Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 4

Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989 Hæfir ekki kvennaevrum - rœtf við Sigrúnu Valbergs- dóttur, leikstjóra Framú, gesta- leiks f rú Færeyj- um, sem sýndur er í Þjóð- leikhús- inu um helgina Fyrir tveimur árum,“ svarar Sigrún^ „hófst undirbúning- ur hjá Iþróttasambandi Fær- eyja vegna 50 ára afmælis félagsins, sem var 4. apríl síðastliðinn. Strax í upphafi var ákveðið að halda menningarlega upp á afmælisdaginn og sýna leik- rit sem tengdist íþróttum. Leikritið Framá þekktu þeir og vissu að í því væru 21 karlmaður. Síðan var hringt í mig og ég spurð hvort ég vildi setja þetta upp. Færeyingar leita árlega eftir íslenskum leikstjóra og það er yfir- leitt í einhver stór verkefni. Eftir að ég hafði tekið boðinu, var ég boðin að velja mér leikmyndateikn- ara og ég bað Messíönu Tómas- dóttur að taka það hlutverk að sér. Það vill svo til að hún bjó einu sinni, um þriggja ára skeið, í Fær- eyjum, þannig að hún var hagvön. Síðan var þetta leikrit aðalliðurinn á þessari afmælishátíð." Hvað geturðu sagt mér um Færeyskt leikhús? „Það er í mikilli þróun núna. Þeir hafa nýlega ráðið sinn fyrsta leikhússtjóra. Það má segja að leik- húsið þeirra, Sjónleikarhúsið í Þórs- höfn, standi á tímamótum áhuga- og atvinnumennsku, líkt og Leik- félag Reykjavíkur fyrir 25 árum. Síðan eiga þeir lítinn atvinnuleikhóp sem heitir Gríma. sem setur upp sýningu á tveggja ára fresti, en þess á milli fara meðlimir hópsins um allar eyjamar og leikstýra þeim þrettán áhugafélögum sem þar starfa. Havnar Sjónleikarfélagið er öflugast af þeim - það er þeirra Borgarleikhús.“ Hvernig gekk þér að manna þessa sýningu? „Það gekk kraftaverki næst. Það er auðvitað meira en að segja það, að fá 21 áhugaleikara til að binda sig svona á hveiju kvöldi frá janúar- lokum og fram yfír miðjan maí. En það gekk, og mjög vel. Þeir eru á misjöfnum aldri, sá yngsti 17 ára og sá elsti um sextugt." Um hvað íjallar svo þetta leik- rit sem gerist í búningsklefa? „Það fjallar um það sem gerist á bak við knattspyrnuleikinn. Við fömm þarna inn í lokaðan heim, sem er búningsherbergi leikmanna — fyrir leik, í hálfleik og eftir leik. Þessi heimur er öllum óviðkom- andi, nema þeim sem em að fara inn á völlinn til að beijast. Þetta er úrslitaleikur í 2. deild. Baráttan stendur um það hver fell- ur niður í 3. deild og úrslit leiksins skipta öllu máli fyrir félagið, því það barðist ámm saman í 1. deild og átti mann í landsliðinu. Fótbolt- inn er að taka miklum breytingum á þessum tíma. Þetta er áhugalið, en engu að síður em sumir á samn- ingi, þannig að þeir fá, að hluta til, laun fyrir að spila fótbolta. Aðr- ir, sem hafa verið lengst með lið- inu, eru þar eingöngu af hugsjón, og enn aðrir þola ekki þennan tvískinnung og vilja ekki samning. í leikritinu kemur til umræðu allt sem snertir fótboltann, til dæm- is hvaða máli það skipti fyrir leik- mann að leyna því fyrir þjálfaranum að hann er meiddur, ungur leikmað- ur færi sitt fyrsta tækifæri með 1. deildar liði í þessum úrslitaleik, sem getur skipt öllu máli fyrir framtíð hans í fótboltanum. Annar veit að menn frá fjársterku liði, sem hefur boðið honum samning, em að fylgj- ast með honum. Síðan er nuddari liðsins, sem allir leikmenn treysta á, jafnt líkamlega sem andlega. Formaður félagsins snobbar fyrir styrktaraðilum liðsins. Svo kemur þarna gömul hetja, sem er orðinn fyllibytta, til að tjá sig um leikinn. Nokkrir leikmenn em gersamlega ósammála þjálfaranum um hvemig liðið er skipað, og svo framvegis.