Morgunblaðið - 04.07.1989, Síða 12
B L A Ð A L L R A LANDSíViANNA
n
1989 ■ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ BLAD D
ÞROSKAHEFTIR
Fjögur gull
í Svíþjóð
Islendingar unnu fjögur gull á fyrsta keppnisdegi
heimsleika þroskraheftra, sem hófst í gær í
Hemesand í Svíþjóð. Sigrún Huld Hrafnsdóttir
fékk tvenn gull - sigraði í 50 m skriðsundi (37,06
sek.) og 100 m bringusundi (1.37,70 mín.). Guðrún
Ólafsdóttir fékk gull í 200 m baksundi - 3.28,41
mín. og Gunnar Þ. Gunnarsson fékk gull í 50 m
flugsundi (33,30 sek.). Gunnar Þ. fékk silfur í 400
m skriðsundi. Bára B. Erlingsdóttir fékk tvenn
silfurverðlaun — í 100 m bringusundi og 50 m flug-
sundi. Þá fékk Gunnar Þ. bronsverðlaun í 50 m
skriðsundi.
„Spuming um
landsliðið"
■Sigi Held,
landsliðs-
þjálfari
Islands.
Siegfried Held
til Tyridands?
Tyrkneska félagið Galatasaray hefur boðið Siegfried Held
8,8 milljón kr. nettó íárslaun og auk þess villu og glæsivagn
„SIEGFRIED Held, landsliðs-
þjálfari íslands í knattspyrnu,
er á förum til Tyrklands - til
að taka við frægasta félagsliði
Tyrkja, Galatasaray frá ístan-
búl,“ sagði v-þýska blaðið Kic-
kerfrá í gær. Blaðið sagði frá
því að Held hafi farið til Tyrk-
lands til að ræða við for ráða-
menn félagsins. Þeir buðu hon-
um tveggja ára samning, en að
sögn v-þýska blaðsins vildi
Held byrja á eins árs samningi.
Blaðið segir að Heid eigi að fá
8,8 millj. ísl. króna í árslaun
og auk þess villu og glæsivagn. Þá
segir Kicker að aðeins eitt geti
staðið í vegi Helds. Þ.e.a.s. að hann
sé landsliðsþjálfari íslands og hann
hafi verið búinn að ákveða að
stjórna landsliði íslands í undan-
keppni heimsmeistarakeppninnar.
„Held er ekki með skriflegan samn-
ing við íslendinga. Hann gerði
munnlegan samning við þá,“ segir
í grein blaðsins. „Það er því ekki
auðvelt fyrir Held að fá sig lausan."
Sagt er frá því að Held fari til
íslands í vikunni til að fá sig lausan
og væntanlega muni hann skrifa
undir samning við Galatasaray í
næstu viku.
Galatasaray er eitt fjársterkasta
félagslið Evrópu og er nær alltaf
uppselt á heimaleiki liðsins - á Ali
Sami Yen-leikvellinum, sem tekur
35 þús. áhorfendur. Jupp Derwall,
fyrrum landsliðsþjálfari V-Þýska-
lands, er dýrlingur hjá félaginu eft-
ir að hann gerði það að meisturum
1987 og 1988.
Aðstoðarþjálfari Held verður
þýskur, Wolfgang Sandhowe, sem
var einnig aðstoðarþjálfari sl.
keppnistímabil. Þá þjálfaði Mustafa
Denizli, fyrrum landliðsþjálfari
Tyrklands, liðið.
Eins og menn muna þá komst
Galatasaray í undanúrslit Evrópu-
keppni meistaraliða á dögunum,
með því að slá Mónakó út. Með lið-
inu leika margir kunnir kappar.
Frægastur þeirra er markaskorar-
inn Tanju Colaks.
Það er greinilegt að glæsilegur
árangur Helds með íslenska lands-
liðið hefur skapað honum nafn sem
þjálfari á heimsmælihvarða.
- sagði Held. „Tilboð eins og liggurfyrirfær maðurekki nema einu sinni á ævinni, en ég
hef ekki skrifað undir neinn samning." Til greina kemur að vera með bæði liðin
„EG var í Istanbúl fyrir helgi
og ræddi við forráðamenn
tyrkneska félagsins Galatas-
aray umtilboðið, sem þeir
gerðu mér. Það má segja að
tilboð eins og liggur fyrir fær
maður ekki nema einu sinni
á ævinni, en ég hef ekki skrif-
að undir neinn samning. Það
er ekkert vandamál að flytja
til Tyrklands, en þetta er ekki
aðeins spurning um mig,
heldur einnig íslenska lands-
liðið,“ sagði Siegfried Held i
samtali við Morgunblaðið
seint í gærkvöldi.
Held kemur til íslands í dag
vegna þessa máls og ræðir
við Ellert B. Schram, formann
Knattspyrnusambands Islands um
framhaldið. Ellert segir að Held
sé bundinn KSÍ út tímabilið, en
sú hugmynd hefur skotið upp
kollinum að Held haldi áfram með
landsliðið, þó hann taki tilboði
Tyrkjanna.
„Allt er mögulegt“
„Ég ræði tilboð Tyrkjanna við
Ellert sem og landsliðsmálin og
svo sjáum við til, en ég vil ekki
tala opinberlega um samning
minn við KSÍ. Hvað framhaldið
varðar, ,þá er alit mögulegt og
vonandi komumst við að niður-
stöðu, sem allir aðilar geta sætt
sig við,“ sagði Held. „Ekkert hef-
ur verið ákveðið með framhaldið,
en við ræðum alla möguleika."
Aðspurður sagði Held að æf-
ingar hjá Galatasaray fyrir næsta
keppnistímabil byrjuðu 17. júlí,
en næsta verkefni landsliðsins er
viðureign við Austurríki í Salz-
burg 23. ágúst og síðan verða
tveir leikir í september. Hann vildi
ekki segja hvort hann yrði með
liðið í þessum þremur leikjum, en
sagði að allir þjálfarar vildu vera
með lið í úrslitakeppni Heims-
meistaramótsins.
Ánægjulegur tími
„Ég yrði mjög ánægður ef
íslenska landsliðið tryggði sér far-
seðilinn til Ítalíu og ég færi með
því þangað. Tími minn með lands-
liðinu hefur verið mjög ánægju-
legur og ég get sagt með sanni
að ég elska þetta lið. Ekkert er
ánægjulegra en að þjálfa svona
lið og stjórna því i úrslitakeppni
Heimsmeistaramótsins," sagði
Held.
■ Sjá einnig viðtal
við Ellert B.
Schram/B3:
„Viljum að Held
Ijúki verkefninu“