Morgunblaðið - 25.07.1989, Side 3
B 3
MORGUNBLAÐE)
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. JULI 1989
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Varamaður-
inn tryggði
Víkingi
jafntefli
undir lokin
HANN var ekki rismikill, leikur
Víkings og Þórs á Víkingsvelli
í gærkvöldi. Hins vegar var
mikið um góð færi á báða bóga,
þótt liðunum tækist aðeins að
skora sitt markið hvort. Telja
verður úrslitin sanngjörn þegar
á allt er litið.
Vikingar voru sprækari til að
byrja með og oft munaði mjóu
við Þórsmarkið. Þegar líða tók á
hálfleikinn urðu Þórsarar sífellt
ágengari upp við
mark Vikinga en
það var sama sagan
og hjá Víkingum -
inn vildi knötturinn
ekki.
Óöryggi
Upphaf síðari hálfleiks einkennd-
ist af fremur fálmkenndu spili og
óöryggi eins og fyrir hlé en á 60.
mínútu fékk Björn Bjartmarz sann-
.kallað dauðafæri en beið of lengi
með að skjóta og varnarmaður Þórs
komst í veg fyrir skotið.
Guðmundur
Jóhannsson
skrifar
Aðeins fimm mínútum síðar skor-
uðu Þórsarar. Bojan Tanevski gaf
háa sendingu inn fyrir vörn Víkinga
og allt í einu var Hlynur Birgisson
einn og óvaldaður í dauðafæri og
skoraði af öryggi framhjá Guð-
mundi Hreiðarssyni, 1:0.
Við þetta hljóp nokkurt fjör í leik-
inn. Hlynur var nálægt því að bæta
við öðru marki en Víkingar lögðu
allt kapp á sóknina. Fimm mínútum
fyrir leikslok tókst Víkingum síðan
að jafna. Hallsteinn Arnarson gaf
fyrir frá endamörkum á fjarstöng-
ina og þar skallaði Björn Einarsson
knöttinn í netið og jafnaði metin
1:1. Björn hafði fimm mínútum
áður komið inn á fyrir nafna sinn
Bjartmarz.
Örskömmu síðar var Atli Einars-
son nærri því búinn að tryggja
Víkingum sigur. Hann skallaði bolt-
ann fyrir opnu marki en á einhvern
óskiljanlegan hátt tókst Baldvini
Guðmundssyni, markverði Þórs, að
krafsa í boltann og veija. Þar með
var 1:1 jafntefli staðreynd.
A-f leiknum mátti dæma að hann
Víkingur-Þór
Víkingsvöllur, íslandsmótið 1. deild, mánudaginn 24. júli 1989.
Mark Víkings: Bjöm Einarsson (86.).
Mark Þórs: Hlynur Birgisson (65.).
Gult spjald: Ekkert.
Dómari: Ólafur Sveinsson, dæmdi sæmilega.
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson, Hallsteinn Amarson, Stefán Aðalsteinsson, Atli
Helgason, Bjöm Bjartmarz (Bjöm Einarsson vm. á 81. mín.), Unnsteinn Kárason,
Ámundi Sigmundsson (Jón Oddsson vm. á 46. mín.), Luðvík Bragason, Atli Einarsson,
Aðalsteinn Aðalsteinsson.
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Luca Kostic, Nói Bjömsson, Þorsteinn Jónsson, Bojan
Tanevski (Bjami Sveinbjömsson vm. á 88. min.), Birgir. Karlsson, Júltus Tryggvason,
Sveinn Pálsson, Hlynur Birgisson, Ólafur Þorbergsson, Kristján Kristjánsson ( Sævar
Árnason vm. á 83. mín.).
Morgunblaðið/Júlíus
Ámundi Sigmundsson, Víkingi og Bojan Tanevski, Þór, sjást hér beijast
um knöttinn í gærkvöldi.
var barátta botnliða. Leikurinn var
„sex stiga leikur" í þeirri baráttu
og úrslitin voru sanngjörn. Luca
Kostic var bezti maður vallarins og
er óhemju sterkur í vöm Þórs.