“ Hvort á þetta verk meira skylt við íþróttir eða leikhús? Hvomtveggja. Þetta er bæði gott leikrit og spennandi - og rosalega fyndið. Að sjálfsögðu er umræðan sem þarna fer fram alls ekki ætlað konueymm. Þetta er alger karl- mannaheimur, í sinni hörðustu birg- ingarmynd. Það varð okkur Messí- önu ljóst, þegar við reyndum að fá að vera inni í búningsherbergi íslenska landsliðsins, í landsleik gegn Tékkum, í janúar síðastliðn- um. Eftir langar umræður fór fram atkvæðagreiðsla hjá landsliðinu, þar sem beiðni okkar var synjað. Eftir að hafa unnið í þessu leikriti skiljum við það vel og þessi höfnun varð okkur að leiðarljósi í úrvinnsl- unni; hún skapaði okkur gmnn til að byggja sýninguna á. Við höfum vissulega komist að því að búnings- herbergi fótboltaliðs era heilög vé. Það var alveg óskaplega gaman að vinna þessa sýningu og í Færeyj- um var mjög vel að okkur búið. Ég hef aldrei unnið við svona góðar aðstæður. Færeyingar em mjög listfengir og hafa til að bera yndis- lega hógværð listamannsins — sem við getum lært mikið af.“ Hvað gerist í búningsklefa knattspyrnuliðs í afgerandi úrslitaleik; fyrir leik, í leik- hléi og eftir leikinn? Hvernig er staðan hjá knattspyrnu- mönnum, sem eru á mörkum atvinnumennsku og áhuga- mennsku. Þessum spurning- um svarar færeyskur leik- hópur í verki sem nefhist FRAMÁ og sýnt verður í .Þjóðleikhúsinu í kvöld og annað kvöld. Framá er upprunalega sænskt leikrit, sem síðan var umskrifað miðað við danskar aðstæður. Þaðan var því umsnúið í færeyskan búning. Leikritið var frumsýnt af Havnar Sjónleikarfélagi í Sjónleikarhúsinu í Þórshöfh þann 4. apríl síðastliðinn í til- efni 50 ára afmælis Iþrótta- sambands Færeyja. Leikstjóri sýningarinnar er Sigrún Valbergsdóttir og var hún spurð hvers vegna hún hefði verið fengin til þessa verkefhis. Listfengir, segir þú. En hver fínnst þér vera afstaða þeirra til listsköpunar? „Ég upplifi Færeyinga þannig, að þeir séu að þessu fyrir sjálfa sig. Þeir upplifa sig sem alveg Nútímalist en ekki galdrar Er neðanjarðarlist hér á ís- landi? Þessari spurningu svara þeir Ómar Stefáns- son og Þorri Jóhannsson játandi og segjast vera í hópi þeirra listamanna sem verið hafa neðanjarðar undanfarin ár. Þeir stunda gerninga — eins kon- ar samruna listgreinanna — og segja gemingalist mæta fordóm- um og skilningsleysi. „Við erum samt að koma upp á yíirborðið," segja þeir. Gemingaíiópurinn Infemo 5 er nýsnúinn heim frá Káupmannahöfn þar sem þeir tóku þátt í hátíð gern- ingalistamanna víða að úr Evrópu; tónlist, sjónlist, hljóðlist, ljóðlist og allra handa list var þar framin við sammna tegundanna að hætti gem- ingalistamanna. Þeir Ómar og Þorri hafa starfað í Infemo 5 — hópi neð- anjarðarlistamanna sem tók til starfa að þeirra eigin sögn í „leiðin- legu og hálfvonlausu samkvæmi í kjallara í Þingholtunum haustið 1984. Þar var svo leiðinlegt að þijú ungmenni hófu að betja á bongó frá Gjafahúsinu hinum gestunum til gleði og ama.