Morgunblaðið - 01.07.1989, Blaðsíða 25
! MORGUNBLAíЮ (UVUGMDNGUft 3!. 'JÚLÍ [1089
25
Innkaupakarfa helgarinnar:
Allt að 42% verðmunur á dýrustu
o g ódýrustu innkaupakörfunni
Verðlagsstofnun hefiir sett
saman innkaupakörfu, sem ætlað
er að sýna neyslu ijögurra manna
íjölskyldu í þrjá daga á matvör-
um og nokkrum snyrti- og hrein-
lætisvörum.
í matarkörfunni, sem er eins
konar helgarkarfa, eru 45 algengar
vörur og er magn hverrar vöruteg-
undar miðað við þriggja daga
neyslu.
Verðlagsstofnun kannaði verð á
vörunum í körfunni síðustu dagana
í maí í 44 matvöruverslunum á
höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöð-
urnar eru birtar í 10. tbl. Verðkönn-
unar Verðlagsstofnunar áþessu ári.
Tilgangurinn var að kanna verð
innan sömu verslunar þar sem ann-
ars vegar væri tekið lægsta verð á
vörunum í körfunni og hins vegar
hæsta verðið. í könnuninni var litið
fram hjá hugsanlegum gæðamun.
Könnunin leiðir í ljós, að mikill
verðmunur er á matarkörfunni eftir
því hvort keyptar eru ódýrustu teg-
undir af hverri vöru í ákveðinni
verslun eða dýrustu tegundir af
sömu vöru í sömu verslun.
ódýrasta Dýrasta Verðmunur
innkaupakarfan innkaupakarfan Kr. %
Stórm. í austurbæ Reykjav. 5.393 7.681 2.288 42%
Stórmarkaður í Hafnarfirði 5.432 7.515 2.083 38%
Hverfisverslun í Breiðholti 5.801 8.017 2.216 38%
Hverfisverslun í Kópavogi 5.723 7.622 1.899 33%
Hverfísv. í vesturbæ Reylg'av. 6.271 7.950 1.679 27%
Hverfisverslun í Breiðholti 6.530 8.113 1.583 24%
Hverfisv. á Seltjarnarnesi 6.504 7.665 1.161 18%
Ef miðað er við ýtrasta verðmun innan verslunar á helgarkörfum og reiknað
með helgarneyslu eins árs (þ.e. 50 helgarkörfur) er munurinn á dýrustu og
ódýrustu 58-114 þúsund krónur.
Eftirtaldar 45 vörur eru í helgarkörfunni:
Matarkarfa
ýsuflök
vínarpylsur
spægipylsa
jógúrt
fastur ostur, 26%
grænmetissalat
matlaukur
kartöflur
epli
heilhveitibr., sneitt
kornflögur
kókómalt
Gert er ráð fyrir mismiklu magni af hverri vöru og miðað við líklega neyslu
fjögurra manna fjölskyldu í þrjá daga. Sem dæmi um neyslu má nefna að reikn-
að er með 1,2 kg af ýsuflökum, 2,0 kg af lambalæri, 200 g af svínaskinku, 300
g af tómötum, 6 lítrum af mjólk, 375 g af kornflögum, 250 g af kaffi, 100 g
af þvottaefni o.s.frv.
kakó
sardínur
rósakál
hveiti
tómatsósa
kaffi
majones
kóla-drykkur
j arðarberj agrautur
þvottaefni.
klósettpappír
sjampó
lambalæri
svínaskinka
rrgólk
smjörlíki á brauð
súkkulaðiís
tómatar
kínakál
franskar kartöflur
kíví
þriggjakomabr., sneitt
maísbaunir
grænar baunir
rauðkál
bl. ávextir niðurs.
pakkasúpa, sveppasúpa
tekex
átsúkkulaði, hreint
pilsner
hreinn appelsínusafi
uppþvottaefni
tannkrem
Mestur munur á innkaupakörf-
unni í sömu verslun var 42%.
Karfan með ódýrustu vöruteg-
undunum kostaði 5.393 kr., en
karfan með dýrustu tegundunum
kostaði 7.681 kr. Verðmunurinn
var 2.288 kr.
