Morgunblaðið - 04.07.1989, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
f^RSyyUAGUR 4. JÚLÍ 1989
B 9
■9---B---
SKOTFIMI / ISLANDSMOTI LEIRDUFUSKOTFIMI
Einar Páll jaf naði
íslandsmetið og
náði ól-lágmaki
EINAR Páll Garðarsson úr SR varð
íslandsmeistari íleirdúfuskotfimi sem
fram um helgina. Hann jafnaði íslands-
met Gunnars Kjartanssonar, hlaut 184
stig af 200 mögulegum sem jafngildir
ólympíulágmarkinu fgreininni.
Einar Páll varð að skjóta allar 25 dúfurn-
ar í síðasta hring til að verða efstur
fyrir úrsiitin og það tókst. Víglundur Jóns-
son náði einnig að skjóta allar dúfurnar í
í leirdúfuskotfimi „skeed“ eru
tvö hús, nefnist annað turn og
hitt mark (háturn og lágturn).
Leirdúfunum er kastað úr þess-
um húsum með þar til gerðum
kastvélum. Skotið er á dúfurnar
frá átta skotstæðum. Skotstæð-
um eitt til sjö er raðað með jöfnu
bili á bogalínu, _sem dregin er á
milli húsanna. I hverri umferð
eða hring er skotið á 25 dúfur
eftir ákveðinni röð. í keppni eru
skotnar átta umferðir samtals
200 dúfur.
ValurB.
Jónatansson
skrífar
1. hring á öðrum degi. Þetta
var í fyrsta sinn sem kepp-
endur ná fullu húsi á íslands-
móti.
Einar Páll náði að skjóta
niður 184 dúfur af 200 mögulegum, eða
einni meira en Emii Kárason sem varð í
öðru sæti. Sigurður Gunnarsson varð þriðji
með 179, Hjálmar Ævarsson í fjórða með
173, Víglundur Jónsson í fimmta með 172
og Theodór Kjartansson í sjötta með 164
stig. Sama röð var á keppendum eftir úrslit-
in. Einar Páil skaut 23 dúfur og kom inn
á samtals 207, Emil skaut 21 og hlaut 204,
Sigurður skaut 20 og hlaut 199, Hjálmar
Ævarsson skaut 23 og hlaut 191, Víglund-
ur skaut 19 og hlaut 191 og Theodór skaut
19 og hlaut 183 stig.
Alls voru 16 keppendur sem tóku þátt í
mótinu og var skorið mjög gott í heildina.
Sex efstu menn eftir 8 umferðir léku til
úrslita, einn hring.
Skotfélag Reykjavíkur sigraði í sveita-
keppni, sem nú fór fram í fyrsta sinn. SR
hlaut 400 stig af 450 mögulegum. Skotfélag
Hafnarljarðar hlaut 325 stig.
Ungur skotmaður úr Hafnarfirði, Alfreð
K. Alfreðsson, varð í 7. sæti með 161 stig
og kom það nokkuð á óvart þar sem hann
er nýbyijaður að æfa.
GOLF / EM
ísland í
13. sæti
-eftirsigurá
Portúgal og Sviss
ÍSLENSKA landsliðið í golfi
varð í 13. sæti af 20 á Evr-
ópumóti áhugamanna sem
lauk í Wales á sunnudaginn.
Englendingar sigruðu og
Skotar höfnuðu í öðru sæti.
Fyrst var keppt í höggleik
þar sem árangur réði úrslit-
um um skiptingu í riðla. ísland
hafnaði þar í 13. sæti og lék því
í B-riðli eða um 9. til 15. sætið.
Úlafar Jonsson lék best íslend-
inganna í höggleiknum, eða 150
höggum og var einn af 10 bestu.
Sigurjón Arnarsson kom næstur
með 160 högg. Þá Ragnar Ól-
afsson með 163, Hannes Ey-
vindsson með 166, Sigurður Sig-
urðsson 167 og Guðmundur
Sveinbjörnsson með 168 högg.
í holukeppninni tapaði Island
fyrir Ítalíu naumlega á föstu-
dag, 3:4. Sigraði síðan Portúgal
5:2 og Sviss 4:3 og hafnað í 13.
sæti.
Lokaröðin var þessi: England,
Skotland, írland, Wales, Noreg-
ur, V-Þýskaland, Frakkland,
Spánn, _ Italía, Holland, Dan-
mörk, ísland, Sviss, Finnland,
Portúgal, Belgía, Grikkland,
Austurríki og Tékkóslóvakía.
MJOLKURBIKARKEPPNI KSl
Fótboitaveisla á Hlíóarenda
íkvöldhl. 20.00
VALUR
VIKINGUR
Fföimennum á stórleik
Heppnir áhorfendur fá
Hi Tech íþróttaglaóning
SJOVAHHrfALMENNAR
Suðurlandsbraut 4 og Síðumúla 39. Umboðsmenn um allt land.
M
METRO
— afburða íþróttaskór!
LITSÝN
Feriíaskrifstofan Vtsp hf.
MONDOITALIA '90
fótboltar