Morgunblaðið - 04.07.1989, Qupperneq 1
maaaisfciaiCTii w—mnms
m
FRJALSAR / GRAND PRIX-MOTIÐ A BISLET
Calvin Smith vann
Lewis í fyrsta sinn
Besti árangurinn í ár í mörgum greinum náðist í Osló. Carl Lewis tapaði
í 100 og Cram aðeins fjórði í draumamílunni
BESTI árangur ársins náðist í
mörgum greinum á Grand
Prix-mótinu í frjálsíþróttum á
Bislet í Osló á laugardags-
kvöld. Norskt met í spjótkasti
kvenna sá dagsins Ijós; Carl
Lewis tapaði í 100 metrunum
og Bretinn Steve Cram vann
draumamíluna svokölluðu ekki
fimmta árið í röð. Þá þorði
Marokkómaðurinn Said Aoutia
ekki í Yobes Ondieki, nýja stór-
hlauparann frá Kenýu, í 5 km
hlaupi og norsku hlaupadrottn-
ingunni Ingrid Kristiansen mis-
tókst sú ætlan að setja heims-
met í 10 km hlaupi kvenna.
Til orðaskaks kom milli Cram og
Aouita eftir mótið. Sá síðar-
nefndi sagði þann breska hafa kom-
ið í veg fyrir að hann gæti tekið
þátt í míluhlaupinu en Cram sagði
Aouita ekki hafa þorað í Ondieki í
5 km af ótta við að tapa fyrir hon-
um öðru sinni á skömmum tíma.
Aouita var skráður í 5 km en vildi
fá að hlaupa míluna við komuna til
Ósló. Hljóp hann á endanum 3 km
og náði besta tíma ársins, 7:34,79.
Ondieki var lengst af á heims-
metshraða en hljóp einn og alveg
keppnislaust síðustu fimm hringina.
Náði hann 13:04,24, sem er einn
allra besti tími frá upphafi. Norskur
hlaupari, Are Nakkim, varð fjórði
á 13:19,82 og bætti 15 ára gamalt
landsmet Knuts Kvalheim
(13:20,54).
■Ólympíumeistarinn í 3.000 hindr-
un, Kenýumaðurinn Julius Kariuki,
náði besta tíma ársins í greininni,
hljóp á 8:14,39.
Bandaríkjamaðurinn Johnny
Gray náði næstbesta tíma ársins í
800 metrum, 1:43,39. Nýi kenýski
spútnikinn Robert Kibet hafði for-
ystu nær allt hlaupið og stefndi
lengst af í nýtt heimsmet en varð
að slaka á undir lokin og missti þá
Gray fram úr sér. Kibet fékk
1:43,70.
Petra Felke sigraði í spjótkastinu
(71,94) eftir harða keppni við
norsku stúlkuna Trine Solberg sem
setti nýtt norskt met, 71,12, og
kastaði í fyrsta sinn yfir 70 metra.
Solberg á vallarmetið í Laugardal.
Sovétmaðurinn Rodíon Gataúllín
reyndi að bæta stangarstökks-
heimsmet landa síns Sergej Búbka
um ljóra sentimetra með því að
reyna árangurslaust við 6,10 metra.
Cram gaf eftlr á endasprettin-
um
Cram hafði forystu í draumamíl-
unni á síðasta hring en aðrir áttu
meiri krafta eftir á endasprettinum
og varð hann íjórði. Ólympíumeist-
arinn í 1500 metrum, Sómalinn
Abdi Bile, var sterkastur, tók for-
ystu þegar 80 metrar voru eftir og
sigraði eins og meistara sæmir.
Calvin Smith, fyrrum heimsmet-
hafi í greininni, vann 100 metra
hlaupið og sigraði landa sinn Carl
Lewis, að því er þeir báðir töldu, í
fyrsta sinn. „Ég hljóp eins vel og
ég gat í kvöld. Var bara ekki betri,“
sagði Lewis, sem hélt upp á 28 ára
afmæli sitt á laugardag.
Loks reyndi norska hlaupa-
drottningin Ingrid Kristiansen að
gleðja heimamenn með því að slá
heimsmet sitt (30:13,74) í 10 km
hlaupi, sem hún setti á Grand Prix-
mótinu á Bislet 1986. Hafði hún
lengi vel keppni af bandarísku
hlaupakonunni Patti Sue Plumer
en hljóp síðustu hringina keppnis-
laust og reyndist ekki í nógu góðri
æfingu til að slá metið, hljóp á
30:48,51 mín., og var því um 25
sekúndur frá því.
