Morgunblaðið - 25.07.1989, Síða 4
4 B
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞKIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
GOLF / OPNA BREZKA MÓTIÐ
Margt óvenju
legt gerðist
sagði Caicavecchia, sem sigraði óvænt.
Norman setti vallarmet á síðasta hring
EFTIR fjórða og síðasta hring
á Opna brezka meistaramót-
inu í golfi á sunnudag, voru
Ástralarnir WayneGrady og
Greg Norman og Bandaríkja-
maðurinn Mark Calcavecchia
efstir og jafnir á 275 höggum
eða 13 höggum undir pari.
Þeir þurftu því að heyja ein-
vígi um sigurinn og er það í
fyrsta skipti í sögu mótsins
sem þrír kylfingar þurfa að
berjast þannig í bráðabana.
undir pari, sem er mótsmet. Hann
var reyndar kominn níu högg
undir á tímabili en fataðist flugið
örlítið í lokin.
Norman var þó ekki að svekkja
sig yfir fjórða deginum.„Þriðji
dagurinn kostaði mig sigurinn,“
sagði hann. Þá lék hann á pari
eða 72 höggum. Hann sýndi þó
og sannaði á mótinu hvers hann
er megnugur, þótt honum tækist
ekki að klára dæmið á lokasprett-
inum.
Leiknar voru fjórar holur í
bráðabananum. Grady, sem
haft hafði forystu eftir þriðja
keppnisdag, missti fljótlega af
lestinni. Calcavecchia fór fyrstu
holuna á pari en þá næstu á einu
undir með glæsilegu lokapútti af
10 metra færi. Þriðju holuna lék
hann síðan á pari.
Norman lék fyrstu tvær holum-
ar á einu undir pari en þá sneri
gæfan bakinu við honum. A þriðju
holunni mistókst hjá honum högg
inn á flötina og fór því á einu
yfir pari. Þar með voru þeir Cal-
cavecchia og Norman jafnir eftir
þijár holur.
Á fjórðu holunni réðust úrslitin.
Calcavecchia fór hana á einu
höggi undir pari á meðan Norman
lenti í sandgryfju og sló boltann
síðan út fyrir. Þar með var sigur
Bandaríkjamannsins í höfn og
hann varð 130 þúsund dollurum
( um 7,5 miljón ísl. kr.) ríkari
fyrir vikið.
Norman fór á kostum
Fáir hefðu búizt við því eftir
þriðja dag að Norman yrði með í
baráttunni um sigurinn. Hann var
þá sjö höggum á eftir efsta
manni, Wayne Grady. En á síðasta
deginum fór Norman á kostum
og lék á 64 höggum eða átta
Lítt þekkt nafn
Calcavecchia, sem er frá
Flórída í Bandaríkjunum, var að
vonum frá sér numinn eftir sigur-
inn. „Margir kylfingar vinna ekki
eitt einasta stórmót á öllum ferli
sínum. Ég er aðeins 29 ára en
er samt sem áður kominn með
einn sigur í höfn. Það er stórkost-
legt,“ sagði hann eftir sigurinn á
sunnudag.
Calcavecchia hefur staðið sig
vel á mótum bandarískra atvinnu-
manna í sumar og sigrað í fimm
þeirra. Hins vegar bjóst enginn
við að svo lítt þekktur Bandaríkja-
maður ynni þetta stórmót.
„Það gerðist svo margt óvenju-
legt hjá mér sem ekki hendir kylf-
inga á hveijum degi, eins og þeg-
ar ég náði 40 feta pútti ofan í á
11. holu og þegar ég vippaði bolt-
anum ofan í af 25 feta færi upp
í móti,“ sagði Calcavecchia í sig-
urvímu.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Bandaríkjamaður vinnur á mótinu
allar götur síðan 1983 en þá vann
Tom Watson. Watson varð fjórði
nú, kom inn á 277 höggum. Hann
kom líka við sögu sðast þegar
þegar bráðabana þurfti tii að
útkljá úrslit á mótinu, árið 1975,
en þá sigraði hann Ástralann Jack
Newton.
