Morgunblaðið - 01.07.1989, Síða 7

Morgunblaðið - 01.07.1989, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDAGUR 1. JÚLÍ 1989 7 Mynd Karsh af Ernest Hemingway Kjarvalsstaðir; Ljósmyndir YouesefKarsh SYNING á mannamyndum ljós- myndarans Youesef Karsh var opnuð á Kjarvalsstöðum í gær. Karsh fæddist í Armeníu 1908, en flutti til Kanda 1924 og opnaði íjós- myndastofu sína í Ottava 1932. Arið 1941 varð hann heimskunnur fyrir mynd af Winston Churchill og nú er vörumerki hans að finna á ljósmynd- um og prentuðu máli um allan heim og verk hans eru að staðaldri til sýnis í helztu listasöfnum. Þessi sýn- ing, sem nú er á Kjarvalsstöðum, er afmælissýning, sem hefur verið sýnd í ýmsum Evrópulöndum öðrum. Sýningin stendur út júlímánuð. Reykhólasveit; Sláttur hefst seint í Reyk- hólahreppi Miðhúsum. SLÁTTUR mun vart heQast hjá bændum í Reykhólahreppi fyrr en undir næstu mánaðamót. Hjá sum- um bændum eru tún mjög illa far- in vegna kals og þar mun sláttur vart hefjast fyrr en um miðjan ágúst. Mikinn mun er að sjá á túnum sem verða að þola mikla sauðfjárbeit og á þeim túnum sem eru friðuð. - Sveinn. Vegagerð ríkisins; Tilboð opn- uð í tvö verk VEGAGERÐ ríkisins hefur opnað tilboð sem bárust í lagningu 7,6 km kafla á BorgarQarðarvegi milli Mýness og Eiða, og gerð undir- staða undir grjótnet í Óshlíð. Héraðsverk hf. átti lægsta tilboðið í Borgarfjarðarveg, rúmlega 25,6 milljónir, eða 78,6% af kostnaðará- ætlun, sem var rúmlega 32,6 milljón- ir. Austfirskir verktakar buðu rúm- lega 28,2 mil|jónir, eða 86,6% af kostnaðaráætlun. Fjögur tilboð bárust í gerð undir- staða undir gijótnet í Óshlíð. Eiríkur og Einar Valur hf. áttu lægsta til- boð, en þeir buðu tæplega 2,6 milljón- ir í verkið. ísbygg hf. bauð rúmlega 3,3 milljónir, Handtak hf. bauð rúm- lega 3,6 milljónir og Jóp Friðgeir ■•Einarsson bauð tæplega 3,8 milljónir. Kostnaðaráætlun verkkaupa var tæp- lega 2,3 milljónir. * Utflutningsnefiid Félags íslenskra stórkaupmanna: Utflutningur á gámafíski skal vera fíjáls MORGUNBLAÐINU hefiir borist eftirfarandi fréttatilkynning frá útflutningsnefhd Félags íslenskra stórkaupmanna: „Vegna áróðursherferðar form- anns LIÚ til að fá í sínar hendur úthlutun leyfa fyrir gámafisk, sem utanríkisráðuneytið hefur hingað til séð um, vill útflutningsnefnd Félags íslenskra stórkaupmanna ítraka það álit sitt, að þessi út- flutningur skuli vera frjáls. Ef hins vegar stjórnun ertalin nauðsynleg, lýsum við fullum stuðningi við núverandi stjórnun utanríkisráðu- neytisins og jafnframt teljum við að ekki komi til greina að afhenda LÍÚ þetta vald. LÍÚ hefur verið starfandi út- flytjandi ferskfisks í gámum og skipum og annast innflutning veið- arfæra. Við samþykkkjum alla eðlilega samkeppni í erlendum sem innlendum viðskiptum, en frábiðj- um viðskiptasamkeppni ^af hálfu stéttarfélags, sem LIÚ í raun er. Sem slíkt hefur LÍÚ margs konar forréttindi og tekjur. Fijálsir út- flytjendur bjóða fram þjónustu án allra kvaða eða forréttinda í fijálsri samkeppni og hafa útgerð- armenn séð sér hag í að nota hana við útflutning á gámafiski, þrátt fyrir að LÍÚ bjóði fram sömu þjón- ustu. Þá er rétt að fram komi að aðilar útflutningsnefndar Félags íslenskra stórkaupmanna annast yfir 20% af öllum útflutningi sjáv- arafurða landsmanna, en LÍÚ um 0,3%.“ Aðeins 35 kr.stk Komió / Blómaval og geríð góó kaup. Stjúpurnar eru án eta vinsælustu sumar- blómin á Islandi; þær eru í senn fallegar og harðgeróar og henta bæði í garðinn og útikerin. Nú bjóðum við úrvals stjúpur á aðeins 35 kr. stk. Landsbyggóarþjónusta - Sendum um land allt S YNING I TRÖNUHRAUNI 8 - HAFNARFIRÐI í dag og næstu daga. Sjón er sögu rikari! JRANSIT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.