti íslandsbikamum á laugardaginn. •
tvisvar í netið hjá þeim röndóttu.
Ffyrra markið skoraði Ólafur Þor-
bergsson af miklu harðfylgi og
nokkrum mínútum síðar var Hlyn-
ur Birgisson á ferðinni með annað
mark Þórs eftir slæm vamarmi-
stök hjá KR.
KR-ingar léku á móti sterkum
vindinum í síðari hálfleik. Þeir
náðu upp ágætis leikkafla í byijun
hálfleiksins og uppskáru þá eitt
mark. Sæbjöm Guðmundsson
skallaði knöttinn laglega í mark
Þórs eftir háa fyrirgjöf utan af
kanti. Eftir markið sótti í sama
farið aftur, og barátta leikmanna
við Kára um yfírráð knattarins
varð allsráðandi.
ÍBKsterfcara
Keflvíkingar sigmðu Víkinga ör-
ugglega í tilþrifalitlum leik á
heimavelli. Víkingar byijuðu bet-
ur og náðu forystunni á 8. mínútu
með ágætu marki
Lámsar Guð-
mundssonar.
Víkingar vom
ákaflega frískir
þessar mínútur og hefðu með smá
heppni átt að geta skorað fleiri
mörk.
í síðari hálfleik tóku heima-
menn leikinn í sínar hendur og
náðu að jafna metin á 61. mínútu
með marki Grétars Einarsson sem
Bjöm
Blöndal
skrifar
frá Keflavik
kom eftir mistök Guðmundar
Hreiðarssonar markvarðar
Víkings. Guðmundur hreinlega
missti boltann fyrir fætuma á
Grétari sem var fljótur að taka
slíku kostaboði. Tíu mínútum
síðar bætti Ragnar Margeirsson
öðm marki við eftir aukaspymu
og síðasta orðið átti Óli Þór Magn-
ússon sem skoraði þriðja markið
með hálfgerðri hjólhestaspymu.
Leikmenn úr hvomgu liðiriu
náðu að sýna sínar betri hliðar
að þessu sinni, enda aðstæður
slæmar til að leika knattspymu,
kuldi og allhvass vindur. Árangur
IBK í sumar hefur valdið talsverð-
um vonbrigðum meðal stuðnings-
manna.
Völsungur og Leiftur kveðja
með jafntefli
Frá
MagnúsiMá
á Húsavik
Þessu lokauppgjöri norðanlið-
anna, sem kveðja 1. deildina
að sinni, lauk með jafntefli —
hvort lið skoraði eitt mark og
verða úrslitin að
teljast sanngjöm.
Hann var all-
hvass að norðan
og niðurkoma um-
talsverð. Knattspyman dró dám
af veðrinu, því hún var tilþrifalít-
il, leikmennn líklega sáttir við
orðinn hlut. Annars lofaði upphaf
leiksins góðu því mark heima-
manna kom eftir hálfa mínútu.
Guðmundur Þ. Guðmundsson var
með knöttinn á miðjum vallar-
helmingi Leifturs og hugðist
senda knöttinn að marki andstæð-
inga sinna hvað hann og gerði
. og fór knötturinn í fögmm boga
yfír vamarmenn Leifturs svo og
markvörð og í netið — 1:0.
Síðan gerðist fremur fátt en
þegar nokkuð var liðið á hálfleik-
inn jafna þó Leiftursmenn. Eftir
allmikinn darrraðardans í vítateig
Völsunga tekst Steinari Ingi-
mundarsyni að pota knettinum
yfír marklínu Vöslunga. Síðari
hálfleikur var atburðarsnauður
með afbrigðum, og í samræmi við
gengi liðanna tveggja.
KA-Valur
0 : 1 (0:0)
Akureyrarvöllur, íslandsmótið - 1.
deild, laugardaginn 24. september
1988.
Mark Vals: Sævar Jonsson á 6$. mín.
Gul spjöld: Steingrímur Birgisson KA
(55.), Erlingur Kristjánsson KA (83.)
og Ililmar Sighvatsson Val (66.).
Dómari: Bragi Bergmann 7
Línuverðir: Ari Þórðarson og Þorvard-
ur Bjömsson.
Ahorfendur: 180.
Lið KA: Ægir Dagsson, Friðfmnur
Hermannsson, (Amar Bjamason vm. á
75. mín.), Erlingur Kristjánsson,
Steingrímur Birgisson, Halldór Krist-
insson, Þorvaldur Örlygsson, Bjami
Jónsson, Gauti Laxdal, Stefán Ólafs-
son, (Valgeir Barðason vm. á 75.
mín.), Antony Karl Gregory og Öm
Viðar Amarson.
