Morgunblaðið - 31.03.1990, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 31.03.1990, Qupperneq 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARZ 1990 Tónagjöf Bachs til Friðriks Prússakon ungs Hljóðfæraleikararnir sem fluttu Musikalisches Opfer eða Tóna- fórnina eftir Jóhann Sebastian Bach á Sumartónleikum í Skál- holtskirkju sl. sumar, ætla að endurtaka flutninginn í Skál- holtskirkju í kvöld kl. 20.30 og í Kristskirkju annað kvöld á sama tíma. Þetta eru þau Helga Ingólfsdóttir á sembal, Kolbeinn Bjarnason á barokkflautu, Ann Wallström og Lilja Hjaltadóttir á barokkflðlur og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir á violu da gamba. Undirrituð hitti þær Helgu, Ann og Ólöfu Sesselju á æfingu fyrr í vikunni. Verkið Tónafórnin á sér dálítið sérstaka sögu, segir Helga. „Vorið 1747 fer Bach að heimsækja son sinn, C.Ph. Bach, til Potsdam, þar sem hann var tónmeistari Friðriks mikla Prússakonungs. Þegar konungur fréttir af heimsókn Bachs lætur hann stilla öll hljóðfæri sín, en hann átti 15 sembala og forte- píano, og býður Bach síðan í heim- sókn í höllina. Hann biður tónskáld- ið um að prófa hljóðfærin og meta og Bach leikur á þau af fingrum fram. Bach biður síðan konung að spiia fyrir sig frumsamið stef, svo hann geti samið við það fúgu og konungurinn spilar stef á flautuna sína, en hann var mjög góður flautuleikari. Bach leikur umsvifa- laust þriggja radda fúgu og þá bið- ur konungur hann um að leika aðra sex radda, sem er mjög flókið mál. Bach treysti sér ekki til að gera það undirbúningslaust, en segist skulu skrifa sex radda fúgu fyrir konung þegar hann kæmi heim til Leipzig og senda honum. Nokkrum mánuðum síðar fær Frið- rik senda gjöf frá Jóhanni Sebast- ian Bach, nýprentaðar nótur af mörgum verkum, löngum og stutt- um, sem öll eru tilbrigði við þetta konungs stef, s.s. Tónafórnina. Bach teygir og togar stefið á alla kanta og margt af þessu er erfitt í flutningi og gerir miklar kröfur til hljóðfæraleikaranna. En mig hefur dreymt um það lengi að flytja þetta verk,“ segir Helga.„Og síðastliðið sumar frumfluttum við það á íslandi í Skálholti." Eins og fram kemur hér að fram- an leika þau eingöngu á uppruna- leg hljóðfæri, það er hljóðfæri sem notuð voru á barokktímanum. Þessi hljóðfæri þurftu að víkja fyrir öðr- um hljóðfærum þegar rómantíkin tók við á 19. öldinni. Það var ekki fyrr en á þessari öld sem aftur var farið að leika á hljóðfæri barokk- tímans. En hvers vegna viku þessi hljóðfæri fyrir öðrum á sínum tíma? „Tónlistin var ekki lengur aðeins fyrir hirðina, heldur varð hún al- menningseign og þess vegna var farið að flytja hana í stærri sölum. Og það heyrist einfaldlega ekki nógu hátt í þessum hljóðfærum til að tónlistin nái að njóta sín í stórum hljómleikasölum. Það verður að spila hana í húsnæði þar sem er mikill undirhljómur,11 segir Ólöf Sesselja. „Hér er ekki um marga slíka staði að ræða og eiginlega bara þessa tvo, þar sem tónleikarn- ir verða, Skálholtskirkju og Krists- kirkju." Selló er annars aðalhljóðfæri Ólafar Sesselju, en því svipar til gömbunnar. Hljóðfæri Lilju er fiðl- an, sem er ekki mjög frábrugðin bárokkfiðlunni og fyrir leikmann líta þær alveg eins út. Munurinn liggur fyrst og fremst í mismun- andi bogum. Það er erfiðast fyrir flautuleikarann, Kolbein, að skipta um hljóðfæri, því hann verður að nota