Morgunblaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 4
msm
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Arsenal var aðeins
sólarhring á toppnum
Norwich sigraði West Ham í gær, 2:1, og situr íefsta sæti
ARSENAL var aðeins í sólar-
hring í efsta sœti 1. deildarinn-
ar í ensku knattspyrnunni með
góðum sigri, 3:2, á útivelli gegn
nágrannaliði sínu Charlton á
annan dag jóla. Norwich náði
toppsœtinu aftur f gœr er liðið
sigraði West Ham, 2:1, á
heimavelli. Liverpool er komið
í 3. sœti eftir 1:0 sigur á Derby
á útivelli.
Dale Gordon og Andy Townsend
skoruðu mörk Norwich á 53.
mín. og 60. mínútu. Rey Stewart
minnkaði muninn fyrir West Ham
_■■■■ úr vítaspymu á 71.
■frá mínútu. Norwich
BobHennessy hefur nú tveggja
i Englandi stiga forskot á Arse-
nal með 36 stig.
Arsenal á þó einn leik til góða.
Marwood maður lelksins
Það var harður og fjörugur slag-
ur hjá Charlton og Arsenal. Arse-
nal var sterkara liðið og vann verð-
skuldaðan sigur. Brian Marwood
var maður leiksins, skoraði tvívegis
fyrir Arsenal sem komst í 2:0 og
síðan 3:1. Paul Merson skoraði eitt
mark, en leikmenn Charlton börð-
ust vel og sóttu í sig veðrið er á
leið. Gamla kempan Steve
McKenzie sem lék á árum áður með
WBA og Manchester City, skoraði
bæði mörk liðsins, það síðara var
sérlega glæsilegt, þrumuskot í vink-
ilinn af löngu færi.
Rush sá um Derfoy
Liverpool er ekki langt undan
eftir góðan sigur á útivelli gegn
Derby. Ian Rush skoraði sigurmark
Liverpool og eina mark leiksins eft-
ir frábæran undirbúning Steve
McMahon og Peter Beardsley. Li-
verpoll hafði yfírburði og fékk mý-
mörg færi á að auka muninn. Und-
ir lokin var liðið þó heppið og slapp
með skrekkinn er Dean Saunders
skallaði rétt yfír þverslána úr opnu
færi.
Guðni lék með Tottenham
Tottenham, með Guðna Bergsson
innanborðs, lék Luton sundur og
saman, en ekkert gekk uppi við
markið, þar sem Luton slapp á
ævintýralegan hátt hvað eftir ann-
að. Terry Fenwick lét veija frá sér
víti og brenndi af fyrir opnu marki
og bjargað var af marklínu skotum'
frá Walsh, Thomas og Gascoign.
Stewart átti stangarskot og Allen
brenndi af fyrir galopnu marki.
Mlllwall á niðurleið
Millwall er að gefa eftir, tapaði
sínum þriðja leik af fjórum síðustu,
er liðið mætti nágrannaliðinu
Wimbledon. Carlton fairweather
skoraði eina mark leiksins eftir að
skoti frá Terry Gibson hafði verið
bjargað af marklínu.
Brian Marwood var maður leiksins
skoraði tvívegis fyrir Arsenal sem kor
hægri á myndinni.
Everton er nærri toppinum og
hélt þeirri stöðu með naumum sigri
gegn Middlesbrough. Trevor Steven
skoraði úr víti og Tony Cottie skor-
aði síðara mark liðsins, sem vann
2:1, en Dean Glover skoraði eina
mark „Boro“.
UnKed slgraðl
Manchester United hristi af sér
lánleysi síðustu vikna og vann Nott-
ingham Forest örugglega með
mörkum Ralph Milne og Mark Hug-
hes. Gengi þessara liða hefur verið
afar áþekkt í vetur og munar raun-
ar aðeins þessum eina sigurleik MU
á þeim.
Coventry missti tökin á unnum
leik gegn Southampton, David
Phillips og Gary Bannister skoruðu
fyrir liðið snemma leiks og þótt
Rodney Wallace minnkaði muninn
steftidi allt í sigur Coventry. Kevin
Moore reyndist þó réttur maður á
réttum stað frá sjónarhóli Sout-
hampton, er hann skoraði jöfnunar-
markið bókstaflega á síðustu sek-
úndu leiksins.
viðureign Arsenal og Charlton. Hann
it í 2:0 og síðan 3:1. Marwood er til
Mclnally skorar enn
Markamaskína þeirra hjá Aston
Villa, Alan Mclnally, skoraði bæði
mörk liðsins er það lagði QPR að
velli, 2:1, og hefur hann þar með
skorað 19 mörk á þessu keppn-
istímabili. Trevor Francis svaraði
fyrir QPR.
Sheffield Wedensday varð fyrir
því áfalli að tapa á heimavelli fyrir
einu botnliðanna, Newcastle. Dave
Hirts skoraði fyrir heimaliðið, en
Neil McDonald og hinn 17 ára gamli
Michael ONeil skoruðu mörkin fyrir
Newcastle.
Hlll settl fjögur möric
í 2. deild var þó sá framheiji sem
stal senunni eftirminnilega. Var það
Richard Hill hjá Oxford sem sigraði
Walsall 5:1. Skoraði Hill fjögur
mörk á 16 mínútna kafla í seinni
hálfleik, en Martin Foyle bætti
fimmta markinu við. Er Hill þessi
komungur sveinn sem virðist fylla
skarðið sem Dean Saunders skyldi
eftir sig með mikilli sæmd.
