Morgunblaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 3
2 B
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988
KORFUKNATTLEIKUR / NBA—DEILDIN
KNATTSPYRNA
Meisf-
ararí
vand-
ræðum
Lakers tapar enn
og Cleveland er í
efsta sæti. Spurs
tapaði fyrirMiami
NOKKUÐ var um óvænt úrslit
í NBA-deildinni á annan íjólum.
Þaö sem kom mest á óvart var
að meistararnir, Los Angeles
Lakers, töpuðu báðum leikjum
sfnum, gegn Utah og Phoenix.
Það gengur einnig illa hjá meist-
urunum þessa dagana. Liðið
hefur ekki náð að fylgja góðri byij-
un eftir og hefur aðeins unnið einn
af síðustu átta leikj-
FráGunnari um sínum. Þess má
Valgeirssyni í geta að af 27 leikj-
Bandankjunum um sem jjgjg hefur
leikið í vetur eru
aðeins 8 leikir á heimavelli. Flestir
þjálfarar í deildinni segja að svona
niðurröðun sé ekki hægt að leggja
á neitt lið og því ekki við góðu að
búast.
Lakers tapaði fyrir Utah á úti-
velli í fjörugum leik. Lið Lakers lék
þó ekki illa en réði ekki við Karl
Malone sem átti enn einn stórleikinn
fyrir Utah.
Lakers tapaði svo fyrir Phoenix
á annan í jólum, 111:96. Lakers
átti aldrei möguleika í Phoenix og
ekki bætti úr skák að Magic John-
son var rekinn útaf fyrir að rífast
við dómarana.
Miami Heat sigraði San Antonio
Spurs, 111:109, nokkuð óvænt.
Þetta var aðeins annar signr Miami
í deildinni í vetur en liðið hefur leik-
ið tæplega 30 leiki.
San Antonio hefur gengið mjög
illa að undanfömu og aðeins unnið
einn leik á útivelli. Liðið hefur leik-
ið 25 leiki og aðeins sigrað í sjö
þeirra. Pétur Guðmundsson var
kominn að nýju inn í liðið eftir
meiðsli en hefur ekki leikið síðustu
leiki liðsins.
Það lið sem mest hefur komið á
óvart er Cleveland. Liðið er með
besta hlutfallið i deildinni, 18 sigra
og 5 töp.
Önnur úrslit á annan dag jóla
voru að Houston sigraði Charlotte,
75:75 og Washington sigraði New
Jersey, 120:108.
Karl Malone átti stórleik er Utah sigraði Lakers. Hér veður hann yfir A.C.
Green og Magic Johnson.
KÖRFUBOLTI
Gudni með
KR eftir
áramótin
GUÐNI Guðnason, körfuknattleiksmaður-
inn sem verið hefur í Bandaríkjunum í
vetur, hefur ákveðið að leika með sínum
gömlu félögum úr KR eftir áramót.
Guðni hefur verið við nám í viðskiptafræði
í Bandaríkjunum í vetur og leikið með
skólaliði í Oshkosh, en hefur ákveðið að snúa
heim og leika með KR-ingum á ný. Hann hefur
verið hér heima í jólafríi og fer út aftur í byij-
un janúar, en verður alkominn heim 20. janúar
og ætti að geta leikið með KR fljótlega eftir það.
Guðni, sem hefur verið einn besti leikmaður
KR undanfarin ár, á eftir að styrkja lið KR-
inga mikið og möguleikar þeirra á að komast
í úrslitakeppnina ætti að aukast til muna.
Guðnl Guðnason
Marco
Van
Basten
bestur í
Evrópu
Þrír Hollendingar og
leikmenn með AC
Mílanó I efstu sætunum
í kjöri Knattspyrnu-
manns ársins 1988
HOLLENSKI markaskorarinn Marco
Van Basten, sem leikur með AC Mílanó
á Ítalíu, var í gær útnefndur Knatt-
spyrnumaður Evrópu 1988. Það er
franska knattspyrnubiaðið „France
Football11 sem stendur fyrir kjörinu.
Marco Van Basten lék stórt hlutverk
með hollenska landsliðinu sem tryggði
sér Evrópumeistaratitilinn í V-Þýska-
landi í sumar.
