Morgunblaðið - 28.12.1988, Side 1
KNATTSPYRNA
1988 ■ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER
BLAD
Aðalsteinn tll
Sviþjóðar?
Aðalsteinn Aðalsteinsson, sem lék með Völs-
ungi í fyrra, mun að öllum líkindum leika í
Sviþjóð næsta sumar. Hann mun hefja nám við
háskólann í Linköping næsta vetur og ætlar út í
vor til að ná tökum á málinu og koma sér fyrir.
Jafnframt hefur hann hugsað sér að leika með liði
í Svíþjóð.
Aðalsteinn hefur æft með nokkum liðum í 1.'
2. og 3. deild, en úrvalsdeild er efsta deildin í
Svíþjóð. Hann hefur fengið tilboð frá nokkrum lið-
um og mun fhuga málið næstu daga.
Þess má geta að Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsmaður í handknattleik og bróðir Aðalsteins, býr
í Svíþjóð og þjálfar lið Saab í sænsku úrvalsdeild-
inni.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Tveir íslendingar
í ensku deildinni
Guðni Bergsson lék sinn fyrsta leik með Tottenham
Stundum er kappið þó of mikið og
oft betra að taka það aðeins ró-
lega. Annars kann ég vel við enska
knattspymu og held að hún eigi
ágætlega við mig,“ sagði Guðni.
Þetta var fyrsti leikur Guðna með
Tottenham og óhætt að segja að
byijunin lofi góðu, enda fékk hann
góða dóma í ensku blöðunum.
Guðni bíður enn eftir atvinnu-
leyfi sem á þó að koma bráðlega.
Félag breskra atvinnuknattspymu-
manna hefur samþykkt umsókn
hans og því miklar líkur á að Guðni
fái leyfið á næstu dögum.
Stórteikur Slguröar
Sigurður Jónsson átti mjög góð-
an leik með Sheffíeld Wednesday
gegn Newcastle. Hann yar valinn
maður leiksins þrátt tyrýr að Shef-
fíeld hafí tapað, 1:2.
Tottenham er nú í 11. sæti í
ensku 1. deildinni en Sheffíeld
Wednesday er í 13. sæti deildarinn-
ar.
TVEIR íslendingar léku f 1. deildinni ensku á sama tíma á annan í jólum. Sigurður
Jónsson lék með Sheffield Wednesday gegn Newcastle og Guðni Bergsson lék sinn
fyrsta leik með Tottenham gegn Luton. Þetta er í fyrsta sinn sem tveir íslendingar
leika í ensku deildinni á sama tíma.
Guðni Bergsson var óvænt val-
inn í byrjunarlið Tottenham
skömmu fyrir leikinn. Hann átti að
vera varamaður í leik liðsins, gegn
Luton á White Hart Lane, en byij-
aði leikinn í stað Chris Fairclough
sem var veikur. Guðni lék stöðu
hægri bakvarðar og stóð sig ágæt-
lega. Leiknum lauk með marka-
lausu jafntefli þrátt fyrir góð tæki-
færi Tottenham.
„Þetta gekk betur en ég þorði
að vona. Það var erfítt að koma
svona beint inní liðið og svo
skömmu fyrir leik, en mér gekk
ágætlega að ég held,“ sagði Guðni.
„Mér var vel tekið af áhorfendum
og þeir voru jákvæðir í minn garð.
Þá fann ég stuðning frá Terry
Venables, framkvæmdastjóra liðs-
ins, og leikmönnum og það hafði
íþróttamaður ársins
útnefndur í 33. skipti
Samtök íþróttafréttamanna útnefna
íþróttamann ársins í dag
Samtök íþróttafréttamanna,
sem stofnuðu voru 1956,
standa fyrir kjöri íþróttamanns
ársins í 33. skipti að Hótel Loft-
leiðum í hádeginu í dag. Tuttugu
og tveir iþróttamenn hafa verið
kjömir frá upphafi og var Vil-
hjálmur Einarsson frjálsíþrótta-
maður þessa heiðurs aðnjótandi
fyrstur 1956. Hann hefur einnig
oftast verið útnefndur, eða alls
fímm sinnum.
Kjörið fer nú fram með öðru
sniði en áður, sérhver aðalfélagi
í Samtökum íþróttafréttamanna
hefur nú atkvæðisrétt en áður
voru þeir Qölmiðlar kjörgengir
sem sinntu íþróttafréttum en ekki
sjálfir fréttamennimir.