Alan Mclnally skoraði bæði mörk
Aston Villa f 2:l-sigri á QPR. Hann
er markahæsti leikmaður deildarinnar
með 19 mörk.
England 1. deild
ASTON VILLA- QPR............Z: 1
CHARLTON - ARSENAL..........2:3
DERBY - LIVERPOOL...........0:1
EVERTON- MIDDLESBROUGH......2:1
MAN. UTD. - NOTT. FOREST....2:0
SHEFF. WED. - NEWCASTLE .....1:2
SOUTHAMPTON - COVENTRY ......2:2
TOTTENHAM - LUTON...........0:0
WIMBLEDON - MILLWALL........1:0
NORWICH- WESTHAM ............2:1
Fj. leikja U J T Mörk Stig
NORWICH 18 10 6 2 28: 19 36
ARSENAL 17 10 4 3 37: 20 34
UVERPOOL 18 7 7 4 22: 13 28
MILLWALL 17 7 6 4 28: 21 27
EVERTON 17 7 6 4 22: 16 27
DERBY 17 7 5 5 20: 13 26
COVENTRY 17 7 5 5 20: 16 26
AST. VILLA 18 5 9 4 28: 25 24
SOUTHAMP. 18 5 9 4 29: 27 24
MAN. UTD. 17 5 8 4 21: 15 23
N. FOREST 18 4 10 4 20: 23 22
TOTTENHAM 17 5 6 6 27: 27 21
MIDDLESB. 18 6 3 9 23: 31 21
QPR 18 5 5 8 18: 18 20
LUTON 18 4 8 6 17: 18 20
SHEFF. WED. 16 5 5 6 14: 17 20
WIMBL. 17 5 4 8 17: 26 19
NEWCASTLE18 4 5 9 16: 32 17
CHARLTON 18 3 7 8 19: 31 16
WESTHAM 18 3 4 11 15: 33 13
2. deild: Brighton — Crystal Palace.3:1
Chelsea — Ipswich..................3:0
Hull — Bradford....................1:1
Leeds — Blackbum...................2:0
Leicester — Boumemouth.............0:1
Oldham — W.B.A.....................1:3
Shrewsbury — Birmingham............0:0
Stoke — Manchester City............3:1
Sunderland — Bamsley...............1:0
Swindon — Plymouth.................1:0
Walsall — Oxford................. 1:5
Watford — Portsmouth...............1:0
3. deild:
Brentford — Blackpool..............1:0
Bristol Rovers — Wolves............0:0
Bury — Bristol City................2:1
Cardiff — Swansea..................2:2
Chester — Wigan....................1:0
Chesterfield — Huddersfield........1:1
Gillingham — Fulham................0:1
Mansfield — Port Vale..............0:1
Notts County — Sheffield United....1:4
Preston — Bolton...................3:1
Reading — Aldershot................3:1
Southend — Northampton........... 2:1
4. deild:
Bumley — Wrexham...................1:3
Cambridge — Doncaster..............0:0
Carlisle — Rochdale................1:0
Colchester — Peterborough..........1:2
Darlington — Halifax...............0:2
Exeter — Hereford..................3:1
Leyton Orient — Tranmere...........2:0
Lincoln — Grimsby..................2:2
Rotherham — Crewe..................1:2
Scarborough — York.................0:0
Scunthorpe — Hartlepool............1:1
Torquay — Stockport................2:1
Staðan f 2. deild:
Chelsea 22 11 7 4 43:23 40
W.B.A. 22 11 7 4 38:20 40
Blackbum 22 12 3 7 36:28 39
Watford 22 11 5 6 34:22 38
Man. City 22 10 7 5 31:22 37
Portsmouth 22 9 8 5 34:25 35
Boumemouth 22 10 4 8 26:24 34
Bamsley 22 9 6 7 29:27 33
Sunderland 22 7 10 i 5 30:26 31
Stoke 22 8 7 7 25:33 31
Leeds 22 7 9 6 26:22 30
Swindon 21 7 9 5 29:28 30
Ipswich 22 9 3 10 29:29 30
Crystal Palace 21 7 8 6 30:28 29
Plymouth 22 8 5 9 30:34 29
Leicester 22 7 8 7 26:31 29
Oxford 22 7 6 9 36:33 27
Bradford 22 5 10 7 23:28 25
Hull 22 6 7 9 26:34 25
Oldham 22 5 8 9 34:37 23
Shrewsbury 22 4 10 8 18:28 22
Brighton 22 6 3 13 28:39 21
Birmingham 22 8 6 13 16:42 15
Walsall 22 2 .8 12 19:33 14
Mclnally markahæstur
Alan Mclnally hjá Aston Villa, sem
skoraði tvö mörk á annan í jólum,
er nú markahæstur í 1. deildar-
keppninni, með 19 mörk.
Alan Smith hjá Arsenal hefur skor-
að fímmtán. Þá kemur Dean Saund-
ers hjá Derby með þrettán, Tony
Cascarino, Millwall og Tony Cottee,
Everton, hafa skorað ellefu.
Mark Hughes, Man. Unt., Matt-
hew Le Tissier, Southampton, Brian
Marwood, Arsenal, Teddy Sherring-
ham, Millwall og Paul Williams,
Charlton, hafa skorað tíu.
Níu mörk hafa þeir Nigel Clo-
ugh, Nottingham Forest, Trevor
Francis, QPR, David Kelly, West
Ham og David Platt, Aston Villa,
skorað.
GETRAUNIR: 121 1 X X 111 122 LOTTO: 2 7 10 21 36 +16