fingurna til að loka götunum á flautunni, þar sem hún hefur ekki lokur eins og nútímaflauta. Helga er sú eina sem ekki þarf að skipta um hljóðfæri og Ann Wall- ström sem leikur jöfnum höndum á nútímafiðlu og barokkfiðlu. Þetta er í sjöunda sinn sem Ann kemur hingað til að leika með hópnum í Skálholti, en hún býr í Stokkhólmi og starfar í lausamennsku í tónlist- inni. Hún er í þremur kammersveit- um; strengjakvartett sem leikur klassíska tónlist á klassísk hljóð- færi, kammersveit sem einbeitir ser að því að leika tónlist senf skrifuð var áður en barokktímabilið hófst, „pre-barokk“, og eru hljóðfærin sem sveitin leikur á einnig frá þeim tíma. Þriðja sveitin leikur eingöngu barokktónlist. Ann er þó ekki ein- göngu í því að leika tónlist fyrri tíma, því hún hefur starfað með sænskum tónskáldum og frumflutt fyrir þau mörg verk. En hver er tilgangurinn með því að draga fram þessi gömlu hljóð- færi til að leika á þau barokktón- list? „Þessi tónlist hljómar best á þessi hljóðfæri,“ segir Helga. „Hún vaknar til lífsins og öðlast nýjan kraft ef maður ber það saman við hvernig þau hljóma leikin á nútíma- hljóðfæri." „Það eru margir sem spyija okk- ur að því hvernig við vitum að tón- listin var spiluð svona,“ segir Ólöf Sesselja. „En því er til að svara að það eru til heimildir fyrir því hvemig þessi tónlist var túlkuð. Þessar heimildir voru að vísu ekki dregnar fram í dagsljósið fyrr en fyrir tíu eða tuttugu árum, en síðan hefur verið mikil gróska í þessum fræðum." „Þess vegna hefur heldur aldrei verið eins spennandi og núna að leika hana,“ bætir.Helga við. Þess má að lokum geta að á tónleikunum í kvöld leikur hún í fyrsta sinn á nýjan sembal í Skálholtskirkju. TONLEIKARIAPRIL 1990 T ónleikaskrá þessi er saman sett skv. upplýsingum sem ber- ast okkur eftir ýmsum leiðum, sumar á fullkominn hátt á þar til gerðum eyðublöðum, aðrar hripaðar niður á notaða að- göngumiða í hléi á tónlcikum eða berast simleiðis (í síma 29107) á siðustu stundu. Skráin er birt með fyrirvara um breýt- ingar. Tónlistardeild Ríkisút- varpsins hefur ðskað eftir að fram komi, að lesið er beint upp úr þessari skrá í útvarps- þáttum deildarinnar. Laugardaginn, 31. mars Skálholtskirkja, kl. 20.30. Helga Ingólfsdóttir, semball, Kol- beinn Bjamason, barokkflauta, Ann Wallström og Lilja Hjalta- dóttir, barokkfiðlur, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, viola da gamba. Tónafórnin eftir Johann Sebast- ian Bach. Langholtskirkja, kl. 17.00. Lúðrasveit verkalýðsins — stj. Jóhann Ingólfsson. Laugarneskirkja, kl. 17.00. Laufey Sigurðardóttir, fiðla, og Ann Toril Lindstad, orgel. Verk eftir Corelli, Vitali, Hándel o.fl. íslenska óperan, kl. 20.00. Carl Orff: Carmina Burana — Leoncavallo: Pagliacci. Hótel ísland, kl. 23.30. Jazzkvöld í Café ísland — Tómas R. Einarsson og félagar. Sunnudaginn, 1. apríl Hafnarborg, kl. 15.30. Tónlistarskóli Hafnarfjarðar — Stefán Ómar Jakobsson, básúna, og Helgi Bragason, orgel, leika verk e. m.a. J.S. Bach. Langholtskirkja, kl. 16.00. Kvennakórinn „Lissý“, meði. Guðrún Kristinsdóttir — stj. Margrét Bóasdóttir. Kristskirkja, kl. 20.30. Helga Ingólfsdóttir, sembail, Kol- beinn Bjamason, barokkflauta, Ann Wallström og Lilja Hjalta- dóttir, barokkfiðlur, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, viola da gamba. Tónafórnin eftir Johann Sebast- ian Bach, Duus