Morgunblaðið - 01.07.1989, Side 4
MORGUNBLAÐÍÐ LAUGÁRDAGUR 1. JÚLÍ 1989
*
Fundur Irskrabrunnsins:
Hef alltaf vitað
af brunninum
-segir Sæmundur Magnússon sem
benti á staðsetningu brunnsins
„Ég var fljótur að átta mig á því hvar brunnurinn var,“ sagði
Sæmundur Magnússon í samtali við Morgunblaðið en það var sam-
kvæmt ábendingu frá honum sem svokallaður írskrabrunnur fannst
við Gufuskála á Snæfellsnesi fyrr í vikunni. Afi Sæmundar, Sæmund-
ur Guðmundsson, gróf niður á brunninn árið 1914 en lést seinna
sama ár. Brunnurinn fylltist því aftur af sandi og týndist.
„Það eru tæp 14 ár síðan ég kom
síðast vestur á Snæfellsnes," sagði
Sæmundur. „Ég var hins vegar
nokkuð viss um hvar brunninn
væri að fínna og benti Cyrusi Dan-
elíussyni á staðinn og hann gróf
niður á hvalbeinið."
Cyrus hefur árum saman leitað
að írskrabrunni Sæmundur Magn-
ússon er fæddur á Gufuskálum
árið 1916 og ólst þar upp. Hann
sagðist ungur hafa heyrt af því að
afí hans hefði fundið brunninn og
grafíð niður á hann. Þótt brunnur-
inn hafí fljótt fyllst aftur vissi
heimilifólk á Gufuskálum hvar
hann var að fínna. Talið er að 16
þrep séu niður að vatni í brunnin-
um.
Á efstu myndinni sést Cyrus
Danelíusson við írskrabrunn-
inn sem hann hefur leitað lengi.
Hér sést ofan á hvalbeinið sem
liggur ofan á brunninum. Inn-
fellda myndin til hægri er af
Sæmundi Magnússyni, en á
myndinni til vinstri bendir Cyr-
us Danelíusson á hleðsluna efst
í brunninum.
VEÐURHORFUR í DAG, 1. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Skammt suður af Grænlandi er 985 mb lægð, sem
hreyfist austnorðaustur. Heldur hlýnar í veðri.
SPÁ: Skil að nálgast úr suðvestri og ur þeim rignir lítilsháttar á
Suður- og Vesturlandi en noröanlands og austan verður bjart veð-
ur og hlýtt. Á eftir skilunum tekur við suðvestanátt með skúrum á
Suður- og Vesturlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðvestanátt um allt
land. Skýjað og dálítil rigning um vestanvert landið en þurrt og
víöa léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Fremur svalt vestan-
lands.
D gráður á Celsius
Skúrir
Él
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
O Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig: -\ g I
" Vindörin sýnir vind- 11
stefnu og fjaðrirnar •
vindstyrk, heil fjöður V
er 2 vindstig.
/ / / . _________________________
/ / / / Rigning
//•'/'
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * #
* * * * Snjókoma
* * *
•> •>
oo
4
K
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 9 léttskýjað Reykjavik 10 léttskýjað
Bergen vantar
Heisinki 20 skýjað
Kaupmannah. 17 skýjað
Narssarssuaq 7 rigning
Nuuk 3 skýjað
Ósló vantar
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 26 heiðskírt
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 26, þokumóða
Berlfn 18 léttskýjað
Chlcago 18 léttskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 11 rigning
Hamborg 16 léttskýjað
Las Palmás Zgy'i' . y. vantar
London vantar
Los Angeles vantar
Luxemborg vantar
Madríd vantar
Malaga 26 mistur
Mailorca 29 heiðskfrt
Montreal 17 léttskýjað
New York 19 heiðskirt
Orlando 23 skýjað
París vantar
Róm vantar
V(n 20 skýjað
Washington 19 léttskýjað
Winnipeg vantar
Fossvogsdalur:
Könnun skipulags-
stjómar misjafiit tekið
Á fundi bæjarráðs Kópavogs 22. júní var samþykkt svar við bréfi Skipu-
lagssljórnar frá 19. júní. Bæjarráðið segir að ekkert sé við það að at-
huga að Skipulagsstjórn kanni ágreininginn milli Reykjavíkur og Kópa-
vogs um skipulag Fossvogsdals og Kópavogsbær muni láta í té allar
þær upplýsingar sem til slíkrar könnunar þurfi. Hins vegar eigi eftir
að afgreiða aðalskipulag Kópavogs og vænti bæjarráðið þess, að athug-
un skipulagssfjórnar telji ekki þá afgreiðslu. Einnig er því beint til
Skipulagsstjórnarinnar að tillögurnar verði endurskoðaðar með tilliti
til þess samkomulags, sem gert var milli Kópavogs og Reykjavíkur
þann 20. síðastliðinn.
