Alþýðublaðið - 20.10.1920, Side 1
1920
Kolaverkfallið,
Margir hér höfðu vonað, alt
'Tram á síðustu stuud áður en verk-
fallið skall á, að af því mundi
ekki verða. En þeir, sem fylgst
höfðu rneð fregnum frá Englandi
4 blöðum og tfmaritum, höfðu
enga áslæðu til að ætla að öðru-
vísi mundi fara en raun varð á.
Þótt vcrkföll og aðrar stöðvanir
f vegi framleiðslunnar snerti oss,
. jafnt sem allar aðrar þjóðir heims
ins, að meira eða minna leyti,
hvar sem þær verða, er vart hugs-
anlegt að nokkur framleiðslustöðv-
«n í nokkru landi kæmi tilfinnan-
legar við oss íslendinga, en kola-
verkfall í Breílandi, sem er jatn
alvarlegt því, sem nú er um að
ræða.
Það er því mikilsvert að gera
sér ljósa grein fyrir þvf, hverjar
orsaktr liggja til þess, að allir
kolanámaverkamenn í Bretlandi
^eggja niður vinnu sama daginn.
Hin megnasta óánægja hefir
ríkt um langt skeið meðal nárna-
verkamanna yfir því, hvernig
^ámurekstrinum væri hagað. Var
skipuð nefnd til að rannsaka og
gera tiliögur um málið, og átti
Sankey dómari forsæti í henni.
Árangurinn varð sá að nefndin
^lofnaði, og lagði meirihluti henn-
ar það til, að námurnar yrðu
reknar sem ríkisfyrirtæki. Sömu-
^eiðis kvað nefndin laun verka-
^anna hafa verið of lág fyrir stríð
^2 gerði uppástungur um hækkun
a þeim, sem enska stjórnin félst
a og sömuleiðis á það, að launin
skyldu hækka í samræmi við dýr-
^ðina, enda þótt álit nefndarinnar
1,01 þjóðnýting námanna væri að
engu haft af stjórninni.
^að virtist því ekki vera meira
en sanngjörn krafa, að stjórnin
stæði við loforð sín um launin,
^etn sé að þau væru miðuð við
'aUnauppástungur Sankey-nefndar-
!"nar fyrir stríð og hækkuðu í
ut-falli við aukna dýrtfð.
Miðvikuudaginn 20. október.
En stjóra Lloyd George stóð
ekki við loforð sín. Dýrtíðin hafði,
er námamenn heimtuðu kjör sín
bætt nú í sumar, vaxið um 165%
frá því fyrir strfð, en laun námu-
mannanna einungis um 15 S°/o án
þess þó að launauþþbót Sankey-
nefndarinnar væri tekin til greina
svo sem stfórnin hafði lofað.
Svo sem kunnugt er voru kröf-
ur verkamanna um 2 shillings
hækkun á dag og að söluverð
kola innanlands yrði hækkað um
14 sh. og 2 pence hvert tonn.
En söknm þess hve gffurlegur
gróði námaeiganda er af námun-
um kröfðust þeir að hækkun kaups-
ins yrði tekin af gróða þeirra en
kæmi eigi fram í nýrri hækkun á
kolunum síðar. En þótt nú 2 shil-
linga kauphækkunin hefði verið
veitt, hafði kaup námumanna ekki
náð því að samsvara dýrtíðinni
og sjá því allir hve réttur þeirra
var augljós. En með því að stjórn
Lloyd-George styðst nær eingöngu
við afturhalds og auðmannaflokk-
ana, tók hún tullkomlega málstað
námueigendanna og neitaði að
sinna fyllilega rjettmætura kröfum
námamanna. Lengi voru samning-
ar reyndir og létu námamenn
einkis ófreistaðs tíl að komast
hjá verkfallinu. Voru þeir meðal
annars reiðubúnir til að fella nið-
ur kröfu sína um lækkun á kola-
verðinu ef þeir hefðu aðeins feng-
ið kauphækkunina. En svör stjórn-
arinnar voru undanfærslur og vffi-
lengjur einar, svo sem það að
leggja skyldi málið í gerð þar
sem stjórnin réði meirihlnta at
kvæða. Var nú verkfallinu frestað
fyrst um viku og síðan um hálf-
an mánuð en stjórnin gaf ætíð
sömu svörin og reyndi að teygja
tfmann en bjó sig um leið af al-
afli undir að kúga verkfallsmenn.
Að síðustu hefir námamönnum
því verið að eins ein leið opin
sem sé sú að leggja niður vinnu.
X (Frh.).
241. töíubL
Kolaverkfallið.
Khöfn, 18. okt.
Frá London er sfmað að ein
miljón námamanna sé frá vinnu,
og áður eu vika sé liðin sé önnur
miljón verkamanna orðin atvinnu-
laus vegna kolaskortsins.
Mælt er að stjarna Lloyd
George hafi aldrei staðið hærra
en nú; hann gefur parlamentinu
skýrslu þegar það kemur saman
(þriðjudag).
Námumenn í Wales hóta að
hætta að dæla vatninu úr námunutn,
svo þær skemmist, ef engin nið-
urstaða verði í kolaverkfallsmálinu
fyrir mánaðamót.
fri 6rikkjnm.
Khöfn 18. okt.
Frá Áþenu er símað að ráðu-
neytið kalli þingið saman.
Mikið herlið hefir verið dregið
saman í Aþenuborg.
Mælt er að konungurinn sé
á batavegi (af ígerð þeirri er hann
fékk af apabitinu).
Frá Bukarest er símað að Ge-
org ríkiserfingi Grikklands (bróðir
Alexanders konungs hins apabitna)
sé nú giftur Elisabetu konungs-
dóttur úr Rúmeníu.
Sinovjej visað ðr lanði.
Khöfn 18. okt.
Frá Berlín er símað að Sinovjef
og fleiri rússneskum kommúnist-
um (bolsivikum) sem sátu á þingi
óháðra jafnaðarmanna í Halie
hafi af þýsku stjórninni verið vís-
að úr landi.