Morgunblaðið - 16.03.1990, Side 1

Morgunblaðið - 16.03.1990, Side 1
VIKUNA 17. - - 23. MARZ PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1990 BLAÐ Ky Leikrit vikunnar, sem er á dagskrá Rásar 1 nk. þriðju- dagskvöld, ber nafnið Mannig fer að þykja vænt um þetta og er eftir sænska leikritahöfundinn Arne Törnquist. Þýðinguna gerði Hólmfríður Gunnarsdóttir. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson og upptöku annaðist Vigfús Ingvarsson. Gömul kona hringir í leigubíl. Hún er að fara með kisuna sína, sem er orðin lasburða, á dýraspítalatil aflífunar. Þærtvær hafa átt góða daga saman en nú er komið að skilnaðar- stundu. Leikendur eru Herdís Þorvaldsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Sigrún Waage, Erla Rut Harðardóttir, Róbert Arnf- innsson og Margreí Ákadóttir. Manni fer að þykja vænt um þetta HERAGI Gamanmyndin Heragi (Stripes) er kvikmynd vikunnar á Stöð 2 að þessu sinni og er á dagskrá á morgun, laugardag. John miss- ir vinnuna, bílinn, íbúðina og kærustuna einn og sama daginn og kemst að þeirri niðurstöðu að nú sé fárra kosta völ. Hann fer í herinn og kjaftar besta vin sinn með sér, því hvar annars staðar geta þeir hlúð betur að lýðræðinu og hitt stelpur? Leikstjóri er Ivan Reitman en með aðalhlutverk fara Bill Murray, Harold Ramis, Warren Oates, P. J. Soles og Sean Yo- ung. Maitirr.-*-^ 'h T ó n st of a n Elísabet F. Eiríksdóttir hóf feril sinn í Pólýfónkórnum en hefur síðan þroskað sópranrödd sína og hæfileika til glæsilegs einsöngs. Elísabet hefur haldið fjölda tónleika, í samvinnu við aðra söngvara og ein síns liðs, og hefur vakið verðskuldaða athygli á óperusviðinu. Meðal viðfangsefna hennar á þeim vettvangi má nefna Tos- cu, Grímudansleik Verdis og nú síðast Dídó og Aeneas eftir Purcell í uppfærslu íslensku hljómsveitarinnar. Samhliða söngferli sínum starfar Elísabet sem kennari við Söngskólann í Reykjavík. í spjalli við Bergþóru Jónsdóttur í Tónstof- unni, sem er á dagskrá Sjónvarps nk. þriðju- dag, tjáir Elísabet sig um helstu þætti ferils síns, auk þess sem þær stöllur ræða stöðu söngmála hérlendis. Þá syngur Elísabet nokk- ur lög, þar á meðal aríu úr Grímudansleiknum við undirleik Láru Rafndóttur píanóleikara. Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8 ' 1 Útvarpsdagskrá bls. 2-8 ' ; ...1 Hvað er að gerast? bls. 3/4 J Myndbönd bls. 6 Bíóin í borginni bls. 7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.