Mark Calcavecchia fagnar sigri á Opna breska meistaramótinu.
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ
Rúnar Kristinsson leikur á Skagamanninn Örn Gunnarssön á laugardag. Rúnar var góður, en Skagamenn sigruðu.
Sigurinn veitir okkur
aukið sjálfstraust
- sagði Skagamaðurinn Sigurður B. Jónsson
„ÞETTA var afar mikilvægur sigur
fyrir okkur, sem ætti að veita okk-
ur aukið sjálfstraust eftir afleita
leiki að undanförnu. Við börðumst
vel, einkum í vörninni, og upp-
skárum eftir því,“ sagði Sigurður
B. Jónsson við Morgunblaðið eftir
1:0 sigur gegn KR á Akranesi á
laugardag.
Leikurinn var frekar siakur og lítið
augnayndi fyrir áhorfendur.
Marktækifæri voru fá, en Skagamenn
nýttu eitt og það nægði. Ekki er samt
hægt að segja að um
heppnissigur hafi verið
að ræða, þó KR-ingar
hafi verið betri. Þeir
sóttu meira lengst af,
en náðu aldrei að skapa sér almennileg
færi gegn ákveðinni vörn Skaga-
manna.
Eftir róíega byijun kom ljörkippur
í leikinn á 14. mínútu, er Þorsteinn
Halldórsson átti hörkuskot af um 25
Sigþór
Eiríksson
skrifar
fráAkranesi
metra færi í þverslá Skagamarksins.
Mínútu síðar lék Páll Guðmundsson
sama leikinn — en skaut í stöng. Á
næstu mínútu kom síðan eina mark
leiksins og var örlítill heppnisstimpill
yfir því. Amar Gunnlaugsson var með
fyrirgjöf að marki KR. Boltinn fór í
varnarmann KR og þaðan til baka
fyrir markið þar sem Stefán Viðarsson
stóð einn og óvaldaður. Hann þakkaði
gott boð og skallaði laglega í netið af
stuttu færi.
Eftir þennan stutta Tjörkipp datt
leikurinn niður í sömu lognmolluna og
fyrr. KR-ingar fengu tvö þokkaleg
færi fyrir hlé; fyrst Björn Rafnsson,
en Öm Gunnarsson bjargaði á síðustu
sturrdu, og síðan átti Rúnar Kristinsson
gott langskot, sem Sveinbjöm varði
af öryggi.
Besta færi Skagamanna kom á 59.
mínútu. Haraldur Ingólfsson óð upp
vinstri vænginn, gaf fyrir á Aðalstein
Víglundsson, sem skallaði naumlega
framhjá.
Besta færi KR-inga kom hins vegar
átta mínútum síðar. Þá tókst Rúnari
Kristinssyni að hrissta af sér tvo varn-
armenn ÍA inni í vítateig, en í up-
plögðu færi skaut hann í hliðarnetið.
Þar hefði Rúnar getað gert betur.
Undir lokin sóttu liðin á víxl. Gunn-
ar Oddsson átti síðasta færi KR-inga,
en Guðbimi tókst að bjarga skotinu.
Fimm mínútum fyrir leikslok átti Karl
Þórðarson gott skot eftir einleik, en
rétt yfir.
■ Úrslit/B6
■ Staðan/B6 !
ÍA - KR 1:0
íslandsmótið, 1. deild, Akranessvelli, laugardaginn 22. júlí 1989.
Mark ÍA: Stefán Viðarsson (16.).
Gult spjald: Ekki gefið.
Áliorfendur: Fékkst ekki uppgefið.
Dómari: Magnús Jónatansson dæmdi þokkalega.