Verðið á dýrustu matarkörfunni
í þessum 44 verslunum var
18-42% hærra en verðið á ódýr-
ustu körfunni í sömu verslun.
Ef miðað er við ýtrasta verðmun
innan verslunar á helgarkörfunni
og reiknað með helgarneyslu eins
árs (þ.e. 50 helgarkörfur) er
munurinn á dýrustu og ódýrustu
körfunni 58-114 þúsund krón-
ur.
Niðurstaða könnunarinnar er sú
að það er ekki síður mikilvægt að
gera verðsamanburð innan sömu
verslunar heldur en á milli verslana.
Musl - mussli
Ekki eru mörg ár síðan farið
var að selja svokallað mússli hér
í búðum. Ég fór að velta fyrir
mér, hvenær þetta hefði verið
fundið upp, en hafði ekki erindi
sem erfiði. Ég á gott safn gam-
alla matreiðslubóka, jafnt
íslenskra sem erlendra, og sumar
meira en aldagamlar, en fann
ekki þetta fyrirbæri fyrr en í
danskri matreiðslubók frá árinu
1953, en þar var það sem kallað
var mussli allt annað en það sem
við köllum því nafni. Það var
haframjöl lagt í bleyti í.marga
klukkutíma, síðan bætt í það rifn-
um eplum og hunangi og það
síðan borðað með ijóma. Nú
þekkja allir mussli eða musl eins
og hægt er að kalla það á íslensku,
það er einnig nefnt morgunkorn
enda algengast til morgunverðar
.út á súrmjólk eða aðrar sýrðar
mjólkurvörur. Musl er handhægt
og í flestum tilfellum hollt. Margs
konar heilt kom er ristað og oft
er hunangi og ávöxtum bætt í.
Við íslendingar borðum alls ekki
nógu hollan og mikinn morgun-
verð og er algengt að börnin komi
matarlaus í skólann á morgnana,
og þó að þau borði eitthvað, er
það æði oft lítið og ófullkomið.
En morgunverðurinn ætti einmitt
að vera sú máltíð sem. færir okkur
orku til að takast á við verkefni
komandi dags. Musl stendur alltaf
fyrir sínu og þegar því er bætt í
sýrða mjókurmatinn fæst þarna
góð máltíð með trefjum og ýmsum
næringarefnum. Flestir kaupa
musl tilbúið en hér birtist upp-
skrift af heimagerðu musli og
einnig af pönnukökum með musli
og svona til gamans bjó ég til
sælgæti með musli, sem hér birt-
ist uppskrift af. Vonandi hefur
einhver gaman af að spreyta sig
á „sæmilega holIu“ sælgæti. Ég!
á í fórum mínum brauðuppskrift
með musli, en sökum plássleysis
verður hún að bíða næsta þáttar.
Musl
1 dl rúgflögur
'h dl hveitiklíð
dl hafraklíð
dl hirsiflögur
dl hveitiflögur
dl hafraflögur
dl sesamfræ
dl sólblómafræ
1 msk. molassi
1 msk. hunang
y2 dl vatn.
1. Setjið allar mjöltegundir
ásamt fræjum í bökunarskúffu.
Þið getið haft færri tegundir en
þarna er til tekið, eða jáfnvel aðr-
ar sem ykkur dettur í hug.
2. Hitið bakaraofninn í 190°C,
blásturofn í 170°C. Setjið bökun-
arskúffuna í heitan ofninn, hreyf-
ið öðru hveiju til með spaða. Brún-
ið þannig í 7—10 mínútur.
3. Blandið saman molassa, hun-
angi og vatni. Hrærið vel saman.
Takið skúffuna úr ofninum og
ausið þessu yfir kornið með skeið.
Morgunblaðið/Einar Falur
jf| |~
Sijörnu-
fískur
íMiðbæ
Stjörnufiskur hf. heitir
verslun sem tekið hefiir
við af Sæveri í Miðbæ,
Háaleitisbraut 58-60.
Stjörnufiskur rekur einn-
ig fiskbúð á Hofsvalla-
götu 16. Nýr eigandi er
Pétur Gísiason og af-
greiðslustúlka er Halld-
óra Brynjarsdóttir.