Basten hlaut 129 atkvæði af 135 möguleg-
um. í öðru og þriðja sæti komu landar
hans Ruud Gullit, sem var knattspymumaður
ársins 1987, og Frank Rikjaard. Gullit fékk
88 atkvæði og Rikjaard 45. Þessir þrír leik-
menn leika allir með AC Mflanó og er þetta
í fyrsta skipti sem þrír leikmenn frá sama
félagi verða í þremur fyrstu sætinum.
Þess má geta að félagamir þrír voru í þrem-
ur efstu sætinum í kjöri enska blaðsins
„ World Soccer" í nóvember og þá í sömu röð.
Þess má geta að Marco Van Basten varð
fyrstur til að skora þrennu í leik í úrslita-
keppni Evrópukeppni landsliðs, þegar hann
skoraði þijú mörk gegn Englendingum í sum-
ar.
Barcelona
vildi
kaupa
Gullit
SILVIO Berlusconi, forseti AC
Mflanó, sagði í gær f rá því í viðtali
við ítalska blaðið „Gazzetta dello
Sport" að Juab Gaspart, varaforseti
Barcelona, hafði hringt til hann og
tilkynnt honum að Barcelona hefði
mikinn hug á að kaupa Gullit.
Eg gaf honum sama svar og þegar
hann hringdi sl. sumar og vildi þá
kaupa Marco van Basten. Ég sagði honum
að Gullit væri ekki til sölu, hvaða upphæð
sem boðið væri og við myndum heldur
láta hann í skiptum fyrir annan leik-
mann,“ sagði Berlusconi.
Gullit var keyptur til AC Mílanó 391
millj. ísl. kr. frá Eindhoven 1987. Hann
hefur ekki getað leikið með AC Mílanó
vegna meiðsla frá því 10. nóvember. „Ég
er orðinn góður og vonast eftir að geta
leikið með gegn Sampdoria,“ á laugardag-
inn. Mér líður sem særðu ljóni og það sem
meira er - í búri,“ sagði Ruud Gullit.
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTÍR
MIÐVTKUDAGUR 28. DESEMBER 1988
B 3
t
Þeir fengu flest atkvæði
Þeir knattspyrnumenn sem fengu flest atkvæði, voru:
1. Marco Van Basten, Holland (AC Mílanó)
2. Ruud GuUit, Holland (AC Mílanó)...
3. Frank Rikjaard, HoUand (AC Mílanó)
4. Alexei Mikhailitchenko, Sovétrikin (Dynamo Kiev)
5. Ronald Koeman, HoUand (PS V Eindhoven)
6. Lothar Mattháus, V-Þýskaland (Inter Mílanó)
7. Gianluca Vialli, ítalía (Sampdoria)....
8. Franco Baresi, Ítalía (AC Mílanó)......
9. Jttrgen Klinsmann, V-Þýskaland (Stuttgart)...
10. Alexander Zavarov, Sovétríkin (Juventus)
••»»*••••*••«
.129
...88
...45
...41
...39
...10
.....7
...7
...5
...5
Mm
FOLK
H TORBJÖRN Lökken frá
Noregi, sem varð heimsmeistari í
norrænni tvíkeppni 1987, hefur
ákveðið að hætta keppni og leggja
skíðin á hilluna. Lökken, sem er
25 ára, hefur verið einn frægasti
íþróttamaður Norðmanna undan-
farin ár. „Ég er ekki þreyttur á að
keppa, en það er margt mikilvæg-
ara í lífinu en íþróttir. Ég ætla að
snúa mér að öðru,“ sagði Lökken
í samtali við norska Dagbladet.
M STOJKO Vrankovic, júgó-
slavneskur landsliðsmaður í körfu-
knattleik, hefur gert þriggja ára
samning við Real Madrid á Spáni.
Bandaríska NBA-liðið Boston
Celtic hafði boðið Vrankovic
samning upp á 200.000 dollara, en
Real Madrid gerði enn betur og
bauð honum 750.000 dollarar, eða
35 milljónir íslenskra króna, sem
hann þáði. Annar Júgóslavi, Draaz-
en Petrovic, er fyrir hjá Real
Madrid og er hann frændi
Vrankovic. Petrovic, sem er talinn
einn efnilegasti körfuknattleiks-
maður heims, var seldur til Real
Madrid fyrir 2,5 milljónir dollara
eftir ÓL í Seoul í suiriar.
