Morgunblaðið - 10.03.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.03.1990, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 10. MARZ 1990 Fólkió mitt er komid til byggda sem allir vita um ísland er Vigdís forseti. Allir þekkja hana. Það sem ég mála er minn einka- heimur og það eina sem ég á til í þessari veröld. Hann nægir mér til að mála og ég læt engan segja mér fyrir verkum, eða taka hann frá mér. Maður þarf ekkert að ferðast og drekka í sig alla list heimsins til að tjá sinn eigin heim. Hann er á sínum stað. Þú gætir skilið mig eftir í Öskjuhlíðinni f þrjú ár og ég gæti málað endalaust þaðan. En eftir þijú ár yrði ég lfklega búin að fá nóg,“ segir Karólína hlægj- andi. Hefurðu alltaf unnið með olíu og vatnsliti jöfnum höndum? „Já, veistu, ég hélt alltaf að maður ætti að gera þetta allt. Ég vissi lengi vel ekki að myndlistar- menn velja sér gjarnan eina grein til að vinna í. En ég vinn ekki við allar greinar í einu, heldur tek ég lotur í vatnslitunum, síðan í olíunni eða ristunum; loka mig inni í bílskúmum mínum sem ég hef breytt í stúdíó og vinn. Þegar ég kem aftur til Englands ætla ég að halda áfram í ristunum og vinna bæði í dúk og tré. Ég hef unnið við ætingar, en held að risturnar eigi mikið betur við mig.“ Viðtal ssv Hætta á að píanóleikarar einangrist Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari lauk masters- námi frá City University of London síðastliðið haust og er búin að dvelja hér á Islandi þar sem hún hefur fengist við ýmis störf. Á miðvikudaginn hélt hún sína fyrstu einleikstón- leika hérlendis í tvö ár í Hafnarborg og á mánu- daginn ætlar hún að end- urtaka Ieikinn á Kjarvals- stöðum. Tónleikarnir eru haldnir á vegum EPTA, Evrópusambands píanó- kennara. Nína Margrét lauk masters náminu í London með því að skrifa tvær rit gerðir og var önnur þeirra heimildarritgerð um íslenska píanótónlist. „Það hefur ekkert verið skrifað um íslenska píanótón- iist og því lá vel við að taka það efni,“ segirhún. „En ég komst líka fljótt að því að það var ekki mikið til af heimild- um og því varð ég að nota óbeinar heimildir eins og blaðagreinar og viðtöl við tón- skáldin. Bergljót Jónsdóttir hjá Islenskri tónverkamiðstöð Iánaði mér síðan allar nótur af íslenskum verkum, sem varð til þess að bókasafnið í City University keypti nó- tumar. Fram til 1970 er ekki mik- ið til af verkum og því ekki auðvelt að gera samanburð á eldri verkum íslenskra tón- skálda og erlendra. íslensk tónskáld gerðu mikið af því fyrst í stað að semja í anda gamalla tónlistarstefna sem ríkt höfðu úti í heimi, en það var kannski eðlilegt þar sem þau skorti oft menntun og þau urðu ekki fyrir neinum áhrifum utan frá sem er nauðsynlegt því það gerir fólk gagnrýnið. Ég gat þó gert samanburð á verkum Páls ísólfssonar og kennara hans Max Reger. Sumum verka hans svipar til verka Regers, en það sem kom kannski á óvart var að hans verk voru betri. Prófdómararnir minnt- ust einmitt á þetta og fannst það athyglisverð niðurstaða." I annarri ritgerð, sem einn- ig var hluti af mastersnám- inu, skrifaði Nína Margrét um mál sem hún segir vera sér hugleikið. „í þeirri ritgerð sýndi ég fram á mikilvægi tónlistarinnar í alhliða þroska einstaklingsins og að tónlist- arkennsla eigi rétt á sér í námskrá við hliðina á fögum eins og stærðfræði og tungu- málum. Máli mínu til stuðnings nota ég upplýsingar um nið- urstöður úr rannsóknum sem gerðar hafa verið á heiianum. En hann skiptist í tvö hvel, hægra og vinstra heilahvel. Vibtal vid Nínu Margréti Grímsdóttur píanóleikara Nína Margrét Grímsdóttir Morgunblaðið/Ámi Sæberg Það vinstra stjómar rök- hugsun, sem er meðal annars notuð 5 stærðfræði og tungu- málum, en hægra hvelið er nátengt tilfinningastöðvum heilans og stjómar t.d. per- sónuleikanum og skynjun tónlistar. Það má því segja að í skólum sé öll áhersla lögð á að þjálfa vinstra heilahve- lið, en það hægra fær litla athygli. Til að geta lært hvernig tónlist er uppbyggð og að þekkja hinar ýmsu stefnur þarf fólk ekki að búa yfír neinum afburða tónlistar- hæfíleikum, en slíkt nám ger- ir aftur á móti svipaðar kröf- ur til almennra gáfna og stærðfræði- eða tungumála- nám.“ Sjálf hóf Nína Margrét að læra á píanó átta ára gömul. „Það var píanó á heimilinu og þar sem ég var farin að spila á það lá beint við að ég færi í tónlistarskóla." Það kom því að sjálfu sér að hún veldi píanóið og segist hún alls ekki vera ósátt við það hljóðfæri. Enda stefndi fljót- lega allt í það að hún myndi leggja píanóleikinn fyrir sig og þegar einleikaraprófínu frá Tónlistarskólanum í Reykjavík var lokið þótti henni engin ástæða til að láta staðar numið. „Ég fór til Lon- don og byijaði þar í einkatím- um, fyrst hjá Peter Feucht- wanger og síðan hjá Philip Jenkins áður en ég fór í City University. Ég ákvað að fara í skólann því þar hittir maður fólk sem er í sama námi og það er auðveldara að fylgjast með því sem er að gerast. Hættan við að vera í einka- tímum er að maður einangr- ist. Það á ekki síst við um píanóleikara sem geta ekki gengið í hljómsveit." En Nína Margrét virðist ekki hafa verið í einangrun, að minnsta kosti ekki fram til þessa. Hún starfaði meðal annars með íslenskum kór í London og síðastliðið sumar lék hún á tónleikum með Áshildi Haraldsdóttur flautu- leikara, en Áshildur varð einn af fjórum sigurvegurum al- þjóðlegrar tónlistarkeppni í keppni Turnbrigde Wells. „í kjölfarið á því héldum við tónleika ásamt sjö öðrum hljóðfæraleikurum í Purcell Room í London og komum einnig fram í Cité des Arts í París, sem var mjög skemmti- legt.“ Á efnisskrá tónleikanna á Kjarvalsstöðum á mánudag- inn, sem hefjast kl. 20:30, eru verk eftir Bach, Haydn, Chopin, Debussy og Jónas Tómasson. „Verkin sem ég ætla að leika eiga það sam- merkt að þau eru þekkt, en það er að því leyti erfitt að spila slík verk, að áheyrendur þekkja hveija einustu nótu,“ segir hún. „Annars eru þau skemmtileg, bæði lífleg og falleg." MEO

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.