■ Úrslit / B11
■ Besti árangurinn í
ár / B10
ItriWR
FOLK
■ DAVID Jenkins, breska
stjarnan í 400 metra hlaupi, var
fyrr í þessum mánuði látinn laus
eftir eins árs fangavist í Kali-
forníu. Hann hafði hins vegar ver-
ið dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir
að selja stera. Jenkins var á sínum
tíma heilmikill hlaupagikkur, en
þrátt fyrir að hafa játað stera-
neyslu fyrir Ólympíuleikana í
Montreal 1976 og Moskvu fjórum
árum síðar, lenti hann einungis í
7. sæti í bæði skiptin. Hann státar
hins vegar af silfurpeningi í 4x400
metra boðhlaupi frá Ólympíuleik-
unum í Milnchen árið 1972.
■ JÓN ARNAR Mngnússon
felldi bytjunarhæð í stangarstökku
á Norðurlandamótinu í tugþraut
unglinga, sem fór fram í Kaup-
mannahöfn um heigina. Jón Arn-
ar náði ekki að stökkva 3.50 m,
en yfirleitt er hann nokkuð öruggur
með að stökkva 4.00 til 4.30 m.
Hann var með forustu í tugþrauta-
keppninni þegar stangarstökk-
skeppnin byijaði og allt leit út fyrir
að hann myndi ná að veija Norður-
landameistaratitil sinn.
■ DAWN Sowell frá Banda-
ríkjunum er ný „Flo-Jo“ Griffith.
Þessi 23 ára stúlka hefur náð best-
um tíma í 100 og 200 m hlaupi í ár
- 10,93 sek. og 22,04 sek. Þess
má geta að Sowell hljóp 100 m í
fyrra á 11,19 og 200 m á 23.13 sek.
■ ALÞJÓÐA knattspymusam-
bandið, F/FArannsakar nú félaga-
skipti sænska landsliðsmannsins
Stefan Relin. Svissneska liðið Ne-
uchatel Xamax hefur mótmælt
félagaskiptum Rehn frá sænska
„Dýragarðinum" yfir í Everton á
þeim forsendum að hann hafi áður
gert samning við þá. Talsmenn
Everton segjast á hinn bóginn viss-
ir um að Rehn hafi ekki skrifað
undir neitt hjá Xamax og eini bind-
andi samningurinn sé sá sem Svíinn
gerði við Everton.
■ UNGLINGAR á vegum borð-
tennisdeildar Víkings eru á förum
í æfingabúðir í Ölstykke íDan-
mörku. Þar verða á þriðja hundrað
manns frá öllum Norðurlöndunum
við æfingar og keppni næstu vik-
una.
■ SIGURÐUR Jónsson, gjald-
keri Golfklúbbs Suðurnesja, verð-
ur mótsstjóri Landsmótsins í golfi
sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru
um mánaðarmótin júlí-ágúst.
Calvin Smith náði loksins að skjóta Carl Lewis ref fyrir rass.
FRJALSAR / TUGÞRAUT
Stefán Þór
með 6.503 stig
í Laugardalnum
STEFÁN Þór Stefánsson,
ÍR, náði 6.503 stigum ítug-
þraut á innanfélagsmóti IR
í Laugardal um helgina.
Agnar Steinarsson, ÍR, varð
annar með 5.515 stig en
hann gerði ógilt í kringlu-
kasti og varð þar af um 500
stigum a.m.k.
Arangur Stefáns Þórs í ein-
stökum greinum þrautar-
innar var sá að hann hljóp 100
metra á 10,9, stökk 6,42 í lang-
stökki, varpaði kúlu 10,84,
stökk 1,89 í hástökki, hljóp 400
metra á 52,5,110 metra grinda-
hlaup á 14,8, kastaði kringlu
35,64, stökk 3,40 í stangar-
stökki, kastaði spjóti 48,78 og
hljóp loks 1500 metraá 4:51,4.
Agnar hlaut 6.039 stig í tug-
þraut í Arendal í Noregi í apríl
og af einstökum greinum má
nefna að hann hljóp þá 1500
metra á 4:25,0 og stökk 3,70 í
stangarstökki.
í fyrstu grein þrautarinnar á
laugardag, 100 metra hlaupi,
tóku fleiri þátt. Einar Þ. Einars-
son, Ármanni, sigraði á 10,8
sek. Síðan kom Stefán Þór, þá
Gunnar Guðmundsson, UÍA, á
11,0, Agnar hljóp á 11,4 og
Þórður Magnússon, FH, á 11,5.
GETRAUNIR: 2 2 X 1 1 2 2 1 2 2 2 1
LOTTO: 9 11 14 15 16 /6