hús, „Heiti potturinn" kl. 21.30. Kvartett Kristjáns Magnússonar. Kristján Magnússon, píanó, Þor- leifur Gíslason, saxófónn, Tómas R. Einarsson, kontrabassi, Guð- mundur Einarsson, trompett. Bústaðakirkja, kl.20.30. EPTA píanótónleikar. Jónas Sen leikur verk e. Brahms, Scriabin, Liszt. Þriðjudaginn, 3. apríl Norræna húsið, kí. 20.30. Tónlistarskólinn í Reykjavík — einsöngvarapróf. Hlíf Káradóttir, sópran, og Lára Rafnsdóttir, píanó. Listasafn Siguijóns Ólafssonar, ki. 20.30. Musica Nova. Peter Verduyn Lunel, flauta og Elísabet Waage, harpa verk e. Badins, Dick, Jón Nordal, Bon, Andrés, Yun. Miðvikudaginn, 4. apríl Norræna húsið, kl. 12.30. Háskólatónleikar. Guðrún Birgis- dóttir, Bemharður Wilkinson, Martial Nardeau, flautur, verk e. Boismortier, Haydn, Kuhlau. Norræna húsið kl. 20.30. Bryndís Pálsdóttir, fiðla, og Helga, Bryndís Magnúsdóttir, píanó, verk e. Jón Nordal, Ravel, Beethoven. Fimmtudaginn, 5. apríl Háskólabíó, kl. 20.30. Sinfóníuhljómsveit Islands. Jaakko Ryhánen, bassi — stj. Eri Klas, verk e. Arvo Párt, Shos- takovits, Beethoven._____________ Föstudaginn, 6. apríl Langholtskirkja, kl. 20.30. Söngsveitin Fflharmónía — 30 ára afmæli. Einsöngvarar Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran, og Lárus Erlingsson, bariton. Hljómsveit —' stj. Ulrik Ólason — Brahms: Ein Deutsches Requiem. íslenska óperan, kl. 20.00. Carl Orff: Carmina Burana — Puccini: Pagliacci. Laugardaginn, 7. aprfl Langholtskirkja, kl. 16.30. Söngsveitin Fílharmónía — 30 ára afmæli. Einsöngvarar Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran, og Láras Erlíngsson, bariton. Hljómsveit — stj. Ulrik Ólason — Brahms: Ein Deutsches Requiem. Norræna húsið, kl. 17.00. Tónskóli Sigursveins — Nem- pndatónleikar. lslenska óperan, kl. 20.00. Carl Oiíf: Carmina Burana — Puccini: Pagliacci._________' Sunnudaginn, 8. april Islenska ópcran, ki. 17.00. Kammersveit Reykjavíkur. Verk e. Atli Heimir Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Schubert. Norræna húsið, kl. 20.30. Gítartónleikar Michael Chapdelaine frá Bandaríkjunum. Hafnarborg, kl. 20.30. Signý Sæmundsdóttir, sópran, og Þóra Fríða Sæmundsdóttir, píanó. Lög eftir Mozart, Schu- bert, Mahler, Strauss. Duus hús, „Heiti potturinn" kl. 21.30. Kvintett Stefáns Stefánssonar og Sigurðar Flosasonar: Stefán og Sigurður á saxófóna, Tómas R. Einarsson, kontrabassa, Eyþór Gunnarsson, píanó, Pétur Grét- arsson, trommur. Mánudaginn, 9. apríl Listasafn Sigurjóns, kl. 20.30. Anna Ingvarsdóttir, fiðla, og Olle Sjöberg, píanó, verk e. Jón Nordal, César Franck, Hugo Al- vén o.fl. Kirkjuhvoli, Garðabæ, kl. 20.30. EPTA píanótónleikar. Jónas Sen leikur verk e. Brahms, Scriabin, Liszt. Þriðjudaginn, 10. apríl Islenska óperan, kl. 20.30. Kathryn Stanton, sópran, Magn- ús Baldvinsson, bassi, Ólafur Vignir Albertsson, píanó. íslensk iög, aríur og dúettar eftir Moz- art, Verdi, Puccini, Bellini. Miðvikudaginn, 11. apríl Víðistaðakirkja, kl. 20.30. 25 ára afmæli Kórs Öldutúns- skóla. Yfir 100 kórfélagar í þrem- ur hópum Einleikari: Ingunn Hauksdóttir, píanó, stj. Egill Frið- leifsson -- stj. eldri kórfélaga Bryphildur Auðbjargardóttir. Fimmtudaginn, 12. april Haftiarborg, kl. 20.30. Málmblásarar í Reykjavík leika verk e. Gabrieii, Telemann, Tcherepnin, Ketting, Trygve Mádsen, Chris Hazel, Hjálmar H. Ragnarsson.