Lið ÍA: Sveinbjörn Allansson, Öm Gunnarsson, Sigurður B. Jónsson, Guðbjöm Tryggvason, Alex-
ander Högnason, Páll Guðmundsson (Heimir Guðmundsson vm. á 76.), Aðalsteinn Víglundsson,
Haraldur Ingólfsson, Karl Þórðarson, Amar Gunnlaugsson, Stefán Viðarsson (Bjarki Pétursson
vm. á 82.).
Liö KR: Þorfinnur Hjaltason, Sigurður Björgvinsson, Jóhann Lapas, Þorsteinn Halldórsson (Will-
um Þór Þórsson vm. á 75.), Hilmar Bjömsson (Steinar Ingimundarson vm. á 64.), Rúnar Kristins-
son, Gunnar Oddsson, Þormóður Egilsson, Bjöm Rafnsson, Sæbjöm Guðmundsson, Heimir Guð-
jónsson.
B 5
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
Morgunblaðiö/Einar Falur
Kjartan Einarsson
nýtti tímann vel
*_
Gerði tvö mörk á síðustu mínútunni og jafnaði fyrir IBK
KJARTAN Einarsson var hetja
Keflvíkinga á Valsvelli á sunnu-
dagskvöld. Er rúm mínúta var
til leiksioka var útlitið ekki bjart
fyrir gestina, sem voru tveimur
mörkum undir, en þeir gáfust
ekki upp. Kjartan skoraði fyrst
með skalla af stuttu færi við
fjærstöng eftir sendingu frá
vinstri og jafnaði síðan 2:2 áður
enyfirlauk.
Jöfnunarmarkið var glæsilegt.
Kjartan fékk knöttinn á vallar-
helmingi Vals nálægt miðlínu, brun-
aði upp og lét vaða rétt fyrir utan
teig — óveijandi
Steinþór þrumuskot.
Guöbjartsson Hálftíma fyrr gerði
skrífar Halldór Askelsson
ámóta mark fyrir
Val og voru þetta nánast einu atvik-
in, sem glöddu augað í þessum til-
þrifalitla leik.
Samspil af skornum skammti
Valsmenn náðu iila saman og var
spil bikarmeistaranna frá fyrra ári
ómarkvisst. Baldur Bragason átti
þátt í báðum mörkunum; fyrst með
fyrirgjöf og síðan var hann felldur
innan markteigs. Dómarinn dæmdi
horn, en Eyjólfur Ólafsson, línu-
vörður, var á öðru máli og hans
dómur varð ofan á — víti var dæmt
og Sævar Jónsson, besti maður
Vals, skoraði örugglega.
Keflvíkingar voru baráttuglaðir,
Iögðu áherslu á varnarleikinn, þar
sem Freyr Sverrisson stjórnaði af
röggsemi, og treystu á skyndisókn-
ir. En eins og hjá Valsmönnum var
samspilið lengst af af skornum
skammti. Þeir fengu tvö góð mark-
tækifæri áður en að þætti Kjartans
kom. í fyrri hálfleik bjargaði Ingvar
Guðmundsson á línu eftir skot frá
Gesti Gylfasyni og skömmu eftir
mark Halidórs skaut Ingvar
Keflvíkingur Guðmundsson í slá
Valsmarksins.
Betur má ef duga skal
Vaismenn eru heillum horfnir
þessa dagana. Bikardraumur þeirra
varð að engu í síðustu viku og nú
misstu þeir efsta deildarsætið, sem
þeir hafa vermt nær allt mótið. Með
ámóta spilamennsku verður erfitt
fyrir þá að endurheimta það.
Keflvíkingar eru einnig í baráttu-
sæti — í neðri hluta deildarinnar.
Hvert stig er dýrmætt, en Suður-
nesjamenn þurfa að gera enn betur
til að komast af mesta hættusvæð-
inu.
■ Úrslit/B6
■ Staðan/B6
Kjartan Einarsson hefur gert sex
mörk fyrir ÍBK í 1. deild í sumar.
Valur-ÍBK 2 : 2
íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild, Valsvelli, sunnudaginn 23. júlí 1989.