Þeir sem hlotið hafa sæmdar-
heitið íþróttamaður ársins frá
upphafí eru eftirtaldir:
1966 — Vilhjálmur Einarsson
1957 — Vilhjálmur Einarsson
1968 — Vilhjálmur Einamon
1969 — Valbjöm Þorláksson
1960 — Vilhjálmur Einarsson
1961 — Vilhjálmur Einarsson
1962 — Guðmundur Gíslason
1963 — Jón Þ. ólafsson
1964 — Sigríður Sigurðardóttir
1965 — Valbjöm Þorláksson
1966 — Kolbeinn Pálsson
1967 — Guðmundur Hermannsson
1968 — Geir Hallsteinsson
1969 — Guðmundur Glslason
1970 — Erlendur Valdimarsson
1971 — Hjalti Einarsson
1972 — Guðjón Guðmundsson
1973 — Guðni Kjartansson
1974 — Ásgeir Sigurvinsson
1976 — Jóhannes Eðvaldsson
1976 — Hreinn Halldórsson
1977 — Hreinn Halldórsson
1978 — Skúli Óskarsson
1979 — Hreinn Halldórsson
1980 — Skúli Óskarsson
1981 — Jón Páll Sigmarsson
1982 — Óskar Jakobsson
1983 — Einar Vilhjálmsson
1984 — Ásgeir Sigurvinsson
1986 — Einar Vilhjálmsson
1986 — Eðvarð Þór Eðvarðsson
1987 — Amór Guðjohnsen
1988 — T!T!T!V!T!7IT!T!
Guðni Bergsson (t.h)
lék sinn fyrsta leik
með Tottenham, gegn
Luton, um helgina og
stóð sig vel. A sama
tíma átti Sigurður
Jónsson (t.v) stórleik
með Sheffíeld Wed-
nesday gegn New-
castle. Þetta er í
fyrsta sinn sem tveir
íslendingar leika í
ensku deildinni á
sama tíma.
mikið að segja."
Guðni bætti þvi við að Tottenham
hefði fengið mörg tækifæri til að
tryggja sér sigur, m.a. vítaspymu
og tvö skot í stöng, en inn vildi
boltinn ekki. Guðni tók sjálfur lítin
þátt í sókn liðsins enda lék Luton
með þrjá framherja sem héldu hon-
um við efnið.
„Ég reyndi frekar að leika af
skynsemi en að taka einhverja
áhættu í fyrsta leiknum. Enska
knattspyman er hröð og spennandi
og miklar sviptingar í leikjum.
Imnw
FOLK
■ GUÐNI Bergsson lék sinn
fyrsta leik með Tottenhám gegn
Luton um helgina. í enska blaðinu
The Sun birtist stór mynd úr leikn-
um og undir henni stóð: „Settur á
ís! íslendingurinn Guðni Bergsson
hefur betur en Mick Harford í
baráttunni um boltann." Einn galli
var þó við þessa mynd. Á henni var
jú Mick Harford, en sá sem kallað-
ur var Guðni heitir reyndar Guy
Butters og er vamarmaður í liði
Tottenham.
■ JUSTIN Fashanu mætti á
æfíngu hjá Manchester City I gær
og er talið sennilegt að hann gangi
til liðs við liðið. Fashanu meiddist
fyrir þremur ámm,
Frá Bob er hann var með
Hennessy Brighton, og fór til
ÍEnglandi Bandaríkjanna eft-
ir það, þar sem hann
hefur verið síðan. Mel Machin,
stjóri City, þjálfaði hjá Norwich,
er Brian Clough keypti Fashanu
frá félaginu til Nottingham Forest
á milljón pund.
■ MIKE Hooper hefur staðið sig
vel í marki Liverpool, en Bruce
Grobbelaar verður ekki seldur.
„Ósk hans um sölu hefur verið hafn-
að og ekki er meira um það að
segja," sagði Kenny Daglish.
■ IAN RUSH velski landsliðs-
framherjinn hjá Liverpool, hafði
ríka ástæðu til að fagna á öðmm
í jólum er lið hans vann Derby 1:0.
Rush skoraði sigurmarkið, laglegt
mark eftir frábæran undirbúning,
en þetta var þó aðeins þriðja mark
hans á þessu keppnistímabili.
Walker skoraði tvívegis er Celtic
og Rauða Stjarnan frá Júgóslavíu
gerðu 2:2 jafntefli í vináttuleik í
Glasgow um helgina. Tæplega 22
þúsund áhorfendur mættu þrátt
fyrir verkfall strætisvagnabílstjóra.
É WALSALL hefur nú leikið 11
leiki í röð án sigurs í 2. deild og
vermir botnsætið. Fyrir viku gaf
stjóm félagsins út þá yfirlýsingu
að Tommy Coakley yrði ekki lát-
inn fara — samningurinn við
stjórann yrði í heiðri hafður. En í
gær var Coakley látinn taka
pokann sinn.
■ JOHN Aldridge hefur ekki
komist í byrjunarlið Liverpool að
undanfömu og er talið sennilegt að
Jim Smith, stjóri Newcastle, bjóði
í miðherjann.
■ LEIKMENN Watford áttu að
sofa á hóteli nóttina fyrir leikinn
gegn Portsmouth. Á miðnætti vom
hótelgestir reknir út á götu vegna
sprengjuhótunar. Þar máttu þeir
hanga í hálftíma og þá ákvað stjóri
liðsins að hætta við allt saman og
sendi leikmenn til síns heima. Þeir
komu svo saman morguninn eftir
og unnu leikinn 1:0.