________________ Föstudaginn, 13. april Hallgrímskirkja, kl.13.30- 19.00. Passíusálmalestur með tónlist, organisti Hörður Áskelsson. Les- ari: Eyvindur Erlendsson.______ Laugardaginn, 14. apríl Hallgrímskirkja, kl. 11-23. Kynningartónleikar um fjáröflun fyrir orgelsjóð. Organistar, kórar, hljóðfæraleikarar, söngvarar. Bústaðakirkja, kl. 20.30. Kammermúsikklúbburinn: Márkl-kvartettinn leikur verk e. Haydn, Beethoven, Wilhelm Kempf._______________________ Miðvikudaginn, 18. april Langholtskirkja, kl. 20.30. Karlakórinn Fóstbræður, ein- söngv. Ema Guðmundsdóttir, sópran, Þorgeir Andrésson, tenór, Jóhann Smári Sævarsson, bari- ton, meðl. L'ára Rafnsdóttir — stj. Ragnar Björnsson. _______ Fimmtudaginn, 19. apríl Langholtskirkja, kl. 20.30. Karlakórinn Fóstbræður, ein- söngv. Erna Guðmundsdóttir, sópran, Þorgeir Andrésson, tenór, Jóhann Smári Sævarsson, barí- ton, meðl. Lára Rafnsdóttir — stj. Ragnar Björnsson. Langholtskirkja, kl. 17.00. Skagfirska söngsveitin og hljóm- sveit, eins. Halía S. Jónasdóttir, sópran, Svanhildur Sveinbjöms- dóttir, mezzósópran, Guðmundur Sigurðsson, tenór, Sigurður Steingrímsson, bariton — meðl. Violetta Smid — stj. Björgvin Valdimarsson. Schubert: Messa í G-dúr, Allelújakórinn úr Messíasi e. Hándel, auk þess lög eftir inn- lenda og erlenda höfur.da. Fólkvangur, Kjalarnesi, kl. 20.30. Karlakórinn Stefnir, eins. Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran, meðl. Guðrún Guðmundsdóttir — stj. Lárus Sveinsson. Föstudaginn, 20. apríl Háskólabíó, kl. 20.30. Sinfóníuhljómsveit íslands. J.J. Leeds, sópran, James Javore, bariton, stj. Murry Sidlin. Bandarísk tónlist e. Williams, Gerschwin, Copland, Porter, Rog- ers og Hammerstein. LangholtskirKja, kl. 20.30. Karlakórinn Fóstbræður, ein- söngv. Ema Guðmundsdóttir, sópran, Þorgeir Andrésson, tenór, Jóhann Smári Sævarsson, bari- ton, meðl. Lára Rafnsdóttir, stj. Ragnar Bjömsson. Laugardaginn 21. april Háskólabíó, kl. 14.00. Lúðrasveitin Svanur — stofnuð 1930. Eini. Kjartan Óskarsson, klarinett, Láras Sveinsson, trompet, Jón Sigurðsson, tromp- et, Sæbjöm Jónsson, trompet, stj. Robert Darling. Langholtskirkja, kl. 14.00. Karlakórinn Fóstbræður. Ein- söngv. Erna Guðmundsdóttir, sópran, Þorgeir Andrésson, tenór Jóhann Smári Sævarsson, bari- ton, meðl. Lára Rafnsdóttir, stj. Ragnar Björnsson. Langholtskirkja, kl. 17.00. Skagfirska söngsveitin og hljóm- sveit. Eins. Halla S. Jónasdóttir, sópran, Svanhildur Sveinbjörns- dóttir, mezzósópran, Guðmundur Sigurðsson, tenór, Sigurður Steingrímsson, bariton — meðl. Violetta Smid — stj. Björgvin Valdimarsson. Schubert: Messa í G-dúr, Allelújakórinn úr Messíasi e. Hándel, auk þess lög eftir inn- lenda og erienda höfunda. Kirkjuhvoli, Garðabæ, kl. 17.00. Tónleikar til styrktar Listasjóði Tónlistarskóla Garðabæjar. Björn Davíð Kristjánsson, flauta, Þórar- inn Sigurbergsson, gítar, Oliver Kentish, selló, Guðmundur Magn- ússon, píanó, verk e. Hans Haug, Poulenc, Ibert, Villa-Lobos og Beethoven. Sunnudaginn, 22. apríl Langholtskirkja, kl. 17.00. Karlakórinn Stefnir. Eins. Sigrún Hjálmtýsdóttir, meðl. Guðrún Guðmundsdóttir — stj. Láras Sveinsson. Duus hús, „Heiti potturinn" kl. 21.30. Tríó Guðmundur Ingólfssonar. Guðmundur Ingólfsson, píanó, Gunnar Hrafnsson, bassa, Guð- mundur Steingrímsson, trommur. Mánudaginn, 23. april Norræna húsið, kl. 20.30. Tónlistarskólinn í Reykjavík — einleikarapróf. Ama K. Einars- dóttir, flauta, David Knowles, píanó, Ásdís Arnardóttir, selló, verk e. Handel, Villa-Lobos, Dut- illeux, Enesco, John Speight og Pál P. Pálsson. Laugameskirkja, kl, 20.30. Robyn Koh, semball. Frumflutt verk eftir Hróðmar Sigurbjörns- son, auk þess leikin verk eftir Hándel, Bach o.fl. Þriðjudaginn, 24. apríl Bústaðakirkja, kl. 20.30. Tónlistarskólinn í Reykjavík — einleikarapróf. Hulda Bragadótt- ir, píanó, verk e. Scarlatti, Beet- hoven, Debussy, Chopin. Listasafn Sigurjóns Olafssonar, kl. 20.30. Islensk tónverkamiðstöð og Lista- safn Sigurjóns Ólafssonar. Kvöld- stund með tónskáldi — Þorsteinn Hauksson. Hlégarði, Mosfellsbæ, kl. 20.30. Karlakórinn Stefnir. Eins. Sigrún Hjálmtýsdóttir, meðl. Guðrún Guðmundsdóttir — stj. Láras Sveinsson. Miðvikudaginn, 25. april Norræna húsið, kl. 12.30. Háskólatónleikar. Peter Tompk- ins, óbó, og Robyn Koh, semball. Sónötur e. Vivaldi,. Geminiani og J.S. Bach. Leikhús frú Emiliu — Skeifúnni 3c, kl. 21.00. Óperasmiðjan — Puccini: Suor Angelica — frumsýning. Ester Guðmundsdóttir / Inga Back- mann, Jóhanna Þórhallsdóttir, Sígríður Gröndal, Margrét Pálmadóttir o.fl., stj. Hákon Leifsson, leikstj. Guðjón Peders- en, leikmynd og búningar: Helga Stefánsdóttir. Fimmtudaginn, 26. april Háskólabíó. Sinfóníuhljómsveít íslands. Arn- aldur Arnarson, gítar — stj. Karsten Andersen. Verk e. Pál P. Pálsson, Dvorák og Rodrigo. Laugardaginn, 28. apríl Islenska óperan, kl. 14.00. Tónmenntaskólinn '— Tónleikar yngri nemenda. Norræna húsið, kl. 16.00. Matta Eriksson, fiðla, og Carl- Otto Erasmie, píanó. íslenska óperan, kl. 16.30. Tónlistarfélagið. Edda Moser, sópran, og Dalton Baldwin, píanó. Lög e. Schubert, Mozart, Zan- donai, Respighi, Pratella, Cimara og Strauss. Langholtskirkja, kl. 17.00. Ámesingakórinn — stj. Sigurður Bragason. Samkór Selfoss — stj. Jón Kristinn Cortes. Árnesinga- kórinn — stj. Loftur S. Loftsson. Sunnudaginn, 29. april Hallgrímskirkja, kl. 17.00. „Trompeteria." Ásgeir Steingr- ímsson, Láras Sveinsson, Eiríkur Öm Pálsson. Verk e. Gabrielli, Wilkes, John Bull, Dubois, Vi- vianí, de Lassus og fl. Duus hús, „Heiti potturinn" kl. 21.30. Kvartett Friðriks Theodórssonar. Friðrik Theódórsson, skattsöngur og básúna, Davíð Guðmundsson, gítar, Tómas R. Einarsson, kontrabassi, Guðmundur R. Ein- arsson, trommur. Mánudaginn, 30. april Bústaðakirkja, kl. 20.30. Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík. Sigurdríf Jónatans- dóttir, messósópran, Hlíf Kára- dóttir, sópran, Unnur Vilhelms- dóttir, píanó — stj. Bernharður Wilkinson. Verk ungu tónskáld- anna og verk e. Wagner, Verdi, Rossini, Gluck, Shostakovits. Þriðjudaginn, 1. mai Hafharborg, kl.15.30. Jazztónleikar — Carl Möller, píanó, Eggert Pálsson, slagverk o.fl. Miðvikudaginn, 2. mai Norræna húsið, kl, 12.30. Háskólatónleikar. Pétur Jónas- son, gítar, Kolbeinn Bjarnason, flauta, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Guðríður Sigurðardóttir, píanó, Eggert Pálsson, slagverk. Dansar dýrðarinnar e. Atla Heimi Sveinsson. Norræna húsið, kl. 20.30. Tónlistarskólinn í Reykjavfk — einleikarapróf. Vigdfs Klara Ara- dóttir, saxófón, Helga Biyndís Magnúsdóttir, píanó, verk e. Cimarosa, Heiden, Noda, Maurice og Debussy. Samantekið af Rut. Magnússon og Kristínu Sveinbjarnardótt- ur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.