Islenskur ferðamála-
skóli á Mallorca
ÍSLENSKUR ferðamála- og fararstjóraskóli verður starfræktur í
Palma á Mallorca 30. október til 20. desember næstkomandi. Kennd
verða ýmis undirstöðuatriði almennrar ferðaþjónustu, svo sem far-
seðlaútgáfa og hótelstörf, spænska, saga Spánar og menningar Mið-
jarðarhafslanda, leiðsögn ferðamanna á Spáni og fleira. Náminu lýk-
ur með prófurn og nemendur skírteini til staðfestinar á þátttöku og
námsárangri. Skólinn verður starfræktur í samstarfi íslenskra aðila
og spænskra ferðamálayfirvalda.
í fréttatilkynningu um skólann
segir, að hann muni starfa á hót-
eli, sem hafi meðal annars sérhæft
sig í að hýsa sams konar námskeið
annarra þjóða, er hafi um árabil
menntað fararstjóra sína og ferða-
þjónustufólk á hliðstæðan hátt.
Nemendur muni einnig búa og
borða á þessu hóteli. Kennt verði
fimm stundir á dag, alla virka daga.
Þar af verði tvær kennslustundir í-
spænsku fyrir byijendur og sé mið-
að við að nemendur nái það góðu
valdi á spænsku á þessum tíma, að
þeir geti bjargað sér sómasamlega
á spænsku á eftir.
. Skólastjóri verður Örnólfur
Árnason rithöfundur. Meðal kenn-
ara og fyrirlesara verða Halldór
Þorsteinsson MA, skólastjóri Mála-
skóla Halldórs, Jónas Hvannberg,
aðstoðarhótelstjóri á Hótel Sögu,
Gunnar Eyjólfsson, leikari, Sjöfn
Ágústsdóttir, sálfræðingur og
Gabriel Ferrer, hæstaréttarlögmað-
ur. Sérfræðingur frá Flugleiðum
mun kenna farseðlaútgáfu og störf
á flugvöllum auk þess sem fluttir
verða fyrirlestrar um heilsufar,
heilsugæslu og mataræði. Öll
kennsla, sem fram fer á erlendum
tungumálum verður túlkuð á
íslensku jafnóðum.
(Úr fréttatilkynningu)
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
r
I
»
4. Bakið áfram í 7—10 mínút-
ur. Hreyfið enn öðru hveiju með
spaða.
5. Takið úr ofninum, kælið
örlítið, setjið síðan í plastpoka og
myljið með kökukefli.
Lummur með musli
3 egg
4 dl mjólk
3 dl musl
3 msk. hveiti
'h msk. matarolía
2 kívi
nokkur vínber, u.þ.b. 30 stk.
1 dós sýrður ijómi, það fitustig
sem ykkur hentar
iy2 msk. hunang.
1. Setjið egg og mjólk í skál
og þeytið lauslega saman.
2. Setjið musl og hveiti út í og
látið standa í 10—15 mínútur.
3. Setjið matarolíu út í.
4. Hitið pönnukökupönnu og
bakið lummur úr deiginu. Hafið
miðlungshita og gætið þess áð
lummumar bakist í gegn.
5. Blandið saman sýrðum ijóma
og hunangi, smyijið yfir lumm-
urnar.
6. Afhýðið kívi og takið steina
úr vínbeijum. Setjið eina kívisneið
ofan á hveija lummu, raðið vín-
beijahelmingum í kring.
„Hollustu“-sælgæti
1 dl púðursykur
3 msk. hunang
2 tsk. smjör
1 dl musl
1 dl salthnetur (peanuts)
1 msk. kókosmjöl.
1. Setjið púðursykur og hunang
í pott. Hafið miðlungshita. Sjóðið
síðan við hægan hita í 10 mínútur
og varist að þetta brenni.
2. Setjið smjörið út í og sjóðið
í 2—3 mínútur.
3. Myljið salthnetumar laus-
lega, setjið þær, musl og kókos-
mjöl út í og sjóðið í 2 mínútur.
4. Smyijið álbakka vel, hellið
þessu í bakkann og látið kólna
að mestu, en bijótið í sundur áður
en það er orðið alveg kalt.