Morgunblaðið - 22.07.1989, Qupperneq 1
MENNING
LISTIR .
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1989 r BLAÐ
Börn og listir
I dag lítum við aðeins á áhrif listauppeldis á börn. Það er að segja, ræðum
við nokkra aðila um hvaða áhrif upplifun af listviðburðum hefur á börnin,
hvernig hægt er að virkja þau og gera þátttakendur í listsköpun og hvaða
gildi það hefur að velja listgreinar til að fylla upp í tómstundir barnanna
Við ræðum við Þórhall Sigurðsson, leikara og leikstjóra, um börn og leikhús,
við þær Eddu Scheving og Sigríði Armann, ballettkennara, sem reka einka-
skóla fyrir börn frá fjögurra ára aldri og við Sveinbjörgu Vilhjálmsdóttur, tón-
listarkennara og skólastjóra Tónlistarskóla Bessastaðahrepps, sem hefur náið
samstarf við dagheimili hreppsins hvað varðar tónlistarkennslu barna undir
skólaaldri
Nútímalist frá Epinal
Það er ekki á hverjum degi sem við fáum að sjá það sem
hæst ber í alþjóðlegir myndlist dagsins í dag. Við höfum
um langan tíma fengið greinar frá Einari Guðmundssyni sem
skrifar um sýningar evrópsku og bandarísku „stóru nafn-
anna," þegar sýningar þeirra standa yfir í Evrópu. En nó
getum við semsagt fengiö að berja verk þessarra manna
eigin augum á Kjarvalsstöðum, þar sem í dag opnar sýning
á nútímaverkum frá Epinal safninu í Frakklandi. Á miðopnu
er grein sem Gunnar Kvaran skrifar í tilefni af sýningunni