Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐŒ) ÍÞRÓTTIR ÞRHXTUDAGUR 13. DESEMBER 1988 ATLETICO Bilbao stöðvaði sex leikja sigurgöngu Barcelona með því að vinna, 3:2, í spönsku 1. deildarkeppninni. Þetta var fyrsti sigur Bilbao í tíu leikjum. Ricardo Mendigurren skoraði tvö mörk fyrir Bilbao - signr- mark hans, 3:2, var afar glæsilegt. Andoni Zubizaretta, markvörður Barcelona, átti ekki FráAtla möguleika á að verja Hilmarssyni þrumuskot hans - á Spáni knötturinn hafnaði efst upp í mark- horninu. Pedro Uralde skoraði fyrsta mark Bilbao í leiknum, en þeir Jose María Bakero og Julío Salinas skoruðu mörk Barcelona. Real Madrid lagði Cadiz að velli, 2:0. Real lék án markvarðarins Francisco Buyo, sem var í leik- banni, og þriggja varnarmanna, sem eru meiddir. Michal Gonzalez og Hugo Sanchez skoruðu mörkin. Sanchez skoraði sitt níunda mark, en hann er ekki markahæstur eins og undanfarin ár. Brasilíumaðurinn Baltazar skor- aði tvö mörk fyrir Atletico Madrid, sem vann Real Zaragoza 3:1. Hann hefur skorað sautján mörk og er lang markahæstur á Spáni. Sovéski markvörðurinn Rinat Dassajev var ekki hamingjusamur þegar Sevilla fékk Real Valladolid í heimsókn. Hann mátti hirða knött- inn ijórum sinnum úr netinu hjá sér, en Valladolid vann, 4:2. Urslit/B6 Staðan/B6 Utóm FOLK ■ JÚRGEN Kohler, miðvörður hjá Köln, hefur tilkynnt að hann fari frá Köln eftir þetta keppn- istímabil. Líklegr er að hann fari til Bayern Milnchen, en Stuttgart hefur einnig áhuga á að fá þennan sterka leikmann til sín. Það hefur vakið athygli að Kohler hafnaði boði frá Köln upp á 17 millj. ísl. kr. í árs- laun. Talið er að Bayern bjóði bet- FráJóni Halldóri Garðarsynii V-Þýskalandi ■ CHRISTOPH Daum, þjálfari hjá Köln, skrifaði á laugardaginn undir nýjan samning við félagið. Samningurinn er til júní 1992. ■ OLIVER Bierhoffskoraði tvö mörk fyrir Hamburger þegar fé- lagið vann, 2:0, landslið Singapore í móti sern fer fram í Kuala Lump- ur. Hamburger vann FC Tirol, 2:1. ■ BODO Illgner, landsliðs- markvörður V-Þýskalands, hefur skrifað undir nýjan samning við Köln. Síimingurinn er til 1992. ■ KÖLN mun að öllum líkindum selja Thomas Allofs eftir þetta keppnistímabil og þá til Frakk- lands. Marseille hefur áhuga á að fá Thomas, en hjá félaginu leikur bróðir hans Klaus, sem er fyrirliði landsliðs V-Þýskalands. Rætt hef- ur verið um að kaupverð verði 42.3 millj. ísl. kr. ■ DORTMUND hefur hug á að selja vandræðamanninn Frank Mill frá félaginu. Mill hefur að undanförnu verið í knattspyrnu- þjálfaraskóla og lítið getað æft. Þá hefur hann verið með ýmsar yfirlýs- ingar, sem forráðamenn Dortmund hafa ekki verið ánægðir með. Iðkun íþrótta er af hinu góða. Kennsla í undirstöðuatriðum hverrar greinar er lykillinn að velgengni þegar í keppni er komið og gjunnurinn verður að vera traustur til að hægt sé að ið, að skapa áhuga fyrir íþrótt- inni á jákvæðan hátt með leik og kennslu, því nægur tími er síðar fyrir mótlætið. Steinþór Guðbjartsson Baltazar de Morals, markaskorarinn mikli hjá Atletico Madrid, hefur skor- að sautján mörk á Spáni. TITLATOG Stúlka tekur drengi í karphúsið Árangur í yngri flokkum mælist í titlum Áhersla lögð á sigur en ekki kennslu og leik Ísíðustu viku kærði hand- knattleiksdeild Fram KA fyrir að hafa