Borgarráð fjallaði um málið á
fundi sínum 27. júní. Þar var sam-
þykkt umsögn um tillögu skipulags-
stjómar. í umsögninni segir m.a. að
í tillögu skipulagsstjómar sé hvergi
minnst bemm orðum á athugun á
þýðingu Fossvogsbrautar fyrir um-
ferðarmál höfuðborgarsvæðisins og
hvaða afleiðingar það hefur fyrir
umferðarkerfið ef gatan verður ekki
lögð. Þá hafí hvorki skipulagsstjórn
né ráðherra úrskurðarvald um gildi
samning8ins frá 1973 um mörk
Reykjavíkur og. Kópavogs og verði
báðir aðilar að samþykkja að falla
frá gerð Fossvogsbrautar.
Borgarráð vekur athygli á að til-
laga skipulagsstjómar er saman áður
en Reykjavík og Kópavogur gerðu
með sér samkomulag sem felur í sér
að leitað verði leiða til að jafna
ágreining þann sem kominn er upp.
Telur borgarráð því að meðan á
meðferð málsins standi sé rétt að
skipulagsstjóm bíði með aðgerðir af
sinni hálfu.
í tillögu skipulagsstjómar um at-
hugun á skipulagi í Fossvogsdal
kemur m.a. fram að tilgangur henn-
ar er að komast að niðurstöðu um
skipulag í Fossvogsdal sem bæði
sveitarfélögin geti sætt sig við. Náist
ekki slíkt samkomulag sé það félags-
málaráðherra að skera úr um. Til
að ráðherra geti gert slíkt þurfi að
liggja fyrir faglegar ráðleggingar og
þvi nauðsynlegt fyrir skipulagsstjóm
að standa að hlutlausri skoðun á
málinu. Reiknað er með að vinnuhóp-
ur sá sem vinna skal verkið skili
áfangaskýrslum reglulega en loka-
skýrslu verði skilað í ársbyrjun 1991.
Benedikt Bogason
alþingismaður látinn
LÁTINN er í Reykjavík Benedikt
Bogason alþingsmaður og verk-
fræðingur. Benedikt yar fæddur
17. september 1933 og voru for-
eldrar hans Bogi Eggertsson frá
Laugadælum í Árnessýslu og
kona hans Hólmfríður Guð-
mundsdóttir.
Benedikt lauk stúdentsprófí frá
MR 1953 og verkfræðiprófi frá T.H.
í Helsingfors í Finnlandi 1961.
Hann varð framkvæmdastjóri Flóa-
veitunnar og Ræktunarsambands
Flóá-og Skeiðaveitna 1961-64 jafn-
framt því sem hann stundaði al-
menn verkfræðistörf á Selfossi. Frá
1961 til 1971 var hann verkfræð-
ingur hjá borgarverkfræðingi í
Reykjavík.
Benedikt stofnaði sína eigin
verkfræðistofu í Reykjavík 1971 og
rak hana til 1980 er hann varð
verkfræðilegur ráðunautur Fram-
kvæmdastofnunar íslands og síðar
fulltrúi forstjóra Byggðastofnunar.
Benedikt hafði áhuga á stjóm-
málum og félagsstörfum. Hann átti
sæti í hreppsnefnd Selfosshrepps
fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1962-64
og við alþingskosningamar 1987
varð hann varaþingmaður Borgara-
flokksins í Reykjavík. í apríl í ár
tók hann svo fast sæti á alþingi.
Benedikt lætur eftir sig eigin-
konu, Unni Magnúsdóttur, og tvö
uppkomin börn.