Morgunblaðið - 27.09.1988, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.09.1988, Blaðsíða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPÍULEIKARNIR (&§£) f SEOUL ’88 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988 SUND / 50 METRA SKRIÐSUND KVENNA Kristín Otto mesta sunddrottning allra tíma Henni tókst það ótrúlega að vinna sex gullverðlaun á Ólympíuleikum SUNDDROTTNINGIN Kristín Otto frá Austur-Þýskalandi gerði það sem engri konu hefur tekist áður á Ólympíu- leikum, að vinna sex gullverð- laun. Á sunnudaginn sigraði hún í 50 metra skriðsundi og vann sín sjöttu gullverðlaun. Áður hafði hún sigrað í 100 m skriðsundi, baksundi, flug- sundi og í 4 x 100 m skris- ðundi og fjórsundi. Glæsileg- ur árangur það. Otto stakk sér ekki í sundlaug- ina á leikunum án þess að sigra, því hún keppti aðeins í sex greinum. Þessi 22 ára gamla menntaskólastúlka frá Leipzig kom í mark á 25,49 sekúndum og kom 15/100 hlutum úr sek á undan heimsmethafanum, Wenyi Yang frá Kína, sem varð önnur. Jafnar í þriðja sæti urðu Katrin Meissner, A-Þýskalandi og Jill Sterkel frá Bandaríkjunum á 25,71 sek. Sunddrottning Otto er fremsta sundkona sem uppi hefur verið. Hún kórónaði árangur sinn í Seoul, en áður hafði hún unnið fem gullverðlaun á heimsmeitramótinu í Madrid 1986 og fímm gullverðlaun á Evrópumeistaramótinu í Strass- borg í fyrra. Hún skipar sér á bekk með Bandaríkjamanninum, Mark Spitz, sem vann sjö gull- verðlaun á Ólympíuleikunum í Munchen 1972. „Ég bjóst ekki við að vinna svona mörg verðlaun hér í Seoul. Mig þyrsti aðeins í að sigra í 100 Reuter Kristfn Otto frá Austur-Þýska- landi fagnar hér sjöundu gullverð- launum sínum á Ólympíuleikunum í Seoul. metra skriðsundinu. Það gekk svo vel þannig að ég fór fljótlega að hugsa um að ég gæti unnið fleiri greinar," sagði Krístin Otto. Fjölhæf Otto vann fyrstu gullverðlaun sín á stórmóti aðeins 16 ára göm- ul. Það var á heimsmeitaramótinu 1982 er hún sigraði í 100 metra baksundi. Árið eftir var hún kom- in í skriðsundið og vann silfur- verðlaun í 100 metrunum á Evr- ópumeistramótinu og einnig tvenn gullverðlaun. Á Ólympíuleikunum í Los Angels 1984 varð hún að sitja heima vegna þess að austan- tjaldþjóðimar hunsuðu leikana. Byrjaði að æfa 9 ára Hún hefur þrívegis verið kjörin besta sundkona heims. Það var 1984 er hún setti heimet í 200 metra skriðsundi og vann mörg verðlaun á friðarleikunum í Moskvu og svo 1986 og 1987. Otto byijað að æfa sund þegar hún var níu ára. Hún fór þá með vinkonu sinni á æfínu í sundlaug í Lapzig og eftir það var ekki aftur snúið. Þjálfarinn Stefan Heizer sá strax að miklir hæfileik- ar bjuggu í þessari stúlku og hef- ur hann þjálfað hana í 11 ár og árangurinn ekki af lakara taginu. 4 x 100 METRA FJQRSUND KARLA 1.500 METRA SKRIÐSUND KARLA | Vladimir Salnikov sannaðl það i Seoul á sunnudaglnn | að það er hægt að slgra f | sundi þðtt aldurlnn sé far- Inn að færast yfir. Bandaríkja- menn settu heimsmet David Berkoff og Chris Jacobs. Þeir syntu á 3:36,93 mínútum og bættu gamla heimsetið sem Banda- ríjamenn settu í Tókío 1985 um 1,5 sekúndur. Kanadamenn urðu í öðm sæti á 3:39.28 mín. og Sovétmenn í þrifja sæti á 3:39.96 mínútum. Berkoff, sem tók baksunds- sprettinn, var aðeins 0,05 sek frá heimsetinu í greininni. Jacobs fékk góða afmælisgjöf því hann hélt upp á 24 ára afmæli sitt á sunnudaginn. BANDARIKJAMENN settu 11. heimsmetið í sundi á Ólympíu- leikunum