“ Þessi þijú ungmenni vom Þorri Jóhannsson, Jóhann Óli Ólafsson og Óskar Thorarensen. Og sköpun^rgleðin lét ekki á sér standa því áður en varði höfðu tveir til við- bótar bæst í hópinn og fímm manna hljómsveit tók til starfa og æfði af miklum krafti í bílskúr að hætti framsækinna tónlistarmanna. Tón- list þeirra féll þó ekki að smekk fjöl- dans og eftir fyrstu tónleikanna í Nýlistasafninu seinna sama haust Ómar Stef ánsson og Þorri ióhannsson svipta hulunni af gerningalistinni töluðu hljómleikagestir um nágaul og mónótóníu. Inferno 5 tók sér þá frí um óákveðinn tíma. Þráðurinn var svo tekinn upp aft- ur sumarið 1985 þegar Þorri og Ómar fluttu fyrsta gerninginn í nafni Infemo 5 við opnun myndlistarsýn- ingar Ómars á Café Gesti. Þessi gerningur nefndist „Allt sem börn- um er bannað“ þar sem meginþema gerningsins var — auk fmm- saminnar tónlistar af snældu — gildi umbúðanna og fegurð fæðunnar. „Fyrir þann gerning þurfti að kaupa matvömr í stórmarkaði eftir útliti og lit. Fyrst var maturinn í tælandj umbúðum sem er pólitíkin í dag. í gagnsæjum plastjakkafötum Dóm Einars í hagkaupsplastpokanærbux- um með hakkhárkollur jusum við á kerfisbundinn hátt matvælum yfir hvom annan og breyttumst í skraut- lega litríka og listræna kássuskúlpt- úra og huldum siðan andlitin með steikargrímum.“ Og gerningaþjónusta Inferno 5 héfur haldið áfram frá þessu bragðmikla upphafí; gerningar, myndlist, ljóðlist og tónlist hafa haldist í hendur og að sögn þeirrá Ómars og Þorra þrífast allar deildir Infemo 5 vel, þó gerningaþjónustan sé óneitanlega öflugust. Þar samein- ast enda allar áðumefndar listgrein- ar á kraftmikinn hátt. „Gemingur getur verið tengiliður allra listforma og gefíð mjög víða möguleika. Segja má að velheppnaður gemingur sé Ljósmynd/Davíð Þorsteinsson „Gerningur er raunverulegur. Hann er hér og nú." Úr gerningnum Rykdjöflum sem sýndur var í Nýlistasafninu í vor. sá sem skapar innri eða ytri við- brögð áhorfanda við augnablikinu,“ segja þeir félagar um listina að fremja gerning. „Þetta er ævafornt tjáningarform og má rekja sögu þeirra allt aftur til heiðinna helgiat- hafna og seiðmanna forsögulegra tíma svo ekki sé talað um hysteríska helgileiki og göngur miðaldakirkj- unnar. En eiginleg saga nútímagern- inga hefst með fútúristunum árið 1909 og dadaistunum aðeins seinna,“ segir Þorri. Þar má kannski loks setja fíngur- inn á inntak listar Inferno 5 og segja: Aha, þeir em á þeirri línu, dada, súrreal og fútúr — jájá. Ekki batnar það þegar þeir lýsa því yfir jafn alvömgefnir og fornir hofprest- ar, að þeir séu hundheiðnir og sæki sköpunarkraft sinn í ásatrú og gald- ur. „Okkar hugmyndafræði er heið- in. Við emm heiðnir efasemdarmenn sem trúum ekki á neinn sérstakan einn guð. Við byggjum list okkar á heiðnum og anarkískum grunni,“ segir Þorri. — Og gerir þetta ykkur sérstaka? „Við erum samansafn af sérsinna listamönnum sem vilja fremja sína list á þann hátt sem þeim þykir skemmtilegt," segir ljóðskáldið Þorri. „Ég hef alltaf viljað flytja mín ljóð á dálítið nýstárlegan hátt. Kannski með einhveijum „seremón- íum“ og við undirleik tónlistar. Við nenntum ekki að eltast við þennan íslenska poppbransa, okkur leiðist hann og allt sem honum fylgir. Þeg- ar Ómar bættist í hópinn með sína gerningafortíð var gmnnurinn lagð- ur og við eigum það sameiginlegt að vera leitandi listamenn sem eru nokkuð sér á parti miðað við íslen- skar aðstæður." — Hvað gerir ykkur svona sér-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.