Staðan/B6
GOLF
Landsmót
Landsmótið í golfí verður haldið
á Hólmsvelli í Leiru 31. júlí til
6. ágúst. Síðasti, skráningadagur
er í dag og liggja frammi skráninga-
blöð í öllum golfklúbbum. Einnig
er hægt að tilkynna þátttöku í síma
92-14100 - golfskálanum í Leiru.
ínémR
FÓLK
■ GRAHAM Taylor, fram-
kvæmdastjóri Aston Villa, snaraði
400 þús. pundum á borðið í gær
og keypti Paul McGrath, miðvörð
Manchester United. Hann er 29
ára og hefur lengi átt við meiðsli
að stríða á hné. „Eg var að kaupa
einn af þremur bestu miðvörðum
Bretlandseyja,“ sagði Taylor.
■ BIIASILÍA vann Japan, 1:0,
í vináttulandsleik í Ríó. Aðeins 3
þús. áhorfendur sáu Bismarck
skora sigurmarkið á 74. mín.
■ TVEIR knattspyrnukappar voru
sektaðir í gær hjá FIFA - alþjóða
knattspymusambandinu, fyrir
samningsrof við önnur félög.
Maurice Johnston, sem gekk til
liðs við Glasgow Rangers, var
sektaður um 290 þús. ísl. kr fyrir
að hafa ekki komið hreint fram við
Celtic og Svíinn Stefan Rehn, sem
Everton keypti, var sektaður um
145 þús. kr. fyrir að ganga á bak
orða sinna við svissneska félagið
Neuchatel Xamax.
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI
Skagastúlkur hristu
„bikardrauginn" af sér
Bundu enda á sigurgöngu. Vals í bikarkeppninni
SKAGASTULKUR bundu ■ gær-
kvöldi enda á fimm ára sigur-
göngu Vals í bikarkeppninni.
Liðin mættust undanúrslitum
og urðu leikslok þau að ÍA sigr-
aði 0:1 og tryggði sér þar með
sæti í úrslitum gegn KA eða
Þór. Valsstúlkur sitja hins veg-
ar eftir með sárt ennið og
fyrsta tap í bikarkeppni síðan
1983!
Liðin sem sem léku í blíðunni á
Hlíðarenda í gærkvöldi hafa
leikið til úrslita í bikarkeppninni
fjómm sinnum á síðustu fimm ámm
og alltaf hafa Vals-
Katrín stúlkur farið með
Friðriksen sigur af hólmi.
skrifar Skagastúlkur
mættu greinilega til
leiks í gær með því hugarfari að
breyta gangi mála og uppskám eins
og þær sáðu.
Fyrri hálfleikur var markalaus
og baráttan var í fyrirrúmi hjá báð-
um liðum þrátt fyrir að gestirnir
hefðu þar vinninginn. Skagastúlk-
urnar vom mun ákveðnari og unnu
flest návígi en mörkin létu á sér
standa. í síðari hálfleik jafnaðist
leikurinn eftir því sem Valsliðið
komst betur inn í leikinn. Sóknir
Skagaliðsins vom þó sem áður mun
þyngri.
Kristín Arnþórsdóttir var nálægt
því að koma Valsliðinu yfir snemma
í síðari hálfleik en Steindóra Steins-
dóttir varði vel gott skot hennar
utan úr miðjum teig. Skömmu síðar
kom mark ÍA. Margrét Ákadóttir
rak þá endahnútinn á fallega sókn
með þrumuskoti sem Guðrún Sæ-
mundsdóttir varnarmaður Vals náði
að komast fyrir. Margrét náði
knettinum aftur og skoraði ömgg-
lega af stuttu færi.
Þegar leið að leikslokum þyngd-
ist sókn Vals til muna og Skaga-
stúlkur skmppu með skrekkinn
þegar vamarmaður ÍA bjargaði af
línu frá Magneu Magnúsdóttur.
Allt kom fyrir ekki og fögnuður
Skagastúlkna var að vonum mikill
þegar flautað var til leiksloka.
Sanngjarn sigur þeirra var í höfn
og „bikardrottningar" undanfar
inna ára úr leik að sinni.
ÍÞfémR
FOLK
■ A-ÞJÓÐVERJAR verða með
tvö landslið á ferðinni hér á landi
byijun september. Það em bæði
knattspymu- og handknattleiks-
landslið þeirra. Island leikur gegn
A-Þýskalandi á Laugardalsvell-
inum 6. september í heimsmeist-
arakeppninni í knattspymu. Sama
kvöld leikur a-þýska landsliðið S
handknattleik vináttulandsleik
Segn Islandi á Akureyri.