HANDBOLTI
Óbreytt
gegn Dönum
Landsliðshópur íslands, sem
mætir Dönum á morgun og á
föstudag kl. 20.30 í Laugardals-
höllinni, er óbreyttur frá leikjunum
gegn Svíum á dögunum. Brynjar
Kvaran, markvörður, gefur ekki
kost á sér í hópinn, þar sem hann
er að undirbúa sig fyrir próf.
KNATTSPYRNA/U-18
Góð byrjun í ísrael
- sigruðu íra í fyrsta leik í alþjóðlegu móti í ísrael
ÍSLENSKA unglingalandsliðið í
knattspyrnu byrjaði vel á al-
þjóðlegu móti í Israel. Liðið lék
fyrsta leik sinn í gær og sigraði
íra, 2:1 í fjörugum leik. Þessi
lið léku í Dublin fyrir nokkrum
mánuðum og þá sigruðu írar
mjög örugglega, 3:0.
Íslendingar, sem stilla upp yngsta
liði keppninnar, voru ekki taldir
eiga mikla möguleika gegn sterku
liði íra. En íslensku strákarnir
sögðu fyrir leikinn að þeir ætluðu
að sýna að KSÍ hefði ekki átt að
hætta við þátttöku liðsins í Evrópu-
keppninni og sigra íra.
Ifyrri hálfleikurinn var jafn og
bæði lið fengu þokkaleg færi. Það
var þó ekki fyrr en á 10. mínútu
síðari hálfleiks að fyrsta markið
kom. Halldór Kjartansson átti skot
að marki sem írski markvörðurinn
varði. Boltinn barst út í teig og
Amar Gunnlaugsson skoraði af ör-
yggí-
A 63. mínútu jöfnuðu írar með
snyrtilegu marki en tveimur mínút-
um síðar náðu íslendingar forys-
tunni að nýju, með glæsilegu marki.
Steinar Guðgeirsson tók auka-
spymu af 25 metra færi. Skot hans
fór efst í bláhomið, glæsilegt mark.
Síðustu mínútumar sóttu írar
heldur meira en vöm íslendinga var
sterk.
Steinar Guðgeirsson átti mjög
góðan leik og Nökkvi Sveinsson
stóð sig vel. Þá var vöm og mark-
varsla liðsins til fyrirmyndar.
íslendingar mæta Rúmenum í
dag, en þeir gerðu jafntefli við
Portúgala, 1:1. Þá sigraði B-lið
ísraela Lichtenstein, 3:2.
íslendingar eru með yngsta liðið
í mótinu. Heimilt er að nota 18 ára
leikmenn en flestir íslensku leik-
mennimir eru 16-17 ára og tveir
15 ára leikmenn léku í gær, þeir
Arnar Gunnlaugsson og Láms Orri
Sigurðsson, sonur Sigurðar Láms-
s°nar,. biálfara ÍA.
Stelnar Guðgeirsson skonjði. glæsimark gegn ímm
-ekkl
beppfi' /MrfH:
Sala getraunaseðla lokar kl. 14:45 mánudaginn 2. janúar.
52. LEIICVIKA - 2. JAN. 1988 1 X 2
leikur 1. Coventrv - Sheff.Wed.
leikur 2. Luton - South.ton
leikur 3. Middlesbro - Manch.Utd.
leikur 4. Millwall - Charlton
leikur 5. Newcastie - Derby
leikur 6. Nott.For. - Everton
leikur 7. Q.P.R. - Norwich
leikur 8. West Ham - Wimbledon
leikur 9. Barnsley - Hull
leikur 10. Birmingham - Oldham
leikur 11. Ipswich - Leicester
leikur 12. Oxford - Chelsea
Símsvari hjá getraunum eftir kl. 17:15 á laugardögum er 91-84590 og -84464.
Ath. opið gamlársdag til kl. 13:00
lokað á nýársdag.