látið 10 ára stúlku leika með 5. flokki karla í íslandsmót- inu, sem fram fór fyrstu helgi í desember. Að sögn var stúlkan strákunum fremri á öllum sviðum, þó þeir væru einu eða tveimur árum eldri, KA sigraði í 2. deild 5. flokks og vann sér sæti í 1. deild. Fram- arar höfnuðu hins vegar í þriðja sæti, kenna stúlkunni um ófarirnar og vilja láta dæma hana úr leik svo þeir geti talist sigurvegarar. Almennt eru böm ekki dregin í dilka. Að vísu er dúkkum oft frekar haldið að stúlkum og bílum að strákum að gömluni vana en börnum er ekki stíað í sundur vegna kynferðis. Þau leika sér áhyggjulaust saman og hefur það hingað til verið talið af hinu góða. í ávarpi formanns HSÍ í handknatt- Ieiksbók sambands- ins 1988 - 1989 seg- ir m.a. að hand- knattleiksíþróttin á íslandi standi á miklum tímamótum, „átak hefur verið gert tii að auka áhuga stúlkna á handknattleik." Ef stúlkur eiga það á hættu að verða dæmdar úr leik fyrir það eitt að leika sér að eldri strákum í keppni er viðbúið að þær snúi sér að öðr- um hugðarefnum. Ungir strákar eiga erfitt með að sætta sig við að enn yngri stúlkur taki þá í karphúsið. Svo virðist, þegar íþróttir eru annars vegar, að árangur mælist ekki lengur í getu heldur fjölda titla og verðlaunapeninga. Því er ótækt að stúlka að norðan geti ekki aðeins leyft sér að vera betri en mótheijamir af hinu kyninu að sunnan heldur komi einnig í veg fyrir að þeir verði sigurvegarar. góða en það em takmörk fyrir öilu, einkum þegar börn eiga í hlut. Sigur er oft það eina sem skiptir máli í keppni þeirra bestu, en óþarfi er að koma því inn hjá barnaskólakrökkum, Hjá þeim á íþróttin fyrst og fremst að vera skemmtilegur leikur og spurningin er hvort yfir höfuð sé rétt að hafa íslandsmót fyrir krakka undir fermingaraldri. Hvort ekki sé vænlegra til ár- angurs, er til lengri tíma er lit- byggja ofan á. En víða virðist pottur brotinn. Málið snýst fyrst og fremst um að sigra, keppnin er leiknum og kennslunni yfír- sterkari. Keppni getur verið af hinu Luzern vetrarmeistari LUZERM, lið Sigurðar Grétars- sonar, er vetrarmeistari. Fyrri hluta svissnesku deildar- keppninnar í knattspyrnu lauk um helgina og Luzern hélt efsta sætinu í deildinni. Leik þess gegn Xamax á sunnudag lauk með jafntefli, 0:0. Luzem er með 28 stig eftir fyrri umferðina og Grasshoppers með 27 í öðru sæti. Það vann St. Gallen 3:0 á sunnudag. Bellinzona ÍÞRÓTTIR - RANNSÓKNIR Heilbrigðis- og rannsóknaráð ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um styrk í þágu rannsókna á íþróttasviði. Námsverkefni verða ekki tekin til greina við úthlutun. Umsóknarfrestur rennur út 1. febrúar 1989. Umsóknaeyðublöð liggja frammi á skrifstofu ÍSI í íþróttamiðstöðinni, Laugardal. Heilbrigðis- og rannsóknaráð. Anna Bjarnadóttir skrifar frá Sviss er með 25 stig, Sion og Wettingen með 24, Young Boys og Xamax með 23 og Servette með 22. Þessi átta lið munu keppa um meistaratitilinn í seinni hluta deild- arkeppninnar. Þau hefja keppni með helming stiganna sem þau hafa unnið sér. Oddatölur verða hækkaðar upp svo að Luzern og Grasshoppers fara í seinni umferð- ina með 14 stig hvort. Urslit/B6 KNATTSPYRNA / SPANN Bilbao stöðvaði sigur- göngu Barcelona KNATTSPYRNA / SVISS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.