í Seoul í síðustu sundgreininni, 4 x 100 metra fjórundi karla, á sunnudaginn. Matt Biondi, sem tókflug- sundssprettinn, vann sín sjö- undu verðlaun á leikunum - fimm gullverðlaun, ein silfur og ein bronsverðlaun. Isigursveit Bandaríkjanna voru þeir Biondi, Richard Schroeder, Sigri Salnikovs fagnað „Afi“ sundsins kom sá og sigrði í 1.500 metra skriðsundi SUNDÁHUGAMENN hylltu Vladimir Salnikov í Seoul á sunnudag þegar hann sannaði að það er hægt að sigra í sundi þótt aldurinn sé farinn að fær- ast yfir. Hinn 28 ára gamli Sov- étmaður sigraði í 1500 metra skriðsundi karia á 15:00.40 mínútum og áhorfendur úr öli- um heimshornum fögnuðu innilegar en nokkrum öðrum sundsigri á Ólympíuleikunum. Þeir vissu hversu hörð vinna og sjálfsafneitun lá að baki glæsilegum árangri „afa sundsins". Salnikov sigraði í 1500 metrum á öllum alþjóðlegum sundmót- um sem hann tók þátt í á árunum 1977 til 1986. Hann vann gullverð- launin á Olympíuleikunum 1980 og hefði hreppt þau aftur í Los Ange- les 1984 ef Sovétríkin hefðu tekið þátt í leikunum þar. Hann bar þess í stað auðveldan sigur af sund- köppum sem tóku þátt í Friðarleik- unum í Moskvu sama ár. „Eg hefði getað hætt eftir þá,“ sagði Salnikov í samtali við fréttamenn skömmu eftir að hin 22ja ára Kristin Ott, sem hefur unnið sex gullverðlaun í Seoul, hafði nefnt að hún kynni að leggja sundbolinn á hilluna. „En mér fínnst gaman að synda og vildi ekki hætta strax eftir 20 ára þjálf- un. Sundið er síór hluti af lífí mínu, sigramir eiu spennandi og veita mér mikla ánægju," sagði Salnikov. Salnikov vann engin verðlaun á Heimsmeistaramótinu 1986 og komst ekki einu sinni í úrslit á Evrópumeistaramótinu 1987. Þeir sem þóttust hafa vit á málum kváðu hann hafa sungið sitt síðasta og engir nema Marina, eiginkona hans, trúðu að hann ætti eftir á ná sér aftur á strik. „Það hefur stundum hvarflað að mér á undanfömum tveimur ámm að ég ætti ekki ‘eftir að verða í hópi hinna bestu á ný,“ sagði hann. „En konan mín hefur haft trú á mér allan þennan tíma. Það hefur verið mér mikils virði. Hún á stærsta þáttinn í þessum sigri. Ég var lengi á toppnum, ég vann sigra og beið ósigra og upplifði flest sem hægt er í þessari íþróttagrein. En mér fannst eitthvað vanta, mér fannst ég ekki hafa gert allt sem ég gat. Nú get ég hætt alsæll," sagði Salnikov. Hann hættir sem heimsmetshafi í 800 og 1500 metrum í skrið- sundi. Hann er hinn eini í heimi sem hefur synt 1500 metrana á minna en 15 mínútum. Aldursmunurinn leyndi sér ekki þegar hann sat hjá hinum verð- launahöfunum, Stefan Pfeiffer og Uwe Dassler, sem eru 22ja og 21 árs. Pfeiffer talaði fyrir munn allra aðdáenda Salnikovs þegar hann sagðist vera „ótrúlega ánægður" með árangur hans í keppninni. Salnikov komst við en væntanlega verður þungu fargi af honum létt þegar hann áttar sig á að erfíði undanfarinna ára er nú lokið. BAKSUND 14ára ungversk stúlka kom áóvart Fjórtán ára ungversk stúlka, Krisztina Egerzegi, sigraði mjög óvænt í 200 metra bak- sundi kvenna á sunnudaginn. Hún synti á 2:09.29 mínútum og var rétt við heimsetið sem austur-þýska stúlkan, Comeiia Sirch etti í fyrra. Egerzegi náði ekki forystunni í sundinu fyrr en eftir 150 metra. Heimsmethafinn Sirch hafði forystu frá upphafí, en varð að láta sér lynda þriðja sætið þar sem landa hennar Kathrin Zimmermann náði henni á síðustu metmnum og tók silfrið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.