Mörk Vals: Halldór Áskelsson (58.), Sævar Jónsson (vítasp. 85.).
Mörk ÍBK: Kjartan Einarsson (89., 90.).
Gult spjald: Lárus Guðmundsson (74.) og Siguijón Kristjánsson (81.), Val. Óli Þór
Magnússon (87.), ÍBK.
Áhorfendur: 640.
Dómari: Ágúst Guðmundsson var slakur.'
Lið Vals: Bjarni Sigurðsson, Þorgrímur Þráinsson, Siguijón Kristjánsson, Magni Blönd-
al Pétursson, Steinar Adolfsson (Gunnlaugur Einarsson vm. á 81.) , Sævar Jónsson,
Halldór Áskelsson, Jón Þór Andrésson (Lárus Guðmundsson vm. á 51.), Guðmundur
Baldursson, Ingvar Guðmundsson, Baldur Bragason.
Lið ÍBK: Þorsteinn Bjamason, Jóhann Júlíusson, Freyr Sverrisson, Valþór Sigþórssn,
Ingvar Guðmundsson, Gestur Gylfason.'Árni Vilþjálmsson (Garðar Jónasson vm. á 83.),
Óli Þór Magnússon, Kjartan Einarsson, Jóhann B. Magnússon, Jón Sveinsson (Stein-
bjöm Logason vm. á 87.).
Fyrsta mark Halldórs
Halldór Áskelsson gerði sitt fyrsta mark fyrir Val
eftir þrumuskot fyrir utan vítateig. Jón Sveinsson,
Morgunblaðið/Júlíus
í 1. deiid á sunnudagskvöld og á myndinni er boltinn á leið í netið
IBK, kemur engum vörnum við.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Sjálfsmark á
mölinni
Sigurganga efsta liðsins stöðvuð
SJÁLFSMARK Egils Einars-
sonar, Stjörnumanns, á 3.
mínútu reyndist eina markið
í leik ÍR og Stjörnunnar á ÍR-
velli á laugardag. Egill var
aðþrengdur úti á kanti og
hugðist senda til Sigurðar
Guðmundssonar, markvarð-
ar, en sendingin var óná-
kvæm og endaði í eigin marki.
Leikurinn bar þess merki að
vera leikinn á malarvelli. Eft-
ir að hafa fengið gjafamark í
upphafi börðust IR-ingar eins og
ljón, vörðust vel og
Guðmundur fengu hættulegar
Jóhannsson skyndisóknir.
skrifar Stjörnumenn áttu
erfitt með að
byggja upp markvisst spil er þeir
komu að vítateig ÍR-inga og voru
auk þess mjög óöruggir í vöminni.
Bæði lið áttu ágæt færi til að
skora, einkum ÍR-ingar en þeim
tókst ekki af sjálfsdáðum að koma
boltanum í markið framhjá Sig-
urði Guðmundssyni, markverði
Garðbæinga. Hann lék í stað Jóns
Otta Jónssonar, sem var í leik-
banni.
Stjörnumenn hefðu getað kom-
ið sér vel fyrir á toppi 2. deildar
með sigri í leiknum en það mis-
tókst. „Stjörnuhrap" þetta varð
ÍR-ingum hins vegar heilladijúgt
en staða þeirra í botnbaráttunni
var orðin mjög óþægileg fyrir leik-
inn.
Karl Þorgeirsson og Hlynur
Elísson voru traustir í liði ÍR-inga
en Sveinbjörn Hákonarson var
beztur Stjörnumanna.
■ Úrslit/B6
■ Staðan/B6
Jft
Sigurður B. Jónsson, Guðbjörn Tryggvason, Karl Þórðarson, ÍA.
Rúnar Kristinsson, Gunnar Oddsson, Sæbjörn Guðmundsson, KR.
Sævar Jónsson, Baldur Bragason, Val. Kjartan Einarsson,. Freyr
Sverrisson, IBK.