Morgunblaðið - 22.07.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.07.1989, Blaðsíða 7
B 7 - MÖRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22, JÚLÍ 1989 Morgunblaðið/BAR Edda Scheving ballettkennori. Það er ekki fyrr en þau eru orð- in átta til tíu ára sem þau fara að skilja undirstöðuna í klassískum ballet og taka því rétt. Eg reyni aldrei að móta þau mjög ung, það getur bara eyðilagt fyrir þeim. Enda tekur Þjóðleikhúsið ekki böm fyrr en þau eru níu ára, þá eru þau orð- in það þroskuð að þau skilja alvör- una í þessu, því að þetta er auðvit- að mjög erfitt." — Hvað er þá unnið við að fá börnin svona ung? „Þau hafa svo gott af því. Þetta er svo gott tjáningarform, að hlusta á tónlist og tjá sig í litlum dönsum, dýradönsum, blómum og fiðrildum. Þetta er lika myndrænt, þau búa kannski t-il smá sögu og þau eiga að dansa hana. Svo sýna þau sög- una hvert fyrir sig.“ — Hefur það mikla þýðingu fyrir Rætt við Sigríði Armann og Astu Björns- dóttur um ballettnám það líka erfitt að halda börnunum ánægðum, þvi þau halda að þau geti gert mikið meira en þau í raun- inni geta. Þeim þykir það enginn vandi að gera það sem þau sjá aðra gera sem eru komnir lengra, þau skiija ekki að þetta þarf að koma rólega. En það er líka gaman að fylgjast með byrjendum sem koma inn í sal og hafa ekki verið í ballett áður. Það er byijað á því að kenna þeim undirstöðuna og þau verða óskap- lega hissa, vegna þess að það er ekki bara byijað að dansa, heldur byijað á æfingum, fyrst fótaæfing- um, síðan handahreyfingum og höf- uðhreyfingum. En eftir þvi sem liður á sér maður hvernig þau fara að skilja æfingarnar og leggja metnað sinn í að gera þær sem best.“ — En hvað með strákana? „Því miður vantar okkur alltaf herra og það er ekkert einsdæmi þann sem ætlar út í ballettnám að hafa byijað ungur? „Ég myndi segja að það væri alveg nóg að byija sjö til átta ára og allt í lagi að byija UPP ' n'u til tíu ára gömul. En það skaðar auð- vitað ekki að þau hafi lært að hreyfa sig, hlusta á tónlist og tjá sig. Þau skilja alvöruna í þessu ekki fyrr en átta til tíu ára, eins og ég sagði. En þau hafa mjög gott af því að hlust á tónlist og tjá sig. Þetta er myndrænt, tónlist, tjáning, dans og leiklist. Allt þetta fer saman.“ — Hefur þetta mælst það vel fyrir að þú ætlir að halda þessu áfram? „Já, það geri ég alveg örugglega. Þetta tókst svo afskaplega vel síðasta vetur.“ SN hér á íslandi. Vonandi kemst það í tisku fyrir karlmenn að fara í ballett. Þetta er einhver hræðsla við ballettinn. Helsta ástæðan fyrir því að það eru svo fáir strákar í ballett gæti verið sú að það hafa aldrei byijað nógu margir í einu. Til dæmis ef í einum bekk væru nokkrir strákar í ballett gætu þeir haft þau áhrif á bekkjarbræður sína að þá langaði til að prófa. En ef það er bara einn þá á hann í vök að veijast og er jafnvel álitinn eitt- hvað skrítinn." — Væri ekki möguiegt að bjóða upp á sérstakan stákahóp? „Það mætti reyna það, tii dæmis að auglýsa sérstaklega eftir þeim. Við höfðum þijá stráka hér fyrir skömmu en nú er bara einn eftir sem reyndar er mjög efnilegur. Það væri kannski sniðugt að bjóða heilu fótboltaliði í tíma. Þeir hefðu nefnilega gott af að æfa þetta, því þessi þjálfun skilar sér líka annars staðar en bara í ballett- inum. Það er kannski það sem strákarnir hafa ekki uppgötvað enn.“ ' — Hvar stendur baliettinn gagn- vart annárri tómstundaiðkun barna? „Baliettinn er alltaf að vinna á. En það er mjög mikið um það að þau börn sem eru hér í ballett séu líka að læra á eitthvað hljóðfæri, í myndlist eða jafnvel að æfa sund. Málið er svolitið erfitt að því leyti að meðan að skólar eru ekki ein- setnir fáum við börnin ekki fyrr en seint á daginn, sem er mjög slæmt. Þau eru búin með allan sinn skóla- dag og koma tii okkar uppgefin. Þau sýna mikinn áhuga með því að leggja þetta á sig eftir erfiðan skóladag. Þetta eru börn sem vakna Morgunblaðið/Einar Falur Sigríður Ármanni ballettkennari og dóttir hennar, Ásta Björnsdóttir. klukkan sjö á morgnana og koma til okkar ekki fyrr en fjögur til sjö siðdegis. Það væri óskaplegur mun- ur ef við gætum byijað að kenna klukkan tvö á daginn.“ — Getið þið að lokum skýrt í fáum orðum hvað ballett gefur börnum? „Ballettinn veitir börnum sjálfs- aga og sjálfstraust með sinn eigin líkama. Börnin kynnast og læra að hlusta á klassíska tónlist, sem við notum alltaf með æfingunum og skiptir miklu máli. Þá er ballettinn mjög góður fyrir þau börn sem eru lokuð og feimin, hann opnar þau og þeim líður oft mikið betur. Ballettnám er í raun sjálfsagt í uppeldi hvers barns sem kost hefur á því, vegna þess að það býr að því alla ævi að hafa þjálfað líkama sinn. Þó það ætli kannski ekki að halda áfram á þessari braut, mun það njóta þess svo mikið betur að horfa á listgreinina. Það þarf nefni- lega líka að þjálfa upp áhorfendur." SN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.