Morgunblaðið - 27.09.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPIULEIKARNIR í SEOUL ’88 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988
8 M
B 15
SUND
Sá fljótasti
Matt Biondi frá Bandaríkjunum var sigursæll á Ólympíuleikunum í Seoul. Hann vann til sjö verðlauna í sundi, fímm
gull, ein silfur og ein bronsverðlaun. Auk þess setti hann þrjú heimsmet.
t
Biondi fljótasti
sundmaður heims
- vann sjö verðlaun og setti þrjú heimsmet
MATT Biondi, sem er frá Kali-
forníu > Bandaríkjunum, vann
flest verðlaun allra í sund-
keppninni á Ólympíuleikunum
í Seoul, eða alls sjö þar af fimm
gullverðlaun. Það er aðeins
einn sundmaður sem unnið
hefur fleiri gullverðlaun á
ólympíuleikum. Það er landi
hans, Mark Spitz, sem vann sjö
gullverðlaun í Miinchen 1972.
Biondi, sem er 22 ára, segist
ætla að taka sér frí frá sundinu
um tíma og skoða sig um. „Ég hef
ferðast mjög víða um heimin, en
allt sem ég hef séð eru sundlaug-
ar,“ sagði þessi hávaxni afreksmað-
ur brosandi.
Verðlaun
Þegar Biondi kom inní búnings-
klefann ásamt félögum sínum að
afloknu síðasta sundinu á sunnu-
daginn missti hann verðlaunapen-
inginn í gólfið. Þá sagði hann í
gríni: „Þetta er allt í lagi strákar,
hafið engar áhyggjur ég á sex verð-
launapeninga í viðbót!"
Hann var spurður að því hvort
þessi árangur í Seoul kæmi ekki til
með að hafa áhrif á hann: „Nei,
alla vega ekki enn. En ef það gerir
það mun ég örugglega ekki geta
sofið dúr í nokkra daga“.
Fljótastur
Biondi setti glæsilegt heimsmet
í 50 metra skriðsundi sem þýðir að
hann er fljótasti sundmaður verald-
ar. Hann var í sigursveitum Banda-
ríkjanna sem settu heimsmet í fjór-
sundi og skriðsundi. Það sem hon-
um þótti sárast var að tapa fyrir
Nesty frá Surinam í 100 metra flug-
sundinu, en þá munaði aðeins hárs-
breidd á þeim, eða 0,01 sekúndu.
Æfði með höfrungum
Hann segist hafa lært töluvert
af höfrungum er hann svamlaði
með þeim í sædýrasafni í Kalifomíu
áður en hann fór til Seoul. „Það
sem ég lærði helst af höfrungunum
var hvemig vatnið umleikur dýrín
þegar þau synda. Það hjálpaði mér
að ná betri tökum á sundtækninni,"
sagði Biondi.
200 METRA FJORSUND KARLA
Damyi setti
annað heimsmet
Sigraði með miklum yfirburðum í 200 metra fjórsundi
TAMAS Darnyi frá Ungverjal-
andi vann önnur gullverðlaun
sín og setti jafnframt sitt ann-
að heimsmet á leikunum í
Seoul á sunnudaginn. Hann
sigraði í 200 metra fjórsundi
og bætti eigið heimsmet um
0,39 sekúndur.
Damyi hefur verið kallaður
kóngungur fjórsundsins og
ber hann það nafn með réttu. Því
í síðustu viku vann hann gullverð-
launin í 400 metra fjórsundi og
setti heimsmet þar einnig.
Tími Damyi var 2:00,17 mínút-
ur og hafði hann mikla yfírburði.
Annar var Patrick Kuehl frá Aust-
ur-Þýskalandi sem synti á 2:01.61
mín. eða tæplega einni og hálfri Tamas Damyi frá Ungverjalandi vann tvenn gullverðlaun og setti einnig
sekúndu á eftir Damyi. tvö heimsmet.
-------------------y---------------------------------------
Æ
jwfíími
KOSTUR FYRIR ÞIG
FERÐATÖSKUR
:ERÐATASKA
50 cm
65 cm
kr.
kr. 2685.-
cin kr- 3275 ‘
cm kr- 3425--
KAUPFELÖGIN'UM LAND ALLT!