I A-ÞÝSKA landsliðið í hand-
knattleik leikur einnig gegn
íslenska landsliðinu 7. september.
Sá leikur fer fram í nýja íþróttahús-
inu í Garðabæ.
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik tekur þátt í fjögurra þjóða
móti í Sviss 20. október, ásamt
landsliðum Sviss, A-Þýskalands
Sovétrikjanna.
FINNUR Birgir Jóhannsson,
líumaðurinn snjalli í handknattleik,
sem genginn er til liðs við Víking,
var sagður Jóhannesson í blaðinu
á laugardag og er beðist velvirðing-
ar á mistökunum.
ÁRNI Guðmundsson lék sinn
100. leik með 4. deildar liði Árvak-
urs í knattspyrnu fyrir helgi. Hann
er fímmti leikmaður hins unga fé-
lags, sem nær þessum áfanga, en
hinir em Björn Pétursson, Þor-
lákur Björnsson, Snorri Giss-
urarson og Grétar Guðmundsson.
— JÓHANN Jónsson, sem kepp-
ir fyrir Víði, Garði, sigraði í tveim-
ur greinum í flokki 70 til 74 ára á
Opna bandaríska meistaramótinu
í fijálsíþróttum um helgina. Hann
stökk 4,25 m í langstökki og 9,45
m í þrístökki. Hann kastaði spjótinu
36,12 m og hafnaði í 2. sæti, en
kringlan flaug 30,46 m, sem var
qötta lengsta kast mótsins.
ÓLAFUR Unnsteinsson,
HSK, keppti einnig á mótinu — í
flokki 50 til 54 ára. Hann varð
fjórði í kringlukasti (43,94 m) og
áttundi í kúluvarpi (12,62 m). Þeir
félagar keppa í HM öldunga í
Oregon seinna í vikunni.
■ HALLA S. Heimisdóttir,
Ármanni, kastaði kringlu 39,44 m
á meistaramóti íslands í fijáls-
íþróttum (15 til 18 ára) um helg-
ina, sem var besta afrekið í meyja-
flokki. Kastið er jafnframt met í
meyja- og stúlknaflokki. Halla, sem
er systurdóttir Sigurðar Einars-
sonar, spjótkastara, sigraði einnig
í spjótkasti (32,38 m) og kúluvarpi
(9,51 m).
ÞÓRA Einarsdóttir, UMSG,
náði bestum árangri í stúlkna-
flokki, er hún stökk 1,77 m í há-
stökki. __
RÚNAR Stefánsson, ÍR,
hljóp 200 m á 23,0 sek. og stóð sig
best í flokknum. Hann og Þóra
fengu farmiða að eigin vali innan-
lands í verðlaun frá Flugleiðum.
■ SVEIT ÍR setti met í 4 x 100
m boðhlaupi sveina, fór á 47,5 sek-
úndum.
■ KEPPENDUR HSÞ vöktu
mikla athygli fyrir vasklega fram-
göngu — sigruðu í 13 greinum.
Þátttakendur á mótinu voru 215 frá
22 félögum og héraðssamböndum.
■ HAUKUR Gunnarsson, ÍFR,
sigraði í 100 m hlaupi á alþjóðlegu
móti spastiskra íþróttamanna í
Englandi um helgina. Haukur var
sjónarmun á undan Kóreubúa, en
báðir fengu tímann 13,0 sek.
■ SIGURÐUR Friðjónsson,
GS, varð fimmti Suðurnesjamað-
urinn til að fara holu í höggi á
árinu - hann vann það afrek í
Bergvíkinni og notaði fímmjám.
í kvöld
Einheiji og ÍR mætast í 2. deildar-
keppninni í knattspymu í kvöld. Þá
verða þrlr leikir í 3. deild: Þróttur R.
- Reynir S., Austri - Dalvík og KS -
Reynir Á. í fjórðu deild eru þrir leikir:
Njarðvik - Ægir, Augnablik - Stokks-
eyri og Árvakur - Víkingur Ól.
Allir leikimir byrja kl. 2Q.