Lið Vals: Guðmundur Baldursson,
Þorgrímur Þráinsson, Sigurjón Kristj-
ánsson, Magni Blöndal Pétursson, Atli
Eðvaldsson, Sævar Jonsson, Guðni
Bergsson (Einar Páll Tómasson vm.
60. mín.), Hilmar Sighvatsson, Valur
Valsson, Ingvar Guðmundsson og Guð-
mundur Baldursson.
KR-Þór
1 : 2 (0:2)
KR-vöIlur, fslandsmótið — l.deild,
laugardaginn 24. september 1988.
Hark KR: Sæbjöm Guðmundsson (55.
mín.).
Mörk Þórs; Ólafur Þorbergsson (37.
mín.) og Hlynur Birgisson (41. mln.).
Dómari: Baidur Scheving 7.
Línuverðir: Sæmundur Vígiundsson
og Þorgcir Pálsson.
Lið KR: Stefán Amarsson, Rúnar
Kristinsson, Hilmar Bjömsson, Gylfi
Dalmann Aðalsteinsson, Willum Þór
Þórsson, Jósteinn Einarsson, Ágúst
Már Jónsson, Gunnar Oddsson, Bjöm
Rafnsson, Sæbjöm Guðmundsson,
Ólafúr Viggósson (Þorlákur Ámason
vm. á 70. mín.).
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Birg-
ir Skúlason, Siguróli Kristjánsson, Nói
Bjömsson, Kristján Kristjánsson (Guð-
mundur Sigurðsson vm. á 65. mln.),
Birgir Þór Karlsson, Halldór Áskels-
son, Júlíus Tryggvason, Valdimar Páls-
son (Jónas Róliertsson vm. á 87. mín.),
Ólafur Þorbergsson, Hlynur Birgisson.
ÍBK-Víkingur
3 :1 (0:1)
Keflavíkurvöllur, íslandsmótið - 1.
deild, sunnudaginn 24. september
1988.
Mörk IBK: Grétar Einarsson (61.
mímL Ragnar Margeirsson (71. mín.)
og Oli Þór Magnússon á (76. mín.).
Mark Víkings: Lárus Guðmundsson
(8. mín.).
Gul spjöld: Hlynur Stefánsson, Víkingi
(44. mín.), Sveinbjöm Jóhannesson,
Víkingi (61. mín.), Sigurður Björgvins-
son, IBK (67. mín.) og Óli Þór Magnús-
son, IBK (74. mín.).
Áhorfendur 100.
Dómari: Friðgeir Hallgrímsson 7.
Línuverðir: Guðmundur Sigurðsson
og Haukur Torfason.
Lið IBK: Þorsteinn Bjamason, Daníel
Einarsson, Einar Ásbjöm Ólafsson,
Ámi Vilhjálmsson, Sigurður Björgvins-
son, Jón Sveinsson, Grétar Einarsson,
Ragnar Margeirsson, Óli Þór Magnús-
son, Gestur Gylfason, Kjartan Einars-
son (Jóhann Júlíusson vm. 46. mín.).
Lið Vflúngs: Guðmundur Hreiðarsson,
Sveinbjöm Jóhannsson, Þórður Marels-
son, Hallsteinn Amarsson, Stefán Hall-
dórsson, Atli Helgason, Bjöm Bjartm-
arz, Trausti ómarsson, AHi Einarsson,
Hlynur Stefánsson, Lárus Guðmunds-
son.
Völsungur-Leiftur
1 : 1 (1:1)
Húsavíkurvöllur, íslandsmótið — 1.
dcild, laugardaginn 24. september
1988.
Mark Völsungs: Guðmundur Þ. Guð-
mundsson (30. sek.).
Mark Leifturs: Steinar Ingimundar-
son (29. mín.).
Gult spjald: Ámi Stefánsson, Leiftri.
Dómari: Guðmundur Haraldsson 7.
Línuverðir*. Guðmundur Jónsson og
Gunnar Hreiðars3on.
Áhorfendur: 100.
Lið Völsungs: Haraldur Haraldsson,
Helgi Helgason, Unnar Jónsson, Sveinn
Freysson, Eiríkur Björgvinsson, Skúli
Hallgrímsson, Guðmundur Þ. Guð-
mundsson, Theódór Jóhannsson, Jónas
Hallgrímsson, Sigurður Illugason,
Skarphéðinn ívarsson.
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson, Sig-
urbjöm Jakobsson, Ámi Stefánsson
(Kormákur Bragason vm. á 87. mín.),
Gústaf Ómareson, Friðrik Einarsson,
Hafsteinn Jakobson, Lúðvík Bergvins-
son, Hörður Benónýsson, Steinar Ingi-
mundareon, óskar Ingimundareon,
Friðgeir Sigurðsson.