Morgunblaðið - 28.10.1989, Qupperneq 1
ftorgtmlffafrto
MENNING
USTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1989 BLAÐ
vJveinn Björnsson opn-
ar sýningu á Kjarvals-
stöðum í dag. Á sýning-
unni eru olíumyndir,
vatnslitamyndir,
keramikhlutir, rekaviður
og málaðir fjörusteinar
af Herdísarvíkursvæðinu.
Árni Johnsen ræðir við
Svein í blaðinu í dag
I-/ífsspekingur í
postmoderniskri mynd,
nefnist grein um norska
málarann Arvid Peters-
en. Sýning á verkum
hans opnar einnig á
Kjarvalsstöðum í dag og
listfræðingurinn Bo Nils-
son, sem starfar við Mod-
erna Museet í Stokkhólmi
skrifar um listamanninn
0 g frá Bandaríkjun-
um skrifar Rúnar Helgi
Vignisson um myndlist-
arkonuna Ann Hamilton,
sem hefur vakið athygli
fyrri nýstárlegar innrétt-
ingar (installations)
Örlagafugl
Kammersveit Reykja-
víkur við vígslu
Borgarleikhússins.
(Ljósm. Guðmundur
Ingólfsson hjá
* ímynd)
iJórvík
Kammersveit Reykjavíkur hefur hafið sitt 16. starfsár og óhætt er að
segja að sveitin fari af stað af enn meiri krafti en áður og með óvenju-
legum hætti. Haustið hefiir verið strangur æfingatími fyrir sveitina,
sem kom fram við vígslu Borgarleikhúss, þann 20. október, og flutti
þar verk eftir Atla Heimi Sveinsson. Mánudaginn, 23. október, Iagði
svo sveitin upp í tónleikaferðalag um Bretland, þar sem hún leikur í
York, Hull og Grimsby. Tónleikaferð þessi er í tengslum við sýningu
á íslenskri myndlist, sem farið verður með vítt og breitt um Bretland
næsta árið.
Sýningin hefst í Hull, laug-
ardaginn 28. október, og
leikur Kammersveitin við
það tækifæri. „Ólafur Eg-
ilsson, sendiherra í London,
fékk okkur til að koma til að kynna
íslensk verk við þetta tækifæri,“ seg-
ir Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari og
formaður stjórnar Kammersveitar-
innar. „Við spilum tvisvar í Hull og
eingöngu íslensk verk, eftir Þorkel
Sigurbjömsson, Hjálmar H. Ragn-
arsson og Atla Heimi Sveinsson.
Þorkell samdi þetta verk sérstaklega
fyrir okkur fyrir ferðina. Hann nefn-
ir það „Örlagafugl," og tekur tilvitn-
un úr Egilssögu, þar sem Egill er í
Jórvík að reyna að semja Höfuð-
lausn. Þar segir að svala hafi kvakað
alla nóttina og Egill hafi ekki fengið
neinn frið til að yrkja. Verkið er fyr-
ir klarinett og strengjakvartett - og
klarinettið er svalan, og kvakar allan
tímann. Fyrstu tónleikarnir okkar
verða í Jórvík, svo að þetta er mjög
skemmtilegt upphaf ferðarinnar. Er
ég sérstaklega þakklát Rut Magnús-
son fyrir hennar þátt í að af Jórvík-
ur-tónleikunum varð.“
í ferðinni voru Jóhanna Þórhalls-
dóttir, söngkona, Einar Jóhannesson,
klarinettuleikari, Selma Guðmunds-
dóttir, píanóleikari, Rut Ingólfsdóttir,
fiðluleikari, Hlíf Siguijónsdóttir,
fiðluleikari. Sarah Buckley, lágfiðlu-
leikari og Inga Rós Ingólfsdóttir,
sellóleikari. „I sumar, þegar þessi
ferð var í undirbúningi, reyndum við
að setja saman þannig efnisskrá að
við þyrftum ekki að vera of mörg,“
segir Rut, „og vorum einnig að finna
verk sem gætu verið fyrir nokkurn
veginn sama hópinn. Verkin eftir
Hjálmar og Atla eru söngverk og
Jóhanna syngur þau bæði. Verkið
eftir Hjálmar heitir Tengsl, skrifað
við ljóð eftir Stefán Hörð Grímsson,
og var frumflutt í Gerðubergi síðast-
liðinn vetur. Verkið eftir Atla era
Pólsku lögin svokölluðu - sem Rut
Magnússon hefur sungið mikið. Þar
kemur klarinettið líka við sögu. En
þar sem ætlunin var í upphafi að
hafa þetta dálítið blandaða tónleika,
erum við einnig með píanókonsert
eftir Cesar Frank.“
Að lokinni þessari tónleikaför
hefst annað stíft æfingatímabil hjá
Kammersveit
Reykjavíkur, því
í vetur ætlar hún
að flytja hin stóru
kammerverk
Schuberts.
Fyrstu tónleik-
arnir á vegum
sveitarinnar
verða 2. desember, í Áskirkju. Á
þeim tónleikum verður leikinn Oktett
eftir Schubert og þar mun Rut spila
1. fiðlu og enginn annar en Paul
Zukovsky leikur 2. fiðlu, auk þess
sem hann stjórnar sveitinni. „Við
hlökkum mikið til að vinna þennan
Oktett með honum,“ segir Rut,
„hann hefur mjög sérstakar skoðanir
á hlutunum, er geysilega flinkur og
vel að sér, og það er alltaf mjög
lærdómsríkt að vinna með honum.
Hann er eins og heill skóli út af fyr-
ir sig. “
í febrúar flytur Kammersveitin
strengjakvintett eftir Schubert og
sextett fyrir blásara eftir Beethoven
og í apríl verður það Silungakvintett-
inn, auk verka eftir íslensk nútíma-
tónskáld. Þá verður verkAtla,„Gleði-
stundu," sem flutt var þegar Borgar-
leikhúsið var vígt, á dagskrá og
„Tengsl,“ eftir Hjálmar H. Ragnars-
son. Hinir hefðbundnu jólatónleikar
sveitarinnar verða í Áskirkju og að
venju verður barroktónlist á efnis-
skránni, en að þessu sinni verða það
tvíleikskonsertar; tvær flautur, tvö
horn, tvö óbó og tvö fagott.
Þetta er sextánda starfsárið og
við Rut rifjum upp hina ýmsu tón-
leika Kammersveitarinnar, sem hafa
verið af öllum stærðum og gerðum
- allt frá sólótónleikum upp í heila
sinfóníuhljómsveit - ávallt metnaðar-
full verk, leikin í því húsnæði sem
stendur til boða: Kjarvalsstöðum,
Norræna húsinu og hinum ýmsu
kirkjum en einkum Bústaðakirkju og
Sjá næstu síðu.
16. starfsár Kammersveitar
Reykjavíkur hefst með
tónleikaferó til Englands